Morgunblaðið - 31.10.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1986
47
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Meng-Tse sagði: Forðist ætíð
reiði, því annars er hætta á að á
einum degi verði sá viður brennd-
ur, sem margar erfiðar vikur hefur
tekið að safna.
Þessi spöku orð falla undir
hyggindi sem vert er að hafa
hugföst alla daga ársins, — hvað
svosem til matar er.
í dag er boðið upp á eina af þessum
einfoldu óvæntu fiskmáltíðum.
Fiskur soðinn
í marinaði
800 g ýsa eða þorskur,
1 stór laukur,
1—2 msk. matarolía,
3 tómatar (300 g),
1 hvítlauksrif,
salt.
1. Tómötunum er brugðið í sjóð-
andi vatn í mínútu eða svo og er
skinninu flett af eins og hýði af
kartöflum. Tómatarnir eru síðan
skornir í litla teninga. Nota má
niðursoðna tómata ef ekki eru til
ferskir tómatar.
2. Laukurinn er saxaður mjög
smátt eða rifinn niður. Hitaðar eru
1—2 msk. af matarolíu á pönnu
og er smátt skorinn laukurinn,
tómatteningarnir og pressað hvít-
lauksrif sett út i og látið krauma
5—10 mín. eða þar til það er komið
í hálfgert mauk. Saltið eftir þörf.
(Það sem hvítlaukurinn gerir er
að hann dregur úr laukbragðinu
og gefur maukinu sætt bragð.
Hvítlauksbragðið hverfur.)
3. Fiskurinn er skorinn í hæfilega
stór stykki, annaðhvort hreinsuð
fiskflök eða fisksteikur úr heilum
hreistruðum fiski. Fiskstykkjun-
um er síðan raðað á maukið á
pönnunni, salti stráð yfir og þau
soðin í maukinu, í lokaðri pönnu,
í u.þ.b. 10 mín. eða þar til þær eru
soðnar i gegn. Þeim er snúið einu
sinni á suðutímanum.
Þessi ágæti en einfaldi fiskrétt-
ur er er borinn fram með soðnum
kartöflum (og grænum baunum ef
vill.)
Verð á hráefni
600 g ýsa kr. 139,00
300 g tómatar kr. 40,00
1 laukur kr. 10,00
kr. 189,00
Meira um egg
Eftir þáttinn síðasta fimmtudag
hafa spurningar komið fram um
eggin og hæfni neytenda sjálfra
til að kanna ferskleika þeirra.
Upplýsingarnar eru upphaflega
fengnar úr bókinni „A concise
Encyclopedia of Gastronamy',
eftir André L. Simon. Hann segir
þar m.a.: „Eggið er ferskara því
fyllra sem það er... Skelin á
egginu er alsett örlitlum holum,
sérstaklega eftir að það hefur verið
þvegið hreint og fint, — því um
leið hefur verið þvegin burtu ör-
þunn himna sem þekur eggið þegar
hænan verpir því.“ Hann varar við
hversu viðkvæm egg eru og ritar:
„Séu egg lögð á ost, eða geymd
með reyktum mat eða lyktarsterk-
um, taka þau til sín bragðið af
nábúanum...
Ef notuð eru egg frá eigin hænu
þá geymið þau óþvegin á loftgóðum
köldum stað eða i kæli,“ ráðleggur
hann, „en séu þau keypt í verslun
þá notið þau strax, því líklegt er
að biðin þar sé þegar orðin —
löng.“
Þessir félagar:
Bjarni Jónsson,
Daði M. Ingv-
arsson, Guð-
mundur Jónsson
og Guðvaröur B.
Olafsson efndu
til hlutaveltu til
ágóða fyrir
Hjálparsjóð RKÍ
og söfnuðu rúm-
lega 600 krón-
um.
Morgunblaðið/Theodór
Þessar stúlkur frá Borgarnesi söfnuðu 1.320 kr. til styrktar Rauða kross
íslands, með því að halda „tombólu“ að Berugötu 22, miðvikudaginn 23.
október. Frá vinstri: Ragnheiður Dagný Ragnarsdóttir, Ragnheiður Lilja
Bjarnadóttir, Kristín Helga Ragnarsdóttir, Jóhanna Elva Ragnarsdóttir
og Anna Þórðardóttir Bachmann.
i mnwm
GOTT
UL: CFLM-ULá
RENNA!
Við rýmum fyrir nýjum birgðum.
Og þess vegna er lambakjöt ennþá
fáanlegt á gamla verðinu.
Á meðan birgðir endast gefst þér
tœkifœri til þess að fylla frystihólfin
af úrvalskjöti á einstœðu verði.
Það er góð búmennska!
Líttu við í nœstu verslun.
Gríptu steikina meðan
'!'tS
hún gefst!