Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
,,Þegar veturinn gengur
í garo langar mig aftur til
Mayrhofen“
-segir Jóhann Vilbergsson
skíðagarpur
Hollur sjúkdómur
■ Það væri óskandi að allir kæmust
í skíðaferð í Alpana. Hollara ráð
gegn skammdegisdrunga þekki ég
ekki. Ef þú ert ekki með skíða-
bakteríuna fyrir er engu að kvíða.
Það smitast allir á viku í Mayrhofen.
Þeir sem ekki kunna á skíðum innrita
sig bara í skíðaskóla. Eftir nokkra
daga bruna þeir niður brekkurnar -
án þess að detta!
Svona eiga skiðabæir__________
að vera
■ Mayrhofen, áfangastaður Flug-
leiða í skíðalöndum Austurríkis er
Paradís skíðamannsins. Þar snýst allt
um vetraríþróttir. Bærinn er innar-
lega í Zillertal, stutt er á Penken og
Ahorn. Ef maður kaupirsvokallaðan
„Super Ski-Pass“ er frjáls aðgangur
að öllum skíðasvæðunum í dalnum.
Þar nýtur maður lífsins
■ Mayrhofen er ekki bara skíða-
bær. Þegar brekkunum sleppir er úr
mörgu að velja. Ég svamla gjarnan
í sundlaug eða hvíli lúin bein í
heitum potti. Hótelin í Mayrhofen
eru hræðilega þægileg - erfiðast er
að fara úr húsi!
Svo er bærinn fullur af ölstofum,
veitingahúsum og diskótekum. Það
finna allir aldurshópar eitthvað við
sitt hæfi.
Við sjáumst í Mayrhofen!
■ Flugleiðir fljúga beint til Salzburg
- borgar Mozarts - þaðan er aðeins
klukkutíma akstur til Mayrhofen.
Þú getur valið um 5 hótel í mismun-
andi verðflokkum. Sum eru falleg
fjallahótel, önnur bjóða hreinasta
munað. En eitt er víst, ferðin léttir
pyngjuna minna en við mætti búast.
Kynntu þér verðið til að sannfærast!
Brottfarir:
■ Vikuferðir: 15/2, 22/2, 1/3, 8/3,
15/3. 22/3 og 29/3.
■ Tvær vikur: 21/12, 4/1, 18/1, 1/2,
15/2,22/2,1/3, 8/3,15/3,22/3 og 29/3
Tvær vikur frá kr. 21.758;
Fararstjóri Flugleiða í Mayrhofen
er hinn góðkunni Rudi Knapp.
FLUGLEIDIR
Verð miðað við janúar og mars, tveir í herbergi á Hótel Rauchenwald. Flug, ferðir og morgunmatur innifalið.
Sjúkrahús Suðurlands.
Horgunblaðið/Sig. Jóns.
Undirbúningur haf-
inn að stækkun Sjúkra-
húss Suðurlands
Selfossi 27. október.
Á gildandi fjárlögum 1985 liggur fyrir heimild um stækkun Sjúkrahúss
Suðurlands og var veitt nokkru fé til undirbúnings framkvæmda. Nú liggur
fyrir frumáætlun um annan áfanga að byggingu Sjúkrahússins. Áætlunin
er unnin af húsameistara ríkisins. Áætlaður heildarkostnaður við stækkunina
er 156 milljónir króna.
Áfanga II er ætlað að bæta úr
brýnni þörf fyrir aukið legurými
ásamt tilheyrandi þjónusturými.
Einnig er þar gert ráð fyrir stoð-
deildum, læknamóttöku, skrifstof-
um, fundaherbergjum, bókaher-
bergi o.fl.
Samkvæmt staðfestum samn-
ingi frá 1971 er yfirstjórn bygging-
armála í höndum byggingastjórn-
ar Sjúkrahúss Suðurlands og
starfar hún í samráði við heil-
brigðisráðuneytið. Þeir sem skipa
byggingastjórnina í dag eru: Bryn-
leifur H. Steingrímsson læknir,
formaður, ísleifur Halldórsson
héraðslæknir, Páll Jónsson tann-
læknir, Gunnar Sigurðsson skrif-
8tofumaður, Bjarni Einarsson
bóndi, Sigurður óskarsson fram-
kvæmdastjóri og Einar Oddsson
sýslumaður.
