Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR1. FEBRÚAR1986 BIBLIUDAGUR1986 Sunnudagur 2. febrúar Arsfundur Hins ísl. biblíufélags verður sunnudaginn 2. febrúar í Áskirkju í Reykjavík, og hefst með guðsþjónustu í kirkjunni kl. 14.00. Sóknarpresturinn sr. Ámi Bergur Sigurbjðmsson, stjómarmað- ur HIB, prédikar og þjónar fyrir altari. Fundurinn verður síðan í safnaðarsal kirkjunnar og hefst með því að kynnt verða úrslit í ritgerða- og myndasamkeppni 10 ára skólabama á vegum HÍB og Gideonfélagsins í tilefni af ári æskunnar 1985. Biskup afhendir bðmunum verðlaunin, verðlaunaritgerðimar verða lesnar og verðlaunamyndimar sýndar. Að því loknu verða aðalfundarstörf HÍB með skýrslum og umræðum um starfsemi félagsins. Auk félagsmanna er vinum og velunnurum biblíufélagsins velkomið að sitja fundinn til að fræðast um starf þess og þar gefst tækifæri tilaðlátaskrásigífélagið. Stjornm Um hvað er kosið í próf- kjöri Aiþýðuflokksins? — eftir Bjarna P. Magnússon Prófkjör Alþýðuflokksins vegna borgarstjórnarkosninga fer fram um þessa helgi. Prófkjör Alþýðu- flokksins er frábrugðið prófkjöri annarra flokka, Alþýðuflokkurinn hefur opið prófkjör — býður öllum, sem ekki eru í öðrum flokki að koma og velja frambjóðendur á lista. Það eru ekki mörg ár síðan flokk- arnir kepptust um að bjóða fólki að taka þátt í opnu prófkjöri, sá tími er liðinn, flokkamir hafa, að undan- skildum Alþýðuflokknum, ákveðið að snúa aftur til eldra fýrirkomu- lags, loka flokkunum. Það er skoð- un undirritaðs að þátttaka almenn- ings í prófkjöri Alþýðuflokksins nú kunni að ráða úrslitum hvort því verður viðhaldið, verði þátttakan góð mun opið prófkjör verða áfram fastur liður í flokksstarfi Alþýðu- flokksins, annars mun flokkurinn fylgja fordæmi annarra, hætta að leita til fólks vegna röðunar á fram- boðslista. Prófkjörið nú snýst því meðal annars um það hvort kjós- Hrútspungar Hákarl Lundabaggi Bringukollar Sviðasulta Hvalur Hangikjöt Blóðmör Lifrarpylsa Harðfiskur Rúgbrauð Flatkökur Smjor t i I Noutabuff 17° kr./kg NautQsnitzel )/7° kr./kg NQutagúllQs 4Í0,- kr./kg Blandað nauta- og svínahakk ' kr./kg © Vönimarkaðurinn hf. Armúla Cr Eidistorgi 0$$>' N \ Bjami P. Magnússon „ Verði þátttakan góð mun opið prófkjör verða áfram fastur lið- ur í f lokksstarf i Al- þýðuf lokksins, annars mun flokkurinn fylgja fordæmi annarra, hætta að leita til fólks vegna röðunar á fram- boðslista.“ endur vilja opið prófkjör eða ekki? En það er kosið um fleira. Eins og vera ber í virkri hreyfingu jafn- aðarmanna er kosið um afstöðu til mála. Við sem yngri erum í hreyf- ingunni teljum nauðsynlegt að áherslumar í starfí borgarfulltrúa breytist. Við viljum breyta fram- kvæmd á stefnu Alþýðuflokksins. Til dæmis er varðar mikilvæg at- vinnutæki svo sem Granda, koma fyrirtækinu í samfélagseign. Það verður best gert með því að gefa hlutabréf á nafn hvers Reykvíkings. í stefnuskrá Alþýðuflokksins á bls. 13 segir: „Samfélagseign í þessum myndum — þjóðnýtingu í víðustu merkingu — vill Alþýðuflokkurinn auka og finna henni sem lýðræðis- legust form.“ Með því að gera þetta að kröfu í næstu kosningum vinnst margt. Fyrst er til að nefna að ekki verður véfengt að jafnréttis er gætt. í annan stað leggja borgaiyfírvöld sitt af mörkum til þess að efla þann vísi að hlutabréfamarkaði sem nú er að þróast, og mun ef vel tekst til verða öflugra tæki fýrir atvinnu- líf landsmanna en öll þróunarfélög stjómarflokka. Best væri að flokk- urinn næði saman við aðra um það að gera arð af hlutafé skattfijálsan a.m.k. um tíma til þess að ganga úr skugga um gildi þess. Annað mál svipað þessu, brýnt neytendamál, er að fínna leið til þess