Morgunblaðið - 01.02.1986, Page 20

Morgunblaðið - 01.02.1986, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986 Indland: Hindúar mótmæla heimsókn páfans Dehlí, 31 Janúar. AP. JL HERSKAIR hindúar efndu til mótmælaaðgerða í höfuðborg Indlands í dag vegna komu Jóliannesar Páls páfa þangað í fyrramálið. Hengd- ir hafa verið borðar um borgina þar sem heimsókn páfa er mótmælt og þess krafizt að hann hypji sig heim. Hindúamir segja heimsókn páfa vera ögrun og til hennar hafi verið stofnað til að vinna trúarlega rót- leysingja á band kristninnar. Víða mátti sjá mótmælaborða í Dehlí þar sem kristin trú var fordæmd. Páfi hyggst dveljast á Indlandi í 10 daga og heimsækja 14 borgir. Mun hann heimsækja helgistaði og bænahús, sem tilheyra hinum ýmsu trúflokkum. Gífurleg öryggisvarzla verður viðhöfð, einkum við helgi- staðina, og mun ekki hafa verið efnt til öflugri gæzlu í þeim ríkjum, sem páfí hefur heimsótt síðustu misseri. Móðir Teresa, rómversk kaþólska nunnan, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1979, fagnaði heimsókn Ronald Reagan forseti og Nancy kona hans koma til minningarathafnar þeirrar, sem fram fór í Hous- ton í dag um þá, er fórust með Challenger-geimfeijunni. í baksýn eru ættingjar hinna látnu. Ronald Reagan við minningarathöfn um geimfarana í Challenger: Orðstír ykkar mun varðveitast að eilífu Houston, 31. janúar. AP. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, sótti í dag minningarat- höfn um geimfarana, sem fórust er Challenger splundraðist í sprengingu skömmu eftir geim- skot frá Kanaveralhöfða á þriðjudag. Reagan sagði við athöfnina að bandaríska þjóðin öll væri harmi slegin og syrgði geimkönnuði, sem lagt hefðu sig í hættu til þess að auka skilning mannkynsins á um- hverfí sínu og færa út landamæri þekkingarinnar. Líkti hann þeim við landnemana, sem tóku sig upp og héldu á vit ævintýra í vesturhluta Bandaríkjanna. Hann sagði að missir ástvina og vina væri mestur en bandaríska þjóðin tæki þátt í sorg þeirra. Bandaríkin hefði misst sjö dætur og syni, hetjur. Minningu þeirra heiðraði þjóðin bezt með því að setja sér nýtt og stærra takmark í könn- un himingeimsins. „Dick, Mike, Judy, El, Ron, Greg og Christa. Fjölskyldur ykkar, vinir og þjóðin öll syrgir ykkur. Við kveðjum ykkur hinzta sinni, en orðstír ykkar mun varðveitast að eilífu," sagði Reagan. Reagan og Nancy forsetafrú hittu fjölskyldur þeirra sem fórust fyrir minningarathöfnina. Við- staddir athöfnina voru tugir þing- Forseti Suður-Afríku: Lætur Mandela lausan ef Sakharov verður látinn laus Höfðaborg, 31. janúar. AP. P.W. BOTHA, forseti Suður- Afríku, hefur gert það að tillögu sinni að hann láti Nelson Mand- ela, leiðtoga blökkumanna I landinu, sem setið hefur i fang- elsi i yfir 20 ár, lausan gegn þvi að sovéski andófsmaðurinn Andrei Sakharov verði látinn laus, ásamt andófsmanninum Anatoly Shcharansky og suður- afrískum hermanni sem hand- tekinn var í Angóla. Þetta kom fram í ræðu Botha í tilefni af setningu þingsins. Þar kom einn- ig fram að rikisstjórnin hyggst á þessu ári hrinda lögum í fram- kvæmd, sem útvikka borgara- réttindi