Morgunblaðið - 04.02.1986, Side 31
-h
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDAGUR 4. FEBRÚAR1986
31
Vertíðin fer víða hægt af stað
Sandnes, nýjasta skip Nesskips, en það var keypt í janúar 1985.
Nesskip hf.:
40% aukning
flutninga 1985
Félagið flutti alls 706.000 lestir á síðasta ári
SKIPAFÉLAGIÐ Nesskip flutti á síðasta ári alls um 706.000 lestir
af varningi með skipum sínum á síðasta ári og nam aukningin frá
árinu 1984 um 40%. Flutningar milli hafna erlendis námu um 57%
af heildinni, en hér á landi er íslenzka Járnblendifélagið stærsti
VETRARVERTÍÐ er nú hafin
og bátar ýmist farnir til veiða
eða að leggja síðustu hönd á
undirbúninginn. Rætt var við
nokkra fréttaritara Morgun-
blaðsins og þeir spurðir frétta
af vertiðinni.
Slæmar gæftir
„Heildarafli hér á Höfh frá
byijun janúar er 368,5 tonn,“ sagði
Haukur Sveinbjömsson fréttaritari
á Höfn í Homafírði á fimmtudag.
„Þórhallur Daníelsson hefur farið
í einn róður í janúar og veiddi
hann 101 tonn. Hér em gerðir út
sex línubátar og hafa gæftir verið
mjög slæmar hjá þeim. Eftir sam-
tals 63 róðra em þeir með 252,6
tonn. Uppistaða aflans er þorskur
og ýsa. Einn bátur er á trolli.
Hann hefur farið í tvo róðra og
fékk í þeim samtals 3,4 tonn. Einn
bátur er byijaður á netaveiðum og
hefur hann fengið 11,6 tonn í
einum róðri. Meirihluti aflans er
ufsi.“
Haukur sagði að átta bátar
hefðu landað loðnu á Höfn í janúar,
alls 5.500 tonnum, en gæftir hafa
verið frekar slæmar. Hann sagði
að nú væm fleiri bátar að undirbúa
sig og fara þeir út í næstu viku.
Afli sæmilegur i
Ólafsvik
„Róðrar hófust hér þegar vika
var liðin af janúar," sagði Helgi
Kristjánsson fréttaritari í Ólafsvík.
„Gæftir vom allgóðar um miðjan
mánuðinn en hafa verið stirðari
núna síðustu dagana. Afli hefúr
verið sæmilegur.
Fáeinir bátar róa með línu og
hafa þeir fengið reytingsafla, 4 til
8 lestir. Sjö bátar em á dragnót
og hafa þeir verið með sæmilegan
afla. Fáeinir bátar em á netum og
hjá þeim hefur verið nokkuð tregt.
Það kom neisti fyrir nokkmm
dögum, en slaknaði aftur.
Hér væri töluvert líf ef gæftir
væm jafnari. Atvinna hefur verið
bærileg og unnið er í flestum físk-
vinnslustöðvum.
Ég sé ekki annað en að menn
stefni á vertíðina með góðri von
um afla. Mér er ekki kunnugt um
hvort menn em búnir að gera upp
hug sinn um hvort þeir muni taka
aflamark eða sóknarmark og sé
ekki í dag hvemig þau mál skip-
ast,“ sagði Helgi.
Næg atvinna eftir
mánaðamót
Jón Sigurmundsson fréttaritari
í Þorlákshöfn sagði að þar væm
sex bátar byijaðir á netum, sex á
línu, þrír á trolli og einn á dragnót.
í janúar hafa komið 676,6 tonn á
land í Þorlákshöfti, sem er um 200
tonnum minna en í fyrra. „Ástæð-
umar em sennilega gæftaleysi og
einnig vantar ufsann,“ sagði Jón.
„Aflahæstu bátar em Höfrung-
ur 3., sem er á netaveiðum, með
143,7 lestir eftir átta landanir. Af
þeim sem em á línu er Fossborgin
aflahæst með 26,2 tonn eftir 10
landanir. Guðfínna Steinsdóttir er
aflahæst þeirra sem em á trolli.
Afli skipsins eftir tvær landanir
var samtals 48 tonn og var honum
landað í gáma. Togaramir em
ekki byijaðir ennþá. Þeir munu
hefja veiðar um mánaðamótin.
