Morgunblaðið - 06.04.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
B 7
„Ég talaði bara við þá um tæknileg atriði, fékk
þá til að segja frá þessari dauðamaskínu"
Sjá: Kvikmyndir
VAIMGAVELTUR
Forréttindin
sífellt meira
feimnismál
Y
I firleitt fer ekki miklum sögum
af ágreiningi meðal sovéskra ráða-
manna en um tvö mikilvæg málefni
hafa þeir þó deilt opinberlega; um
forréttindin og fijálslegri fjölmiðl-
sem Ligachov var aðalritari árum
saman, hafði varað menn við frjálsri
umræðu og að líkja eftir vestrænni
blaðamennsku. Tengsl þeirra Liga-
chovs eru mjög náin.
Aðrir kváðu enn skýrar að orði.
Aðalritarinn í Kemerovo, N.S.
Yermakov, kvaðst vera hjartanlega
sammála Ligachov og bætti við:
„Það er ótækt, að blaðamenn, sem
enga reynslu hafa af né þekkingu
á flokksstarfi, skuli vera með dóma
yfir háttsettum mönnum í flokkn-
um.“
un.
Fulltrúar á 27. flokksþinginu,
sem nýlega var haldið í Moskvu,
urðu þar vitni að því að æðstu
valdamenn voru ekki á sama máli
um af hve mikilli hreinskilni skyldi
ræða vandamál flokks og þjóðar í
fjölmiðlunum. Var það upphafið að
þessum mikla ágreiningi, að Mik-
hail Gorbachev hafði nýlega hafið
mikinn áróður fyrir meiri „glass-
nost“, opnari umræðu, í dagblöðun-
um.
Það, sem fyrir Gorbachev vakti;
var að fá almenningsálitið til að
snúast gegn ýmsum embættis-
mönnum flokksins og ríkisins,
mönnum, sem hann telur hæfileika-
lausa og óheiðarlega og ekki meira
en svo trúa honum sjálfum. Skýr-
asta dæmið um þessa opnu umræðu
er þegar hún var notuð til að fella
Viktor Grishin, formann flokksins
í Moskvu, en hann var gerður
ábyrgur fyrir miklu hneyksli í
byggingariðnaðinum.
Ýmislegt bendir nú til, að umræð-
an hafi samt þótt ganga of langt,
einkum þegar hún var farin að snú-
ast um forréttindi hinnar nýju stétt-
ar. Fyrir skömmu birtust í Pravda,
málgagni flokksins lesendabréf þar
sem vikið var að þessum viðkvæmu
málum. í einu þeirra sagði, að
„ókleifur múr“ makráðra embættis-
manna kæmi í veg fyrir öll sam-
skipti ráðamanna og „hinna vinn-
andi stétta", menn, sem bréfritarinn
sagði, að væru aðeins flokksfélagar
að nafninu til.
í öðru bréfi frá gömlum flokks-
félaga sagði, að kominn væri tími
til að „flokksbroddamir" færu að
nota venjulegar verslanir. Ef þeir
þyrftu að standa í biðröðum eins
og aðrir væri ekki ólíklegt, að bið-
raðir heyrðu brátt sögunni til.
Yegor Ligachov, næstæðsti ráða-
maður í Kreml og helsti hugmynda-
fræðingur flokksins, lagði mönnum
. línurnar strax á fyrsta degi flokks-
þingsins. Sum blöð, sagði hann, þar
á meðal Pravda, hafa gengið of
langt. Raunar var fyrirfram vitað
hver afstaða Ligachovs var. Rit-
stjóri flokksblaðsins í Tomsk, þar
Hin nýja stétt hefur brugðist
hart við og gerir hvort tveggja að
veija forréttindi sín og láta sem þau
séu lítil sem engin. Geidar Aliyev,
sem sæti á í stjómmálaráðinu, sagði
á blaðamannafundi, að margir
embættismenn flokksins væru svo
önnum kafnir, að þeir hefðu ekki
tíma til að versla í venjulegum búð-
um, og einn miðstjómarmaðurinn
sagði, að hann hafði engan aðgang
að verslunum hinna útvöldu. „Ég
fer líka í biðraðimar og þar stöndum
við saman,“ sagði hann, en hætt
er við, að almenningur brosi í
kampinn yfír þessum orðum.
Á flokksþinginu kvað líka við
annan tón. Enginn annar en Boris
Yeltsin, hinn nýi formaður flokksins
í Moskvu og væntanlegur félagi í
stómmálaráðinu, sagði, að forétt-
indin kölluðu stundum fram erfiðar
spumingar frá almenningi um fé-
lagslegt réttlæti. „Það er því mín
skoðun, að þegar ekki er hægt að
réttlæta forréttindi valdamanna,
eigi að afnema þau,“ sagði hann.
- MARK FRANKLAND.
SYNDASELIR
+
Guðsmaður-
inn sem gekk
af göflunum
Abótinn af Rein, yfirmaður í
stóm klaustri af Sísterísan-
reglunni í suðurhluta Austurríkis
var rekinn úr starfi í febrúar síðast-
liðnum þegar hann varð uppvís að
því að hafa rúið klaustur sitt nálega
öllum eigum þess og steypt því út
í skuldir að auki. Talið er að ábótinn
hafí sólundað 250 milljónum króna
á 12 áratímabili.
Sisterísan-reglan var því mót-
fallin að hann yrði fangelsaður en
hún komst þó ekki hjá því að leggja
fram ákæru á hendur honum þar
sem hann var sakaður um að hafa
notað fjármuni klaustursins í ábata-
skyni. Jafnframt hefur hann verið
kærður fyrir að sölsa undir sig
sparifé og arf nokkurra gamalla
kvenna.
