Morgunblaðið - 12.02.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. FEBRÚAR1986
XII. Reykjavíkurskákmótið:
Indónesinn sem kom
inn úr kuldanum
Lítt þekktur Indónesi, sem enginn
vissi að kæmi, lagði Miles að velli
Morgunblaðið/Júlíus.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, leikur fyrsta leikinn fyrir Mikhail
tal. Þorsteinn Þorsteinsson, forseti Skáksambandsins fylgist með.
LÍTT þekktur Indónesi, Utut
Adianto, kom öllum að óvörum
inn úr kuldanum í keppni úr-
valsliða Norðurlanda og Banda-
ríkjanna í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og spurði forráða-
menn Skáksambands íslands
hvort hann mætti vera með á
Reykjavíkurskákmótinu. Jú,
menn héldu það væri í lagi og
Indónesinn var skráður í mótið.
í gærkvöldi tefldi Indónesinn
við breska stórmeistarann
Anthony Miles og lagði hann
að velli í 1. umferð XII. Reykja-
vikurskákmótsins. Miles var að
vonum sneyptur, en bar sig
vel. „Ég vildi hann hefði ekki
sýnt sig,“ sagði Miles við blaða-
Skák
Bragi Kristjánsson
FJÖLDI þekktra skákmeistara
teflir á XII. Reykjavíkurskák-
mótinu, sem hófst á Hótel
Loftleiðum i gær. Nefna má
Tal og Geller frá Sovétríkjun-
um, Larsen (Danmörku),
Seirawan, Christiansen, Alburt,
Byrne, Reshevsky, deFirmian
(allir frá Bandarikjunum),
Cheorghiu (Rúmeníu), Quinte-
ros (Argentínu), Miles (Eng-
landi).
Af upptalningunni sést, að
mótið er geysisterkt og verður
gaman að fylgjast með baráttu
okkar sterkustu skákmanna,
Helga, Margeirs, Jóhanns, Jóns
L., Karls og Sævars við þessa
sterku skákmeistara.
Athyglisvert er, að meðal
keppenda er fyrrverandi
heimsmeistari, Tal, heims-
meistari unglinga, Dlugy, og
fjórir fyrrverandi heimsmeist-
arar unglinga, Miles, Seirawan,
Hansen og Gheorghiu.
Fyirverandi heimsmeistari,
Mikhail Tal, teflir nú á íslandi í
þriðja skiptið. Fyrri heimsóknir
hans eru skákunnendum enn í
fersku minni, því maðunnn teflir
óvenju skemmtilega. í fyrstu
umferð mótsins nú tefldi Tal með
hvítu gegn Jens Kristiansen, al-
þjóðlegum meistara frá Dan-
mörku. Tal tefldi að sjálfsögðu til
sóknar og gat ekki stillt sig um
mann Morgunblaðsins að lok-
inni skákinni og bætti við: „Ég
var sleginn skákblindu - hrein-
lega lék mig í mát.“
Augu manna beindust að Mik-
hail Tal, sem fyrir 22 árum heillaði
íslendinga með snilldartafl-
mennsku á I. Reykjavíkurskák-
mótinu þegar hann lagði hvem
andstæðinginn af öðrum að velli
með glæsilegum fléttum og fóm-
um. Ahorfendur fögnuðu honum
innilega í upphafi móts þegar
Þorsteinn Þorsteinsson, forseti
Skáksambandsins, kynnti hann
og Davíð Oddsson, borgarstjóri,
lék fyrsta leikinn fyrir Tal.
Tal fómaði manni í tvísýnni
stöðu gegn Dananum Jens Krist-
að bjóða Dananum að setja á tvo
menn með peði:
Svartur lék:
1. — f6 og framhaldið varð:
2. Rxg6 — fxg5, 3. Hxf8+ —
Dxf8,4. De4 - Df6
Daninn lætur ekki rugla sig í
ríminu. Nú hótar hann 5. —
Dxd4+ o.s.frv.
5. Hf2
Ekki gengur 5. Rf5 — Dxg6,
6. Rxe7+ — Rxe7, 7. Dxb7 —
Bxd4+, 8. Khl — Hf8 og svartur
vinnur létt.
5. — Dxd4
Svartur gat reynt að tefla til
vinnings með 5. — Db6.
6. De6+ - Kh7, 7. Dh3+ -
Kg8, 8. De6+ og keppendur
sömdu um jafntefli.
Heimsmeistari unglinga, Max-
im Dlugy, byijaði mótið á heldur
óskemmtilegan hátt. Hann hafði
iansen. „Hann ætlar að vinna allar
skákir með fómum og djöful-
gangi," varð Jóhanni Þóri Jóns-
syni, ritstjóra tímaritsins Skákar
að orði, en hann reyndist ekki
sannspár. Tal varð að sætta sig
viðjafntefli þegar í 1. umferð.
