Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
Söltun hjá Suðurvör í Þorlákshöfn:
Salta þær
títt og
salta þær ótt
SÍLDARSÖLTUN og sfldveiðar
hafa lengi haft sérstakt aðdráttar-
afl hér á landi og enn eimir dálítið
eftir af spennunni og eftirvænting-
unni á „ævintýraárunum“ þegar
silfur hafsins malaði gull fyrir
landsmenn. Veiðarnar og söltunin
eru nú með miklu smærra sniði
en þá, en skipta verulegu máli
engu að síður fyrir byggðarlög, sem
búa við nokkrar aflasveiflur og
annars ládeyðu á haustmánuðum.
Morgunblaðsmenn brugðu sér til
Þorlákshafnar fyrir nokkru og
heimsóttu söltunarstöðina Suður-
vör. Þar var verið að salta demant-
sfld úr Djúpinu og gekk það hratt
og vel fyrir sig. Þó minna sé nú
notað af salti í hverja tunnu sfldar
en áður og afkoma saltenda hæpin
að þeirra sögn, má segja að enn
eigi við eftirfarandi Ijóðlínur, sem
ortar voru á „ævintýraárunum“:
„En kerlingafans í hverri höfn
kreppir lófa að hjalti.
Þó þurrausi sjómenn þvera Dröfn,
þær verða sízt að gjalti.
Salta þær títt og salta þær ótt,
salta þær bæði dag og nótL
Þvilík óskapa eyðsla á saltL“
HG
Guðmundur Ólafsson vegur og metur síldina.
Sumarhitinn óhentug-
ur við sfldarsöltunina
— segir Guðmundur Ólafsson, matsmaður
ÉG VONA bara að þessum sumar-
hitum fari að Ijúka. Þeir eru ekki
hentugir fyrir sfldarsöltun vegna
þess hve Iftið salt má hafa I tunnun-
um. Við ætlum þess vegna að reyna
að isa yfir tunnustæðurnar til að
verja þær hita,“ sagði Guðmundur
Ólafsson, matsmaður.
Guðmundur sagði, að síldin
væri bæði góð og stór, en reyndar
aðeins farin að slappast enda
tveggja sólarhringa gömul. Það
væri í það mesta, en sakaði þó
ekki, væri vel frá henni gengið
um borð í bátunum. Hann teldi
það því ekki of langa leið að sigla
með hana úr Djúpinu til Þorláks-
hafnar væri síldin vel ísuð um
borð eins og sú, sem nú væri
verið að vinna. Hann sagði að
Suðurvör hefði aðeins fengið
fyrsta flokks síld og meðan svo
væri gengi ágætlega að fara eftir
hertum reglum ferskfiskmatsins
um meðferð síldarinnar. Allt
byggðist á því, að hún væri í góðu
lagi, þegar komið væri með hana
inn. Það væri helzt sumarhitinn,
sem ylli þeim erfiðleikum vegna
þess, að ekki væri kæling í
geymslunni. Það væri leyfilegt
nú, en á næsta ári yrði lfldega
krafizt kælingar i öllum síldar-
geymslum.
Morgunblaðið/RAX
Tilheyrir
að vinna
eins og
vitlaus maður
segir Ásdís
Garðarsdóttir
ÁSDÍS Garöarsdóttir var að sykur-
salta sfld fyrir Danmörku, salta jóla-
sfldina í Danann eins og hún oröaði
það. Hún er innfædd Þorlákshafn-
armær og hefur unnið við söltun
flest undanfarin haust.
Ásdís sagðist þó vera að leggja
í tunnur í fyrsta sinn og kynni
hún vel við það. Hún þyrfti bara
að komast betur upp á lagið með
að liggja hálfvegis ofan í tunnun-
um og ná upp hraðanum. Borgað
væri sérstaklega fyrir hverja
tunnu með 20% álagi svo það
væri bara að standa sig. Hún
sagðist annars vinna í Meitlinum
og söltunin væri góð tilbreyting
frá frystingunni. Það væri líka
hægt að hafa það betra í söltun-
inni, væri maður duglegur.
Reyndar væri það svo, að það
virtist tilheyra söltuninni að
vinna eins og vitlaus maður.
Ásdís Garðaradóttir gaf sér varla tíma til að Ifta upp, en átti þó bros í
fórum sfnum.
Bjarki Sigurðsson lempar sfldina inn á færibandið.
Góð tilbreyting
segir Bjarki
Sigurðsson
BJARKI Sigurðsson, er kominn
frá Akureyri í sfldina í Þorlákshöfn
og vinnur nú í fyrsta skipti við
sfldarsöltun. Hann segir þetta hálf-
gerða ævintýraþrá.
„Það er alltaf gaman að fást
við eitthvað nýtt. Hér er líka
betra kaup og meiri vinna en á
Akureyri og gaman að breyta um
umhverfi. Ég kom hingað um
miðjan október og kann ágætlega
við mig,“ sagði Bjarki.
Bjarki vinnur í móttökunni við
að lempa síldina á bandið inn í
vinnslusalinn. Þennan dag var
verið að salta síld af Hafnar-
víkinni, sem kom með 60 til 65
lestir af demantssíld úr Djúpinu
og Bjarki kunni greinilega vel
við sig fjarri heimahögum.