Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 14

Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 + Áskorun til alþingismanna eftir Braga Björnsson Askorun til al- þingismanna í dag birtu fjölmiðlar þá fregn að kviknað hefði í svefnskála vist- manna á Kópavogshæli með þeim hörmulegu afleiðingum að einn vistmaður hefði látizt og annar væri í gjörgæzlu. Vegfarandi um H af n arfj arð arveg varð fyrstur elds- ins var. Við eftirgrennslan kom í ljós að ekkert eldvamarkerfi var í svefn- skálanum, ekki einu sinni einfaldur reykskynjari. Borið var við peninga- leysi hins opinbera eins og fyrri daginn. Nú vill svo til að hægt er að benda á ákveðna upphæð í íjárlög- um, sem nota má til þess að bæta úr þessu öryggisleysi og hættu- ástandi á spítölum, gamalmenna- hælum og viststöðum þeirra sem aumastir eru allra í velferðarþjóð- félagi okkar, þ.e. geðbiluðum, þroskaheftum og lömuðum, sem allt eiga undir okkur hinum, sem „heilbrigðir" eiga að teljast. Við afgreiðslu núverandi fjárlaga samþykkti meirihluti alþingis §ár- veitingu til sín og sinna, í formi dagblaðakaupa, blaðastyrkja og greiðslu til stjómmálaflokka til út- gáfustarfsemi, sem samtals nemur um 36 milljónum króna. Er nú ekki tilvalið tækifæri fyrir háttvirta alþingismenn að reka af sér slyðruorðið og samþykkja í einu hljóði að afsala sér þessum fríðind- um og búa jafnffamt svo um hnút- ana, að upphæð þessi verði notuð gagngert til þess að koma bruna- „Nú er tækifæri, þing- menn góðir, að sýna alþjóð hversu „þróaðir“ þið eruð, heiðarlegir og ráðdeildarsamir í með- ferð almannafjár.“ vömum áður nefndra stofnana í að minnsta kosti lágmarkshorf, svo langt sem þessi upphæð nær. Eg er handviss um að álit al- mennings á alþingismönnum mundi hressast, ef þeir nú einu sinni, svona til hátíðabrigða, tækju mark á skattgreiðanda um ráðstöfun al- mannafjár. Oft hefur heyrzt að ýmsir ein- ræðisherrar og aðskiljanlegar ríkis- stjómir í „vanþróuðum" löndum væru frekar til fjárins í eiginhags- munaskyni, þegar aðstaða leyfði, og væri slík lítt til fyrirmyndar. Nú er tækifæri, þingmenn góðir, að sýna alþjóð hversu „þróaðir" þið eruð, heiðarlegir og ráðdeildarsamir í meðferð almannafjár. Afskaplega yrði það leiðinlegt, ef einhver atburður gerðist, eins og á Kópavogshæli, áður en þið fengj- uð tækifæri til þess að breyta blaða- peningunum í öryggistæki fyrir vanheila, sem ég veit að þið drífið í hið snarasta. Enn leiðinlegra yrði, ef þessi ásetningur ykkar dytti upp fyrir og þessi greinarstúfur yrði fiskaður fram og einhveijir „ábyrgðarlausir" færu að tauta að réttast væri að minna ykkur á hann, þ.e. greinar- stúfinn. Það yrði leiðinlegast. Höfundur er héraðsdómalög- maður í Reykjavík. Undanþágum áskipun- um fækkar UNDANÞÁGUR til skipstjómar- manna og vélstjóra á íslenzkum skipum vom á síðasta ári 1.048 en 1.720 árið áður og fækkaði um 40% milli ára. Undanþágu- beiðnir árið 1985 náðu til 1.037 manna, en 787 vora samþykktar. Árið 1984 störfuðu 1.105 menn í einhvem tima á undanþágum. Fækkun þeirra, sem starfað hafa á undanþágum, er þvi um 29%. Samkvæmt ákvæðum laga er heimilt að veita í ákveðnum tilfell- um undanþágur frá menntunar- kröfum til starfa um borð í skipum í skamman tíma, enda sé sýnt að ekki fáist réttindamaður til starf- ans. Undanþáguveitingar þessar hafa frá því í júlí 1984 verið í höndum sérstakrar nefndar skip- aðrar fulltrúum útgerðar, sjómanna og samgönguráðuneytis og árið 1984 var ákveðið að stefna að verulegri fækkun undanþága með því að hvetja réttindalausa menn til náms. Á síðasta ári bárust undanþágu- nefnd 1.468 umsóknir. Nefndin samþykkti að veita tímabundið 1.048 undanþágur, en 293 beiðnum var hafnað. 27 umsóknir sem bárust voru til starfa, sem ekki kröfðust réttinda og ein umsókn var aftur- kölluð. Umsóknir þessar náðu til 1.037 manna og voru 787 sam- þykktar. Flestar undanþágur voru veittar til starfa vélavarða, 262, fyrsta stýrimanns, 167, og yfírvél- stjóra, 120. Á árinu 1985 sóttu 200 sjómenn réttindanám vélstjóra víðsvegar á landinu og frá því síðastliðið haust hafa 90 sjómenn hafið réttindanám stýrimanna. Á vormisseri þetta ár verða haldin siðustu námskeið vél- stjóra. Námskeiðum skipstjómar- manna lýkur hins vegar ekki fyrr en á vormisseri 1987. Að loknum þessum námskeiðum munu gefnar undanþágur endurskoðaðar. BSRB: Mótmælir skatta- hækkunum „STJÓRN BSRB mótmælir harð- lega bæUUnniim á álögum á almenning sem stjómvöld hafa ákveðið að undanförau," segir í fréttatilkynningu sem Morgun- blaðinu hefur borist frá BSRB. í fréttatilkynningunni segir enn- fremun „Bandalagsstjómin lýsir undrun sinni á því að stjómvöld skuli hafa fomstu um almennar verðlagshækkanir, sem em síður en svo líklegar til að greiða fyrir gerð nýrra kjarasamninga þar sem markmiðið er aukinn kaupmáttur og minni verðbólga." Laugardalshöll: „Matur ’86“ í maí Nemendafélag Hótel- og veit- ingaskóla íslands í samvinnu við Kaupstefnuna i Reykjavík hf. munu halda sýninguna „Matur ’86“ i Laugardalshöllinni dagana 10. til 18. mai nk. Sýningin er liður í 200 ára af- mælishaldi Reykjavíkurborgar og er stefnt að því að sýna sem vfð- tækasta kunnáttu í matargerðarlist, segir í fréttatilkynningu frá undir- búningsnefnd sýningarinnar og er þar tekið fram, að sölu sýningar- svæðis ljúki 1. febrúar. +

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.