Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1986
37
Áskorendaeinvígin:
Hxf4—Rg6, 25. Hf3—Hae8, 26.
Hh3
Timman og Sokolov byrja vel
UNDANÚRSLIT áskorendaein-
vígjanna hafa farið allt annað
en rólega af stað. í Minsk í
Sovétríkjunum hefur hinn 22ja
ára gamli Andrei Sokolov náð
tveggja vinninga forskoti á
landa sinn Rafael Vaganjan,
33ja ára, þó aðeins þijár skákir
hafi enn verið tefldar. í Tilburg
i Hollandi teflir Jan Timman,
33ja ára, á heimavelli og þar
náði hann að vinna fyrstu skák-
ina í einvígi sínu við 25 ára
gamlan Sovétmann, Artur Ju-
supov. I hvoru einvígi verða
tefldar tólf skákir þannig að
það er ekki öll nótt úti fyrir
þá Vaganjan og Jusupov.
Það er mikil undiralda í skák-
heiminum um þessar mundir og
forseti FIDE, Florencio Campo-
manes, er harkalega gagnrýndur.
Hvort og hvenær þeir Karpov og
Kasparov tefla þriðja heimsmeist-
araeinvígi sitt á 18 mánuðum
veit enginn ennþá. Dæmigert fyrir
ástandið er að þeir Timman og
Jusupov hófu einvígi sitt á því að
sameinast um að mótmæla gild-
andi reglum um heimsmeistara-
keppnina. Timman hafði jafnvel á
orði að hætta þátttöku sinni í
keppninni og það önduðu margir
léttar þegar hann settist að tafli
í Tilburg á fimmtudaginn var.
Litlar fréttir hafa aftur á móti
borist frá Minsk. Þar var Vaganj-
an talinn sigurstranglegri áður en
einvígið hófst, því hann er miklu
reyndari en Sokolov. En eftir að
jafntefli varð í fyrstu skákinni
vann Sokolov tvær skákir í röð.
Byijanaval Jusupovs í fyrstu
einvígisskákinni við Timman var
eitt það misheppnaðasta sem ég
hef séð í slíku einvígi. Jusupov
er traustur stöðuskákmaður, en
tók strax í byijuninni á sig peða-
veikleika, sem hann þurfti að rétt-
læta með sókn. Að auki hefur
Timman unnið marga góða sigra
með þessu afbrigði Nimzoind-
versku vamarinnar. Það var því
ekki að furða þó Timman ynni
skákina örugglega, það fórst
Jusupov afar illa úr hendi að þurfa
að tefla upp á sókn gegn uppá-
haldsafbrigði andstæðingsins.
Hvítt: Artur Jusupov
Svart: Jan Timman
Nimzoindversk vörn
I. d4—Rf6, 2. c4-e6,3. Rf3-b6,
4. Rc3—Bb4, 5. e3
Hvassara er 5. Bg5 eins og
Kasparov heimsmeistari lék gegn
Timman í einvígi þeirra fyrir jólin.
Orðstír afbrigðis þess sem Ju-
supov velur hefur löngum verið
lítill, ekki sízt vegna skáka sem
Timman hefur unnið á svart.
Re4 6. Dc2—Bb7, 7. Bd3-f5,
8. 0-0—Bxc3, 9. bxc3—0-0, 10.
Rel.
Að taka á sig tvípeð á c-línunni
og gefa svörtum sóknarfæri þótti
strax vafasamt árið 1920 eftir
fræga skák þeirra Rabinovitsch
og Aljekíns í Moskvu. Hinn fyrr-
nefndi lék hér 10. Rd2, en fékk
slæma stöðu eftir 10. — Dh4 11.
f3—Rxd2 12. Bxd2—Rc6, 13.
e4—fxe4,14. Bxe4?—Ra5!
c5!
Áður var hér jafnan leikið 10.
— Dh4, en í skákinni Ehlvest-
Vaiser, Sovétríkjunum 1983, náði
hvítur öflugu frumkvæði eftir 11.
f3—Rg5 12. c5!-bxc5 13.
Hbl—Bc6 14. Ba3. Timman
hindrar alla slíka möguleika.
II. f3-Rd6,12. Ba3?!
Jusupov virðist þegar kominn
á villigötur. Af framhaldi skákar-
innar er ljóst að þessi biskup á
mun betur heima á skáklínunni
cl—he en a3—f8, þar sem hann
rekur sig á vegg. Betra var því
12. e4.
Jan Timman, síðasta von Vest-
urlanda i yfirstandandi heinis-
meistarakeppni.
Ra6 13.e4—De7
Opnun taflsins með 13. fxe4 —
14. fxe4—Hxfl+ 15. Kxfl-Dh4
16. Rf3—Hf8 17. Kgl er hvítum
í hag, því þá fær biskupapar hans
að njóta sín.
14. e5—Rf7,15. f4-g5!
Jusupov hefur nú vafalaust
nagað sig í handarbökin fyrir 12.
Sokolov er 22ja ára eins og
Kasparov. Hann gæti orðið
næsti áskorandi.
Ba3, því nú nær svartur að opna
g-línuna og fá sóknarfæri á
kóngsvæng. Jusupov ákveður að
svara þessu með peðsfórn, en
e.t.v. var 15. fxg5—Rxg5 16. d5
betra. 16. d5!?—gxf4, 17.
Rf3—Rh8!
í svo lokuðum stöðum má leyfa
sér tímafreka liðsflutninga. Þessi
riddari á að fara til g6 og valda
umframpeðið.