að veita Landsvirkjun nauð- synlegt aðhald. Aðgerð í þá vem er að skylda Landsvirkjun til þess að kaupa orku (raforku) á því verði sem það annars kostaði hana. Dæmi hér um er raforka sem Hitaveita Reykjavíkur kemur til með að fram- leiða ef af Nesjavallavirkjun verður. Slík ákvörðun ef tekin yrði mun valda því að vel yrði til virkjana vandað og okkur forðað frá Kröflum í framtíðinni. Að dreifa efnahagsvaldinu er ein höfuðkrafa Alþýðuflokksins. Ekk- ert er vænlegra til árangurs í þeim efnum en almennur markaður með þátttöku hagsmunaaðilja. Gull okkar Islendinga, auðurinn í hafinu, hefur um nokkurt skeið haft marg- víslegt verðmyndunarkerfí. Til skamms tíma var þó um að ræða einokunarákvörðun tiltölulegra fárra, fyrst var verðið ákveðið hér heima af verðlagsnefnd síðan í Bandaríkjunum af því sem söluaðilj- ar okkar þar vilja kalla markað en er í raun örfáir heildsalar og inn- kaupaaðiljar. Allir sem vilja vita gera sér grein fyrir því að á Vestur- löndum hefur fískur yfírburðakosti umfram annað hráefni til matar- gerðar. Okkur bíða stórkostlegir möguleikar bæði fyrir vestan og austan haf, gámaflutningar á nýj- um físki eru aðeins byijunin á miklu stærra máli, því að gera afurð okkar verðmeiri, að auka tekjur okkar, að bæta kjör fólksins og það er engin tilviljun að fijáls markaður getur borgað helmingi betur en verðlagsnefnd, hann er helmingi hæfari til að meta verðið. Reykjavíkurborg ber að vinna að því í samráði við hagsmunaaðilja að þróa slíkan markað. Sem dæmi hér um má nefna samvinnu verka- lýðsfélagana, Eimskipafélagsins, sem er gott fyrirtæki er býður upp á mikla möguleika í flutningatækni, fískkaupenda, fískseljenda og borg- arinnar um slíkan markað. En það eru fleiri mál en atvinnu- og efnahagsmál sem mæða á fólki þessa daga. Nú þegar húsnæðis- lánasvindlinu er lokið og húsbyggj- endum gert að borga lán sín til baka í raungildi verður æ ljósara að hinn ameríski draumur um skyndigróða í húsbyggingum byggðist á fölskum forsendum. Jafnframt verður mönnum ljósari sú staðreynd að húsnæði er réttlæt- ismál fremur en verslunarvara. Borgatyfírvöldum ber að leggja sitt af mörkum til þess að bæta hér úr. Sérstaklega er nauðsynlegt með tilliti til hins mikla lóðaframboðs að nýta fjármagnið sem liggur í Grafarvoginum betur. Ákvörðun borgarstjómar um að fullnægja lóðareftirspum var rétt, tímasetn- ing og magn umdeilanlegt. Þá verð- ur að fela byggingaraðiljum sem búa yfir þekkingu, reynslu og getu, meiri hluta byggingamarkaðarins en nú er. I stuttu máli hef ég reynt að lýsa nokkmm málum sem við viljum að kosið verði um í næstu borgar- stjómarkosningum. Von okkar sem að framboði mínu standa er að sem flestir Reykvíking- ar komi og taki þátt, bæði til þess að láta í ljós álit sitt á málefnum sem og til þess að viðhalda opnu prófkjöri. Höfundur er frambjóðandi í fyrsta sæti íprófkjöri Alþýðuflokks vegna borgarstjómarkosninga. Leigribifreiðaakstur: Höfuðborgar- svæðið eitt og sama gjaldsvæði Leigubif reiðastj óraf élögin Neisti í Hafnarfirði og Frami í Reykjavík munu sameinast þann fyrsta febrúar næstkomandi. Eftir það verður Frami eitt stétt- arfélag leigubifreiðastjóra á höf uðborgarsvæðinu. Eftir breytingu þessa verður höfuðborgarsvæðið, Reykjavík, Kópavogur, Seltjamames, Hafnar- fjörður, Garðakaupstaður, Bessa- staðahreppur og Mosfellshreppur, eitt atvinnu- oggjaldsvæði. Vegna þessa fellur niður reglu- gerð um takmörkun leigubifreiða í Hafnarfírði og ráðstöfun atvinnu- leyfa, en reglugerð um takmörkun leigubifreiða á félagssvæði Frama gildir fyrir allt höfúðborgarsvæðið. (Fréttatilkynning.) +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.