Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 5
MORGUNBLAÐE), ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
5
Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir
Hólmfríður Karlsdóttir, Ungfrú heimur, í bás Flugleiða á ferðakaupstefnunni í Bern.
Hólmfríður kom íslandi
í fréttirnar í Sviss
Ziirich, 20. janúar. Frá Önnu Bjarnadóttur fréttaritara Morgunblaðsins.
FERÐ HÓLMFRÍÐAR Karlsdóttur, Ungfrú heims, til Sviss um
helgina vakti verulega athygli. Utbreiddasta blað landsins,
Blick, birtir á forsíðu í dag mynd af henni að blása í alpahom
og aðalblað höfuðborgarinnar, Der Bund, birtir viðtal með stórri
mynd af fegurðardrottningunni á baksíðu. Athygli lesenda er
beint að viðtalinu með litlum myndum af nefi, munni, augum og
fótum „fallegustu konu heims“ á víð og dreif um blaðið. Sjón-
varpsupptökumenn fylgdust með ferð hennar og sjö mínútna
mynd um hana var sýnd í fréttaþætti sjónvarpsins á mánudags-
kvöld og verður endurtekin siðdegis á þríðjudaginn.
Beat Iseli ferðaheildsali og
eigandi Saga Reisen, sem selur
ferðir til íslands, átti hugmyndina
að fá Hólmfríði á ferðakaupstefnu
í Bem til að kynna ísland. Flug-
leiðaskrifstofan í Sviss gekk í lið
með honum og þessir tveir aðilar
stóðu að komu Hólmfríðar til
Sviss. Hún vakti athygli á íslandi
með því einu að vera þaðan, en
auk þess fór hún jákvæðum og
fallegum orðum um landið í við-
tölum við íjölmiðla.
Henni var ekið inn á ferðakaup-
stefnuna í rauðum, fomum bíl og
það fór ekki framhjá neinum að
fegurðardrottningin frá íslandi
var mætt á staðinn. Gestum gafst
tækifæri til að taka myndir af
henni og hún ritaði nafn sitt á
kynningarbæklinga Saga Reisen
og Flugleiða í sýningarbásum
þeirra. Hún brosti til fólksins og
„bræddi hjörtu karlmannanna",
eins og segir í DerBund.
Iseli og Richard Gugerli, fram-
kvæmdastjóri Flugleiða í Sviss,
vom ánægðir með komu Hólm-
fríðar. „Ég veit ekki hvort íslend-
ingar geri sér grein fyrir hversu
góð kynning Hófí er fyrir landið.
Það eitt að sjónvarpið gerði langa
fréttamynd um hana er alveg stór-
kostlegt. Þama fékkst ókeypis
kynning fyrir landið í sjónvarpinu
en hálfrar mínútu auglýsing kost-
ar mörg þúsund franka,“ sagði
Iseli. „Hólmfríður var góð kynn-
ing fyrir ísland," sagði Gugerli.
„Eg er viss um að kostnaður
Flugleiða og Saga Reisen í. sam-
bandi við komu hennar á eftir að
margborga sig.“
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Guðný Guðmunds-
dóttir einleikari
Sinf óníuhlj ómsveit íslands heldur síðustu fimmtudagstónleika sma
á fyrra misseri nk. fimmtudag í Háskólabíói kl. 20.30. Stjórnandi
verður Jean-Pierre Jacquillat og einleikari verður Guðny Guðmunds-
dóttir konsertmeistari.
Guðný er einleikari í fyrstu þrem-
ur verkunum á efnisskránni, en þau
voru valin í samráði við Jean-Pierre
Jacquillat og eiga það sameiginlegt
að vera rómantísk verk. Fyrsta
verkið er „Tvær rómönsur" eftir
Áma Bjömsson sem hann samdi
upphaflega fyrir fíðlu og píanó, en
Atli Heimir Sveinsson hefur nú út-
sett fyrir fiðlu og hljómsveit. Þá er
Poéme, op. 25 eftir Emest Chaus-
son, sem hann skrifaði árið 1896
fyrir fiðluleikarann Ysaýe og er
byggt á smásögu eftir rússneska
rithöfundinn Turgenev. Tzigane
eftir Ravel er síðasta verkið fyrir
hlé. Ravel skrifaði verkið árið 1924
fyrir ungverska fíðluleikarann d’Ar-
anyi og ber það keim af sígaunatón-
list. Verkið er, að sögn Guðnýjar,
óskadraumur allra fiðluleikara. I
því era notaðir allir tæknilegir
möguleikar hljóðfærisins á þann
hátt sem best verður á kosið. Síð-
asta verkið á efnisskránni er eftir
Antonin Dvorák, sinfónía nr. 8 í
G-dúr, sem hann skrifaði árið 1888.
