Morgunblaðið - 07.12.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 7. DESEMBER1985
Gott útsýni
Jökull Jakobsson var býsna
fimur leikritasmiður, þannig
hélt ég að fimmtudagsleikritið: I
öruggri borg væri að leysast upp í
ósköp hversdagslegt kokteilglasa-
nöldur lífsþreyttra smáborgara.
Gerist þá ekki sá óvænti atburður
að húsbóndinn á heimilinu sem
hefir reyndar verið lokaður niðri
í vinnustofu svo mánuðum skiptir
— stefnir skyndilega óþekktum
krafti að móður jörð með þeim
afleiðingum að kona hans og vinur
er sest hefir að á heimilinu og
gestkomandi vinahjón — missa
allt tímaskyn og raunar stjórnar
á lífi sínu. Húsbóndinn gerir sum
sé hljóðláta byltingu sem er meðal
annars lýst svo: Gunnar (hinn
gestkomandi vinur húsbóndans á
heimilinu): Góðir vinir koma aldr-
ei á óhentugum tíma. — Nei, ég
skal segja ykkur, við tökum yfir-
leitt kvöldið snemma, ég hef nautn
af því að spóka mig í stofunum á
náttfötum og slopp, setja eitthvað
gott á fóninn, blanda góðan kokk-
teil... og Anna (eiginkonan á
heimilinu). Ekki satt Anna, auk
þess er klukkan ekki nema níu.
Tómas (vinahjónin): Níu sagðirðu
níu. Mín er ... bráðum tíu. Gunn-
ar: Ennþá betra. Jæja, skál... Lóa
(vinahjónin): Mín er hálftólf.
Gunnar: Haha. Alltaf er Lóa á
undan sinni samtíð. Eins og hæfir
brautryðjanda í félagsvísindum.
Sem ég er viss um þú verður, skál
upp á það. Hvað er annars klukkan
hjá þér, Anna mín. Anna: (lítur á
klukkuna sína, ber hanan upp að
eyranu, eftir nokkra þögn) Eg-ég
held að hún sé -stopp. Gunnar:
Hahaha! Þessi var langbestur.
Anna gengur á vegum eilífðarinn-
ar — þar sem tíminn er ekki lengur
til.
Snyrtileg leikflétta
Hugguleg slaufa á annars lang-
dregið og fremur hversdagslegt
kokteilpartí þar sem ófullnægðar
frúnnar leita fullnægju í félagsvís-
indadeild Háskóla íslands og mið-
aldra eiginmaður bullar um mánu-
dagsmyndir og slidesmyndir í
Norræna húsinu. Eða er það eigin-
kona hans er biður vininn gest-
komandi um að haida fyrirlestur-
inn. Lóa: Hefur ekki komið til tals
að þú flyttir fyrirlestur í Norræna
húsinu með slides? Gunnar: (Vin-
urinn gestkomandi sem hefir dval-
ið langdvölum við þróunarhjálpar-
störf í austurlöndum) Eins og ég
sagði? ég er í fríi. Lóa: Synd! Það
er ég viss um að þú fengir fullt
hús. Það er einmitt svona sem
okkur þyrstir í að heyra. En við
hér fáum þó að njóta þess. Tómas:
Lóa hefur alltaf verið öll fyrir sér-
réttindin.
Lúmskur húmor
Já hann er lúmskt fyndinn hann
Jökull Jakobsson og kann þar að
auki að koma áheyrandanum á
óvart eins og þið hafið nú séð les-
endur góðir. En hann kann einnig
þá list að teygja lopann með næsta
eðlilegu snakki yfir glasi eins og
sagt er. Af hverju skrifa annars
ekki fleiri höfundur svona leikverk
í dag? Verk þar sem umbúðirnar
eru hversdagslegar og varla gerist
neitt markvert utan rabbsins? Er
krafan um listræna fullkomnun
og „toppárangur" orðin svo áleitin
að rithöfundar freista þess ekki
að þreyta leikhúsgesti með hvers-
dagslegu skvaldri krydduðu
óvæntri hugdettu svona undir
lokin? Ekki veit ég það svo gjörla
en eitthvert færibandasnið var á
útsendingu Útvarpsleikhússins
síðastliðið fimmtudagskveld. Eins
og leikstjóranum Sigurði Pálssyni
hefði naumast gefist tóm til að
kreista seinasta dropann úr text-
anum ofan í kokkteilglasið.
Olafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/ SJÓNVARP
Vindurinn og ljónið
— bandarísk bíómynd frá 1975
■I Bandaríska bíó-
00 myndin „Vind-
— urinn og ljónið"
er seinni bíómynd kvölds-
ins og hefst hún kl. 23.00.
