Morgunblaðið - 07.12.1985, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nvujvun^-uM-u if
Aldraðir á fundi með
félagsmálaráðherra
Einn 73 ára skrifaði.
„Ég mælist til þess að Yngvi
Hrafn Jónsson fréttastjóri komi á
óformlegum fundi aldraðra í sjón-
varpssal með Alexander Stefáns-
syni félagsmálaréðherra líkt og
gert var nýlega með unglingum.
Það er ýmislegt sem bjátar á hjá
gamla fólkinu t.d. það að aldraðir
geta ekki fengið krítarkort því að
greiðsla ellilauna fer ekki fram
fyrr en eftir 10. hvers mánaðar.
Þetta er ekki það eina sem þarf
skjótrar úrlausnar við og ég er
viss um að okkur tækist að leysa
ýmsan vanda ef við fengjum að
funda með Alexander fyrir framan
alþjóð."
Vesælt velsæmi
Áhorfandi skrifar:
Ég vil af heiium hug taka undir
með einhverjum, sem nýlega sendi
bréf til Velvakanda til að lýsa
óánægju með sýningu finnsku
myndarinnar í sjónvarpinu hinn
25. nóv. sl.
Þessi mynd var soraefni og átti
ekkert erindi til hinna almennu
áhorfenda, íslenskra fjölskyldna,
sem vilja nota kvöldið sér til af-
þreyingar í helgi heimilisins.
Sjónvarpið er raunar orðið svo
samdauna öllu því er varðar klám,
ógeðfelldar lýsingar á einkalífi
manna og dýra, að leitun mun á
sjónvarpsdagskrá annars staðar
sem fengi að fara óáreitt og sam-
þykkt „í loftið" til almennra not-
enda, nema sem einhvers konar
„næturdagskrá" fyrir þá hópa, sem
hafa einhverjar sérþarfir fyrir
óeðli.
Auðvitað þýðir ekkert að spyrja
að því hver stjórni eða beri ábyrgð
á þeirri lágkúru sem ræður vali á
þessum sérstöku myndum, þar sem
t.d. menn með álappalegar hreyf-
ingar og framgöngu kynna „menn-
ingu“ sína og „list“.
Það er ekki furða þótt almenn-
ingur vilji fremur horfa á þætti
eins og Dallas eða aðra vinsæla
afþreyingarþætti bandaríska, því
þar er hvergi vikið að klámi á jafn
berlegan máta og í mörgum hinna
skandinavísku eða þýsku mynda.
í Bandaríkjunum er lagt bann
við að sýna kynlíf eða annað því
viðkomandi, nema eftir mjög •
ströngum reglum og slíkt kemur
t.d. hvergi fram í öllum þeim
Dallas-þáttum, sem hingað til hafa
verið sýndir.
Þar vestra er einnig mjög
strangt eftirlit með sýningu sjón-
varpsefnis og vafasamar myndir
með efni sem öll fjölskyldan getur
ekki horft á, frá siðferðilegum
ástæðum, eru ekki sýndar fyrr en
eftir miðnætti undir heitinu „late
show“. — Þetta eru allir sammála
um þar vestra og hafa sjálfir sjón-
varpsnotendur þar lagt drög að.
Það ætlar að verða æ vesælla
þetta sjónvarp okkar eftir því sem
lengra líður. Enn er það lokað
fimmtudaga eins og í frumbernsku
og enn er verið að leiða fram vesl-
ings stúlkur á skjáinn til að til-
kynna dagskrá, sem hefur verið
margtuggin í hljóðvarpi og blöð-
um, allt frá því kl. sjö á morgnana.
— Það er eins og ríkisútvarpið
haldi að fólk geti ekki borið sig
eftir dagskránni sjálft! — Og
dagblöðin eru svo um helgar full
Landinn
lifír flott
Landinn jafnan lifir flott,
læsteisjáneinn vanda.
Ber hann vel sitt breiða glott
á bðrum sólarlanda.
Hákur.
Sakharov sex man-1
uöi i hun|^nerkfalli|
af „dagskrá ríkisfjölmiðlanna"!
Hvaða dagskrár-„manía“ er þetta?
Sennilega enn eitt einkennið af
smáborgaraskapnum, sem fylgir
einangruðum eyþjóðum! — Vesælt
velsæmi sjónvarpsins ætti þó ekki
að þurfa að auðkenna það enn
frekar.
Skyldi þessi herramaður eiga eftir
að ræða við félagsmálaráðherra í
sjónvarpi.
Þessir hringdu . .
Hér með læt ég í Ijósi aðdáun
mína á hinum aldna smábátasjó-
manni á Akranesi, Skarphéðni
Árnasyni, fyrir þann kjark og
fórnfýsi, að láta varðskip ríkisins
taka sig að veiðum í banni sjá-
varútvegsráðherra. Afleiðing-
arnar urðu þær að Skarphéðinn
varð að láta af hendi þriðjung
árstekna sinna fyrir verknaðinn,
sem gerður er í þeim tilgangi
einum, að sýna alþjóð það rang-
læti sem þessi stétt manna verð-
ur fyrir af hendi Alþingis, og
ríkisstjórnar.
Obbinn af stærri skipum flot-
ans virðist geta verið að veiðum
allt árið eftir þörfum, til að ná
þeim afla sem þeim hefur verið
úthlutað. Sumir geta jafnvel selt
öðrum af veiðileyfum sínum, svo
öfgafullt sem það nú er, en ekki
mega smábátasjómenn kaupa
slík veiðileyfi, eftir því sem
upplýst er.
Minnstu bátarnir mega ekki
fara í róðra þegar best gefur og
straumar eru hagstæðir. Þeir fá
mjög takmarkað starfsleyfi eftir
dagsetningu sem ráðherra
ákveður, án tillits til árstíða eða
annarra aðstæðna.
Stéttabræður þessa dugmikla
baráttumanns um land allt ættu
sannarlega að styðja við bakið á
honum þegar að því kemur að
greiða sektina.
Olafur Á. Kristjánsson
Vlí) REIKNUM
MEPftÐSLETTFi
ÞETTH SVO-
SEM 100
MILLJÓNUM
TILHÐ
BYIPJH MED
HlUTRFÉLH&fl
SKRÓNINö
HLUTflFJflR
SÖFNUNEÍ?
HflfllN...
Þflfl NV'JH TEKUI?
Þfl Vl£> ÞflR SEM PflÐ
GflMLfl HÆTTI
OG UMTflLSVERÐ LOFORÐ
LIGGJfl NÓ ÞE6RR FVRU?
II L
ÉLRGR
NING
I ii" »i
/CTLR RÐ FF)
} RÐ SHILR ÞESÍ.U
RFTUR
ad<ERT
« I BKar
,lhoð
stærðirt50/200/85 crn.
Verö Kr. 49A20.-
saiaa**'
s,.,» "%*'■*
Verö Kr. 68.360.
Vid tökum að sjálfsögðu viö kreditkort-
um bæði sem staðgreiðslu og útborgun
á kaupsamninga. Og nú skaltu bregðast
ffljótt við því þessi horn seljast upp fyrir
jól.
SDS6A6NAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410