Að lokinni skákinni við Tal
spurði blaðamaður hvort sagan
frá 1964 endurtæki sig ekki -
hvort hann hygðist ekki leggja
alla andstæðiga sína að velli. Tal
brosti kankvíslega og sagði: „Að
sjálfsögðu reyni ég að gera mitt
besta," og bætti svo við brosandi
- „talaðu við mig að loknum 11
umferðum."
Ýmis óvænt úrslit litu dagsins
svart gegn Karklins, Bandaríkja-
manni ættuðum frá Sovétríkjun-
um. Eftir 11. leik Karklins, sem
hafði hvítt, kom þessi staða upp:
Dlugy lék alveg grandalaus 10.
— Be6??? og tapaði drottningunni
eftir 11. Ba5 — Rg4, 12. Del og
gafst upp tíu leikjum síðar.
Helgi Ólafsson byijaði mótið
með snotrum sigri á Askeli Emi
Kárasyni:
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Áskell Örn Kárason
Drottningarbragð
1. Rf3 - c5, 2. c4 - Rf6, 3. Rc3
— b6, 4. e3 — e6, 5. d4 — cxd4,
6. exd4 - Bb7, 7. Bd3 - d5,
8. Bg5 — dxc4.
nú er komin upp með óvenju-
legri leikjaröð staða úr drottning-
arbragði. Hvítur tekur á sig stakt
peð á d4, en fær í staðinn mikið
spil fyrir menn sína.
ljós. Hinn ungi Davíð Ólafsson
gerði jafntefli við Joel Benjamin
frá Bandaríkjunum og Halldór
Grétar Einarsson gerði jafntefli
við Ligtemik, Björgvin Jónsson
hélt jöfnu gegn Lev Alburt og
óþekktur Akureyringur, Jón
Garðar Viðarsson, hélt jafntefli
9. Bxc4 - Be7, 10. 0-0 - 0-0,
11. De2 - Rc6,12. Hadl - Rb4.
Áætlun Áskeis er þekkt í stöð-
um sem þessari. Hann ætlar að
koma riddara til d5. Til greina
kom að leika hér 12. — Hc8 til
að koma hróknum í spilið, áður
en riddarinn fer til d5.
13. Re5 — Rbd5
Eftir þennan leik kemur Helgi
hróknum á dl í sóknina. Betra
varl3. — Rfd5
14. Hd3! - Rxc3, 15. bxc3 -
Hc8, 16. Hh3 - Re4, 17. Bcl! -
g6-
Eftir 17. - Rg5, 18. Bxg5 -
Bxg5, 19. f4 - Bf6, 20. f5 -
Bd5, 21. Bd3 hefur hvítur sterka
sókn.
18. Bh6 — b5.
Eða 18. - He8, 19. Rxf7 -
Kxf7, 20. f3 og hvítur hefur yfir-
burðastöðu. Ef riddarinn fer til
g5 kemur 21. Bxg5 — Bxg5, 22.
Hxh7+ - Kf8, 23. Hxb7 o.s.frv.
19. Bxf8 — Bxf8
20. Rxf 7! - Kxf 7
Eftir 20. — De8, 21. Bb3 —
Dxf7, 22. He3 og hvítur stendur
mun betur. Vegna hótunarinnar
f3 ásamt Bxe6 vinnur hann til
baka tvo menn fyrir hrók.
21. Hxh7+ - Bg7, 22. Bxe6+ -
Kf8
Eða 22. - Kxe6, 23. Hxg7 -
Bd5,24. f3 og hvítur vinnur.
23. Df3+ - Df6, 24. Bxc8 og
svartur gafst upp, því liðsmunur
er of mikill hvít í hag.
gegn Finnanum Yijola. Þá vann
Jóhannes Ágústsson Karl Þor-
steins og Margeir Pétursson tap-
aði fyrir Karl Burger, lítt þekktum
Bandaríkjamanni.
Einni skák lauk fljótt - Maxim
Dlugy, heimsmeistari unglinga,
lék af sér drottningu í 11. leik
gegn Karklins, landflótta Lett-
lendingi, sem hefur búið um langt
skeið vestan hafs.
- HH.
