Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986
Indland:
Hindúar mótmæla
heimsókn páfans
Dehlí, 31 Janúar. AP. JL
HERSKAIR hindúar efndu til mótmælaaðgerða í höfuðborg Indlands
í dag vegna komu Jóliannesar Páls páfa þangað í fyrramálið. Hengd-
ir hafa verið borðar um borgina þar sem heimsókn páfa er mótmælt
og þess krafizt að hann hypji sig heim.
Hindúamir segja heimsókn páfa
vera ögrun og til hennar hafi verið
stofnað til að vinna trúarlega rót-
leysingja á band kristninnar. Víða
mátti sjá mótmælaborða í Dehlí þar
sem kristin trú var fordæmd.
Páfi hyggst dveljast á Indlandi í
10 daga og heimsækja 14 borgir.
Mun hann heimsækja helgistaði og
bænahús, sem tilheyra hinum ýmsu
trúflokkum. Gífurleg öryggisvarzla
verður viðhöfð, einkum við helgi-
staðina, og mun ekki hafa verið
efnt til öflugri gæzlu í þeim ríkjum,
sem páfí hefur heimsótt síðustu
misseri.
Móðir Teresa, rómversk kaþólska
nunnan, sem hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1979, fagnaði heimsókn
Ronald Reagan forseti og Nancy kona hans koma til minningarathafnar þeirrar, sem fram fór í Hous-
ton í dag um þá, er fórust með Challenger-geimfeijunni. í baksýn eru ættingjar hinna látnu.
Ronald Reagan við minningarathöfn um geimfarana í Challenger:
Orðstír ykkar mun
varðveitast að eilífu
Houston, 31. janúar. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, sótti í dag minningarat-
höfn um geimfarana, sem fórust
er Challenger splundraðist í
sprengingu skömmu eftir geim-
skot frá Kanaveralhöfða á
þriðjudag.
Reagan sagði við athöfnina að
bandaríska þjóðin öll væri harmi
slegin og syrgði geimkönnuði, sem
lagt hefðu sig í hættu til þess að
auka skilning mannkynsins á um-
hverfí sínu og færa út landamæri
þekkingarinnar. Líkti hann þeim við
landnemana, sem tóku sig upp og
héldu á vit ævintýra í vesturhluta
Bandaríkjanna.
Hann sagði að missir ástvina og
vina væri mestur en bandaríska
þjóðin tæki þátt í sorg þeirra.
Bandaríkin hefði misst sjö dætur
og syni, hetjur. Minningu þeirra
heiðraði þjóðin bezt með því að setja
sér nýtt og stærra takmark í könn-
un himingeimsins.
„Dick, Mike, Judy, El, Ron, Greg
og Christa. Fjölskyldur ykkar, vinir
og þjóðin öll syrgir ykkur. Við
kveðjum ykkur hinzta sinni, en
orðstír ykkar mun varðveitast að
eilífu," sagði Reagan.
Reagan og Nancy forsetafrú
hittu fjölskyldur þeirra sem fórust
fyrir minningarathöfnina. Við-
staddir athöfnina voru tugir þing-
Forseti Suður-Afríku:
Lætur Mandela lausan ef
Sakharov verður látinn laus
Höfðaborg, 31. janúar. AP.
P.W. BOTHA, forseti Suður-
Afríku, hefur gert það að tillögu
sinni að hann láti Nelson Mand-
ela, leiðtoga blökkumanna I
landinu, sem setið hefur i fang-
elsi i yfir 20 ár, lausan gegn
þvi að sovéski andófsmaðurinn
Andrei Sakharov verði látinn
laus, ásamt andófsmanninum
Anatoly Shcharansky og suður-
afrískum hermanni sem hand-
tekinn var í Angóla. Þetta kom
fram í ræðu Botha í tilefni af
setningu þingsins. Þar kom einn-
ig fram að rikisstjórnin hyggst
á þessu ári hrinda lögum í fram-
kvæmd, sem útvikka borgara-
réttindi blökkumanna og leyfa
bæjarfélögum blakkra aðild að
ákvarðanatöku.