Myndin er bandarísk frá
árinu 1975. Leikstjóri er
John Millius og í aðal-
hlutverkum eru: Sean
Connery, Candice Bergen,
Brian Keith og John Hus-
ton.
Árið 1904 rænir araba-
höfðingi í Marokkó banda-
rískri konu og börnum
hennar frá Tanger og
krefst lausnargjalds af
soldáninum. Theodore
Roosevelt Bandaríkjafor-
seti og utanríkisráðherra
hans skipuleggja aðgerðir
til að ná fjölskyldunni úr
ræningjahöndum. Atriði í
myndinni geta vakið ótta
hjá börnum. Mynd þessi
fær þrjár stjörnur í ein-
kunn af fjórum möguleg-
um. Þýðandi hennar er
Rannveig Tryggvadóttir.
Á eyðiey
— Er einhver að leita okkar?
■i Þriðji þáttur
00 barna- og ungl-
— ingaleikritsins
„Á eyðiey" verður á rás 1
kl. 17.00 í dag og nefnist
þessi þáttur „Er einhver
að leita okkar?“ Höfundur
leikritsins er Reidar Ant-
honsen, þýðandi er Andrés
Kristjánsson og leikstjóri
er Bríet Héðinsdóttir.
í öðrum þætti voru þeir
Eiríkur, Andrés og Jörgen
illa staddir. Þeir voru einir
á óbyggðri eyju úti í stóru
vatni uppi á öræfum Nor-
egs og höfðu vistir aðeins
til fjögurra daga. Þeir
ákváðu að fara að dæmi
Róbínsons Krúsós og búa
eins vel um sig í eynni og
mögulegt væri. En þrátt
fyrir dugnað og kjark varð
strákunum ekki um sel
eftir að mestallar matar-
birgðirnar hurfu spor-
laust eina nóttina og Ei-
ríkur hafði orðið að gefast
upp við að synda í land
eftir hjálp.
Leikendur í þriðja þætti
eru: Kjartan Ragnarsson,
Randver Þorláksson og
Sólveig Hauksdóttir.
Alþjóðlega Fíl-
harmóníuhljómsveitin
— bein útsending frá Stokkhólmi
■i Á morgun,
20 sunnudag, verð-
““ ur útvarpað í
beinni útsendingu frá
hljómleikum Alþjóða Fíl-
harmóníusveitarinnar
sem haldnir verða í Stokk-
hólmi. Útsendingin fer
fram á dreifikerfi rásar 2
99,9 Mhz, og hefst kl. 19.20
með íslenskri kynningu
Sigurðar Einarssonar, en
kl. 19.30 verður stillt yfir
til Stokkhólms þar sem
James P. Grant yfirmaður
UNICEF, Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna og
Kristín Svíaprinsessa
flytja stutt inngangsorð á
ensku.
Hljómleikunum verður
útvarpað beint til níu
Evrópulanda auk íslands
og renna allar greiðslur
útvarpsstöðvanna af þessu
tilefni til Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
Þetta er í annað sinn á
þessu ári sem íslenska út-
varpið tekur á móti svona
sendingu um gervihnött.
Áður var hljómleikum frá
London útvarpað sem
haldnir voru til styrktar
byggingu tónlistarhúss á
Islandi en aðalhvatamað-
ur þeirra tónleika var
Vladimir Azskenazy.
Alþjóðlega Fílharmón-
íusveitin er skipuð hljóð-
færaleikurum úr öllum
heimshornum en frá Is-
landi er það Helga Þórar-
insdóttir víóluleikari í
Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, sem tekur þátt í
þessu samstarfi. Verkið
sem flutt verður er 8. sin-
fónía Antons Bruckner,
sem kom fram í endan-
legri útgáfu árið 1884 —
sama ár og hinir þrír keis-
arar Evrópu hittust í Ski-
elmiewice í Póllandi til að
semja um viðvarandi frið
í álfunni.
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
7. desember
7.00 Veöuriregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur og
kynnir.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8J0 Lesið úr forustugreinum
dagblaöanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tórv
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga
Helga Þ. Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá kvöld-
inu áöur sem Margrét Jóns-
dóttir flytur.
10.10 Veðurfregnir.
Oskalög sjúklinga, framhald.
11.00 Bókaþing
Gunnar Stefánsson dag-
skrárstjóri stjórnar kynning-
arþætti um nýjar bækur.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
15.00 Hérognú
Fréttaþáttur I vikulokin.
