Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1986
Bandalag jafnaðarmanna:
Ráðherrar víki
sem þingmenn
Myndi fjölga þingmönnum um tíu,
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins
„Ráðherrar eiga samkvæmt
embættisstööu sinni sæti á Al-
þingi en eiga þar ekki atkvæðis-
rétt.“ Þannig hljóðar frumvarps-
grein sem Kristín Kvaran, Banda-
lagi jafnaðarmanna, mælti fyrir í
neðri deild Alþingis í gær, til
breytingar á stjórnarskrá lýðveld-
isins íslands.
Kristín Kvaran (BJ) sagði
Bandalag jafnaðarmanna
leggja áherzlu á nauðsyn þess
að styrkja löggjafarhlutverk
þingsins og sjálfstæði þess
gagnvart framkvæmdavaldinu.
Löggjafinn á að setja leikreglur
og hafa strangt eftirlit með því
að þeim sé framfylgt. Hún sagði
að ráðherrar ættu að sitja á
þingi en án atkvæðisréttar.
Þegar þingmenn verði ráðherr-
ar eigi varamenn þeirra að taka
við þingmannsstarfi þeirra.
Jón Baldvin Hannibalsson (A)
sagði hér horft til norskrar
fyrirmyndar. Hugmyndin væri
ekki ný. Alþýðuflokkurinn hefði
áhuga á þessari tillögu. Hún
væri hinsvegar ekki auðveld í
framkvæmd. Hér væru tíu ráð-
herrar (sem svara myndi til
6000 slíkra í Bandaríkjunum
miðað við höfðatölureglu). I
framkvæmd fjölgaði þvl þing-
mönnum um tíu, ef frumvarp
þetta yrði samþykkt óbreytt.
Fleira þyrfti því til að koma,
samtímis, svo sem fækkun þing-
manna, t.d. í 25 til 30 þingmenn,
samhliða því að þingnefndir
störfuðu árið um kring með
aukið eftirlitshlutverk.
Fleiri tóku til máls. Hjörleifur
Guttormsson (Abl.) taldi frum-
varpið þess vert að gaumgæfa
það vel.
Fmmvarp til umferðarlaga:
Fyrirbyggjandi
slysavarnir
mikilvægastar
— sagði Salome Þorkelsdóttir
JÓN Helgason, dómsmálaráðherra,
mælti í gær fyrir endurfluttu stjórn-
arfrumvarpi til umferðarlaga, vióa-
miklum frumvarpsbálki í 17 efnis-
köflum og 122 frumvarpsgreinum.
Frumvarpió er samið af umferðar-
laganefnd. Tilgangur endurskoðunar
gildandi umferðarlaga er tvíþættur,
að sögn ráðherra. Annarsvegar er
Ijóst að þau eru ófullkomin og sums
staðar beinlínis úrelt. Hinsvegar
þykir nauðsyn standa til þess að
samræma umferðarlög hér, eftir því
sem kostur er, umferðarlögum ann-
arra þjóða og alþjóðasamningum um
uraferð.
Helztu breytingar
Samkvæmt því sem segir í grein-
argerð með frumvarpinu eru
helztu breytingar, sem það felur í
sér, þessar:
* Skilgreining á hugtökum er
gerð skýrari. Sem dæmi má nefna
að vélknúin ökutæki, sem aka
hægar en 30 km á klukkustund,
teljast ekki bifreið.
* Ljósatími er ákveðinn allan
sólarhringinn frá 1. október til 1.
apríl.
* Vernd barna og fatlaðra er
aukin.
* Ákvæði eru um vistgötur.
* Reglum um skyldur við um-
ferðaróhöpp er breytt.
* Nánari ákvæði eru um fram-
úrakstur.
* Skyldur ökumanna gagnvart
gangandi eru ítarlegri.
* Heimilt er að aka á allt að 80
km hraöa á klukkustund á vegum
með bundnu slitlagi utan þéttbýlis.
* Ökuhraði vélsleða er bundinn
við 30 km á klukkustund.
Mörg fleiri nýmæli eru í frum-
varpinu.
Frumvarpið verði að
lögum á þessu þingi
Salome Þorkelsdóttir (S) fagnaði
því, hve snemma þings frumvarp
þetta er lagt fram. Líklegt væri
að það yrði að lögum á þessu þingi.