blökkumanna og leyfa bæjarfélögum blakkra aðild að ákvarðanatöku. Leiðtogar Afríska þjóðarráðsins, ANC, hafa vísað þessari tillögu á bug og ítrekað kröfu sína um að Mandela verði látinn laus án allra skilyrða. Biskupinn Desmond Tutu, sagði: „Mér líst svo á að þama sé um að ræða yfirskin stjómmála- manns, sem muni falla vel í geð á vesturlöndum. Hann lætur eins og honum sé umhugað um samvisku- fanga, á sama tíma og hann heldur ijölda samviskufanga föngnum sjálfur," og ennfremur um Botha: „Hann setur í sífellu fram skilyrði, sem engin líkindi eru að hægt sé að koma til móts við.“ Utanríkisráðuneytið breska sagði hins vegar að ræða Botha væri greinilega mikilvæg. Hún væri í athugun, en það væri ljóst að ýmis- páfa og sagði hana vera guðsgjöf. Páfí hittir Teresu í Kalkútta á mánudag. Skoðanakönnun: Stuðningur við geimfeiju- áætlun New York, 31. janúar. AP. ÞRÁTT fyrir Challenger-slysið eru langflestir Bandaríkjamenn þeirrar skoðunar, að halda beri áfram með geimfeijuáætlunina. Kemur þetta fram í skoðana- könnun, sem ABC-sjónvarpsstöð- in birti í gær. Könnunin sýnir, að 79% Banda- ríkjamanna styðja áframhald geim- feijuáætlunarinnar, 16% eru henni andvígir og 5% höfðu enga skoðun. 72% vildu að óbreyttir borgarar eins og Christa McAuliffe yrðu fram- vegis í áhöfn geimfeijanna en 22% voru í því efni á öndverðri skoðun. 5% höfðu ekkert um það að segja. Þeir, sem að könnuninni stóðu, segja, að gera megi ráð fyrir, að 5% geti skakkað til eða frá. manna og meðal þeirra voru John Glenn, sem varð fyrstur Banda- ríkjamanna til að fara út í geiminn, Jake Gam og Bill Nelson, sem báðir hafa flogið með geimfeiju. Athöfn- ina sóttu um 10.000 manns, ætt- ingjar, vinir, samstarfsmenn, stjómmálamenn og fyrirmenn. Athöfnin var einföld í sniðum en áhrifarík. Henni var sjónvarpað um land allt. legt vantaði, svo ekki væri um annað að ræða en fylgjast með framvindu málsins. í ræðunni sagði Botha: „Ef ég léti herra Nelson Mandela lausan af mannúðarástæðum, væri þá ekki eins hægt að láta lausa þá Wynand du Tout, höfuðsmann, Andrei Sak- harov og Anatoly Shcharansky? Jákvætt svar við þessari spumingu gæti vissulega orðið grundvöllur að samningum hlutaðeigandi ríkis- stjóma." Veður víða um heim Lngst Hœst Akureyri 4 skýjaó Am&terdam +2 4 skýjað Aþena 9 15 heiðskýrt Barcelona 7 skýjað Berlln +1 3 skýjað Brussel +3 3 skýjað Chicago +18 +6 rigning Dublin 2 6 rigning Feneyjar 4 rignlng Frankfurt 0 6 skýjað Qenf +6 6 skýjað Helsinkl +5 +2 skýjað Hong Kong 16 21 heiðskfrt Jerúsalem 4 16 skýjað Kaupmannah. Las Palmas +1 +1 skýjað Lissabon 8 11 rigning London 3 4 skýjað Los Angales 12 17 rigning Lúxemborg 1 skýjað Malaga 13 vantar Mallorca 11 úrk. grennd Mlami 13 22 heiðskfrt Montreal +15 +8 snjókoma Moskva +8 +2 skýjað NewYork +6 +1 skýjað Osló 0 0 skýjað Paris 0 0 skýjað Peking +9 2 heiðskfrt Reykjavlk 1 slydda Rlóde Janeiro 21 37 heiðskfrt Rómaborg 7 10 rigning Stokkhólmur +3 1 snjókoma Sydney 20 24 skýjað Tókýó 2 I1skýja8 Vfnarborg 0 2 skýjað Þórshöfn 4 skýjað 6 Nathan& Olsenhf ÁRMÚLA 8 Bieytt símanúmer fra 1. febrúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.