Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986
Morgunblaðiö/Júlíus
• Frá verðlaunaafhendingu í kjöri íþróttamanna Hafnarfjarðar. Frá vinstri: Einar I. Halldórsson, bæjar-
stjóri, Pálmar Sigurðsson, körfuknattleiksmaður, Arnþór Ragnarsson, sundmaður, ívar Webster, körfu-
knattlelksmaður, Guðjón Sverrisson, sem tók á móti viðurkenningu fyrri hönd afa síns, Guðjóns Sigur-
jnssonar, Þorgils Óttar Mathiesen, handknattleiksmaður, Ingvar Viktorsson, FH, Bogi Þórðarson, sem
tók við viðurkenningu sonar síns, Eggerts Bogasonar, frjálsíþróttamanns, Guðsveinn Þorbjörnsson,
Haukum og Úlfar Jónsson, golfmaður.
Hafnarfjörður:
Þorgils Óttar
íþróttamaður ársins
ÞORGILS Óttar Mathiesen hand-
knattleiksmaður var kjörinn
íþróttamaður ársins í Hafnarfirði
fyrir árið 1985. Þorgils Óttar
hefur verið fastamaður I landstið-
inu auk þess sem hann er aðal-
driffjöðrinn f liðl sínu FH. Honum
og öðrum fþróttamönnum f Hafn-
arfirði voru veittar viðurkenning-
ar f hófi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar á fimmtudaginn.
„Þessi viðurkenning er mér
mikill heiður því það er mikið af
góðum íþróttamönnum í Hafnar-
firði. Það er alltaf hvetjandi að fá
slíkan heiður og réttlætir þann
tíma sem í þetta hefur farið í
gegnum árin, sagði Þorgils Óttar
Mathiesen, eftir útnefninguna.
Þorgils Óttar hefur leikið 101
landsleik með íslenska handknatt-
leikslandsliðinu. Hann varð ís-
landsmeistari með yngir flokkum
FH í mörg ár. Lók 4 landsleiki undir
18 ára og 10 landsleiki með lands-
liöinu skipaða leikmönnum undir
21 árs. Með meistaraflokki FH á
hann að baki 180 leiki. Þorgils er
mjög sterkur línumaður og leikur
oftast þá stöðu meö liði sínu og
landsliðinu.
Aðrir sem hlutu viðurkenningu
voru, Pálmar Sigurðsson, körfu-
knattleiksmaður, ívar Webster,
körfuknattleiksmaður, Eggert
Bogason, frjálsíþróttamaður, Arn-
þór Ragnarsson, sundmaður og
Úlfar Jónsson, golfmaður. Auk
þess voru þrír aðilar heiðraðir fyrir
vel unnin störf að íþróttamálum í
bænum. Það voru þeir Ingvar Vikt-
orsson, FH, Guðsveinn Þorbjörns-
son, Haukum, og Guðjón Sigur-
jónsson, FH. Loks fékk körfuknatt-
leiksdeild Hauka ÍSÍ-bikarinn fyrir
góðan árangur á síðasta ári.
íþróttamaður Hafnarfjarðar var
fyrst kjörinn 1983. Þá hlaut Krist-
ján Arason, handknattleikmaður,
þetta sæmdarheiti, 1984 varö
Pálmar Sigurðsson, körfuknatt-
leiksmaður, kjörinn og nú Þorgils
Óttar eins og áður segir.
Frakkland:
Monaco og Nantes
úr leik i bikarnum
Fré Bernharðl Valssynl, fréttarttara MorgunblaAslns (Frakklandl.
UM SÍÐUSTU helgi var leikin 3.
umferðin í frönsku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu. Þetta er fyrsta
umferðin þar sem 1. deildarliðin
leika og voru sex þeirra slegin
út, þar á meðal bikarmeistararnir
Monaco, sem léku gegn Le
Havre.
Óvæntustu úrslitin eru vafalaust
sigur utandeildarliðsins Evry gegn
1. deildarliðinu Toulon. Evry, sem
er áhugamannalið, var dyggilega
Iþróttir helgarinnar
FLUGLEIÐAMÓTIÐ f handknatt-
leik, úrvalsdeildin f körfuknatt-
leik, Skjaldarglfma Ármanns,
karate hjá Þórshamri, júdó, kraft-
lyftingar, sund og skfði eru meðal
fþróttaviðburða helgarinnar og
það virðist af nógu að taka fyrir
þá sem áhuga hafa á að fylgjast
með fþróttum um helgina.
Flugleiðamótið í handknattleik
verður um helgina f Laugardals-
höllinni. I dag leika Frakkland og
Pólland klukkan 16.30 og strax á
eftir ísland og Bandaríkin og hefst
sá leikur klukkan 18. Leikirnir á
morgun hefjast á sama tíma og
fyrst leika Bandaríkin og Frakkland
en ísland og Pólland í síðasta leikn-
um.
I úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik verða tveir leikir. í dag leika ÍR
og Haukar klukkan 14 í Seljaskóla
og síðan leika Valur og ÍBK klukkan
20 á sunnudagskvöldið á sama
stað. í kvennakörfunni leika ÍR og
ÍS í Seljaskóla klukkan 15.30 í dag.
Skfði. Bikarmót Skíðasam-
bandsins í alpagreinum fullorðinna
verður haldið í Bláfjöllum í dag og
á morgun. i Hlíðarfjalli á Akureyri
verður bikarmót unglinga í alpa-
greinum 15—16 ára. Bikarkeppnin
í göngu verður einnig í Hlíðarfjalli.
Júdómenn halda upp á afmæli
sitt með móti í dag í íþróttahúsi
Kennaraháskólans og hefst keppn-
in þar klukkan 14. Þetta er seinni
hluti þessa afmælismóts en fyrri
hlutinn var haldinn fyrir hálfum
mánuði.
íslandsmót unglinga í kraftlyft-
ingum hefst í dag klukkan 13 í
Garðaskóla í Garðabæ.
Unglingameistaramót Reykja-
víkur í sundi verður í Sundhöll
Reykjavíkur á morgun og hefst það
klukkan 14.
Karatefélagið Þórshamar
gengst fyrir meistaramóti sínu á
morgun og verður keppt í Haga-
skólanum. Keppni hefst klukkan
14 og keppt verður í sjö greinum.
Skjaldarglfma Ármanns verður
haldin f fþróttahúsi félagsins við
Sigtún í dag og hefst mótið klukk-
an 14.15. Þar verða skjalardhafar
sfðustu fjögurra ára mættir til
keppni ásamt ffeirum.
stutt af fimm þúsund áhorfendum
sem áttu stóran þátt í því að
draumurinn um að komast áfram
varð að veruleika.
En það var ekki bara Touion sem
fékk skell. Nantes lék gegn 2.
deildarliðinu Limoges. Eftir venju-
legan leiktíma og framlengingu var
staðan 2—2. Því þurfti vítaspyrnu-
keppni til að fá úr því skorið hvort
liðið kæmist áfram. Vítaspyrnu-
keppnina vann svo Limoges með
fjórum mörgum gegn þremur.
Bordeaux lék gegn Toulouse og
framan af mátti sjá á leik Bordeaux
að leikmenn höfðu ekki gleymt
9—0-tapinu gegn Monaco um síð-
ustu helgi. Toulouse var mun
sterkara í fyrri hálfleik en í síðari
hálfleik snérist dæmið við og sigr-
aði Bordeaux 2—0. Það voru þeir
Reinders á 27. mínútu og Hanini
á 85. mínútu sem skoruðu.
Paris SG lék gegn Eijon og átti
aldrei í nokkrum vandræðum með
að vinna, eftir 17 mínútur var stað-
an orðin 2—0 og virtust bæði liðin
sætta sig við það. Það voru Poul-
lain og Fernandez sem skoruðu
fyrir Parísarliðið.
Það er óhætt að segja að
skammt sé stórra högga á milli
hjá Monaco. Um síðustu helgi
sigraði liðið Bordeaux 9—0, en
þessa helgi tapaði það 2—1 fyrir
Le-Havre. Bikardraumur Monaco
er því oröinn að engu, en þetta
er í fyrsta skiptið í tíu ár sem liðiö
er slegið út svona snemma.
Handknattleikur:
Er bjartsýnn
á framhaldið
— segir Helgi Ragnarsson,
þjálfari Stavanger
Frá Bjama Jóhannssyni, fróttaritara Morgunblaðsins í Noregl.
STAVANGER hefur enn forystu í
norsku 1. deildinni í handknatt-
leik. Þeir eru þó aðeins tveimur
stigum á undan Fredriksborg
Ski. Þessi tvö lið skera sig nokkuð
úr og má telja víst aö þau komi
til með að berjast um toppsætið
í deildinni. Bæði liðin léku ídeild-
inni á miðvikudagskvöld og unnu
sína leiki.
Stavanger, sem Helgi Ragnars-
son þjálfar og þeir Jakob Jónsson
og Sveinn Bragason leika með,
sigraði Opsal á útivelli, 24-23, í
miklum baráttuleik. Opsal hafði
eins marks forystu í hálfleik, 11-10.
Jakob Jónsson fór síðan á kostum
í seinni hálfleik og skoraði sex
mörk auk þess að eiga margar línu-
sendingar sem gáfu mark. Hann
var besti leikmaður vallarins.
