Morgunblaðið - 29.01.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986
200 krónur
Mánudagsmynd sjónvarpsins
barst að þessu sinni alla leið
frá Brasilíu. Nefndist mjmdin Oln-
bogaböm, en Sonja Diego snaraði
úr portúgölsku heiti myndarinnar
og reyndar textanum öllum og
sömuleiðis texta kanadísku heim-
ildamyndarinnar: Sviðin jörð (La
Terra Quema), er lýsti þurrkunum
miklu í norðausturhluta Brasilfu,
er gátu af sér fyrrgreind „oln-
bogaböm", en kanadíska heimildar-
myndin fylgdi fast í fótspor brasil-
ísku sjónvarpsmyndarinnar á
mánudagskveldið og þannig gafst
sjónvarpsáhorfendum færi á að
skoða sögusviðið frá fleiri en einni
hlið; í senn með augum hins brasil-
íska leikstjóra Paulo Alfonso Gris-
olli og hinna kanadísku heimildar-
kvikmyndargerðarmanna. Ég fékk
ekki annað séð en að Brasilíumað-
urinn hafi verið trúr hinum sagn-
fræðilegu staðreyndum. Á hitt ber
að líta að það er naumast hægt að
ljúga til um þá mannlegu eymd er
þama var lýst. En á þurrkasvæðun-
um bíða konumar þess — jafnvel
ámm saman — að eiginmennimir
sendi peninga frá stórborginni,
bömin bera vatnið óravegu og þurfa
oft að bíða við vatnsbólin eftir því
að búpeningurinn slafri í sig mó-
rautt vatnið og hvað um opnar lík-
kistur bamanna, þessara fómar-
lamba fátæktarinnar, er horfa
brostnum augum til þess guðs er
birtist helst í glæsilegum kirkjum.
Svo er moldinni mokað yfír brostin
augun og stjómarherramir senda
fólkinu 200 krónur á mánuði fyrir
stritvinnu í þomuðum vatnsbólum
og ávísanimar em undirritaðar við
mahónískrifborð í Brasilíu, þeirri
miklu höfuðborg er reis upp af
auðninni líkt og táknmynd tak-
markalausrar auðlegðrar. Og fólkið
signir sig, ómegðin er mikil og 200
krónumar nægja vart til að brauð-
fæða fyrirvinnuna en suður í Róm
situr bamlaus piparsveinn og bann-
ar getnaðarvamir. Og bömin deyja,
Qölskyldumar em of stórar, valds-
mennimir ómennskir.
En gæti þessu fólki liðið vel?.
Vissulega, í það minnsta búa fjöl-
margir Brasilíumenn við fáheyrðan
lúxus við strandlengju Rio de Jan-
eiro og víðar. Landið er ríkt eða
er Brasilía ekki mesti kaffiframleið-
andi í veröldinni og hvað um vatns-
aflið, 15.000.000 kflóvattstunda em
til reiðu í ám landsins. Þar er að
finna ‘/i alls jámgrýtis í veröldinni,
og hvergi á vesturhveli jarðar er
meira af magnesíum og hvað um
hinar 60 milljón beljur er bíta gras
í Brasilíu eða 100 milljónir rúm-
metrana af tijáviði sem felldur er
ár hvert. Hvað um þá staðreynd
að aðeins Bandaríkin framleiða
meira kom en Brasilía á vesturhveli
jarðar, og aðeins Ghana framleiðir
meira af kakói. Er Brasilía máski
ríkasta land heims? Pyrrgreindar
mánudagsmyndir sjónvarpsins
færðu okkur heim sanninn um það
að auðlegð jarðar hrekkur skammt
þegar manneskjan lifir við helsi
ómennsks skriffínnaveldis, trúlegra
fordóma og fullkomins menntunar-
skorts.
Réttstefna
Ég hef áður minnst á nauðsyn
þess að sjónvarpið sé iíkt og opinn
gluggi er sýnir okkur alla veröldina.
Eg álít að það sé vel við hæfi að
velja mánudagsmyndimar úr öllum
heimshomum og hefði þess vegna
getað hugsað mér að sjá fleiri
myndir frá Brasilíu, til dæmis: Pra
frente Brazil (Áfram Brasilía) en
sú mynd varð geipivinsæl í Brasilíu
í hitteðfyrra einkum vegna afskipta
stjómvalda er töldu að efni myndar-
innar gæti skaðað ríkisstjómina en
myndin lýsir lögregluaðgerðum í
kringum Heimsmeistarakeppnina í
Brasilíu 1970. Já það er af mörgu
að taka utan draumaverksmiðjunn-
ar í Hollywood. ÓlafurM.
