Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985 :K,1 r ,: ■ ■■ *■* ■■■ ■■■M^plili . ■ ■ ■ TiHT, Ti■■ ■■BS*S®M >; -4ÍÍŒ53j Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum. Á efstu hæó skólans er Stýrimannaskólinn til húsa. Morgunblaðið/Guðlaugur. Vestmannaeyjar: Miklar framkvæmd- ir á vegum bæjarins VesUnimuejjuin, 28. október. BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja bryddaði uppá þeirri nýlundu að bjóða full- trúum fjölmiðla til fundar þar sem kynntar voru helstu verklegar fram- kvæmdir og fleira er varðar starfsemi bæjarins. Farið var í skoðunarferð í Framhaldsskólann, nýja Hamarsskólann og skoðaðar framkvæmdir við ann- an áfanga íbúða aldraðra. Hér verður getið þess helsta sem fram kom á fundinum með bæjarráðsmönnum. næðinu fyrir 2,5 milljónir kr. og eru þar meðtalin kaup á tækjum og áhöldum. Nemendur á haust- önn eru rúmlega 200. Öldunga- deild var sett á stofn við skólann í haust með rúmlega 40 nemendur þrátt fyrir að fjárveiting væri ekki komin frá ríkinu en hennar er von í haust eða byrjun næsta árs. Bæjarstjórn hefur einróma samþykkt að undirbúa byggingu verknámshúss í tengslum við Framhaldsskólann og hefur verið sótt um fjárveitingu til byrjunar- framkvæmda á næsta ári úr ríkis- sjóði. Stýrimannaskólinn Árið 1982 flutti Stýrimanna- skólinn i framtíðarhúsnæði sitt á efstu hæð Gagnfræðaskólahúss- ins. Það hefur jafnan háð starf- semi skólans að ekki skuli vera til staðar heimavist við skólann. Á vegum bæjaryfirvalda, skóla- nefndar, fjárveitingavaldsins og þingmanna Suðurlandskjördæmis er nú unnið að varanlegri lausn þessa máls. íbúðir aldraðra í mars á þessu ári hófust fram- kvæmdir við annan áfanga íbúða fvrir aldraða með 6 söluíbúðum. Áður hafa verið teknar i gagnið aðrar 6 íbúðir og eru bæði húsin í túngarðinum hjá Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra, og þangað geta íbúar húsanna sótt þjónustu. Gert er ráð fyrir að afhenda hinar nýju íbúðir þann 15. desember nk. en umsóknir um þær voru 15 og var dregið úr umsóknum. Áætlað heildarverð hússins er 13 milljónir en hlutur bæjarsjóðs í húsinu er 35% vegna sameignar. í húsinu eru þrjár gerðir íbúða. 58,1 ferm. hjónaíbúð sem mun kosta 1550 þús. kr., 52,3 fm hjónaíbúð kostar 1450 þús. kr. og 40,3 fm einstakl- ingsíbúð kostar 1250 þús. kr. Þetta er áætlað verð fbúðanna. Bæjar- stjórn hefur samþykkt að haldið verði áfram með byggingu ibúða fyrir aldraða þarna á svæðinu við Hraunbúðir og í næsta áfanga verður gert ráð fyrir 8—12 íbúð- um. Þá eru í gangi viðræður við stéttarfélögin í bænum um hugs- anlegt samstarf varðandi frekari byggingu íbúða fyrir aldraða Vestmanneyinga. Það kom fram á fundinum með bæjarráðsmönnum að samkvæmt fjárhagsáætlun sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi 20. febrúar sl. voru tekjur áætlaðar 126,8 milljónir en raunveruleg álagning var 7,8 milljónum hærri eða 134,6 milljónir. Miðað við 17. október nam innheimta bæjargjalda 57,2% miðað við nettó álagningu og er þá ekki meðtalinn ónýttur persónuafsláttur og barnabætur sem greiðist beint frá ríkinu. Sé tekið tillit til þessa nemur inn- heimtuhlutfallið 60,2%, er það heldur lakara hlutfall en á sama tíma 1984. Stærsti útgjaldaliður bæjar- sjóðs eru vinnulaun en f fyrra greiddi bæjarsjóður 70,5 milljónir í vinnulaun. Bæjarráð Vest- mannaeyja var sett á stofn árið 1954 og heldur reglulega fundi á mánudögum. Fundur bæjarráðs í gær var sá 1700. í röðinni. Á reglu- legum fundum bæjarráðs er al- gengur málafjöldi 10—15 og eru það aðallega erindi frá samtökum, stofnunum og einstaklingum auk fundargerða hinna ýmsu nefnda. I bæjarráði nú eiga sæti Arnar Sig- urmundsson og Georg Þór Krist- jánsson frá Sjálfstæðisflokki og Sveinn Tómasson frá Alþýðu- bandalagi. Gatnagerð Á gatnagerðaráætlun fyrir árið 1985 eru áætlaðar 24 milljónir auk viðbótarfjárveitingar sem lögð var til lagfæringa á Heiðarvegi. Þann 30. sept. hafði verið unnið fyrir alls 23 milljónir. Af verklegum framkvæmdum bæjarins á þessu ári