Alla vega stæðu líkur til að það
fengi fullnaðarafgreiðslu úr efri
deild, með eðlilegum breytingum.
Meiri vafi væri á framgangi þess
í neðri deild. Hún minnti á að
frumvörp um umferðarmál, sem
efri deild afgreiddi á liðnu þingi,
hefðu ýmist verið svæfð í neðri
deild (frumvarp um ljósatíma) eða
felld (frumvarp um viðurlög við
að nota ekki bilbelti, sem féll á
jöfnum atkvæðum í neðri deild á
sl. vori).
Hún fagnaði því sérstaklega að
áherzla væri lögð á fyrirbyggjandi
aðgerðir í þessu frumvarpi. Hins
vegar vantaði þar sitt hvað, svo
sem ákvæði um sérstaka rann-
sóknarnefnd umferðarslysa (hlið-
stæða rannsóknarnefnd sjóslysa).
Salome taldi ónógum fjárveiting-
um varið til slysavarna í umferð.
Umferðarráð teldi að verja þyrfti
10,9 m.kr. til þessara hluta næsta
ár, þar af 3 m.kr. til að kynna og
fvlgja eftir nýjum umferðarlögum.
Aætlun stæði hinsvegar aðeins til
5,7 m.kr. fjárveitingar. Hún minnti
á þann mikla árangur í fækkun
slysa sem náðist með samátaki
þegar hægri umferð var tekin upp.
Til mikils væri að vinna, fyrst og
Stjórnarfnimvarp um skráningu
skipa var lagt fram á þingi í gær
(endurflutt). í athugasemdum meó
frumvarpinu segir efnislega að færst
hafi í vöxt að skipastóllinn hafi verið
endurnýjaður með „þurrleigu og
kaupleigu". Þurrleiga þýðir leigu til
ákveðins tíma og að leigutaki manni
skip, greiði allan rekstrarkostnað,
beri ábyrgð á viðhaldi, tryggingum
o.sv.fv. Skipin séu oft leigð með
kauprétti en fjárhagsleg skuldbind-
ing leigutaka takmarkist við leigu-
greiðslu á leigutímabilinu. Skip, sem
hér um ræðir, er ekki hægt að skrá
hér á landi að óbreyttum lögum.
Frumvarpið felur það hinsvegar í sér
og tekur þar mið af hliðstæðum
ákvæðum í loftferðalögum.
Tannvidgerðir og skatt-
afsláttur
Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri
þingmenn úr þremur þingflokkum
flytja frumvarp til breytinga á
tekjuskattslögum. Samkvæmt
frumvarpinu skulu þeir, sem haft
fremst í fækkun dauðaslysa og
slysa sem leiddu af sér örkuml, en
einnig í minna eignatjóni. Vinna
þyrfti skipulega og markvisst að
fyrirbyggjandi aðgerðum í slysa-
vörnum í umferð.
Fleiri tóku til máls. Umræðunn-
ar verður nánar getið á þingsíðu
Mbl. síðar.
hafa „veruleg útgjöld vegna tann-
viðgerða" svo gjaldþol viðkomandi
„skerðist verulega af þeim sökum"
falla undir skattívilnunarákvæði
66. gr. viðkomandi laga.
Fyrirspurnir
Gunnar G. Schram (S) spyr
dómsmálaráðherra, hvað líði
framkvæmd ályktunar Alþingis
frá í júni 1985 um að ríkisstjórnin
skipi nefnd til að semja frumvarp
að almennum stjórnsýslulögum og
leggi fyrir Alþingi svo fljótt sem
verða má.
Helgi Seljan (Abl) spyr sjávar-
útvegsráðherra hvað valdi verk-
efnaleysi loðnubræðslu í Reyðar-
firði meðan löndunarbann er í
öðrum höfnum.
Geir Gunnarsson (Abl.) spyr
fjármálaráðherra, hver kostnaður
hafi verið af kaupum ríkissjóðs og
endurbótum á húseigninni Laug-
arvegur 166, Víðishúsi. Hver er
áætlaður kostnaður við að ljúka
endurbótum á húsinu?
