Morgunblaðið - 01.02.1986, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.02.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986 23 Abu Nidal eftirlýstur í 138 löndum París, 31. janúar. AP. INTERPOL, alþjóðalögreglan, hefur sent handtökutiiskipun á hendur Abu Nidal til 138 landa. Ný deild hefur verið stofnuð innan Interpol og er henni ætlað sérstaklega að hafa hendur í hári hryðrjuverkamanna. Deildinni hefur verið fengið mál Abus Nidal til meðferðar. Er það fyrsta viðfangs- efni deildarinnar. Talsmaður Interpol sagði að Líbýa og Sýrland væru meðal þeirra ríkja, sem send hefði verið hand- tökutilskipunin. Ríkin tvö hafa verið sökuð um að skjóta skjóishúsi yfír Abu Nidal og leggja iðju hans lið. Interpol lætur nú meira að sér kveða í baráttunni gegn hryðju- verkamönnum. Fyrir rösku ári ák- vað stjóm stofnunarinnar að láta til skarar skríða gegn hryðjuverka- starfsemi, en allt fram að því hafði stofnunin tekið varlega á málum afþessutagi. Frá fjöldafundi Corazon Aquino á Luzon. Filippseyjar: Kosningasvik í undirbúningi Manila, 31. janúar. AP. FORUSTUMAÐUR samtaka borgara, sem hafa það á stefnu- skrá sinni að fylgjast með kosn- ingunum og kosningaundirbún- Verð á olíu hækkar í vor London, 31. janúar. AP. Orkumálaráðherrar Bretlands og Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna, þeir Peter Walker og Mana Saeed Al-Oteiba, héldu með sér fund í London í fyrra- dag. Þar á Walker að hafa ítrek- að þá stefnu brezku stjórnarinn- ar að hafa ekki afskipti af olíu- markaðinum. Stjómarformaðurinn í British Petroleum, Sir Peter Walters, spáði því í gær, að olíuverð í heiminum ætti eftir að hækka með vorinu. Sagði hann, að aldrei áður hefði ríkt jafn mikið óöryggi og nú með tilliti til oliuverðs og bætti síðan við: „Við emm utan við mörk þess, sem kalla má eðlilegt framboð og eftir- spum.“ En hann lagði áherzlu á, að OPEC myndi aldrei takast það markmið að fá Bretland til þess að draga úr olíuframleiðslu sinni í Norðursjó. íngi á Fihppseyjum, segir að kosningasvik af ýmsu tagi séu i undirbúningi. Heldur hann því fram að starfsmönnum samtak- anna hafi verið misþyrmt til þess að hrekja þá frá því að fylgjast með. Jose Concepcion, sem stundar viðskipti og er gagnrýninn á stefnu stjómvalda í efnahagsmálum, nefndi ekki um hvaða hópa í kosn- ingabaráttunni væri að ræða sem stæðu að barsmíðunum, en svo virtist sem hann léti liggja að því að um stuðningsmenn Marcosar forseta væri að ræða. „Ef kosninga- svikum verður beitt," sagði hann, „kann það að verða dropinn sem fyllir mælinn hjá fólki og neyðir það til þess að grípa til róttækra ráð- stafana." í hvassyrtri ræðu kallaði Marcos Corazon Aquino, sem býður sig fram gegn honum, einfeldning, sem eltist við draumsýnir og sagði hana óhæfa til þess að gegna forsetaemb- ætti. Hann hefur áður sagt að hann telji sig vanvirtan með því að hún bjóði sig fram gegn honum. Ronald Reagan, forseti Banda- ríkjanna, hefur varað við hættunni af kommúnistum á Filippseyjum. Hann sagði einnig að Bandaríkin íhuguðu aukna aðstoð við Filipps- eyjar, ef úrslit kosninganna yrðu lýðræðinu til framdráttar. Grænland: Meiri bjartsýni varð- andi þorskstofninn Nuuk, 31. jan. Frá fréttaritara Morgun biaðsins, N. J. Bruun. MEIRI bjartsýni rikir nú varð- andi þorskstofninn við Græn- land. Mikil þorskveiði hefur ver- ið við Suðvestur-Grænland og umsagnir sjávarlíffræðinga benda til þess, að góðir árgangar verði veiðanlegir í byijun næsta áratugar. Einn af karfatogurum land- stjómarinnar, „Elias Kleist", sem er sérstaklega útbúinn til karfa- veiða, veiddi í þessari viku 70 tonn af karfa og 25 tonn af þorski. Allt árið í fyrra sást varla þorskur á þessum slóðum. Þar sem reglur segja svo fyrir um, að þorskur megi ekki vera meiri en 10% af afla skipsins, varð að varpa mörg- um tonnum af þorski fyrir borð. Af þessum sökum hafa nú komið fram kröfur um, að heildarafla- mag^nið af þorski við vesturströnd- ina, sem nú er aðeins 12.000 tonn, verði aukið. Er á það bent, að mörg fiskvinnslufyrirtæki starfi nú ekki vegna fiskskorts. Vestur-þýzkir sjávarlíffræðingar ha.a framkvæmt rannsóknir, sem benda til þess að árgangamir frá 1984 og 1985 séu betri en nokkrir aðrir árgangar frá 1973. Ef aftur kólni í sjónum, þá geti það hins vegar leitt til þess, að_ mikið af þorskseiðunum drepist. í öllu falli, þá verði árgangamir frá 1984 og 1985 fyrst veiðanlegir í byijun næsta áratugar. Tasmanía: Elstu hellamyndir í heimi Hobart, Ástralíu, 31. jauúar. AP. HELLAMYNDIR frumbyggja sem fundist hafa á eyjunni Tasm- aníu eru taldar að minnsta kosti 14 þúsund ára gamlar og ef það reynist rétt eru þær hinar elstu í heimi. Þessi listaverk, sem eru röð 15 teikninga af mannshendinni, em teiknuð á hellisþak við Maxwell-ána í Tasmaníu. I hellunum fundust einnig minjar um mannvistir, sem taldar era ná allt að 20 þúsund ár aftur í tímann. Til hellanna er ein- ungis hægt að komast með þyrlu og era þeir á þjóðgarðssvæði. Það er skoðun fræðimanna að fram- byggjar Ástralíu hafi komið þanga fyrir 30 til 70 þúsund áram. Rannsóknaráð ríkisins auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna árið 1986 Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins, Lauga- vegi 13, sími 21320. Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur: • Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki. • Styrkfé á árinu 1986 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tæknisviðum. Sérstök áhersla skal lögð á: — fiskeldi, — upplýsinga- og tölvutækni, — líf- og lífefnatækni, — nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu, — undirstöðugreinar matvælatækni, — framleiðni- og gæðaaukandi tækni. • Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á — líklegri gagnsemi verkefnis, — gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina, — möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi, — hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda, — líkindum á árangri. • Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að — samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í framkvæmd verkefnisins, — fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum, — líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar i atvinnulífi. Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa uppbyggingu á færni á tilteknum sviðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.