Sveinn Bragason stóð sig einnig
vel og gerði tvö mörk. Hann fékk
síðan að sjá rauða spjaldið hjá
dómaranum og var rekinn af leik-
velli undir lokin. Mikil harka var í
leiknum og fengu fjórir leikmenn
að sjá rauða spjaldið, alls voru 10
útafrekstrar í hvoru liði.
Stavanger hefur nú 28 stig.
Fréttaritari Morgunblaðsins náði
tali af Helga Ragnarssyni eftir leik-
inn. „Fyrst við unnum þennan leik
er ég bjartsýnn á framhaldið. Við
eigum að vísu eftir mjög erfiðan
útileik gegn Fredriksborg Ski en
ef við vinnum þá leiki sem eftir eru
getum við leyft okkur að tapa fyrir
ski, því við höfum mun betra
markahlutfall. En það má ekki
vanmeta þá andstæðinga sem við
eigum eftir,“ sagði Helgi Ragnars-
son, þjálfari Stavanger.
Lið Gunnars Einarssonar, Fred-
riksborg Ski, sigraði Urædd, 31-
25. Þetta var mjög miklvægur sigur
fyrir Fredriskborg því Urædd er í
þriðja sæti deildarinnar með 23
stig eða þremur stigum minna en
Fredriksborg Ski. Það stefnir því
allt í það að þetta verði uppgjör
milli „Islendingaliðanna" ílokin.
Fjölmenni til Sviss
ALLT útlit er nú fyrir að rúmlega
200 handknattleiksunnendur
muni bregða sér til Sviss til þess
að fylgjast með lokakeppni
heimsmeistarakeppninnar í lok
febrúar. Það eru þrjár ferðaskrif-
stofur sem bjóða upp á ferðir í
sambandi við mótið og nú þegar
eru 200 farþegar búnir að stað-
festa að þeirfari.
Flestir farþegar fara með Sam-
vinnuferðum — Landsýn eða alls
um 130. Samvinnuferðir verða
með beint leiguflug til Sviss í
sambandi við mótið og koma til
baka strax að því loknu.
Úrval mun fara með 40 manna
hóp til Sviss. Hluti hópsins verður
einnig á skíðum en fer á leikina
einnig og svo eru hinir sem ætla
bara að sjá handboltaleikina en
ekki vera á skíðum. Úrval er með
þessar ferðir til Ziirich og er flogið
með Arnarflugi. Ferðin er frá 24.
febrúartil 10. mars.
Útsýn verður trúlega með 20-30
farðþega í Sviss og geta menn þar
valið um að vera í fimm daga, og
séð þá sex leiki í undankeppninni,
eða framlengt ferðinni þegar út
er komið og fylgst með allri keppn-
inni. Þeir sem velja fyrri kostinn
fara út 24. febrúar og koma þá
aftur heim 1. mars en hinir verða
eins lengi og þá lystir en keppninni
lýkur 10. mars.
Hjá öllum ferðaskrifstofunum er
nú svo til fullpantað en þeir sem
áhuga hafa á að fara út geta haft
samband við einhvera þessara
þriggja skrifstofa og þar mun allt
vera gert til að greiða veg þeirra
sem hug hafa á að sjá góðan
handknattleik.
Nýtt félag á
gömlum grunni
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
stofnfund hins nýja sameiginlega
knattspyrnufélags, KA og Kára, á
Akranesi, sunnudaginn 2. febrúar
kl. 15.00 í Kiwanishúsinu við
Vesturgötu.
Eftir að aðalfundir hinna gömlu
íþróttafélaga ákváðu að ganga til
samninga, hefur undirbúnings-
nefnd unnið að undirbúningi stofn-
fundarins og er því starfi lokið.
Nefndin skorar á áhugamenn um
knattspyrnu á Akranesi að fjöl-
menna á fundinn og taka þátt í
endurnýjun félagsstarfs knatt-
spyrnumanna, undir kjörorðinu
„Nýttfélag á gömlum grunni".
(Fróttatilkynning.)
Körfubolti:
Dregið íbikarnum
UMFN — Valur og Haukar — ÍBK
DREGIÐ var í undanúrslit bikar-
keppni KKÍ í gær. Njarðvíkingar
leika við Valsmenn og Haukar við
Keflvíkinga. Leikirnir verða lík-
lega um miðjan febrúar og úr-
slitaleikurinn fimmtudaginn 13.
mars í Laugardalshöllinni um leið
og úrlsitaleikurinn í bikarkeppni
kvenna.
Leikið er heima og heiman að
þessu sinni og það lið sem fyrr
er nefnt hér að framan leikur
heimaleik sinn fyrst. Ef liðin vinna
sitt hvorn leikinn þá kemst það lið
sem hefur hagstæðara skor sam-
anlagt áfram en ef það dugar ekki
þá kemst það lið áfram sem skor-
aði fleiri stig á útivelli. Framlengt
verður ef þetta dugar ekki.