Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ; FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
45
Ársþing Bridssambands íslands:
Bridshátíð í janúar verður
stærsta verkefni næsta árs
Sejfossi, 26. október.
Ársþing Bridssambands ís-
lands var haldið á Selfossi í
dag laugardaginn 26. okt. í
Inghóli. Á þinginu var sam-
bandinu afhent íbúð að gjöf
frá Guðmundi Kristni Sigurðs-
syni síungum áhugamanni um
brids og keppnisstjóra á mót-
um í 45 ár.
Guðmundur Kr. Sigurðsson er
þekktur um allt land fyrir eldlegan
áhuga sinn á bridsíþróttinni og
góða mótsstjórn. Gjöf Guðmundar
er sambandinu mikill styrkur því
eitt aðalverkefni þess næsta ár
verða húsnæðismál. Þingið sam-
þykkti að stjórnin ynni að því að
útvega sambandinu húsnæði og
auk þess stofnun sjóðs með nafni
Guðmundar Kr. Sigurðssonar.
Sjóðnum er ætlað að styrkja hús-
næðiskaup sambandsins.
Á þinginu yar samþykkt að
samræma verðlaunaveitingar á
mótum sambandsins þannig að
verðlaunagripir verði veittir fyrir
3 efstu sætin. Þá kom unglinga-
starf innan sambandsins til um-
ræðu og var það samdóma álit
Guðffiandar Kr. SignrAmon, ávarpar
þingfulhrúa en hann g*f samband-
inu íbúð í Rey kjavík.
fulltrúa að það þyrfti að auka.
Mikill áhugi var fyrir því hjá
fulltrúum að sambandið héldi mót
sín utan höfuðborgarsvæðisins.
Sannast hefur að mót utan höfuð-
borgarinnar eru ekki síður sótt og
má í því sambandi nefna mót sem
haldið var á Selfossi fyrir skömmu
þar sem þátt tóku 30 pör víða að
af landinu.
í stjórn sambandsins voru
kjörnir: Forseti Björn Theodórs-
son, varaforseti Örn Arnþórsson,
gjaldkeri Guðmundur Eiríksson,
ritari Esther Jakobsdóttir, með-
stjórnendur Gunnar Berg, Björn
Eysteinsson og Jón Baldursson.
Bridssamband íslands saman-
stendur af 46 félögum um allt land
sem í eru 2.500 félagar. Stærsta
verkefni sambandsins á komandi
starfsári er bridshátíð 17.—20.
janúar þar sem erlendar keppnis-
sveitir verða gestir. Þeirra á meðal
má nefna Alan Sonntag frá Banda-
ríkjunum. Sérlegur boðsgestur
verður Zia Mahmood frá Pakistan
og búið er að bjóða Austurríkis-
mönnum sem eru Evrópumeistar-
ar.
Sig. Jóns.
Morgunbla&ið/Sig. Jóns.
Nýkjörin stjórn Bridssambands íslands aftari röA: örn Arnþórsson varafor-
seti, Björn Eysteinsson, Jón Baldursson, Guðmundur Eirfksson gjaldkeri.
Fremri röA: Gunnar Berg, Björn Theodórsson forseti, GuAmundur Kr. Sig-
urðsson heiðursfélagi og Esther Jakobsdóttir rítarí.
Þingfulltrúar á áraþingi Bridaaambands tslands.
GEGN VEIKINDADÖGUM, SLÖKUM AFKÖSTUM OG VANLÍÐAN
Leynivopniö í Labofa stólnum er
sérstakur hreyfibúnaöur, umfram
þaö sem gerist í bestu stólum.
Hann stjómar hægri breytingu á
stöðu setunnar meöan þú situr.
Svo hægri breytingu, að þú verður
hennar ekki var, en hryggiarliöir
bínir kunna vel að meta hana.
Þess vegna stendur þú hressari upp
af Labofa stól en öðrum stólum.
Hreyfingin hefur dregiö úr óþæg-
indum kyrrsetunnar.
Að sjálfsögðu er Labofa stóll einnig
búinn öllum stillimöguleikum
sem þú þekkir-og nokkrumaðauki.
Stillingarnareru bæði auðstýranlegri
og nákvæmari en þú átt að venjast,
enda stóllinn allur hin vandaðasta smíð.
hú kemst strax að raun um það
þegar þú kemur og sérð hann
í „hvíta húsinu" okkar,
rétt við Vesturlandsveginn.
~~~ 1 jg' ————— $$ " — 1 ' ——-——
KRISDÁN SIGGEIRSSON SKRIFSTOFUHUSGOGN Hesthálsi 2-4-sími 672110