Morgunblaðið - 01.02.1986, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 01.02.1986, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRCAR1986 s* 1 > 171’SALA á flísum Vegna breytinga seljum viö nú um um helgina viöurkenndar vesttu*-þýskar gólf- og vegg- flísar meö 25—50% aíslætti. Seljumr einnig allar baðinnréttingar í sýningarsal okkar meö 25% afslætti. Svo og ýmsar smávömr í baðher- bergi. 7% afslátt- ur á nýj- um bað- og eldhúsinn- réttingum sem pantaðar verða fyrir ÍO. febrúar. Opið laugar- dag og sunnudag frá 13—18. •46 innréttingoþjónuskon Smiðjuvegi 38 200 Kópavogi Sími 79800. Asta við vinnu sína. I stólnum er Auður Guðbrandsdóttir. Hársnyrtistofa Ástu í nýtt húsnæði Hveragerði, 28. janúar. ÁSTA Gunnarsdóttir hárskera- meistari opnaði nýja rakarastofu um sl. áramót að Reykjamörk 1. Þar býður hún upp á alla venju- lega hársnyrtingu, báðum kynj- um á öllum aldri. Auk þess mun hún eftirleiðis verða með á boð- stólum ýmsar snyrtivörur. Ásta rakari eins og hún er nefnd í daglegu tali, er fædd hér í Hvera- gerði, en ólst upp í Borgamesi, síð- an á Selfossi og loks í Reylcjavík og þar nam hún sfna iðn og lauk námi árið 1962. Vann sfðan á stof- um f höfuðborginni til ársins 1969 að hún flutti til Hveragerðis og opnaði stofu á heimili sfnu. í haust festi hún kaup á húsnæði og opnaði um áramótin mjög rúm- góða og fallega stofu. Mun hún í framtíðinni bjóða flölbreyttari þjón- ustu s.s. permanent og strípulitun o.fl. Þá býður hún nú líka margs- konar hár- og snyrtivörur. Hár- snyrtistofa Ástu mun verða opin alla virka daga frá kl. 10—12 og 13—18 nema mánudaga, þá verður lokað en opið laugardaga kl. 10—12. Ásta er gift Sveini Aðalbergssyni húsasmíðameistara og eiga þau Qögur böm. Sigrún Ferðamálasamtök Suðurlands: Ferðamalafulltrúi ráðinn tíl starfa næsta sumar Seifossi, 29. janúar. NÝKJÖRIN stjórn Ferðamálasamtaka Suðurlands hélt fyrsta stjóm- arfund sinn 20. janúar sl. Á þeim fundi var m.a. samþykkt að ráða ferðamálafulltnia til starfa næsta sumar. Stjómin mælti einróma með Óla J. Ólasyni sem reynslu hefur af slíkum störfum fyrir ferða- málasamtök á Vesturlandi. A stjómarfundinum var einnig samþykkt einróma að fela fram- kvæmdastjóm samtakanna að fylgjast vel með uppbyggingu við Gullfoss og ítreka það við viðkom- andi aðila að þar verði komið upp hreinlætisaðstöðu. Á aðalfundi samtakanna var skorað á ferða- málaráð að gera úrbætur á hrein- lætisaðstöðunni hið allra fyrsta. Samþykkt var að fara þess á leit við framhaldsskóla á Suðurlandi að þeir taki upp fræðslu i þeim grein- um er lúta að ferðaþjónustunni. Þá var á fundinum reifuð hugmynd um flugfélag flugrekstraraðila á Suð- urlandi. Málefni vegna Dyrhólaeyj- ar, Seljalandsfoss, Seljavallalaugar og svæðisins við Laka vom rædd og skipuð nefnd til að taka þau fyrir og gera tillögur um úrbætur. Fyrirhugað er að setja upp í Reykjavík upplýsingaskrifstofu um ferðamál o.fl. sem landshlutafélög- um í ferðamálum er boðin hlutdeild í. Starfssvið þessarar skrifstofu er í mótun og samþykkti fundurinn að fela fulltrúa samtakanna í ferða- málaráði að fylgjast með vel því máli. Núverandi stjóm Ferðamálasam- taka Suðurlands skipa: Eiríkur Eyvindsson formaður, Alda Andrés- dóttir gjaldkeri, Reynir Ragnarsson ritari, Jón Oskarsson, Hörður Adolfsson, Valgeir Ingi Ólafsson, Sigurður Jónsson, Þorfínnur Þórar- insson, Guðmundur Vignir Sigur- bjamarson og Ómar Halldórsson. Bragi Einarsson er fulltrúi samtak- anna í Ferðamálaráði. Þrír þeirra fyrsttöldu skipa framkvæmda- stjóra. Sig. Jóns. G/obusn LÁGMÚLI5, * GOTT FÖLK/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.