Morgunblaðið - 21.01.1986, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
Endurskoðun
gengisskráningar:
Seðlabankinn
hafi forgöngu
— segir sjávarútvegsráðherra
„GENGISSKRÁNING er fonn-
lega í höndum Seðlabankans.
Það hefur ekki verið gengið frá
þessu máli, en það hefur verið
rætt við bankann og ráð fyrir
þvi gert að hann hafi forgöngu
um það,“ sagði Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, er
hann var inntur eftir því hvernig
liði skipan nefndar til endurskoð-
unar gengisskráningar að beiðni
fiskvinnslunnar.
„Endanlegt svar þaðan er enn
ekki komið. Við höfum verið með
í undirbúningi svar til fískvinnsl-
unnar all lengi. Það var rætt á ríkis-
stjómarfundi á fímmtudag og gert
ráð fyrir því, að afgreiða það frá
ríkisstjóminni í vikunni," sagði
Halldór.
Afhending
gullplötu
Skemmtidagskráin „Úr söng-
bók Gunnars Þórðarsonar var
frumsýnd í veitingahúsinu
Broadway sl. laugardagskvöld
við mjög góðar undirtektir.
Við þetta tækifæri afhenti
Fálkinn þijár gullplötur fyrir
hljómplötuna „Borgarbragur", en
hún hefur selst í um 6.000 eintök-
um. Gullplötumar fengu laga-
smiðurinn Gunnar Þórðarson og
textahöfundamir Ólafur Haukur
Símonarson og Davíð Oddsson,
en að sögn sérfræðinga í dægur-
lagatónlist mun það vera afar
fágætt ef ekki einsdæmi að borg-
arsijóri hljóti gullplötu.
Sambandsfry stihúsin:
Framleiðslan
1985 2% meiri
en í fyrra
— mest aukning í fram-
leiðslu ufsaafurða
FRAMLEIÐSLA sjávarafurða
frystihúsa á vegum Sambandsins
jókst um 2% milli áranna 1985
og 1984 og varð á síðasta ári
47.806 lestir. Framleiðsla afurða
úr ufsa jókst um 36 af hundraði,
en framleiðsla karfaafurða dróst
saman um 15,2 af hundraði.
Hlutfall þorsk af heildinni var
44 af hundraði.
Heildarframleiðsla Sambands-
frystihúsanna var 1983 39.780
lestir, 46.860 1984 og 47.806 lestir
á síðasta ári. Framleiðsla einstakra
tegunda var sem hér segir þessi
þrjú ár: Þorskur: 1983 15.045,1984
20.114 og 1985 21.011. Aukning
frá fyrra ári 4,5%. Ýsa: 1983 3.874,
1984 22.769 og 1985 2.889 lestir.
Aukning frá fyrra ári 4,3%. Karfí:
1983 7.148, 1984 7.896 og 1985
6.696 lestir. Samdráttur 15,2%.
Ufsi: 1983 3.252, 1984 3.397 og
1985 4.621 lest. Aukning 36%.
Grálúða: 1983 3.232, 1984 4.993
og 1985 4.417 lestir. Samdráttur
11,5%. 1983 var hlutfall þorsks af
framleiðslunni 37,8%, 42,9% 1984
og 44% 1985.
Framleiðsla
fóðurstöðv-
anna 17 þús-
und tonn
ÁÆTLAÐ er að um 70% aukning
verði í framleiðslu loðdýrafóðurs
hjá fóðurstöðvunum á þessu ári
og að framleiðslan verði um það
bil 17 þúsund tonn á árinu, að
sögn Steinþórs Steingrímssonar
framkvæmdastjóra Sambands
fóðurframleiðenda, en það eru
samtök fóðurstöðva loðdýra-
ræktenda.
Sambandið heldur á næstunni
námskeið fyrir starfsmenn fóður-
stöðvanna og þá bændur sem ann-
ast sjálfir fóðurgerð. Námskeiðið
er haldið í samvinnu við Búnaðarfé-
lag íslands og verður haldið á Hól-
um í Hjaltadal dagana 28. til 31.
janúar næstkomandi. Steinþór
sagði að mikil þörf væri fyrir hvers-
konar fræðslustarf í fóðurfram-
leiðslunni enda væri hún tiltölulega
ung atvinnugrein. Námskeiðinu
væri ætlað að koma til móts við
þessa þörf.
Á námskeiðinu á Hólum verður
jQallað um fóðurfræði loðdýra og
gerð fóðurlista; mat á ástandi hrá-
efna og áhrif geymslu á þau; fóður-
bundna sjúkdóma; tæknimál fóður-
stöðva, hönnun og skipulag; hrein-
lætismál og loks rekstrarmál.
Ert þú að leita að sparneytnum,
liprum og rúmgóðum fjölskyldubíl?
Taktu þá ekki ákvörðun
um kaup, fyrr en þú hefur
reynsluekið nýium
Eyðsla frá 3,8 Itr. pr. 100 km.
(sparakstur BÍKR).
Verð frá kr. 375.000.-
(3d. GL) (gengi 6/1'86).