Jóhannesson
ÚTYARP / SJÓNVARP
Speking-ar spjalla
■i Þáttur, sem ber
30 yfirskriftina
— „Spekingar
spjalla", hefst í sjónvarpi
kl. 22.30 í kvöld. Sænski
sjónvarpsmaðurinn Bengt
Feldreich stýrir viðræðum
fimm vísindamanna sem
hlutu Nóbelsverðlaun árið
985 í eðlis- og efnafræði
og læknavísindum.
Þátttakendur í umræð-
unum eru: Herbert A.
Hauptman, Klaus von Klit-
zing, Jerome Karle, Joseph
L. Goldstein, Michael S.
Brown og Eugene Sargent.
Þýðandi er Jón O. Ed-
wald.
Stundin okkar
Nóbelsverðlaunahafar 1985 í eðlis- og efnafræði og læknavísindum ásamt stjóm-
anda umræðnanna.
Sögnblik
Arngrímur lærði og verk hans
Sögublik er á
■■ Stundin okkar
00 frá fyrra sunnu-
’ degi verður end-
ursýnd í kvöld kl. 19.00.
Hildur Halldóra Karls-
dóttir úr Vesturbænum í
Reykjavík og tvær ungar
dætur hennar flytja stuttan
heimatilbúinn brúðuleik-
þátt, sem þær kalla „Blátt
lítið blóm eitt er“. Þá verð-
ur teiknimyndasagan „Jak-
ob“ eftir Guðrúnu Kristínu.
Höfundur les og hefur sjálf
teiknað myndimar. Fyrsti
þátturinn af nýjum leik-
þætti verður á dagskrá, en
hann nefnist „Vilhjálmur
og Karítas" og íjallar um
tvo krakka sem búa í Hlíð-
unum í Reykjavík. Krakk-
ana leika þau Sigrún Edda
Bjömsdóttir og Eggert
Þorleifsson. Leikstjóri er
Viðar Eggertsson en leik-
urinn er eftir þá Sigurð
G. Valgeirsson og Svein-
bjöm I. Baldvinsson.
Þrautahomið verður á
sínum stað þar sem áhorf-
endur fá að glíma við
krossgátu og myndaþrautir
og einnig verður lítil mynd,
sem gerð var sl. sumar á
dagskrá Stundarinnar okk-
ar sem heitir „Vasadiskó
fyrir fisk“ eftir handriti
Þorsteins Marelssonar. í
aðalhlutverki er Kjartan
Þórarinsson.
O "I 30 dagskrá rásar 1
& 1 — kl. 21.30 í kvöld
í umsjá Friðriks G. Olgeirs-
sonar og fjallar þátturinn
um Arngrím lærða og verk
hans. Lesari er Guðrún
Þorsteinsdóttir.
Seint á nýliðnu ári kom
út hjá Sögufélaginu rit
Amgríms lærða Jónssonar,
Crymogæa, í þýðingu dr.
Jakobs Benediktssonar. Af
því tilefni verður Sögublik
að þessu sinni helgað minn-
ingu Amgríms. Fjallað
verður um helstu æviatriði
hans og þau margvíslegu
störf sem hann hafði með
höndum á langri ævi
(1568-1648).
Amgrímur Jónsson var
frændi Guðbrands Þorláks-
sonar biskups á Hólum.
Biskup tók hann ungan í
Hólaskóla og þegar Am-
grímur snéri heim til ís-
lands að loknu námi í Há-
skólanum í Kaupmanna-
höfn varð hann rektor
nyrðra hjá Guðbrandi. M.a.
fyrir áhrif frá biskupi hóf
Ámgrímur snemma að
skrifa bækur, ýmist um
sögu íslands eða svarrit
gegn ýmsum dellusögum
sem erlendir rithöfundar
létu á þrykk ganga á 16.
öld, eins og t.d. Dithmar
Blefken. Af ritum sínum
varð Amgrímur mjög
þekktur víða um lönd, lík-
legast þekktasti íslending-
urinná 17. ogl8. öld.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
29. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.16 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Pési refur" eftir Krist-
ian Tellerup. Þórhallur Þór-
hallsson les þýingu sina (3).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur og
kynnir.
9.46 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.06 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Sigurður G. Tómasson
flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.26 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.40 Hin gömlu kynni. Val-
borg Bentsdóttir sér um
þáttinn.
11.10 Norðurlandanótur. ólaf-
ur Þóröarson kynnir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.30 f dagsins önn - Frá
vettvangi skólans. Umsjón:
Kristín H. Tryggvadóttir
14.00 Miödegissagan „Ævin-
týramaður," - af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra. Gils Guð-
mundsson tók saman og
les (20).