fara um % hlutar í gatnagerð. í sumar var unnið við malbikun á Helgafellsbraut, Heimagötu, Bú- hamri, Sóleyjargötu, hluta Hraun- túns og Höfðavegar. Þá var lagt malbik á hluta Binnabryggju og Heiðarvegs og unnin ýmis verk fyrir fyrirtæki víðsvegar um bæ- inn. Unnið var við jarðvegsskipti á Strembugötu og Flötum. Þá eru framundan jarðvegsskipti í Bröttugötu, Brekkugötu og Fjólu- götu. Lagt var út malbik í sumar á , 2,8 km og kantsteinar voru lagðir á tæplega 3 km. Unnið verður að lagningu gangstétta á Brimhóla- braut og einnig við holræsi og niðurföll. Veðurblíðan í sumar lék við starfsmenn bæjarins og gengu allar framkvæmdir mjög vel. Hamarsskóli 1 haust var að mestu lokið inn- réttingum í B-áfanga Hamars- skóla og er áætlaður kostnaður við skólann, nýbyggingu og kaup á tækjum og áhöldum kominn í 7,8 milljónir á þessu ári. Bæjarsjóður hefur lagt út verulegt fjármagn fyrir ríkissjóð vegna byggingar Hamarsskólans og skuldar ríkið nú 10 milljónir vegna skólans, en það hefur verið einróma ákvörðun bæjaryfirvalda að vinna hraðar en sem nemur fjárveitingum ríkisins. Hlutur ríkisins í byggingu grunnskóla er 50%. Næsti áfangi í uppbyggingu Hamarsskóla er bygging stjórnarálmu og er vilji til þess að steypa hana upp á árinu 1986 og hefur verið sótt um fjár- veitingu í samræmi við það. Framhaldsskólinn Bókleg kennsla Framhaldsskól- ans flutti í framtíðarhúsnæði 1 gamla Gagnfræðaskólahúsið í haust er skólastarf hófst. Unnið var að ýmsum breytingum á hús- t Þökkum auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför MAGNEU ÓLAFAR MAGNÚSDÓTTUR, Aöalgötu 6, Keflavík. Systkinin. Róðrarkeppni MR: Lið úr 6. bekk sigraði eftir harða baráttu við 3. bekkinga RÓÐRARKEPPNI Menntaskól- ans í Reykjavík var haldin sl. laug- ardag á Tjörninni, en þetta er í fyrsta skiptið sem slík róðrar- keppni er haldin á vegum félagsins. Sjötíu og tveir þátttakendur voru skráðir til leiks og skiptust þeir í 18 lið úr öllum bekkjum skólans, 3. 4. 5. og 6. bekk. í hverju liði voru fjórir keppendur og voru meðlimir hvers liðs úr sama bekknum. Sigurvegari varð lið úr 6. bekk, sem sigraði eftir harða baráttu við 3. bekkjar lið. Sigurvegararn- ir eru: Sigurjón Árnason fyrir- liði, Sigurður P. Snorrason há- seti, Einar M. Júlíusson háseti, og Jón Geir Þormar háseti. Þeir fengu verðlaunapeninga sem róðrarfélagið lét útbúa fyrir keppnina. Einnig var kosinn Ræðari MR ’85, ólafur S. Arnarson, og fékk hann litla gullár að launum. Bjarni Ragnarsson, forseti róðrarfélagsins, sagði í samtali Nokkrir keppendur í róðrarkeppni Menntaskólans í Reykjavík sem frara fór á Tjörninni á laugardaginn. við Morgunblaðið að Róðrarfélag MR væri orðið ævagamalt. „Það var endurreist árið 1971 en starf- aði þá aðeins í tvö ár. Síðan var félagið endurreist árið 1982 og hefur síðan þá starfað í núver- andi mynd. Stefnt er að því að halda slíkar keppnir árlega. Tveir kanóar voru fengnir að láni hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur, en félagið á enga báta sjálft og því gafst lítill tími til æfinga." raöauglýsingar raöauglýsingar raöauglýsingar | fundir — mannfagnaöir Árshátíð Þinghólsskóla og Kársnesskóla árg. 1957, 1958, 1959 og 1960 veröur haldin á morgun föstudaginn 1. nóv. í: Ríó Smiðjuvegi 1. Árshátíð Ungmennafélags Breiöabliks veröur haldin laugardaginn 2. nóv. í: RíóSmiðjuvegi 1. Ráðstefna um Mývatn og Laxá í Norræna húsinu 2. og 3. nóv. 1985. Fjallaö verður sérstaklega um helstu þætti lífríkis Mývatns og Laxár og áhrif starfsemi Kísilverksmiöjunnar á þaö. Ráðstefnan hefst laugardaginn 2. nóv. kl. 9.00 og lýkurkl. 17.00sunnudaginn3. nóv. Á laugardag veröa fyrirlestrar um fugla, fiska, botndýr, efnabúskap o.fl. Á sunnudag veröa drög aö rannsóknaáætlun kynnt og umræöur um þau. Allir velkomnir. Ná ttúru verndarráð. Verkamannafélagið Dagsbrún Almennur félagsfundur veröur haldinn sunnu- daginn 3. nóvember nk. kl. 14.00 í lönó. Dagskrá: Félags- og kjaramál. Stjórn Dagsbrúnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.