Úrslit í
l.umferð
Úrslit í 1. umferð XII. Reykja-
víkurskákmótsins urðu:
Tony Miles/Utut Adianto 0-1
Sævar Bjamason/Seirawan biðskák
Mikhail Tal/Jens Kristiansen i/i-i/2
Larry Remlinger/Bent Larsen 0-1
Pedrag Nikolic/Karl Dehmelt 1-0
AnttiPyhala/LarryChristiansen 1-0
Joel Benjamin/Davíð Ólafsson '/z-'/i
Andrew Kraklins/Maxim Dlugy 1-0
Helgi Ólafsson/Áskell Öm 1-0
Florin Gheorghiu/Haukur Angantýsson 1-0
Róbert Harðarson/Antoly Lein biðskák
Hilmar Karlsson/Efim Geller 0-1
Valery Salov/Hans Jung 1-0
Kari Burger/Margeir Pétursson 1-0
deFirmian/BenediktJónasson 1-0
Björgvin Jónsson/Lev Alburt V2-V2
Miguel Quinteros/Dan Hansson biðskák
JuergHerzog/WalterBrowne 0-1
Curt Hanscn/Guðm. Halldórsson 1 -0
LeifurJósteinsson/JóhannHjartarson 0-1
Robert Byme/Láms Jóhannesson 1-0
Kristján Guðm./Jón L Ámason 0-1
Fedorowicz/Þröstur Þórhallsson 1-0
Ámi Ármann/Guðm. Siguijónsson 0-1
BorisKogan/ÁsgeirÁmason biðskák
Bragi Halldórs./Reshevsky biðskák
Ligtfemik/Halldór Grétar V2-V2
Haraldur Haralds./V an der Sterren 0-1
Sergei Kudrin/Þorst. Þorsteinsson 1-0
Tómas Bjömsson/H. Schussler 0-1
Jóhannes Ág/Karl Þorsteins 1-0
Micheal Wilder/Hannes Hlífar 1-0
Jón Viðarsson/Jouni Yijola V2-V2
John Donaldson/Guðm. Glslason 1-0
Þröstur Ámason/Zaltsman 0-1
Carsten Hoi/Eric Schiller 1-0
Stjórn Landssambands lífeyrissjóða:
Mótmælir harðlega hugmyndum um að
svipta sjóðina 70% af ráðstöfunarfé sínu
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi ályktun stjórnar
Landssambands lífeyrissjóða:
„Stjóm Landssambands lífeyris-
sjóða mótmælir harðlega hug-
myndum um að svipta lífeyrissjóð-
ina 70% af ráðstöfunarfé sínu. Á
undangengnum árum hefur árlega
tekist samkomulag við ríkisvaldið
um frjáls kaup lífeyrissjóðanna á
skuldabréfum byggingarsjóðs fyrir
40% af ráðstöfunarfé sjóðanna.
Lagalega er vafasamt að hægt sé
að skylda lífeyrissjóðina til þess að
afhenda svo stóran hluta eigna
sinna til langs tíma, sérstaklega
þegar litið er til vaxandi lífeyris-
greiðslna sjóðanna.
í hugmyndum er lántakendum
lofað 3,5% vöxtum en sjóðimir eiga
að fá sömu vexti og gilda á spari-
skírteinum ríkissjóðs, núna 9%.
Ekki er ljóst hver á að borga vaxta-
mun upp á 5,5% á allar lánveitingar
til húsnæðismála. Þá hafa lífeyris-
sjóðimir enga tryggingu fyrir því
að ríkið lækki ekki vextina á sínum
lánum, þegar því sýnist svo.
Þessi vaxtamunur, sem og styttri
lánstimi á lánum lífeyrissjóða til
byggingasjóðanna, mun gera §ár-
þörf byggingarsjóðanna óbærilega
á næstu árum og vekur upp spum-
ingar um getu þeirra til þess að
endurgreiða lán sfn til lífeyrissjóð-
anna þegar sjóðimir þurfa á því að
halda til lífeyrisgreiðslna. Hingað
til hafa lífeyrissjóðir ætíð lánað
byggingarsjóðunum miklu meira en
þeir hafa greitt til baka.
Stjóm Landssambands lífeyris-
sjóða vill benda á þá uppsöfnum
fjármagns, sem þegar er orðin hjá
byggingarsjóðunum, og minnir á
hugmyndir manna um minnkandi
umsvif hins opinbera. Ljóst er að
þessi ráðstöfun mun enn auka á
miðstýringu fjármagns.
Stjómin vill vekja athygli á að
verðfall hefur orðið á eldra húsnæði,
sem virðist benda til þess að of
mikið hafi verið byggt á undan-
gengnum árum. Þær ráðstafanir,
sem stefnt er að í hugmyndunum,
niðurgreiddir vextir og stýring fjár-
magns í íbúðabyggingar, mun
stuðla að miklum byggingum en
draga fé frá atvinnuvegunum. Við-
leitni stjómvalda til þess að draga
úr erlendum skuldum þjóðarinnar
mun verða erflðari viðureignar, ef
af þessu verður.
Lífeyrissjóðir hafa að undanfomu
keypt skuldabréf á fijálsum verð-
bréfamarkaði til þess að bæta
ávöxtun sjóðanna og gera þá betur
færa um að greiða góðan lífeyri.
Þessi viðleitni, sem óneitanlega
hefur lækkað vexti á þeim markaði,
mun hverfa ef sjóðimir verða skyld-
aðir til þess að afhenda ríkisvaldinu
70% af ráðstöfunarfé sínu. Vill
stjómin undirstrika að þessi við-
skipti hafa fyrst og fremst beint
fjármagninu til uppbyggingar at-
vinnuveganna, með kröfu um arð-
semi. Mikilvægt er að fjármagn líf-
eyrissjóðanna renni til arðsamra
Qárfestinga þannig að þeir geti
greitt tryggan lífeyri í framtíðinni."