Morgunblaðið - 31.10.1985, Side 14

Morgunblaðið - 31.10.1985, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985 Bragfræði og háttatal Bókmenntir Erlendur Jónsson Sveinbjörn Beinteinsson: BRAGFRÆÐIOG HÁTTATAL. Hörpuútgáfan, 1985. Sveinbjörn Beinteinsson rís eins og stakur drangur fjarri alfara- leiðum íslenskrar nútímaljóðlist- ar. Hann er rimnamaður. En rím- urnar, segja sumir, að liðið hafi undir lok með Sigurði Breiðfjörð; og eiga þá við að rímur þær, sem síðar hafi verið ortar, hafi menn sett saman sér til dægrastyttingar og í eins konar endurminninga- skyni, ræktarsemi við gamla hefð. Eða bara rælni. Svo mikið er þó víst að andi rímnanna lifir enn í stökunni, lausavísunni. Þráðurinn frá rímnakveðskapnum er ekki að fullu rofinn meðan hún lifir. Þessi bragfræði Sveinbjörns Beinteinssonar er um 80 síður en mikil að efni, meirihlutinn hátta- tal. Sá, sem ætlaði sér að blaða í gömlum rímum, skyldi ekki ganga fram hjá henni. Hitt er álitamál hversu almennur vídeó-borgari eða skólatorfsklyfberi á níunda tug tuttugustu aldar gæti botnað í fræðum þessum, svo sem í eftir- farandi málsgreinum: »Tíu bragflokkar eru víxlrímað- ir. Þeir geta einnig verið skárímað- ir eða samrímaðir. Svo geta þessir flokkar verið fráhendir og ská- hendir og skáhendan skárímuð.* Sveinbjörn upplýsir að »þríliður er alls ekki til i rímnaháttum*. Þríliður var eftirlæti sumra skálda um aldamótin síðustu, t.d. Steph- ans G., einnig Þorsteins Erlings- sonar. Líkast til hefur þeim þótt þríliðurinn gefa hrynjandinni aukna áhersiu, slagkraft. En Sveinbjörn segir að »fáir yrkja þríliðuhætti svo vel fari,« og er auðvelt að fallast á það. Bragfræði og háttatal kom fyrst út 1953, þetta er önnur útgáfa. Sitthvað hefur náttúrlega breyst á þrjátíu árum. En hvað um þessa athugasemd Sveinbjörns? »Þrátt fyrir mörg og góð ljóðskáld á síð- ustu áratugum, þá get ég trúað því, að þetta sé einkum tímabil vísnanna, og endilega held ég, að þeim sé yfirleitt helzt lífvænt af því, sem ort er nú á landi hér.« Þessi orð lýsa ærnum metnaði og ýtrustu bjartsýni fyrir hönd þeirra sem halda vilja f forna, íslenska braghefð. Hitt er rétt að tímabil vísnanna er alls ekki liðið. Allir viðurkenna að rímnakveð- skapurinn hafi verið góður skóli fyrri tíma kynslóðum, t.d. í þá veru að viðhalda málinu og varðveita tengsl við fornan bókmenntaarf. Sveinbjörn leggur áherslu á að rétt sé farið með ljóðstafi og segir þá m.a. — og kveður fast að orði: »Margir rugla saman hv og kv í stuðlum. Þessu veldur ósnjall framburður víða umland. Viður- styggð er að sjá slíkt í stuðlun.* En hér er ekki um bragreglur einar að tefla heldur framburð íslensks máls. Því aðeins sjá mál- Sveinbjörn Beinteinsson fræðingar hvar og hvenær tekið var að bera hv fram sem kv og hvernig sá framburður breiddist smámsaman út um landið að jafn- skjótt sem hætt var að gera grein- armun á þessum hljóðum í daglegu tali varð hið sama uppi á teningn- um í Ijóðstafasetningunni. »Rímur hafa oft verið ortar þannig að þær hafa skáldskapar- gildi,« segir Sveinbjörn Beinteins- son. Það er auðvitað hverju orði sannara. Einkum eru víða tilþrif í mansöngvum rímnanna. Og vafa- laust eru þeir nokkuð margir sem enn lesa rímur og hafa gaman af. En það gaman er annars konar en rímnaskemmtun fyrri alda kyn- slóða. Sú skemmtun verður tæpast endurvakin hér eftir. Það spillir þessari útgáfu, sem er offsetprentuð, að letur er víða með fádæmum óskýrt. Ég hef ekki í höndum fyrstu útgáfu bókarinn- ar og veit því ekki hvort þetta verður rakið til frumprentunar. Er raunar sama hvort heldur er — engin prentsmiðja á að láta slíkt frá sér fara. VINETTA Vinetta nærbuxur. Mjúkar, þægilegar og falla vel að líkamanum. Framleiddar úr 65% bómull, 32% polyamid og 3% Elastan. Bómull snýr að húðinni og bómullarfrotté í skrefbót. Fást í hvítu og húðlit. Mini - Midi - Maxi. Stærðir 36/38 - 40/42 - 44/46 - 46/48. Heildsölubirgðir: Sambandið verslunardeild. Fatadeild. Dæmisögur um uppreisn Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Guðjón Albertsson: UPPREISN í GARÐINUM. Útgefandi: Skákprent 1985. Guðjón Albertsson hefur ný- lega sent