Morgunblaðið - 04.02.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
15
uppreisnarhemum uns yfír lýkur f
orrustunni við Yorkstown 1781.
Strax í upphafí kynnist hann aðals-
mærinni Nastassiu Kinski, sem er
á bandi uppreisnarmanna. Takast
með þeim ástir er þau hittast endr-
um og eins á blóðvellinum.
Sjálfsagt á Byltingin að gagn-
rýna hemaðarbrölt hvar og hvenær
sem er í henni veröld, enda tekur
hún ekki afstöðu með öðmm aðil-
anna. Pacino er samnefnari fyrir
hinn óháða borgara sem löngum
hefur mátt borga brúsa herrekst-
ursins með auram sfnum og eigin
skinni — neyddur til þátttöku. En
allur glundroðinn og fjarstæðu-
kennt ástarævintýri Pacinos og
Kinsksi, (við eigum að trúa því að
þau séu að hittast fyrir tilviljun, af
og til, vftt og breitt á miðjum blóð-
vellinum á meðan á stríðinu stend-
ur), draga mestan áhuga úr áhorf-
endanum. Sögupersónumar ná ekki
til manns, ef undan er skilinn stutt-
ur kafli þegar Pacino berst við að
halda lffínu í syni sínum. Annars
em þær manni allar jafn framandi
og óviðkomandi við upphaf sem
endi.
Tæknivinnan er vammlaus, enda
hvergi tilsparað. Þeir sem eiga
sökina á ófullnægjandi útkomunni
em handritshöfundurinn Dillon, þó
endanlegur hlutur hans sé óglögg-
ur, og leikstjóm Hudsons sem veld-
ur miklum vonbrigðum með þessari
þriðju mjrnd sinni. Chariots of Fire
var glæsilegt byijunarverk, siðan
kom hin ágæta mynd um Tarzan
apabróður, Greystoke, sem var
engin meðalmynd heldur. En í Bylt-
ingunni stendur vart steinn yfír
steini. Þó bregður fyrir þvf hand-
bragði sem flestir áttu von á og
reiknuðu með í nokkmm bardagaat-
riðum sem em í senn raunvemleg
og ógnvekjandi. En þegar á heildina
er litið minnir leikstjóm Hudsons á
skipstjóm manns sem kann á fæst
siglingatækjanna.
Selfoss:
Ný borhola
tekin í notkun
SclfoMÍ, 29. janúar.
UM hádegisbilið í dag var nýrri
borholu Hitaveitu Selfoss hleypt
inn á hitakerfið. Hola þessi er
númer 13 og var boruð sl. vor
og gefur um 80 sekúndulítra af
70°C heitu vatni.
Með tilkomu þessarar holu hefur
öryggi hitaveitunnar við afhend-
ingu á vatnsorku aukist um
60—70%. Samt sem áður er vatns-
magnið svipað sem hitaveitan getur
látið frá sér þar sem aðalholur
hennar em að einhveiju leyti tengd-
ar á sama vatnsöflunarsvæði.
Nýja holan var reynslukeyrð fyrir
viku og reiknað er með að hún
komi til með að gefa heitara vatn
þegar frá líður og steypt hefur verið
upp í eldri holu sem er rétt við þá
nýju. Ivu-itnaður við þessa holu
nemur 22 milljónum.
Um áramótin ’84—’85 urðu
miklar bilanir hjá hitaveitunni og
óvissa skapaðist hvort nægilegt
vatn væri fyrir hendi á álagstímum.
Þá var tekin ákvörðun um boran
holunnar, sem nú er komin í gagnið.
Sig. Jóns.
<
CC
<
z:
UJ
h-
<
o
z
Cf)
>
_l
o
D
<
Œ
CC
>-
LL
10
I e i
1 1.
A R G U S A R
t a a ð þ e i m
o g 12...
ttelvrtu* .
■fert
veim reyndum auglýsingateiknurum sem langar til að
spreyta sig á nýjum, spennandi viðfangsefnum. Sem
langar til að auka þekkingu sína á söluörvandi miðlun og
að taka markaðsmálin föstum tökum með
viðskiptavinunum. En þeir þurfa ekki að kunna Philip
Kotler utanbókar eða vera fjölmiðlafróðir því að einn
þátturinn í þjónustu ARGUS AR er sérfræðiþekking á
markaðsmálum og notkun fjölmiðla.
/z:
t^omn
Þetta eru þeir sem við leitum að. Nú hvað er þá á seyði
hjá ARGUSI? Samstarfið við viðskiptavinina verður
sífellt líflegra og víðtækara. Þeir gefa okkur kost á að
veita þekkingu okkar og sköpunarhæfileikum til
markaðsmála fyrirtækjanna í heild. í sameiningu mótum
við nýjar meginhugmyndir auk þess sem við ákveðum ný
markmið í samkeppninni. Við erum stolt af aukinni
ábyrgð.
1986 verður að líkindum mest spennandi árið á 18 ára
ferli ARGUSAR. Aukin sérþekking okkar og
hópvinna skapa góðan starfsanda. Nýju markmiðin
okkar liggja ljós fyrir og þér er boðið að eiga þátt í þessu
öllu.
Hefur þú áhuga? Hringdu. Við skuium setjast
niður og rœða máiin. í fyllsta trúnaði að
sjálfsögðu. Því fyrr því betra.
Meðal viðskiptavinaokkar eru: Asiaco, Cadbury,
Happdrætti Háskóla íslands, Héðinn, IBM, Lýsi,
Penninn, Plastprent, Sementsverksmiðja ríkisins, Sindra
Stál, Smjörlíki, Sól, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins.