Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 56

Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 56
Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! I EUROCARD. V —-.. EITT KORT AU5 SIAÐAR ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Framtalseyðublöð borin út um helgina UM NÆSTU helgi verda framtalseyðublöð fyrir skattframtal 1986 borin út til um 68.500 framteljenda i Reykjavík. Skilafrestur fram- tala frá einstaklingum rennur út 10. febrúar nk. en hjá félögum og fyrirtækjum 15. marz nk. og er þegar farið að senda út gögn til þeirra. Hjá Skattstofunni í Reykjavík fengust þær upplýsingar að eyðu- blöðin verði borin út samkvæmt íbúaskrá 1. des. 1985. Þeir framtelj- endur sem ekki fá framtalseyðublöð eiga að sækja þau á Skattstofuna í Reykjavík. Unglingar frá 14 ára aldri fá send framtalseyðublöð og ber þeim sem hafa haft launatekjur á árinu að telja fram sérstaklega en ekki með foreldrum sínum. Morgunblaðiö/Ámi Sæberg. Á ellefta tímanum í gærkvöldi lét ms. Laxfoss úr Reykjavíkurhöfn. Skipið hét áður ms. Hofsá og var í eigu Hafskips, en Eimskip keypti sem kunnugt er eignir þrotabús Hafskips fyrir skömmu. Laxfoss er hið fyrsta skipa Hafskips, sem byijar siglingar að nýju eftir gjaldþrotið. Skipveijarnir heita Guðbjörn Gunnarsson t.v., en hann var áður starfsmaður Hafskips og Árni Pálsson. Jón Helgason látinn EITT helsta ljóðskáld landsins og kunnasti visindamaður í ís- lenzkum fræðum, Jón Helgason prófessor, lézt í Kaupmanna- höfn aðfararnótt sunnudags, 86 ára að aldri. Jón Helgason var þekktur fyrir störf sín langt út fyrir landstein- ana og var þjóðþekktur vísinda- maður í Danmörku, en þar starf- aði hann lengst af ævi sinnar, markaði stefnu í fræðum sínum og hafði forystu Ámasafns á hendi um langt árabil. Hér heima var Jón ef til vill kunnastur fyrir sérstæða og listræna ljóðlist sína, bæði frumsamin ljóð og ekki síður þýðingar á verkum heimsþekktra skálda fyrri og síðari tíma. Jón Helgason var afkastamikill rit- höfundur, einn mikilvirkasti og áhrifamesti textaútgefandi fomra sagna en hann þótti ekki síður sérstæður og eftirminnilegur per- sónuleiki, sem var minnistæður þeim er honum kynntust. Hann var mikill fyrirlesari og ljóð sín flutti hann með þeirri sérstæðu tilfínningu og skörungskap, sem einungis minnir á ljóðaflutning 1916 og varð mag.art í norrænum fræðum frá Kaupmannahafnar- háskóla 1923. Hann lauk doktors- prófí frá Háskóla íslands 1926. Jón Helgason var forstöðumað- ur safns Ama Magnússonar í Kaupmannahöfn frá 1927-1957 og síðan forstöðumaður Áma Magnússonar-stofnunarinnar. Hann var prófessor í íslenzkri tungu og bókmenntum við Kaup- mannahafnarháskóla frá 1929. Hann gaf út og ritstýrði fjölda rita. Hann sendi einnig frá sér eigin ljóð og ljóðaþýðingar og samdi margar ritgerðir. Jón Helgason var tvíkvæntur. Ifyrri kona hans var Ástríður Bjömsdóttir. Hún lézt 1966. Eftir- lifandi kona Jóns er Agnete Loth lektor í fomíslenzku við Kaup- mannahafnarháskóla. Útfor Jóns Helgasonar verður gerð frá Frederiksbergskirkju á fímmtudag klukkan 12. Tveir prestar jarðsyngja, sr. Ágúst Sigurðsson og dr. theol Börge Örsted og verður ræðuflutningur og söngur bæði á íslenzku og dönsku. Jón Helgason Davíðs Stefánssonar frá Fagra- skógi. Jón Helgason fæddist að Rauðsgili í Hálsasveit 30. júní 1899. Foreldrar hans voru Helgi Sigurðsson bóndi og Valgerður Jónsdóttir. Jón lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík Ríkissjóður hefur ekki staðið verr um árabil Rekstraraf koma versnaði