14.30 Óperettutónlist.
a. Margit Schramm, Rudolf
Schock og Dorothea Chryst
flytja ásamt Gunher Arndt
kórnum og Sinfóníuhljóm-
sveit Berlínar atriði úr óper-
ettunni „Paganini" eftir
Franz Lehar; Robert Stolz
stjórnar.
b. Herta Talmar, Renata
Holm, Fritz Wunderlich o.fl.
flytja ásamt kór og hljóm-
sveit atriði úr óperettunni
„Csardas-furstafrúnni" eftir
Emmerlich Kalman; Franz
Marszalek stjórnar.
c. Hljómsveit Horst Wende
leikur „Hringekjuna", vals
eftirOscarStrauss.
d. Vínar-danshljómsveitin
leikur „Þorpssvölurnar frá
Austurríki" eftir Josef
Strauss; Franz Marszalek
stjórnar.
16.15 Hvað finnst ykkur?
Umsjón öm Ingi. (Frá Akur-
eyri) 16.46 Tilkynningar.
Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
19.00 Stundin okkar. Endur-
sýndur þáttur frá 26. janúar.
19.30 Aftanstund. Barnaþátt-
ur með innlendu og erlendu
efni. Söguhornið — Forar-
pollur og himinn eftir Ingi-
mar Erlend Sigurðsson,
sögumaður Hrafnhildur
Stefánsdóttir. Myndir:
Nanna Magnúsdóttir. Sögur
snáksins með fjaðraham-
inn, spænskur teiknimynda-
flokkur, og Ferðir Gúllívers,
þýskur brúöumyndaflokkur.
19.60 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
16.20 Síödegistónleikar.
a. Konsert í ítölskum stíl
eftir Johann Sebastian
Bach. Helga Ingólfsdóttir
leikurá sembal.
2. Ballaöa nr. 2 i h-moll eftir
Franz Liszt. Jónas Ingi-
mundarson leikurá píanó.
c. Tilbrigði nr. 2 i C-dúr eftir
Albert Lorenz. Michala Petri
leikurá blokkflautu.
17.00 Barnaútvarpiö. Meðal
efnis: „Stína" eftir Friis Baa-
stad í þýðingu Sigurðar
Gunnarssonar. Helga Ein-
arsdóttir les (8). Stjórnandi.
Kristín Helgadóttir.
17.40 Úr atvinnulífinu-Sjávar-
útvegur og fiskvinnsla.
Umsjón: Gísli Jón Kristjáns-
son.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
20.40 Dallas. Hjónaskilnaður.
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Lokaþáttur
syrpunnar. Þýðandi Bjöm
Baldursson.
21.35 Á líðandi stundu. Þáttur
með blönduðu efni. Bein
útsending úr sjónvarpssal
eða þaðan sem atburðir líð-
andi stundar eru að gerast
ásamt ýmsum innskotsat-
riðum. Umsjónarmenn Óm-
ar Ragnarsson, Agnes
Bragadóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson. Stjórn út-
sendingar og upptöku:
Tage Ammendrup og Óli
örn Andreassen.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Helgi
J. Halldórsson og Páll The-
ódórsson flytja
19.60 Eftir fréttir. Jón Ásgeirs-
son framkvæmdastjóri
Rauöa kross (slands flytur
þaftinn.
20.20 Hálftíminn. Elín Kristins-
dóttir kynnir popptónlist.
20.30 Iþróttir. Umsjón: Ingólf-
ur
Hannesson.
20.60 Tónmál. Umsjón Soffía
Guðmundsdóttir (Frá Akur-
eyri) 21.30 Sögublik. Um-
sjón: Friörik G. Olgeirson.
Lesari með honum: Guðrún
Þorsteinsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma (3)
22.30 Bókaþáttur. Umsjón:
Niöröur P. Njarðvík.
22.30 Spekingar spjalla (Snill-
en spekulerar).
Sænski sjónvarpsmaöurinn
Bengt Feldreich stýrir við-
ræðum fimm vísindamanna
sem hlutu Nóbelsverölaun
árið 1985 í eðlis- og efna-
fræði og læknavísindum.
Þátttakendur eru: auk
stjórnandans: Herbert A.
Hauptman, Klaus von Klit-
zing, Jerome Karle, Joseph
L. Goldstein, Michael S.
Brown og Eugene Sargent.
Þýðandi Jón O. Edwald.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpiö).
23.30 Fréttiridagskrárlok.
23.10 Á óperusvlðinu. Leifur
Þórarinsson kynnir óperu-
tónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
29. janúar
10.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
12.00 Hlé.
14.00 Eftirtvö.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00 Núerlag.
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins. Stjórnandi:
GunnarSalvarsson.
16.00 Dægurflugur.
Leopold Sveinsson kynnir
nýjustu dægurlögin.
17.00 Þræðir.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
18.00 Dagskrártok.
Fréttir eru sagðar í þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SYÆÐISÚTYÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKURETRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
29. janúar
líÆratírt