Sinfóníuhljómsveit íslands vill
vekja athygli á að endumýjun
áskriftarskírteina stendur nú yfír í
Háskólabíói alla virka daga kl.
Islendingarnir
í Jemen óhultir
14.00—18.00 til 31. janúar. Miða-
sala á tónleikana er á fimmtudaginn
í Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar
og Lárasar Blöndal og í ístóni.
Guðný Guðmundsdóttir konsert-
meistari leikur einleik með Sin-
fóníuhljómsveit íslands nk.
fimmtudagskvöld á tónleikum í
Háskólabíói.
ÍSLENDINGARNIR, sem eru við
vinnu í Suður-Jemen, eru allir
heilir á húfi og ekki átt í neinum
vandræðum vegna bardaganna,
sem geisað hafa í höfuðborginni
Aden undanfama daga.
íslendingamir eru níu, sex verk-
fræðingar og tæknimenn, og tvær
konur og eitt bam. Þau starfa öll
við holræsagerð á vegum danskrar
fyrirtækjasamsteypu í borginni
Mukalla á suðurströndinni, sem er
næst stærsta borg landsins.
íslendingamir era allir fyrram
starfsmenn ístaks hf. í Reykjavík.
Þeir era ráðnir til að vera í S-Jem-
en, sem nú heitir raunar Alþýðulýð-
veldið Jemen, í 6—12 mánuði.
Flugumferðarstjórar:
ORD/MYND
Gagnlegar
viðræður
Flugfumf erðarstjórar og
fulltrúar samgönguráðu-
neytisins munu halda við-
ræðufund vegna ágreinings
þeirra fyrrnefndu og Péturs
Einarssonar flugmálastjóra,
á morgun, miðvikudag.
Þessir aðilar ræddu saman á
fimm klukkustunda fundi síðastlið-
inn laugardag, og var stefnt að
því að taka aftur upp þráðinn í
gær, en þeim fundi var frestað til
morgundagsins. Flugumferðar-
stjórar hyggjast ekki efna til
vamaraðgerða, sem þeir nefna svo,
fyrr en útséð er hver niðurstaðan
verður af viðræðum þeirra við
ráðuneytið.
Birgir Guðjónsson, deildarstjóri
í samgönguráðuneytinu, stýrir
viðræðunum. Hann sagði að fund-
urinn á laugardaginn hefði verið
gagnlegur og hefði þokast í sam-
komulagsátt í mörgum atriðum.
„Það væri viðræðunum hins vegar
ekki til framdráttar að ræða ein-
stök efnisatriði þeirra opinberlega
á þessu stigi, en ég hef góðar vonir
um að við finnum lausn á þessu
máli í heild, sem báðir aðilar geta
fellt sig við,“ sagði Birgir.
ftót
Au.&'' lyetwfc'A-(siá
—— ALMENN ENSKA ———
Pitman English as a foreign language — intermediate. Kennt er fjóra daga í viku,
tvœr klukkustundir í senn í fjórtón vikur. Pitmanspróf er tekiö í lok námskeiösins.
Áhersla lögö á: málfrœöi, aukinn oröaforöa, skrifa eftir upplestri, ritgeröir, lýsingar
og brét.
VERSLUNARENSKA I
Pitman English for Business Communications — elemantary. Kennt er fjóra daga
I viku, tvœr klukkustundir í senn í fjórtán vikur. Pitmanspróf er tekiö í lok námskeiös-
ins. Áhersla lögö á: samin verslunarbréf eftir ítarlegum minnisatriöum varöandi
kaup og sölu, kvartanir, fyrirspurnir o.fl.; persónuleg bréf fyrir vinnuveitenda varö-
andi meömœli, hamingjuóskiro.fl.; móttaka og sending skilaboöa gegnum síma
og telex.
VERSLUNARENSKA II
Pitman English for Business communications — intermediate. Kennt er fjóra
daga í viku, tvœr klukkustundirí senn í fjórtán vikur. Próf er tekiö í lok námskeiösins.
Aöalatriöi prófsins eru þau sömu og í verslunarensku I en aukinheldur samin
skýrsla eftir sundurlausum upplýsingum.
Námstimi: 3. febrúar til 16. maí. Kennt fjóra daga vik-
unnar og hœgt að velja á milli þriggja mismunandi
tíma: 9—11, 13—15 og 16—18.
Títínan
I STOFNUNIN
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 10004/21655
INNLENT
IÁNANAUSTUM 15
mAlaskóli
RITARASKÓLI