frá sér þriðju bók sína: Uppreisn í jjjarðinum, safn sex smásagna. Áður hafa komið út eftir Guðjón bækurnar Ósköp (1971) og Breiðholtsbúar (1979). í smásögunum leitast Guðjón Albertsson við að spegla samtím- ann, hann dregur upp myndir þess veruleika sem hann þekkir og lesendur hljóta að eiga auð- velt með að setja sig inn í. Yfir- leitt er frásögnin raunsæ, þó með dálitlum ýkjum eins og vera ber, en alltaf með það í huga að vekja til umhugsunar um lífsmynstur venjulegra borgara. Guðjón get- ur varla kallast ádeiluhöfundur í algengri merkingu þess orðs, en honum er tamt að sýna fáfengi- leik og vanda mannlegrar sam- búðar. Skop hans bitnar til dæm- is á fólki sem hallast að yfir- borðsmennsku, telur sig fínna en annað fólk. Vel stæðir borgarar, innst inni menningarsnauðir, fá á baukinn hjá Guðjóni Alberts- syni. En hann hefur samúð með þeim sem geta naumast státað af öðru en veiklyndi sínu. Sagan í kaffitímanum er vel gerð mynd af karli og konu sem lent hafa í sambúðarerfiðleikum vegna óreglu, en eiga enn margt sameiginlegt og ákveða að reyna á ný að vera saman. Þetta er bjartsýn saga úr Reykjavíkurlíf- inu. Sögurnar Uppreisn í garðinum og Dr. Bergström vekja athygli fyrir það að í þeim báðum er glímt við hjónabandsvanda og það gert með frumlegum hætti þótt ýmsir stílrænir ágallar spilli. í Dr. Bergström er að finna ádeiluskop sem hittir í mark. Hjónin í sögunni verða skotspónar háðsins, en engan veginn eru þau gerð tómir ein- feldningar þótt eiginmaðurinn sé í einfaldara lagi og staðlaður eft- ir fastmótaðri uppskrift. Það sem fyrst og fremst bjarg- Guðjón Albertsson ar þessari sögu frá því að verða bitur hjónabandssaga, of auðvelt uppgjör við mannlegar tilfinn- ingar, er hin grátbroslega niður- staða hennar sem leiðir í Ijós að í varnarleysi sínu grípur mann- eskjan til örþrifaráða, enginn er eins slæmur og við höldum að hann sé. Guðjón Albertsson er ekki endilega á þeim buxunum að flytja lesendum sínum siðferð- iboðskap, en sögur hans verða stundum dæmisögur sem ein- hverjir hljóta að geta lært af. Andlit í spegli er til dæmis þannig saga að hana mætti nota til að brýna fyrir mönnum að aka ekki undir áhrifum áfengis. Kvöl manns sem brotið hefur af sér undir slíkum kringumstæðum kemur glöggt fram í sögunni og er nokkuð sannfærandi á köflum. Uppreisn í garðinum er smá- sagnasafn sem fjallar um það líf sem lifað er í borgarsamfélagi dagsins í dag. Hér hefur einkum verið bent á kosti safnsins. Helstu gallar sagnanna eru ómarkviss og lítt agaður stíll, til- hneiging til að skrifa prósa sem verður á engan hátt eftirminni- legur, er ekki nógu metnaðarfull- ur. En höfundurinn hefur frá ýmsu að segja og skortir ekki hugrekki til þess. ísafjarðarkaupstað gefinn skautbúningur Á FUNDI bæjarráðs ísafjarðar 14. október sl. afhentu fulltrúar frá Kvenfélaginu Hlíf og skátafélögun- um á ísafirði kaupstaðnum að gjöf skautbúning ásamt fylgibúnaði. Skrautritað gjafabréf fylgdi gjöfinni með eftirfarandi áletrun: kaupstað að gjöf, skautbúning, bláan kyrtil ásmat blúndusaumuðu milli- „Kvenfélagið Hlíf og skátafélögin lsafirði færa hér með ísafjarðar- pilsi, faldi og gullkoffur, er smíðaður var f Gullhöllinni f Reykjavík. Munstur er málað af Erlu Sig- urðardóttur, Kópavogi, saumaskap önnuðust Hlífarkonurnar Helga Sigurðardóttir og Margrét Jónas- dóttir. Um árabil hafa fyrrgreind félög staðið fyrir þrettándabrennu og álfadansi, sem bæjarbúar hafa stutt með frjálsum fjárframlög- um. Tekjuafgangur hefur stundum orðið f gegnum árin og hefur þá verið lagður i sameiginlegan sjóð og var ákveðið að verja honum til að fjármagna að hluta kaup á skautbúningi. Skautbúninginn skal nota 17. júní og við önnur hátíðleg tækifæri á vegum kaupstaðarins. Farið er fram á að skautbúningnum verði valinn geymslustaður við hæfi í samráði við félögin." Bæjarstjórn ísafjarðar sam- þykkti að búningnum ásamt gjafa- bréfi yrði valinn staður í væntan- legu stjórnsýsluhúsi á Isafirði almenningi til sýnis og ánægju. Bæjarstjórn þakkar gefendum þessa höfðinglegu gjöf og færir þeim sínar bestu kveðjur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.