18. Hael—Rg6, 19. Bcl-Kh8,
20. Df2—Dg7
Hvítur hefur nú komið mönnum
sínum á þokkalega reiti, en samt
getur hann ekki unnið peðið til
baka. Með næstu leikjum sínum
reynir Jusupov að hleypa taflinu
upp, en það þýðir að Timman nær
að skipta upp á drottningum.
21. h4—Dh6, 22. Rg5?!-Dxh4,
23. Dxh4—Rxh4, 24.
Loksins er hvítur farinn að fá
hótanir, en með drottningamar í
stokknum nær svartur auðveld-
lega að veijast.
He7 27. Hh6—Hg8, 28.
Kf2—Rf8, 29. d6—Heg7, 30. Hf6
Hvíta sóknin hefur nú borið
þann árangur að svartur á enga
viðunandi vöm við hótuninni Rf7+
sem vinnur skiptamun. En hvítur
hefur þegar tapað einu peði, auk
þess sem næstum öll önnur peð
hans em veik. Skiptamunsvinn-
ingurinn verður því of dýrkeyptur
og Timman skeytir „hótuninni"
engu.
Rb8! 31. Hhl
31. Rf7 H—Hxf7 32.
Hxf7—Hxg2+ 33. Ke3—Rg6 var
enn verra.
Rc6 32. Bf4—Hxg5!
Loksins tekur Timman af skar-
ið og lætur af hendi skiptamuninn.
33. Bxg5—Hxg5, 34.
Hxf8+—Kg7, 35. He8—Rxe5,
36. Bfl—Rg4+, 37. Kel-Rf6,
38. He7+-Kg6, 39.
Hh3?!-Bxg2, 40. He3-Bc6 og
í þessari stöðu lék Jusupov biðleik.
Eftir að hafa haft samráð við
aðstoðarmenn sína, þá Dovretsky
og Dolmatov, ákvað hann sfðan
að gefa skákina. Ekki er hægt
að lá honum það, Timman hefur
fengið þijú peð fyrir skiptamuninn
og fleiri hvít peð em á leiðinni í
stokkinn.
Drápslistamenn
Kvikmyhdir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn: Hefnd vígamanns-
ins — Revenge of the Ninja ☆
»/2
Leikstjóri Sam Firstenberg.
Aðalhlutverk Sho Kosugi, Arth-
ur Roberts. Virgil Frye, Mario
Gallo. Frá Cannon Films, 1983.
88 min.
Undirr. hefur aldrei talist að-
dáandi þess afbrigðis kvikmynda-
gerðarinnar sem nefnist kung-fu-
myndir. Hagur þeirra stóð í hvað
mestum blóma við upphaf síðasta
áratugs, einkum fyrir tilstilli hins
kattliðuga Bmce Lee, sem átti
talsverðum vinsældum að fagna
víða um heim. Eftir að hann lést
árið 1973 hafa margir verið kall-
aðir en fáir útvaldir að halda
merki hans á lofti svo í dag er
þessi myndaflokkur til allrar
blessunar, sjaldséður.
Hefnd vígamannsins mun
vera önnur myndin í röð þriggja
um vígamenn þá sem kaliast
Ninja og nutu ógnblandinnar
virðingar á miðöldum Japans, þar
sem menn nema víst þessa fáguðu
drápslist enn í dag.
Áð hætti kung-fu-mynda er
efnið baráttan milli góðs og ills.
Hinn talaði texti aðeins hjálpar-
gagn, enda nánast bull. Öll áhersl-
an er lögð á hina mögnuðu slags-
málalist, en fimi vígamannanna
(Kosugi og Roberts) er með ólík-
indum. Myndin er blanda af
bamaskap og blóðugum listdansi
og loftfimleikum sem oft eru það
grípandi að óhætt er að mæla
með henni fyrir aðdáendur þessar-
ar kröfuhörðu íþróttar.
Japanskir drápslistamenn i banastuði í Hefnd vígamannsins.
Sjúkraliðaskóli íslands:
Nýir sjúkraliðar útskrifast
Þann 25. október 1985 útskrifuðust
27 sjúkraliðar frá Sjúkraliðaskóla
íslands og var það 29. hópurinn sem
útskrifast þaðan. í öftustu röð frá
vinstri: Sigríður Hauksdóttir, Gyða
Hauksdóttir, Kristín I. Birgisdóttir,
Kolbrún Högnadóttir, Bergljót
Aðalsteinsdóttir, Anna J. Gunnars-
dóttir, Sædís Þorleifsdóttir, Sigríð-
ur Ámadóttir, Amfríður Eysteins-
dóttir. Miðröð frá vinstri: Sigríður
Sivertsdóttir Hjelm, Gréta Guðlaug
Bjamadóttir, Auður Harðardóttir,
Unnur Sófaníasdóttir, Bima S.
Helgadóttir; Kolbrún Þórarinsdótt-
ir, Kristín Olafsdóttir, Sigrún Guð-
mundsdóttir, Stefanía L. Erlings-
dóttir, Hrefna Jónsd. Thorsteins-
son, Inga Þórs Ingvadóttir. Fremsta
röð frá vinstri: Sólveig Hauksdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir, Matthildur
Þ. Matthíasdóttir, Kristbjörg Þórð-
ardóttir skólastjóri, Sólveig Guð-
jónsdóttir, Bjamey K. Ólafsdóttir,
Edith Vémundsdóttir og Pálína
Bergey Lýðsdóttir.