Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
55
Næg atvinna á Dalvík
Dalvík, janúar.
Árið 1985 kvaddi okkur Dalvík-
inga með nokkuð góðri veðráttu en
um áramótin sjálf var heiðríkja og
stillt veður með allmiklu frosti.
Fyrri hluti ársins var snjóléttur með
afbrigðum og vorið gott þannig að
vorverk hófust með fyrra móti. En
þegar sumarið átti að birtast sam-
kvæmt almanakinu gekk veðráttan
til þrálátrar norðanáttar með svöl-
um vindum og rigningu og súld.
Þegar fram á haustmánuði kom
breyttist veðráttan loks til sunnan-
áttar með sól og blíðu með hita
allt yfír 20 gráður.
Landbúnaður
Þrátt fyrir vætusamt sumar var
heyfengur þó vel í meðallagi en hey
ekki að sama skapi að gæðum.
Uppskera garðaávaxta varð með
rýrara móti vegna kuldanna og
beijaspretta fylgdi því eftir.
Á haustnóttum er bústofn bænda
á Dalvík og í Svarfaðardal nánast
óbreyttur frá fyrra ári þrátt fyrir
að riðuveiki í sauðfé hafí magnast.
Svo virðist sem jafnvægi sé komið
á í landbúnaðarframleiðslu hjá
bændum eftir samdráttarskeið í
mjólkur- og kjötframleiðslu frá ár-
inu 1978. Aftur á móti hefur orðið
aukning í loðdýrarækt Svarfdæl-
inga. Eitt nýtt loðdýrabú hefur
bæst við þau 4 sem áður voru.
Samkvæmt ásetningsskýrslum voru
settir á 2.000 refír og 3.000 minkar.
í sumar var hafíst handa við bygg-
ingu refaskála að Ytra-Holti í
Svarfaðardal. Skálann reisir Þor-
steinn Aðalsteinsson loðdýrabóndi
að Böggvisstöðum, en þetta er jafn-
framt stærsti refaskáli á landinu,
4.750 fm. að flatarmáli og á hann
að rúma 5.500 dýr. Jafnframt þessu
reisti Þorsteinn kartöflugeymslu,
400 fm að stærð og er hann því
að koma undir þak 0,5 ha landsvæði
að Ytra-Holti.
Á árinu var nú í fyrsta skipti
slátrað úr kvíum fískeldisstöðvar-
innar Ölnis hf. á Dalvík. Slátrað
var nær 4 tonnum af laxi og sjóbirt-
ingi. Þessi nýja búgrein lofar góðu
og hyggjast eigendur stöðvarinnar
halda ótrauðir áfram.
Menningarmál
Af menningarmálum ársins á
Dalvík rís hæst útkoma 4. bindis
af Sögu Dalvíkur eftir Kristmund
Bjamason, en þar með er lokið
söguritun bæjarfélagsins en hún
spannar upphaf byggðar á Böggvis-
staðasandi og Upsaströnd allt til
ársins 1984 en þá vom liðin 10 ár
frá því að Dalvík hlaut kaupstaða-
réttindi. Ljóst er að þetta verk er
ekki aðeins saga Dalvíkur, heldur
hluti íslandssögunnar allrar og á
eflaust er fram líða stundir eftir
að verða uppsláttarrit fyrir þá sem
vilja fræðast um sögu iands og þjóð-
ar.
Mikil gróska hefur verið í tónlist-
arlífí og hafa aldrei verið jafnmargir
nemendur í tónlistarskólanum, en
þar stunda nú 140 nemendur nám.
Samkór Dalvíkur stóð fyrir femum
hljómleikum og þá var Karlakór
Dalvíkur endurvakinn í vor og stóðu
þessir tveir kórar fyrir tónleikum
ásamt Kirkjukór Svarfdæla. Þijár
myndlistarsýningar vom haldnar á
árinu, samsýning Kristins G. Jó-
hannssonar og Guðbjargar
Ringsted og sýning Ingibjargar
Einarsdóttur á verkum máluðum á
Akureyri:
Ekið á hross
Akureyri, 18. janúar.
AFLÍFA varð hest, sem fannst
brotinn á afturfæti, liggjandi við
veginn, skammt norðan við
Dvergastein í Kræklingahlíð
norðan Akureyrar í morgun.
Ljóst þykir að ekið hafí verið á
hestinn síðla nætur eða í morgun
og ökumaður síðan stungið af.
Rannsóknarlögreglan óskar eftir
því, að hugsanleg vitni að atburðin-
um hafí samband við sig.
Dalvíkurkirkja.
tré. Á árinu lá leiklistarstarfsemi
alveg niðri en á undanfömum ámm
hefur Leikfélag Dalvíkur staðið
fyrir a.m.k. einni leiksýningu ár-
lega.
*
Utgerð
Útgerð frá Dalvík gekk vel á
árinu þrátt fyrir ágreining manna
um stjómun á veiðum og vinnslu á
úthlutuðum kvóta. Einungis ein
fleyta, 2,9 tonn að stærð, lenti undir
hamrinum á árinu og að sjálfsögðu
hreppti lögmaðurinn, uppboðsbeið-
andinn, trilluna. Þetta má teljast
vel sloppið miðað við önnur sjávar-
pláss sem eiga í mestu vandræðum
með að halda í sinn fískiskipastól.