15.40 Fjölmiölun vikunnar
Magnús Ölafsson flytur þátt-
inn.
(Miödegistónleikar falla nið-
ur.)
15.50 Islensktmál
Guörún Kvaran flytur þátt-
inn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Listagrip
Þáttur um listir og menning-
armál. Umsjón: Sigrún
Björnsdóttir.
17.00 Framhaldsleikrit barna og
unglinga: „A eyðiey" eftir
Reidar Anthonsen.
Leikritið er byggt á sögu eftir
Kristian Elster. Þriðji þáttur
af fjórum: „Er einhver að
leita að okkur?" Þýðandi:
Andrés Kristjánsson. Leik-
stjóri: Brlet Héðinsdóttir.
Leikendur: Kjartan Ragnars-
son, Randver Þorláksson og
Sólveig Hauksdóttir. Aöur
útvarpað 1974.
14.45 Queens Park Rangers —
West Ham. Bein útsending
frá leik 11. deild ensku knatt-
spyrnunnar.
17ÆO Móöurmálið — Fram-
burður. Endursýndur áttundi
þáttur.
17.15 Iþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
Hlé.
19.20 Steinn Marcó Pókbs
(La Pietra di Marco Polo)
Italskur framhaldsmynda-
flokkur um ævintýri nokkurra
krakka I Feneyjum. Þýöandi
Þurlöur Magnúsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Staupasteinn
(Cheers). Attundi þáttur.
Bandarlskur gamanmynda-
flokkur.
17.30 Einsöngur I útvarpssal
Magnús Jónsson syngur lög
eftir Emil Thoroddsen, Þór-
arin Guðmundsson, Jón Þór-
arinsson, de Curtis, Tosti og
fleiri. Ölafur Vignir Alberts-
son leikur á planó.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Elsku pabbi
Þáttur I umsjá Guðrúnar
Þórðardóttur og Sðgu Jóns-
dóttur.
20.00 Harmonluþáttur
Bandarlsk blómynd frá
1978.
Leikstjóri: Stanley Donen.
Aöalhlutverk: George C.
Scott, Trish Van Devere, Red
Buttons og Eli Wallach.
Myndin er gerð I anda
Hollywood-mynda frá árun-
um upp úr 1930. Þá bauöst
kvikmyndahúsgestum oft aö
sjá tvær blómyndlr I sömu
feröinni ásamt kynningu
þeirra næstu og er sá háttur
einnig hafður á þessari sýn-
ingu. Fyrri myndin er um
ástir og hnefaleika og er
svart/hvlt en sú slöari er lit-
mynd um dans- og söngva-
sýningu á Broadway. Þýð-
andi Öskar Ingimarsson.
Umsjón: Sigurður Alfonsson.
20.30 Leikrit: „I öruggri borg"
eftir Jökul Jakobsson. End-
urtekið frá fimmtudags-
kvöldi.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orö kvðlds-
ins.
22.25 Aferð
með Sveini Einarssyni.
23.00 Danslög
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
23.00 Vindurinn og Ijóniö
(The Wind and the Lion)
Bandarlsk blómynd frá
1975.
Leikstjóri: John Millius.
Aöalhlutverk: Sean Conn-
ery, Candice Bergen. Brian
Keith og John Huston.
Arlð 1904 rænir arabahöfö-
ingi I Marokkó bandarlskri
konu og börnum hennar frá
Tanger og krefst lausnar-
gjalds af soldáninum. Theod-
ore Roosevelt Bandarlkjafor-
seti og utanrlkisráðherra
hans skipuleggja aðgeröir til
að ná fjölskyldunni úr ræn-
ingjahöndum. Atriði I mynd-
inni geta vakiö ótta hjá börn-
tim.
Þýðandi Rannveig Tryggva-
dóttir.
01.10 Dagskrárlok.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl.
03.00.
LAUGARDAGUR
7. desember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blöndal.
Hlé.
14.00—16.00 Laugardagur til
lukku
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00—18.00 Hringboröiö
Stjórnandi: Siguröur Einars-
son.
Hlé.
20.00—21.00 Hjartsláttur
Tónlist tengd myndlist og
myndlistarmönnum.
Stjórnandi: Kolbrún Hall-
dórsdóttir.
21.00—22.00 Dansrásin
Stjórnandi: Hermann Ragnar
Stefánsson.
22.00—23.00 Bárujárn
Stjórnandi: Sigurður Sverris-
son.
23.00—24.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigurjóns-
son.
24.00—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Heiöbjört Jó-
hannsdóttir.
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
7. desember
21.10 Stálhnefar og Stjörnudlsir
(Movie Movie)