Ný þingmál:
„Þurrleiga og
kaupleigau skipa
Samtökin Sólarsetur:
Boðin milliganga á sölu
29 raðhúsa á Spáni
Stjórn Sólarseturs skipa sjö manns, en á blaðamannafundinum voru, frá
vinstri: Thorben Friðriksson, Guðjón Jónsson, Gestur Ólafsson og Runólfur
Sæmundsson. Á myndina vantar Jóhann Einvarðsson, Ásthildi Pétursdóttur
og Hans Jörgensen.
SAMTÖKUNUM Sólarsetur hefur
nýverið borist tilboð um að hafa
milligöngu um sölu á 29 raðhúsum
á meginlandi Spánar á um 550.000
krónur hvert raðhús. Heildarkostn-
aður húsanna yrði því um 16 milljón-
ir króna ef gjaldeyrisyfirfærsla fæst
fyrir húsunum frá íslenskum stjórn-
völdum. Ef af kaupunum getur orðið
fengju samtökin þrítugasta húsið
frítt fyrir sameiginlega þjónustu
fyrir væntanlega ibúa hinna húsa.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi er haldinn var til kynningar
tilboðsins. Stjórnarmenn Sólarset-
urs fóru sjálfir til Spánar fyrir
mánuði til að kanna möguleika bæði
á leigu og kaupum á fasteignum í
sólarlöndum fyrir félagsmenn. Þeir
sögðust hafa komist í samband við
ýmsa aðila sem buðu nánast flesta
hugsanlega möguleika allt frá leigu
upp í kaup og vildtt þeir giarnan
auka tengsl landanna.
Stjórn félagsins leitaði strax eftir
heimild til nauðsynlegrar gjaldeyr-
isyfirfærslu til viðskiptaráðuneytis-
ins; en enn hefur ekkert svar borist.
Akveðið hefur verið að halda
framhaldsstofnfund félagsins að
Hótel Borg nk. sunnudag kl. 14.00
en samtökin voru stofnuð 27. júní
sl. í þeim tilgangi að koma á fót
dvalaraðstöðu fyrir fullorðna Is-
lendinga á félagslegum grundvelli í
sólarlöndum.
Gestur Ólafsson, formaður stjórn-
ar Sólarseturs, sagði að þetta væri
fjárfesting sem vel gæti skilað góð-
um hagnaði. „Bæði eru húsin ódýr
miðað við innflutt sumarhús sem
reist eru hér á landi og eins geta
íslendingar, sem vilja festa kaup á
slíkum húsum í sólarlöndum, leigt
þau íslenskum ferðaskrifstofum yfir
sumartímann og dvalið á íslandi á
sumrin. Eins er mikill hörgull á
leiguhúsnæði yfir vetrartímann f
Reykjavík fyrir skólafólk svo að fólk
yrði ekki i vandræðum með leigu á
íbúðum sínum hérlendis á meðan
það dveldi í sólinni yfir veturinn,"
sagði Gestur.
Húsin verða afhent fullfrágengin
að utan sem innan. Húsin eru í
bænum Torreviéja á Costa Blanca,
sem er 30 km fyrir sunnan Alicante.
„Þetta er kostahoð sem stendur ekki
endalaust svo að við vonumst til að
fá svar sem fyrst frá viðskiptaráðu-
neytinu viðvíkjandi gjaldeyrisyfir-
færslu. Öll Norðurlöndin nema ís-
land hafa fest kaup á svipuðum hús-
um í sólarlöndum fyrir ellilífeyris-
þega. Við teljum að það sé skylda
okkar að gefa ellilífeyrisþegum, sem
unnið hafa sleitulaust allt sitt líf,
tækifæri á að njóta ellinnar við góð-
an aðbúnað," sagði Gestur Ölafsson.
Hljóðvarp:
Hvað er
stjórnar-
andstaðan
að gera?
Fulltrúar stjórnarandstöðu
munu koma fram í hljóðvarpi í
kvöld, fimmtudagskvöld, og
svara spurningum fréttamanns,
Atla Rúnars Halldórssonar: 1)
hvað er stjórnarandstaða? - 2)
hvað er hún að gera?
Talsmenn stjórnarandstöðu,
sem fram koma í þættinum,
verða: Svavar Gestsson, Al-
þýðubandalagi, Sighvatur
Björgvinsson, Alþýðuflokki,
Kolbrún Jónsdóttir, Bandalagi
jafnaðarmanna, og Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, Sam-
tökum um kvennalista.