Leiðtogar Afríska þjóðarráðsins,
ANC, hafa vísað þessari tillögu á
bug og ítrekað kröfu sína um að
Mandela verði látinn laus án allra
skilyrða. Biskupinn Desmond Tutu,
sagði: „Mér líst svo á að þama sé
um að ræða yfirskin stjómmála-
manns, sem muni falla vel í geð á
vesturlöndum. Hann lætur eins og
honum sé umhugað um samvisku-
fanga, á sama tíma og hann heldur
ijölda samviskufanga föngnum
sjálfur," og ennfremur um Botha:
„Hann setur í sífellu fram skilyrði,
sem engin líkindi eru að hægt sé
að koma til móts við.“
Utanríkisráðuneytið breska sagði
hins vegar að ræða Botha væri
greinilega mikilvæg. Hún væri í
athugun, en það væri ljóst að ýmis-
páfa og sagði hana vera guðsgjöf.
Páfí hittir Teresu í Kalkútta á
mánudag.
Skoðanakönnun:
Stuðningur
við geimfeiju-
áætlun
New York, 31. janúar. AP.
ÞRÁTT fyrir Challenger-slysið
eru langflestir Bandaríkjamenn
þeirrar skoðunar, að halda beri
áfram með geimfeijuáætlunina.
Kemur þetta fram í skoðana-
könnun, sem ABC-sjónvarpsstöð-
in birti í gær.
Könnunin sýnir, að 79% Banda-
ríkjamanna styðja áframhald geim-
feijuáætlunarinnar, 16% eru henni
andvígir og 5% höfðu enga skoðun.
72% vildu að óbreyttir borgarar eins
og Christa McAuliffe yrðu fram-
vegis í áhöfn geimfeijanna en 22%
voru í því efni á öndverðri skoðun.
5% höfðu ekkert um það að segja.
Þeir, sem að könnuninni stóðu,
segja, að gera megi ráð fyrir, að
5% geti skakkað til eða frá.
manna og meðal þeirra voru John
Glenn, sem varð fyrstur Banda-
ríkjamanna til að fara út í geiminn,
Jake Gam og Bill Nelson, sem báðir
hafa flogið með geimfeiju. Athöfn-
ina sóttu um 10.000 manns, ætt-
ingjar, vinir, samstarfsmenn,
stjómmálamenn og fyrirmenn.
Athöfnin var einföld í sniðum en
áhrifarík. Henni var sjónvarpað um
land allt.
legt vantaði, svo ekki væri um
annað að ræða en fylgjast með
framvindu málsins.
í ræðunni sagði Botha: „Ef ég
léti herra Nelson Mandela lausan
af mannúðarástæðum, væri þá ekki
eins hægt að láta lausa þá Wynand
du Tout, höfuðsmann, Andrei Sak-
harov og Anatoly Shcharansky?
Jákvætt svar við þessari spumingu
gæti vissulega orðið grundvöllur að
samningum hlutaðeigandi ríkis-
stjóma."
Veður
víða um heim
Lngst Hœst
Akureyri 4 skýjaó
Am&terdam +2 4 skýjað
Aþena 9 15 heiðskýrt
Barcelona 7 skýjað
Berlln +1 3 skýjað
Brussel +3 3 skýjað
Chicago +18 +6 rigning
Dublin 2 6 rigning
Feneyjar 4 rignlng
Frankfurt 0 6 skýjað
Qenf +6 6 skýjað
Helsinkl +5 +2 skýjað
Hong Kong 16 21 heiðskfrt
Jerúsalem 4 16 skýjað
Kaupmannah. Las Palmas +1 +1 skýjað
Lissabon 8 11 rigning
London 3 4 skýjað
Los Angales 12 17 rigning
Lúxemborg 1 skýjað
Malaga 13 vantar
Mallorca 11 úrk. grennd
Mlami 13 22 heiðskfrt
Montreal +15 +8 snjókoma
Moskva +8 +2 skýjað
NewYork +6 +1 skýjað
Osló 0 0 skýjað
Paris 0 0 skýjað
Peking +9 2 heiðskfrt
Reykjavlk 1 slydda
Rlóde Janeiro 21 37 heiðskfrt
Rómaborg 7 10 rigning
Stokkhólmur +3 1 snjókoma
Sydney 20 24 skýjað
Tókýó 2 I1skýja8
Vfnarborg 0 2 skýjað
Þórshöfn 4 skýjað
6
Nathan&
Olsenhf
ÁRMÚLA 8
Bieytt símanúmer
fra 1. febrúar