Morgunblaðið - 04.02.1986, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRDDJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
13
Lög Gylfa
Tónlíst
Egill Friöleifsson
Norræna húsið 2.2.86.
Verkefni: Lög eftir Gylfa Þ.
Gislason.
Flytjendur: Garðar Cortes, ten-
ór, Ólafur Vignir Albertsson,
píanó.
Almenna bókafélagið efndi til
kynningartónleika í Norræna hús-
inu sl. sunnudagskvöld í tilefni af
útgáfu félagsins á bókinni „20
sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason".
Jón Þórarinsson útsetti lögin, en
þeir Garðar Cortes og Ólafur Vignir
Albertsson fluttu þau á tónleikun-
um.
Tæpast gerir Gylfí Þ. Gíslason
tilkall til þess að vera titlaður tón-
skáld, en lagasmiður er hann í góðu
meðallagi. Þar sem honum tekst
best upp birtist tær og hreinn tónn
af ósviknum listrænum blæ og falla
yfirleitt ágæta vel að ljóðunum.
Frumleg geta þau ekki talist né
framsækin, en þræða dyggilega
vegi hefðarinnar. Það má velta því
fyrir sér hvað orðið hefði, ef Gylfí
hefði einbeitt sér að sönglagagerð
um dagana, í stað þess að eyða
dijúgum hluta starfsævinnar í
annars konar lagasmíð við Austur-
völl. Lögin urðu til í stopulum frí-
stundum í önn dagsins, og spanna
yfír hálfrar aldar tímabil. Útsetn-
ingar Jóns Þórarinssonar eru fag-
mannlega unnar svo sem vænta
mátti, lyfta lögunum og hækka ris
þeirra.
Gylfí leitar víða fanga er hann
velur sér ljóð við lög sín, en aðdáun
hans á Tómasi Guðmundssyni dylst
engum. í bókinni, sem er hin vand-
aðasta, er að fínna 20 lög, svo sem
titillinn ber með sér. Sum þeirra
eru alkunn eins og t.d. „Ég leitaði
blárra blóma" og „Hanna litla", en
önnur hafa ekki heyrst fyrr. í bók-
inni má m.a. líta lög tvö, er hann
semur við kvæði föður síns, Þor-
steins Gíslasonar, en eitt besta lagið
er að mínu mati „Amma kvað“ við
kvæði Amar Amarsonar, lítið snot-
urt lag, sem nær anda ljóðsins
einkar vel.
Sem fyrr segir söng Garðar
Cortes lögin við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar. Garðar túlkaði
lögin á mjög persónulegan hátt,
lagði áherslu á hinar mildu hliðar,
beitti sér lítt og nánast raulaði sum
lögin. En það ásamt rabbi hans
milli laga, gerði stemmninguna lík-
ari samkomu hjá vísnavinum, en
konsert hjá ópemsöngvara.
Ólafur Vignir stóð vel fyrir sínu
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
og spilaði nett f samræmi við túlkun
söngvarans.
Vinsældir Gylfa Þ. Gíslasonar
leyna sér ekki. Norræna húsið var
troðfullt og undirtektir ágætar.
Til leigu
Verslunar- og skrifstofuhúsnæði í hjarta borgarinnar, við Kirkju-
hvol. Ýmsir möguleikar, einnig bakhús 100 fm, þarfnast stand-
setningar.
Lysthafendur vinsamlega sendi uppl. í pósthólf 1100,121 Reykjavfk merktar: „Kirkjuhvollu.
HUTSCHENREUTHER
©
DE PARIS
MAXIM'S
sameinar snilld listamannsins PIERRE CARDIN
og handbragð HUTSCHENREUTHER,
sem er eitt af virtustu framleiðendum postulíns í veröldinni.
MAXIM’S
hefur hlotið alþjóða lof fyrir frábæra hönnun
og einstaka framleiðslu.
Þess vegna hefur SILFURBÚÐIN
valið MAXIM'S frá HUTSCHENREUTHER
sem postulín fyrir þá vandlátu.
SILFURBÚÐIN
LAUGAVEG 55 SÍMI 11066
vtÉB*s& t ■*«**»* i?