um 3.163 milljónir í fyrra Rekstrarafkoma A-hluta ríkis- sjóðs, sem hlutfall af gjöldum, var neikvæð um 8,1% í árslok 1985, og hefur ekki verið verri um árabil. Gjöld umfram tekjur á síðasta ári námu 2.381 miljjón króna. Innheimtar tekjur námu 26.889 milljónum króna, en greidd gjöld voru 29.270 miiyón- ir. Á árinu 1984 voru tekjur umfram gjöld 783 milljónir króna. Rekstrarafkoman hefur því versnað um 3.163 milijónir króna frá fyrra ári. í frétt frá fj ármálaráðuneytinu segir að tvær meginskýringar séu á versnandi rekstrarafkomu ríkis- sjóðs á síðasta ári miðað við árið 1984. Gjöld hafi hækkað verulega umfram verðlagsbreytingar og hækkun tekna ríkissjóðs milli ára hafí verið lægri en sem svarar verðlagsbreytingum. Því hafí verið öfugt farið árið 1984. Meðaibreyt- ing framfærsluvísitölu milli áranna 1984 og 1985 er áætluð 32,5%. Tekjur hafa hins vegar hækkað um 29,6%, en gjöld um 46,6%. í frétt ráðuneytisins segir að hækkun gjalda ríkissjóðs umfram verðlagsbreytingar megi einkum rekja til fjögurra þátta: Húsnæðis- mála, sem hækkuðu milli ára um 167%; vaxtagreiðslna, sem hækk- uðu um 107%; útgjaldatil Lánasjóðs íslenskra námsmanna, sem jukust um 109%; og launaútgjalda, sem eru um fjórðungur af heildarút- gjöldum A-hluta ríkissjóðs, og hækkuðu um 44% milli áranna 1984 og 1985, en hins vegar aðeins tæplega 20% milli áranna 1983 og 1984. Til viðbótar koma til ný út- gjöld vegna endurgreiðslu sölu- skatts í sjávarútvegi, að fjárhæð 521 milljón króna. Sjá ennfremur á bls. 33. Jarðstöðvar til einkanota: Aðems Póstur og sími getur tekið á móti og dreift sjónvarpsefni, sem á að senda áfram til almennings, hvort sem það kann að vera gert á vejrum opinberra stofnanna eða einkaaðila. Stofnunin mun annast Heimilt er að setja upp móttökuskerma Skermar kosta 250—300 þúsund krónur GEFIN hefur verið út reglugerð um starfrækslu jarðstöðva fyrir móttöku sjónvarpsefnis um gervihnetti. Samkvæmt henni getur samgönguráðherra nú gefið út leyfi til einstaklinga til að starfrækja jarðstöðvar til móttöku sjónvarpsefnis fyrir eigin not. Sömuleiðis er hægt að gefa út leyfi til aðila, sem dreifa mótteknu sjónvarpsefni innan- húss, þó ekki í atvinnuskyni. Þetta ákvæði ætti að opna mögu- leika fyrir húsfélög til að eiga eigin móttökuskerma. Skermar af þessu tagi kosta nú 250-300 þúsund krónur uppkomnir. Þegar hafa verið settir upp sex slík- ir skermar hér á landi, fjórir hjá einkaaðilum, þar af a.m.k. einn í eigu húsfélags í fyölbýlishúsi í Breiðholti, einn á Hótei Holti og einn í eigu sovéska sendiráðsins í Reykjavík. Leyfí fyrir uppsetningu sjón- varpsmóttökuskerma eru bundin því skilyrði, að umsækjandi hafí aflað sér heimildar rétthafa hinnar tilteknu sjónvarpsrásar um afnot hennar, eins og segir orðrétt í reglugerðinni. Leyfí verður einungis veitt að fengnu samþykki eigenda fjarskiptatunglsins og viðurkenn- ingu á því, að móttökubúnaðurinn sé í samræmi við setta staðla. Leyfí eru jafíiframt háð umsögn Póst- og símamálastofnunarinnar og þeir sem selja móttökuskerma skulu hafa fullvissað sig um að kaupendur og notendur búnaðarins hafí aflað sér tilskilinna leyfa áður en hann er afhentur. Móttökubúnaðurinn má aðeins geta tekið á móti þeim sjónvarpsrásum, sem umsækjandi hefur tryggt sér afnotarétt á. innheimtu afnotagjalda. Gjöld fyrir starfrækslu jarðstöðva verða ákveð- in af ráðherra með hliðsjón af kostnaði en einnig er gert ráð fyrir að Pósti og síma verði greitt svo- kallað „eftirlitsgjald".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.