Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 55

Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 55 Næg atvinna á Dalvík Dalvík, janúar. Árið 1985 kvaddi okkur Dalvík- inga með nokkuð góðri veðráttu en um áramótin sjálf var heiðríkja og stillt veður með allmiklu frosti. Fyrri hluti ársins var snjóléttur með afbrigðum og vorið gott þannig að vorverk hófust með fyrra móti. En þegar sumarið átti að birtast sam- kvæmt almanakinu gekk veðráttan til þrálátrar norðanáttar með svöl- um vindum og rigningu og súld. Þegar fram á haustmánuði kom breyttist veðráttan loks til sunnan- áttar með sól og blíðu með hita allt yfír 20 gráður. Landbúnaður Þrátt fyrir vætusamt sumar var heyfengur þó vel í meðallagi en hey ekki að sama skapi að gæðum. Uppskera garðaávaxta varð með rýrara móti vegna kuldanna og beijaspretta fylgdi því eftir. Á haustnóttum er bústofn bænda á Dalvík og í Svarfaðardal nánast óbreyttur frá fyrra ári þrátt fyrir að riðuveiki í sauðfé hafí magnast. Svo virðist sem jafnvægi sé komið á í landbúnaðarframleiðslu hjá bændum eftir samdráttarskeið í mjólkur- og kjötframleiðslu frá ár- inu 1978. Aftur á móti hefur orðið aukning í loðdýrarækt Svarfdæl- inga. Eitt nýtt loðdýrabú hefur bæst við þau 4 sem áður voru. Samkvæmt ásetningsskýrslum voru settir á 2.000 refír og 3.000 minkar. í sumar var hafíst handa við bygg- ingu refaskála að Ytra-Holti í Svarfaðardal. Skálann reisir Þor- steinn Aðalsteinsson loðdýrabóndi að Böggvisstöðum, en þetta er jafn- framt stærsti refaskáli á landinu, 4.750 fm. að flatarmáli og á hann að rúma 5.500 dýr. Jafnframt þessu reisti Þorsteinn kartöflugeymslu, 400 fm að stærð og er hann því að koma undir þak 0,5 ha landsvæði að Ytra-Holti. Á árinu var nú í fyrsta skipti slátrað úr kvíum fískeldisstöðvar- innar Ölnis hf. á Dalvík. Slátrað var nær 4 tonnum af laxi og sjóbirt- ingi. Þessi nýja búgrein lofar góðu og hyggjast eigendur stöðvarinnar halda ótrauðir áfram. Menningarmál Af menningarmálum ársins á Dalvík rís hæst útkoma 4. bindis af Sögu Dalvíkur eftir Kristmund Bjamason, en þar með er lokið söguritun bæjarfélagsins en hún spannar upphaf byggðar á Böggvis- staðasandi og Upsaströnd allt til ársins 1984 en þá vom liðin 10 ár frá því að Dalvík hlaut kaupstaða- réttindi. Ljóst er að þetta verk er ekki aðeins saga Dalvíkur, heldur hluti íslandssögunnar allrar og á eflaust er fram líða stundir eftir að verða uppsláttarrit fyrir þá sem vilja fræðast um sögu iands og þjóð- ar. Mikil gróska hefur verið í tónlist- arlífí og hafa aldrei verið jafnmargir nemendur í tónlistarskólanum, en þar stunda nú 140 nemendur nám. Samkór Dalvíkur stóð fyrir femum hljómleikum og þá var Karlakór Dalvíkur endurvakinn í vor og stóðu þessir tveir kórar fyrir tónleikum ásamt Kirkjukór Svarfdæla. Þijár myndlistarsýningar vom haldnar á árinu, samsýning Kristins G. Jó- hannssonar og Guðbjargar Ringsted og sýning Ingibjargar Einarsdóttur á verkum máluðum á Akureyri: Ekið á hross Akureyri, 18. janúar. AFLÍFA varð hest, sem fannst brotinn á afturfæti, liggjandi við veginn, skammt norðan við Dvergastein í Kræklingahlíð norðan Akureyrar í morgun. Ljóst þykir að ekið hafí verið á hestinn síðla nætur eða í morgun og ökumaður síðan stungið af. Rannsóknarlögreglan óskar eftir því, að hugsanleg vitni að atburðin- um hafí samband við sig. Dalvíkurkirkja. tré. Á árinu lá leiklistarstarfsemi alveg niðri en á undanfömum ámm hefur Leikfélag Dalvíkur staðið fyrir a.m.k. einni leiksýningu ár- lega. * Utgerð Útgerð frá Dalvík gekk vel á árinu þrátt fyrir ágreining manna um stjómun á veiðum og vinnslu á