Morgunblaðið - 31.10.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
23
Kynnt ferðamálaáætlun fyrir Borgames:
Samræma þarf áætlanir
sérleyfísbifreiðanna
Grindavík:
Þrengsli minnka í skól-
anum með nýrri byggingu
Borgarnesi 24. október.
NÝLEGA var haldinn fundur um
ferðamál í Vesturlandi í Hótel Borg-
arnesi. Framsöguerindi hélt Óli Jón
Ólason formaður Ferðamálaráðs
Vesturlands. Lögð var fram á fundin-
um hugmynd að ferðamálaáætlun til
næstu 10 ára.
I framsöguerindinu sagði óli J.
ólason m.a. að ferðaþjónustan
væri sú atvinnugrein sem væri í
hvað örustum vexti í heiminum í
dag. Um 300 milljónir manna
hefðu ferðast á milli landa árið
1984. Sagði ÓIi að gert væri ráð
fyrir að um 90 þúsund erlendir
ferðamenn kæmu til íslands 1985.
„Við fáum aldrei hærra verð fyrir
fiskinn, eða kjötið okkar, en þegar
við höfum fullunnið vöruna og selt
hana beint til erlendra ferða-
manna, ferðamanna sem við höf-
um flutt til landsins með innlend-
um farkostum," sagði óli J. Óla-
son. Þá ræddi óli um dreifbýlið
og sagði: „Ferðaþjónustan er oft
sú viðbót sem þarf, til að ýmis
konar þjónusta geti þrifist í dreif-
býlinu, ferðaþjónustan er „rjóm-
inn“ sem bjargar fyrirtækinu, eftir
að það hefur orðið að lifa á „undan-
rennu“ 8 til 9 mánuði ársins."
Þá lagði óli J. ólason fram
hugmynd að ferðamálaáætlun
fyrir Borgarnes til næstu 10 ára.
Kvaðst óli hafa unnið þessa áætl-
un samkvæmt eigin hugmyndum
og samkvæmt tillögum frá ferða-
Kiwanis gaf
sjúkrahúsi
290 þús. kr.
UMDÆMISSTJÓRI Kiwanishreyf-
ingarinnar á íslandi, Þór Ingólfsson,
afhenti Geódeild Fjóröungssjúkra-
hússins á Akureyri gjafabréf fyrir
kaupum á ýmsum búnaöi til iðjuþjálf-
unar og lækninga. Nam gjafabréfiö
290.000 krónum og var fjárins aflaö í
síöustu landssöfnun kiwanismanna
29. október 1983 með sölu K-lykilsins
undir kjörorðinu „Gleymum ekki
geösjúkum".
Söfnunarféð nam um 2,3 milljón-
um króna og var það að miklum
hluta afhent Geðverndarfélagi ís-
lands og varið til byggingar endur-
hæfingarstöðvar fyrir geðsjúka að
Álfalandi 15 í Reykjavík. Hún var
tekin í notkun fyrir u.þ.b. ári.
Því fé sem safnast hefur meðal
landsmanna með sölu K-lykilsins
undanfarin ár hefur öllu verið varið
til stuðnings geðsjúkum. Kiwanis-
hreyfingin hefur lagt metnað sinn
í verkefnið og ávallt hlotið góðar
undirtektir almennings.
Þannig var stuðlað að uppbygg-
ingu Bergiðjunnar í Reykjavík, en
hún er verndaður vinnustaður í
tengslum við Geðdeild Landspítal-
ans í Reykjavík, ætlaður fyrir
vinnuþjálfun 40 sjúklinga. Þá var
reist í samvinnu við Geðverndarfé-
lag íslands húsið i Álfalandi 15 en
þar er rekinn svokallaður áfanga-
staður ætlaður til endurhæfingar
7-10sjúklinga.
Ákveðið var að hluti söfnunar-
fjárins á síðasta K-degi rynni til
Geðdeildar Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri og er það afhent nú
þegar líður að þvf að deildin taki
til starfa í nýju húsnæði.
málanefnd Borgarness, en þá
nefnd skipa: Egill Heiðar Gíslason,
Geir Björnsson og Jón Stefán
Karlsson. í áætluninni er verkefn-
um skipt niður á tímabil. Meðal
verkefna á næstu árum má nefna:
samtengingu áætlana þeirra sér-
leyfishafa sem um Borgarnes fara.
Og koma upp sameiginlegri af-
greiðslu allra bifreiðanna. I fram-
tíðinni verði síðan byggð umferð-
ar- og upplýsingamiðstöð með
góðri veitingaaðstöðu, o.fl.
Gera þarf breytingar á Hótel
Borgarnesi og athuga með að koma
upp svefnpokaplássi í bænum og
koma upp tjaldstæði á nýjum stað.
Þá er rætt um bætta þjónustu
verslana, söluskála og bifreiða-
þjónustufyrirtækja. Einnig er
rætt um þörf á fjölbreyttari af-
þreyingu fyrir ferðamenn, og
fleira.
Um 200 aðilar eru að Ferðamála-
samtökum Vesturlands, þar af 11
í Borgarnesi, en Borgarneshreppur
greiðir um 15% af kostnaði sam-
takanna. _ tkþ.
Grindavík 21. október.
NÝLEGA var lokið við að gera
fokhelda nýja byggingu ofan á
gamla álmu grunnskóla Grinda-
víkur. Vonast er til að lokið verði
innréttingum í þessa nýbyggingu
á næsta ári. Þá rætist úr hvað rými
varðar í skólanum. Undanfarið
hefur verið kennt á ýmsum stöðum
úti í bæ við erfiðar aðstæður svo
þörfin er brýn. — Guöfinnur
Ódýr vetmidvöl á
Mallorca fyrir fe>lk
með nægan tima
Nú þegar daginn tekur að stytta getur þú
snúið duglega á Vetur konung með því
að halda til Mallorca og dvelja þar í góðu yfir-
læti á meðan skammdegið ríkir hér heima.
10 vikna dvöl fyrir adeins kr. 39.920,-
Verðið fyrir dvöl á Mallorca er ákaflega
hagstætt. Grunnverð fyrir 4 vikur er kr.
27.900,- í tvíbýli en kr. 34.920,- í einbýli,
2.000,- kr. bætast við á mann fyrir hverja
umframviku. Þannig kostar 10 vikna dvöl fyrir
þig aðeins kr. 39.920,- í tvíbýli.
Ríú-íbúðirnar eru sniðnar fyrir langdvöl.
Gist er á nýju íbúðarhóteli á Palma Nova; Ríú
D'oms. Þar er allur aðbúnaður eins og best
verður á kosið. Splunkunýjar íbúðirnar eru vel
búnar húsgögnum og eldhúsin eru rétt eins og
þú átt að venjast heima hjá þér. Þær eru
skammt frá aðalgötu Palma Nova og aðeins í
örskots fjarlægð frá allri helstu þjónustu.
Allan liðlangan veturinn er ákaflega milt og
gott veður á Mallorca. Rétt eins og þægilegt
íslenskt sumarveður. Þú getur lagt mann-
broddunum með góðri samvisku en sandalar
eru nauðsynlegir!
Ferðatilhögun.
Flogið verður vikulega á miðvikudögum til
Mallorca með viðkomu í London. í Palma tekur
hún Sif fararstjóri á móti þér en hún verður til
halds og trausts á meðan dvölinni stendur.
Starfsfólk Úrvals veitir þér allar nánari upp-
lýsingar um hálkulausar vetrarvikur á
Mallorca.
FERMSKRIFSTOFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan llrval
v/Austuvöll. Sími 26900.