Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986
23
Abu Nidal
eftirlýstur
í 138 löndum
París, 31. janúar. AP.
INTERPOL, alþjóðalögreglan,
hefur sent handtökutiiskipun á
hendur Abu Nidal til 138 landa.
Ný deild hefur verið stofnuð
innan Interpol og er henni ætlað
sérstaklega að hafa hendur í hári
hryðrjuverkamanna. Deildinni hefur
verið fengið mál Abus Nidal til
meðferðar. Er það fyrsta viðfangs-
efni deildarinnar.
Talsmaður Interpol sagði að
Líbýa og Sýrland væru meðal þeirra
ríkja, sem send hefði verið hand-
tökutilskipunin. Ríkin tvö hafa verið
sökuð um að skjóta skjóishúsi yfír
Abu Nidal og leggja iðju hans lið.
Interpol lætur nú meira að sér
kveða í baráttunni gegn hryðju-
verkamönnum. Fyrir rösku ári ák-
vað stjóm stofnunarinnar að láta
til skarar skríða gegn hryðjuverka-
starfsemi, en allt fram að því hafði
stofnunin tekið varlega á málum
afþessutagi.
Frá fjöldafundi Corazon Aquino á Luzon.
Filippseyjar:
Kosningasvik
í undirbúningi
Manila, 31. janúar. AP.
FORUSTUMAÐUR samtaka
borgara, sem hafa það á stefnu-
skrá sinni að fylgjast með kosn-
ingunum og kosningaundirbún-
Verð á olíu
hækkar í vor
London, 31. janúar. AP.
Orkumálaráðherrar Bretlands
og Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna, þeir Peter Walker og
Mana Saeed Al-Oteiba, héldu
með sér fund í London í fyrra-
dag. Þar á Walker að hafa ítrek-
að þá stefnu brezku stjórnarinn-
ar að hafa ekki afskipti af olíu-
markaðinum.
Stjómarformaðurinn í British
Petroleum, Sir Peter Walters, spáði
því í gær, að olíuverð í heiminum
ætti eftir að hækka með vorinu.
Sagði hann, að aldrei áður hefði ríkt
jafn mikið óöryggi og nú með tilliti
til oliuverðs og bætti síðan við:
„Við emm utan við mörk þess, sem
kalla má eðlilegt framboð og eftir-
spum.“ En hann lagði áherzlu á,
að OPEC myndi aldrei takast það
markmið að fá Bretland til þess að
draga úr olíuframleiðslu sinni í
Norðursjó.
íngi á Fihppseyjum, segir að
kosningasvik af ýmsu tagi séu i
undirbúningi. Heldur hann því
fram að starfsmönnum samtak-
anna hafi verið misþyrmt til þess
að hrekja þá frá því að fylgjast
með.
Jose Concepcion, sem stundar
viðskipti og er gagnrýninn á stefnu
stjómvalda í efnahagsmálum,
nefndi ekki um hvaða hópa í kosn-
ingabaráttunni væri að ræða sem
stæðu að barsmíðunum, en svo
virtist sem hann léti liggja að því
að um stuðningsmenn Marcosar
forseta væri að ræða. „Ef kosninga-
svikum verður beitt," sagði hann,
„kann það að verða dropinn sem
fyllir mælinn hjá fólki og neyðir það
til þess að grípa til róttækra ráð-
stafana."
í hvassyrtri ræðu kallaði Marcos
Corazon Aquino, sem býður sig
fram gegn honum, einfeldning, sem
eltist við draumsýnir og sagði hana
óhæfa til þess að gegna forsetaemb-
ætti. Hann hefur áður sagt að hann
telji sig vanvirtan með því að hún
bjóði sig fram gegn honum.
Ronald Reagan, forseti Banda-
ríkjanna, hefur varað við hættunni
af kommúnistum á Filippseyjum.
Hann sagði einnig að Bandaríkin
íhuguðu aukna aðstoð við Filipps-
eyjar, ef úrslit kosninganna yrðu
lýðræðinu til framdráttar.
Grænland:
Meiri bjartsýni varð-
andi þorskstofninn
Nuuk, 31. jan. Frá fréttaritara Morgun biaðsins, N. J. Bruun.
MEIRI bjartsýni rikir nú varð-
andi þorskstofninn við Græn-
land. Mikil þorskveiði hefur ver-
ið við Suðvestur-Grænland og
umsagnir sjávarlíffræðinga
benda til þess, að góðir árgangar
verði veiðanlegir í byijun næsta
áratugar.
Einn af karfatogurum land-
stjómarinnar, „Elias Kleist", sem
er sérstaklega útbúinn til karfa-
veiða, veiddi í þessari viku 70 tonn
af karfa og 25 tonn af þorski. Allt
árið í fyrra sást varla þorskur á
þessum slóðum. Þar sem reglur
segja svo fyrir um, að þorskur
megi ekki vera meiri en 10% af
afla skipsins, varð að varpa mörg-
um tonnum af þorski fyrir borð.
Af þessum sökum hafa nú komið
fram kröfur um, að heildarafla-
mag^nið af þorski við vesturströnd-
ina, sem nú er aðeins 12.000 tonn,
verði aukið. Er á það bent, að mörg
fiskvinnslufyrirtæki starfi nú ekki
vegna fiskskorts.
Vestur-þýzkir sjávarlíffræðingar
ha.a framkvæmt rannsóknir, sem
benda til þess að árgangamir frá
1984 og 1985 séu betri en nokkrir
aðrir árgangar frá 1973. Ef aftur
kólni í sjónum, þá geti það hins
vegar leitt til þess, að_ mikið af
þorskseiðunum drepist. í öllu falli,
þá verði árgangamir frá 1984 og
1985 fyrst veiðanlegir í byijun
næsta áratugar.
Tasmanía:
Elstu hellamyndir í heimi
Hobart, Ástralíu, 31. jauúar. AP.
HELLAMYNDIR frumbyggja
sem fundist hafa á eyjunni Tasm-
aníu eru taldar að minnsta kosti
14 þúsund ára gamlar og ef það
reynist rétt eru þær hinar elstu
í heimi.
Þessi listaverk, sem eru röð 15
teikninga af mannshendinni, em
teiknuð á hellisþak við Maxwell-ána
í Tasmaníu. I hellunum fundust
einnig minjar um mannvistir, sem
taldar era ná allt að 20 þúsund ár
aftur í tímann. Til hellanna er ein-
ungis hægt að komast með þyrlu
og era þeir á þjóðgarðssvæði. Það
er skoðun fræðimanna að fram-
byggjar Ástralíu hafi komið þanga
fyrir 30 til 70 þúsund áram.
Rannsóknaráð ríkisins
auglýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1986
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins, Lauga-
vegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
• Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki.
• Styrkfé á árinu 1986 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tæknisviðum.
Sérstök áhersla skal lögð á:
— fiskeldi,
— upplýsinga- og tölvutækni,
— líf- og lífefnatækni,
— nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu,
— undirstöðugreinar matvælatækni,
— framleiðni- og gæðaaukandi tækni.
• Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á
— líklegri gagnsemi verkefnis,
— gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina,
— möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi,
— hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda,
— líkindum á árangri.
• Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að
— samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í framkvæmd
verkefnisins,
— fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum,
— líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar i atvinnulífi. Þó er
einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa uppbyggingu á færni á
tilteknum sviðum.