Morgunblaðið - 11.02.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1986
39
„ H VIRFILVINDUR"
NÝJASTA SKÁLDSAGA JAMES CLAVELLS
Greiddu fimm milljónir
dollara fyrir útgáfuréttinn
Utgáfufyrirtækið William
Morrow & Company og Avon
Books keypti nýlega útgáfuréttinn
að nýjustu skáldsögu rithöfundarins
James Clavells, „Hvirfilvindi", fyrir
fimm milljónir dollara. Hefur aldrei
fyrr verið greitt jafn mikið fyrir
eina bók. Þess má geta, að Clavell
er höfundur sögunnar „Shogun",
sem kunn er af samnefndum sjón-
varpsþætti.
Haft er fyrir satt, að þegar út-
gáfurétturinn var boðinn upp, hafi
hæsta boðið verið sex milljónir
dollara en þá var gert ráð fyrir, að
féð yrði greitt á mörgum árum.
Tilboð Morrow-Avons þótti þess
vegna hagstæðara.
Lawrence Hughes, fram-
kvæmdastjóri Hearst Books, sem á
Morrow og Avon, var mjög ánægð-
ur með samninginn við James Clav-
ell. „James er höfundur, sem ekki
þarf að kynna, og hér er um að
ræða stórkostlegt verk,“ sagði
Hughes og bætti þvf við, að bókin
kæmist út á hausti komanda í
vönduðu bandi.
Clavell krafðist þess upphaflega,
að útgáfurétturinn rynni aftur til
Clavell sem er höfundur skáld-
sögunnar „Hvirfilvinds“ er einn-
ig höfundur „Shogun“, en hún
er lesendum eflaust kunn af
samnefndum sjónvarpsþætti.
hans eftir 15 ár og að hann fengi
í sinn hlut 15% af sölu fyrstu millj-
ón eintakanna í góðu bandi og af
fyrstu þremur milljónum pappírs-
kiljanna. Þegar útgefendur tóku
ekki í mál neina takmörkun á út-
gáfuréttinum féll Ciavell frá þeirri
kröfu.
Hæstu greiðslur hingað til fyrir
bókarhandrit og útgáfurétt eru um
þrjár milljónir dollara. Random
House greiddi Edmund Morris þrjár
milljónir fyrir ævisögu Ronalds
Reagan, Bandaríkjaforseta, og vit-
að er til, að vinsælir skáldsagnahöf-
undar hafa fengið aðeins meira.
Algengt er, að höfundur skili inn
handritum, sem eru lítið meira en
drög og eru síðan fullunnin hjá út-
gáfufyrirtækinu. Clavell hafði hins
vegar gengið að fullu frá handritinu
og því verður hægt að gefa bókina
út strax í haust. Bækur í góðu bandi
seljast nú betur en áður í Bandaríkj-
unum, sumar í milljónum eintaka,
og vegna vinsældanna, sem
„Shogun" naut hjá lesendum og
sjónvarpsáhorfendum, þykir það
gulltryggt, að nafnið eitt, James
Clavell, sjái um að selja bókina.
Tökum að okkur
matseld fyrirfyrirtæki og hópa, fermingarveislur, afmæli, giftingar, árshátíðir og önnur samkvæmi sem þið kunnið að halda.
M l/M Hringið og fáið tillögur ísíma 84939 eða 84631. MATSTOFA MIÐFELLS SF. FUNAHÖFÐA 7- SÍMI: 84939
IBM Til sölu er IB 64 ME Vélineríc bundr Allarnána ( system/34 M system/34 tölva með 128K minni, diskarými og 2D diskettudrifi. )óðu ástandi og hefur verið í reglu- iu viðhaldi hjá IBM frá upphafi. r/ upplýsingar veitir: Hugver í síma 651075. X\OSIAOG W ) SMJÖRSALAN SE MLs
Mæðgurnar
á ferð í
St. Moritz
Þær mæðgur Christina Onassis
og Athena voru nýlega á ferð
í St. Moritz í Sviss þar sem með-
fylgjandi mynd var tekin. Þó Christ-
ina eigi nóg af peningum hefur hún
engan hug á að láta aðra annast
bamauppeldið og lætur bamfóstrur
aðeins sinna hnátunni þegar nauð-
syn krefur.
COSPER
----Þetta er forngripur, hann er framleiddur sama árið og
þú fæddist.
Við útbúum veislumat í allar veislur hvaða nafni sem þær
nefnast. Fjölbreytt úrval heitra og kaldra rétta. Löng
reynsla okkar tryggir veislu sem munað verður eftir. Við
heimsendum veislumatinn í sérstökum hitaskápum og
getum útvegað öll áhöld.
Sérstakur símatími veisluráðgjafa okkar er
milli kl: 13-16 mánudaga til föstudaga.
VEISLUELDHÚSID
IGLÆSIBÆ
sími: 686220 -
Er veisla
framundan?
v
sr