Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRCAR1986
s*
1
>
171’SALA
á flísum
Vegna breytinga seljum viö nú um um helgina
viöurkenndar vesttu*-þýskar gólf- og vegg-
flísar meö 25—50% aíslætti. Seljumr
einnig allar baðinnréttingar í
sýningarsal okkar meö
25% afslætti. Svo og
ýmsar smávömr
í baðher-
bergi.
7%
afslátt-
ur á nýj-
um bað- og
eldhúsinn-
réttingum
sem pantaðar
verða fyrir ÍO.
febrúar.
Opið
laugar-
dag og
sunnudag
frá 13—18.
•46
innréttingoþjónuskon
Smiðjuvegi 38 200 Kópavogi Sími 79800.
Asta við vinnu sína. I stólnum er Auður Guðbrandsdóttir.
Hársnyrtistofa Ástu
í nýtt húsnæði
Hveragerði, 28. janúar.
ÁSTA Gunnarsdóttir hárskera-
meistari opnaði nýja rakarastofu
um sl. áramót að Reykjamörk 1.
Þar býður hún upp á alla venju-
lega hársnyrtingu, báðum kynj-
um á öllum aldri. Auk þess mun
hún eftirleiðis verða með á boð-
stólum ýmsar snyrtivörur.
Ásta rakari eins og hún er nefnd
í daglegu tali, er fædd hér í Hvera-
gerði, en ólst upp í Borgamesi, síð-
an á Selfossi og loks í Reylcjavík
og þar nam hún sfna iðn og lauk
námi árið 1962. Vann sfðan á stof-
um f höfuðborginni til ársins 1969
að hún flutti til Hveragerðis og
opnaði stofu á heimili sfnu.
í haust festi hún kaup á húsnæði
og opnaði um áramótin mjög rúm-
góða og fallega stofu. Mun hún í
framtíðinni bjóða flölbreyttari þjón-
ustu s.s. permanent og strípulitun
o.fl. Þá býður hún nú líka margs-
konar hár- og snyrtivörur. Hár-
snyrtistofa Ástu mun verða opin
alla virka daga frá kl. 10—12 og
13—18 nema mánudaga, þá verður
lokað en opið laugardaga kl.
10—12.
Ásta er gift Sveini Aðalbergssyni
húsasmíðameistara og eiga þau
Qögur böm. Sigrún
Ferðamálasamtök Suðurlands:
Ferðamalafulltrúi ráðinn
tíl starfa næsta sumar
Seifossi, 29. janúar.
NÝKJÖRIN stjórn Ferðamálasamtaka Suðurlands hélt fyrsta stjóm-
arfund sinn 20. janúar sl. Á þeim fundi var m.a. samþykkt að ráða
ferðamálafulltnia til starfa næsta sumar. Stjómin mælti einróma
með Óla J. Ólasyni sem reynslu hefur af slíkum störfum fyrir ferða-
málasamtök á Vesturlandi.
A stjómarfundinum var einnig
samþykkt einróma að fela fram-
kvæmdastjóm samtakanna að
fylgjast vel með uppbyggingu við
Gullfoss og ítreka það við viðkom-
andi aðila að þar verði komið upp
hreinlætisaðstöðu. Á aðalfundi
samtakanna var skorað á ferða-
málaráð að gera úrbætur á hrein-
lætisaðstöðunni hið allra fyrsta.
Samþykkt var að fara þess á leit
við framhaldsskóla á Suðurlandi að
þeir taki upp fræðslu i þeim grein-
um er lúta að ferðaþjónustunni. Þá
var á fundinum reifuð hugmynd um
flugfélag flugrekstraraðila á Suð-
urlandi. Málefni vegna Dyrhólaeyj-
ar, Seljalandsfoss, Seljavallalaugar
og svæðisins við Laka vom rædd
og skipuð nefnd til að taka þau
fyrir og gera tillögur um úrbætur.
Fyrirhugað er að setja upp í
Reykjavík upplýsingaskrifstofu um
ferðamál o.fl. sem landshlutafélög-
um í ferðamálum er boðin hlutdeild
í. Starfssvið þessarar skrifstofu er
í mótun og samþykkti fundurinn
að fela fulltrúa samtakanna í ferða-
málaráði að fylgjast með vel því
máli.
Núverandi stjóm Ferðamálasam-
taka Suðurlands skipa: Eiríkur
Eyvindsson formaður, Alda Andrés-
dóttir gjaldkeri, Reynir Ragnarsson
ritari, Jón Oskarsson, Hörður
Adolfsson, Valgeir Ingi Ólafsson,
Sigurður Jónsson, Þorfínnur Þórar-
insson, Guðmundur Vignir Sigur-
bjamarson og Ómar Halldórsson.
Bragi Einarsson er fulltrúi samtak-
anna í Ferðamálaráði. Þrír þeirra
fyrsttöldu skipa framkvæmda-
stjóra.
Sig. Jóns.
G/obusn
LÁGMÚLI5,
*
GOTT FÖLK/SÍA