Núverandi sjúkrarými sjúkra-
hússins er 61 rúm, í sjúkrahúsinu
við Árveg eru 35 rúm, þar af 4
fyrir sængurkonur og 11 fyrir
bráðatilfelli. í Ljósheimum við
Austurveg eru 26 rúm.
1973 gerði heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið spá um vist-
unarrýmisþörf fyrir Suðurland. í
þeirri spá var gert ráð fyrir að
íbúafjöldi 1985 yrði 15.153 en hann
er 13.450. Vistunarrýmisþörfin var
áætluð alls 103,7 rúm og dvalar-
heimilisrými 90,9 rúm.
Miðað við mannfjölda nú ætti
endurskoðuð rýmisþörf að vera 92
rúm í stað 103. f greinargerð með
frumáætlun að stækkun sjúkra-
hússins er bent á að legudeild
Sjúkrahúss Suðurlands við Aust-
Stúdentaráð HÍ
Harmar niður-
skurð á fjárveit-
ingu til LÍN
FUNDUR var haldinn í Stúdentaáði
Háskóla íslands 16. október sl. og
▼ar eftirfarandi ályktun samþykkt
þá: SHÍ harmar þann niðurskurð á
Qárveitingu til Lánasjóðs íslenskra
námsmanna sem gert er ráð fyrír í
frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1986.
Jafnframt skorar Stúdentaráð
Háskóla íslands á menntamála-
ráðherra og alþingismenn að beita
sér nú þegar fyrir að full fjárþörf
Lánasjóðsins fyrir árið 1986 verði
tryggð.
urveg er í bráðabirgðahúsnæði þ.e.
26 rúm af 61, og að áformað sé að
breyta því seinna í dvalarheimili.
Þörfin til stækkunar sjúkrahúss-
ins er því 47 rúm.
í áðurnefndri greinargerð er
Suðurland borið saman við aðra
landsfjórðunga og bent á að fjórð-
ungurinn sé mjög illa staddur með
4.4 rúm á hverja 1.000 íbúa á
meðan Norðurlandskjd. vestra sé
með 14,4 rúm, Norðurland eystra
með 7,8 rúm og Austurland með
6.4 rúm á hverja 1.000 íbúa.
Hinni nýju álmu sjúkrahússins
hefur verið valinn staður vestan
við 1. áfanga og mun hún tengjast
núverandi byggingu með álmu þar
sem gert er ráð fyrir skrifstofum
á 1. og 2. hæð og endurhæfingu í
kjallara. Legudeildir verða á 1. og
2. hæð nýju aðalálmunnar. 1 ætlun
um stækkun hússins er sýndur
stækkunarmöguleiki, að bæta 3.
hæðinni ofan á nýju álmuna.
1 frumáætlun að stækkuninni
er gert ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist 1986 við hönnun og jarð-
vinnu, uppsteypu verði lokið 1987,
legudeildir kláraðar 1989 og
stækkun fulllokið 1990.
Miðað er við að unnt verði að
taka einstakar hæðir í notkun óháð
því hvort öðrum er að fullu lokið.
Legudeildum í 2. áfanga og í
hugsanlegri stækkun, 3. áfanga,
er einkum ætlað að þjóna sem
langlegudeildir. Með tilkomu
þeirra verður núverandi rými
sjúkrahússins skipt í rými fyrir
bráðatilfelli, bæði lyflæknis- og
handlæknissjúklinga og þeim
hluta hússins sem nú er nýttur sem
langlegudeild breytt í kvensjúk-
dóma- og fæðingadeild.
Markmiðin með stækkun
Sjúkrahúss Suðurlands eru þau að
leysa bráðaþjónustu og mjög mikla
langleguþörf. í greinargerð með
frumáætlun að stækkun sjúkra-
hússins segir: „Reynslan hefir sýnt
að þðrf fyrir sjúkrarými langlegu-
sjúklinga er mjög brýn á þessu
svæði og hefir raunar farið vax-
andi. Þetta hefir raskað upphaf-
legum markmiðum um nýtingu
þess sjúkrarýmis (35 rúma) sem
nú eru í sjúkrahúsinu við Árveg.
Þetta hefir m.a. leitt af sér það
að bráðatilfellum hefir ekki verið
hægt að sinna á þann hátt og í
þeim mæli sem í rauninni var
upphaflegur tilgangur sjúkrahúss-
ins, þó að skoðunarherbergi og böð
og jafnvel gangar hafi oftast verið
nýttir."
Sig. Jóns.
Bladió sem þú vaknar vió!