úthlutuðum kvóta. Einungis ein fleyta, 2,9 tonn að stærð, lenti undir hamrinum á árinu og að sjálfsögðu hreppti lögmaðurinn, uppboðsbeið- andinn, trilluna. Þetta má teljast vel sloppið miðað við önnur sjávar- pláss sem eiga í mestu vandræðum með að halda í sinn fískiskipastól. Eitt nýtt skip bættist í flotann, 100 lesta stálbátur í eigu Ránar hf. ásamt 3 plastbátum allt að 8 tonn- um að stærð. Afli togaranna var sem hér segir: Botnfiskur Veiðarf. Baldur (tonn) 1238,0 19 Björgúlfur 3015,4 25 Björgvin 2864,2 24 Dalborg 1480,0 19 Afli báta lagður upp á Dalvík: Bliki 520,0 Haraldur 399,5 Otur 267,0 Sólfell Hrís. Stefán 244,8 Rögnv. Sæljón 274,2 Heiðrún 60,3 Aðrir bátar 346,8 Trillur 10 tn 348,1 Samtals: 11.058,3 Skipakomur í Dalvíkurhöfn vom á árinu 110 þar sem 6.063 lestum af sjávarafurðum var skipað út en innfluttar vom 7.560 lestir mest- megnis salt, olía og áburður. Frá Hrísey komu um 900 lestir af físk- beinum til Fóðurstöðvarinnar í loð- dýrafóður. Atvinnumál Það má segja að Dalvíkingar hafí búið við næga atvinnu allan ársins hring í flestum greinum atvinnulífsins. Skráðir atvinnuleys- isdagar vom aðeins 3.239 og er það rúmum 5.000 dögum færra en á árinu 1984. Þetta segir sína sögu um gott atvinnuástand ársins. Nú vom flestir atvinnuleysisdagar í byijun og lok ársins, þ.e.a.s. þegar útgerð, veiðar og vinnsla er að Rælga Veiðif. Aflaverðm. (tonn) (þúa. kr.) 30.000,00 49,8 3 60.351,4 113,9 6 58.228,2 334,5 13 49.000,0 116,3 136,1 151,9 267,1 87,3 114,5 10,1 1381,5 Við áramót. Beðið eftir aflakvóta. heíjast og síðan þegar sjómenn leggja árar í bát eftir gott og gjöf- ult ár og taka sér hefðbundið jóla- frí. í þjónustugreinum var einnig nokkuð stöðug vinna og oft á köfl- um ærin yfírvinna. Tvö fyrirtæki vom stofnuð á árinu, fjölritunar- stofan Fjölriti sf. og saumastofan Gerpla og ein sólbaðsstofa hóf rekstur sinn í lok ársins. í lok apríl urðu þáttaskil í versl- unarháttum hér en þá opnaði ÚKE á Dalvík nýja og myndarlega versl- un, Svarfdælabúð. Með tilkomu þessara verslunar hefur verslun á Dalvík stóraukist og menn sótt minnatil nágrannabyggða. Framkvæmdir Eins og víðast hvar annars staðar hefur verið hér mikil lægð í íbúðar- húsabyggingum en ekki var tekinn neinn íbúðarhúsagmnnur á árinu, einungis gerð fokheld tvö íbúðarhús sem byijað var á á árinu 1984. Sem fyrr vom aðalframkvæmdir á veg- um Dalvíkurbæjar og má þar geta vemlegra hafnarbóta en í sumar var unnið við norðurgarð fyrir 6—7 milljónir króna. Haldið var áfram með nýlagnir og endurbætur á dreifíkerfí Hitaveitunnar og vatns- veitunnar. Nú hefur verið ákveðið að breyta söluháttum á vatni frá Hitaveitu til neytenda og verður framvegis vatn selt samkvæmt rennslismæli en starfsmenn veit- unnar hafa nú þegar hafið uppsetn- ingu á rnælum þessum í íbúðar- húsum. Á árinu vom malbikaðir 240 lengdarmetrar í götum og 200 lengdarmetrar í gangstéttum og í þetta fóm 2.000 rúmmetrar af malbiki. Greiðsla gjalda Sem fyrr em Dalvíkingar skilvfsir hvað varðar greiðslu opinberra gjalda en nú um áramót höfðu innheimst 91,3% útsvara og að- stöðugjalda og 97,2% fasteigna- gjalda eða 92,8% af öllum álögðum gjöldum. Þess má geta að útsvars- tekjur Dalvíkurbæjar vom það lág- ar að bæjarstjóm sá ástæðu til að fela etvinnumálanefnd bæjarins að kanna hvaða ástæður gætu legið þar að baki og hefur nefndin ráðið sérfróðan mann til að vinna að út- tekt á útsvömm Dalvíkinga. Fréttaritarar ® CHRYSLER ei9u"'afc'itt c«af9er 2' isu 4 pett» erft a 04 bíll uie° Háttu' ^ gp0r ■5' .f SS^ÍSS. afs'al UKU tfelðun1 EINN J ÆDISi GUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.