Meitillinn er að hefja starfsemi
aftur eftir að hafa verið lokaður
allan janúarmánuð. Á þeim tíma
hefur fólkið gengið atvinnulaust
um götumar. Margir virðast heldur
hafa valið sóknarmarkið en afla-
markið, fleiri en í fyrra. Eftir
næstu mánaðamót má búast við
að hér verði nægt atvinna þegar
allir bátamir, þijátíu talsins, em
byijaðir, en aðeins um það bil
helmingur þeirra hefur hafíð veið-
ar,“ sagði Jón Sigurmundsson í
Þorlákshöfti.
Rólegt í Eyjum í janúar
„Vertfðin hefur farið ákaflega
rólega af stað og er lítið um að
vera hér í janúar, eins og oft áð-
ur,“ sagði Hermann Jónsson
fréttaritari í Vestmannaeyjum.
Fjórir netabátar em byijaðir og
þar af byijuðu þrír ekki fyrr en
eftir 20. janúar. Nokkrir trollbátar
hafa landað hér, en afli hefur verið
frekar tregur. Mest hefur verið um
ufsa hjá netabátunum. Það verður
stígandi í þessu í febrúar og verða
bátamir fljótir af stað ef þeir hafa
einhveija veiðivon.
Atvinna hefur því verið frekar
stopul. Hér em gerðir út sjö togar-
ar sem hafa haldið uppi atvinnulff-
inu.
Talsvert hefur verið um loðnu-
landanir og horfa menn vonaraug-
um fram til þess tíma er þeir geta
farið að frysta loðnu og ætla
margir sér stóra hluti. Stöðvamar
hér em vel búnar tækjum til þess-
arar vinnslu og em afkastamiklar.
Upp úr miðjum febrúar verður
loðnan hrognatæk og er vonandi
að þeir geymi sér eitthvað af kvót-
anum til þess tíma,“ sagði Her-
mann Jónsson.
viðskiptavinur Nesskips.
Nesskip flutti alls 505.000 lestir
af vamingi árið 1984 og jukust
flutningar félagsins þá um 33%
miili ára. Nú vom fluttar 706.000
lestir, um 300.000 til og frá landinu
og 406.000 lestir milli hafna erlend-
is. Aukning í þeim flutningum frá
fyrra ári er 112%, en lftilsháttar
samdráttur er f flutningunum til og
frá landinu. Nesskip á 5 skip og
vom flutningar hvers þeirra á árinu
1985 sem hér segir. Suðurland
42.000 lestir, Vesturland 31.000
lestir, Selnes 202.000 lestir, Sand-
nes 226.000 lestir, Akranes
135.000 ogleiguskip 70.000 lestir.
Guðmundur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Nesskips, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að rekst-
ur skipanna hefði gengið vel á sfð-
asta ári, þrátt fyrir að flutnings-
gjöld í svokölluðum stórflutningum
væm lág vegna offramboðs á flutn-
ingsgetu og harðrar samkeppni.
Heildarafkoman þyrfti því að vera
talsvert betri, en væri viðunandi
miðað við aðstæður í dag.
Stærsti viðskiptavinur Nesskips
væri Jámblendifélagið, en fyrirtæk-
ið sæi um hráefnisflutninga fyrir
það, einnig flytti Nesskip út salt-
físk, síld, mjöl, vikur, gjall, brota-
jám, kfsilmálm og fleira. Félagið
hafi sérhæft sig í stórflutningurn
til og frá landinu og auk þess hægt
og sígandi aukið flutninga erlendis.
Hjá félaginu ynnu nú um 100
manns, þar af 7 á skrifstofu þess
á Seltjamamesi.
„Flutningamarkaðurinn er og
hefúr verið mjög erfíður mörg síð-
astliðin ár og batamerki ekki sjáan-
leg. Vegna þessa em gjaldþrot tíð
í atvinnugreininni og afkoman
óömgg. Því miður ætlar að taka
langan tíma að ná jafnvægi í fram-
boði skipa og erftirspum," sagði
Guðmundur Ásgeirsson.
Skakaðu skammdegi
og kulda...
toflur
Magnamín.
24 nauðsynleg
vítamín og steinefni
sem íslendingar
áöllumaldri þarfnast.
* bœtiefna
belgimir
/Högnuð vítamín - /Vlögnuð fyrirbœri
100
perii
LYSI
Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777.