Eitt nýtt skip bættist í flotann, 100
lesta stálbátur í eigu Ránar hf.
ásamt 3 plastbátum allt að 8 tonn-
um að stærð.
Afli togaranna var sem hér segir:
Botnfiskur Veiðarf.
Baldur (tonn) 1238,0 19
Björgúlfur 3015,4 25
Björgvin 2864,2 24
Dalborg 1480,0 19
Afli báta lagður upp á Dalvík:
Bliki 520,0
Haraldur 399,5
Otur 267,0
Sólfell Hrís. Stefán 244,8
Rögnv. Sæljón 274,2
Heiðrún 60,3
Aðrir bátar 346,8
Trillur 10 tn 348,1
Samtals: 11.058,3
Skipakomur í Dalvíkurhöfn vom
á árinu 110 þar sem 6.063 lestum
af sjávarafurðum var skipað út en
innfluttar vom 7.560 lestir mest-
megnis salt, olía og áburður. Frá
Hrísey komu um 900 lestir af físk-
beinum til Fóðurstöðvarinnar í loð-
dýrafóður.
Atvinnumál
Það má segja að Dalvíkingar
hafí búið við næga atvinnu allan
ársins hring í flestum greinum
atvinnulífsins. Skráðir atvinnuleys-
isdagar vom aðeins 3.239 og er það
rúmum 5.000 dögum færra en á
árinu 1984. Þetta segir sína sögu
um gott atvinnuástand ársins. Nú
vom flestir atvinnuleysisdagar í byijun og lok ársins, þ.e.a.s. þegar
útgerð, veiðar og vinnsla er að
Rælga Veiðif. Aflaverðm.
(tonn) (þúa. kr.) 30.000,00
49,8 3 60.351,4
113,9 6 58.228,2
334,5 13 49.000,0
116,3
136,1
151,9
267,1
87,3
114,5
10,1
1381,5
Við áramót. Beðið eftir aflakvóta.
heíjast og síðan þegar sjómenn
leggja árar í bát eftir gott og gjöf-
ult ár og taka sér hefðbundið jóla-
frí. í þjónustugreinum var einnig
nokkuð stöðug vinna og oft á köfl-
um ærin yfírvinna. Tvö fyrirtæki
vom stofnuð á árinu, fjölritunar-
stofan Fjölriti sf. og saumastofan
Gerpla og ein sólbaðsstofa hóf
rekstur sinn í lok ársins.
í lok apríl urðu þáttaskil í versl-
unarháttum hér en þá opnaði ÚKE
á Dalvík nýja og myndarlega versl-
un, Svarfdælabúð. Með tilkomu
þessara verslunar hefur verslun á
Dalvík stóraukist og menn sótt
minnatil nágrannabyggða.
Framkvæmdir
Eins og víðast hvar annars staðar
hefur verið hér mikil lægð í íbúðar-
húsabyggingum en ekki var tekinn
neinn íbúðarhúsagmnnur á árinu,
einungis gerð fokheld tvö íbúðarhús
sem byijað var á á árinu 1984. Sem
fyrr vom aðalframkvæmdir á veg-
um Dalvíkurbæjar og má þar geta
vemlegra hafnarbóta en í sumar
var unnið við norðurgarð fyrir 6—7
milljónir króna. Haldið var áfram
með nýlagnir og endurbætur á
dreifíkerfí Hitaveitunnar og vatns-
veitunnar. Nú hefur verið ákveðið
að breyta söluháttum á vatni frá
Hitaveitu til neytenda og verður
framvegis vatn selt samkvæmt
rennslismæli en starfsmenn veit-
unnar hafa nú þegar hafið uppsetn-
ingu á rnælum þessum í íbúðar-
húsum. Á árinu vom malbikaðir 240
lengdarmetrar í götum og 200
lengdarmetrar í gangstéttum og í
þetta fóm 2.000 rúmmetrar af
malbiki.
Greiðsla gjalda
Sem fyrr em Dalvíkingar skilvfsir
hvað varðar greiðslu opinberra
gjalda en nú um áramót höfðu
innheimst 91,3% útsvara og að-
stöðugjalda og 97,2% fasteigna-
gjalda eða 92,8% af öllum álögðum
gjöldum. Þess má geta að útsvars-
tekjur Dalvíkurbæjar vom það lág-
ar að bæjarstjóm sá ástæðu til að
fela etvinnumálanefnd bæjarins að
kanna hvaða ástæður gætu legið
þar að baki og hefur nefndin ráðið
sérfróðan mann til að vinna að út-
tekt á útsvömm Dalvíkinga.
Fréttaritarar
® CHRYSLER
ei9u"'afc'itt
c«af9er 2'
isu
4 pett» erft a
04 bíll uie°
Háttu' ^ gp0r
■5' .f SS^ÍSS.
afs'al
UKU
tfelðun1
EINN J
ÆDISi GUR