Athafnir ábótans hafa einnig
komið óorði á stórt tryggingarfélag
í Austurríki og einn starfsmanna
þess mun hafa fyrirfarið sér. Þá
hafa nokkrir stjómmálamenn séð
sér þann kost vænstan að draga
sig í hlé vegna afskipta af málefn-
um ábótans og dómari nokkur hefur
verið rekinn úr starfi.
Rómversk kaþólska kirkjan er
einn helzti landeigandi í Austurríki.
Siterísan-reglan á klaustur víðs
vegar um landið og miklar landar-
eignir tilheyra þeim. Þar er ýmist
stundaður landbúnaður eða skógar-
högg. Nú hefur vaknað sú spuming
hvort munkar séu færir um að hafa
með höndum stjóm á svo miklum
veraldlegum verðmætum.
Ábótinn er 47 ára að aldri og
heitir Paulus Rappold. Hans var
fyrst getið í blaðafregnum þegar í
ljós kom að munkamir í klaustrinu
hans höfðu þurft að minnka vð sig
matarskammtinn í spamaðarskyni
um svipað leyti sem ábótinn keypti
veiðikofa fyrir fé klaustursins þar
sem hann hélt uppi gleðskap með
vinum sínum og ættingjum. 1 hópi
þeirra fyrmefndu vom menn af
Habsborgaraættinni sem lengi réð
lögum og lofum í Austurríki og
ennfremur ungar stúlkur af aðals-
ættum þótt ekki væm þær eins stór-
ættaðar og Habsborgarar.
Ábótinn vílaði heldur ekki fyrir
sér að fara til útlanda í leyfí á
kostnað klaustursins og hann virtist
hafa óblandna ánægju af félags-
skap fagurra kvenna. í slúðurdálk-
um austurrískra dagblaða hafa
enda vikum saman birst klausur
um konur sem kváðu vera í ástar-
sorg vegna ábótans og er haft fyrir
satt að sumar hafí höfðað bams-
faðemismál á hendur honum.
Saksóknarinn i Vínarborg hefur
látið taka ábótann höndum þótt
ekki sé það vegna bamsfaðemis-
málanna. Hins vegar fékk guðs-
maðurinn tryggingarfélag til að
greiða sér um 60 milljónir króna í
bætur vegna bmna í klaustrinu sem
nú er vitað að átti sér aldrei stað.
Framkvæmdastjóri tryggingarfé-
lagsins var náinn vinur ábótans og
dvaldist tíðum með honum í veiði-
kofanum góða.
Viðskilnaður ábótans við klaustr-
ið er harla dapurlegur því að það
er algerlega gjaldþrota. Munkar í
öðmm klaustmm hafa lýst yfir því
að þeir séu reiðubúnir að hlaupa
undir bagga með bræðmm sínum
í neyð og veita þeim lán, en þeir
hafa hinsvegar ekki léð máls á því
að greiða skuldimar sem ábótinn
safnaði.
Samkvæmt lögum kirkjunnar
hafa ábótar viðlíka vald og léns-
höfðingjar. Þar er tekið fram að
þeir megi ráða í þjónustu sína efna-
hagssérfræðinga úr hópi leikmanna
og sérstakt ákvæði er um að ábóti
þurfi jafnan að hafa við hendina
aðstoðarmann úr hópi munkanna
sem geti farið yfir reikningshald
klaustursins. En þetta lét ábótinn
af Rein undir höfuð leggjast. Hann
braskaði með landareignir og svo
virðist sem hann hafí einnig látið
til sín taka á almennum peninga-
markaði. Hann var bóndasonur og
lærður lásasmiður þegar hann gekk
í klaustrið og engan veginn fær um
að axla það hlutverk sem honum
var falið.
í réttarhöldum þeim sem hann á
yfír höfði sér mun væntanlega
koma í ljós hversu miklar skuldir
hann stofnaði sér og klaustrinu í
með umsvifum sínum og braski.
Einn færasti lögfræðingur Austur-
ríkis hefur verið fenginn til að
annast málsvöm hans.
SUE MASTERMAN.
UNDIR OKINU
MÓTMÆLI — Koraung-
ur Varsjárbúi tekur þátt
í göngu til stuðnings
Samstöðu.
Ungum Pól-
verjum er
öllum lokið
Svo er nú komið fyrir alþýðulýð-
veldinu Póllandi, að næstum
allir, sem fæddir eru eftir að því
var komið á laggimar eftir síðara
stríð, finna lítinn sem engan tilgang
með tilveru sinni. Kemur þetta fram
í könnun, sem birt hefiir verið í
Varsjá.
Allt þetta fólk, um það bil þriðj-
ungur þjóðarinnar, er haldið „doða
og drunga" og er sú niðurstaða
samhljóða öðrum athugunum, sem
Sameiningarflokkur verkamanna
(kommúnistaflokkurinn) og kaþ-
ólska kirkjan hafa gert síðan Sam-
stöðu leið.
Útkoman er í stuttu máli sú, að
ungt fólk hefur ekki áhuga á neinu
og lætur sér á sama standa um
allt, sem alþýðulýðveldið varðar, og
það sem er kannski enn undarlegra,
Pólska ríkisfréttastofan hefur bás-
únað þessar fréttir á ensku um alla
heimsbyggðina.
í skýrslunni segir, að unga fólkið
skipti sér ekki lengur af pólitík,
hvorki af bæjar- né landsmálapóli-
tík. „Æskan“, segir í skýrslunni,
„lætur ákafar tilfínningar ráða
afstöðu sinni til stjómmála og efna-
hagsmála."
Það er þó ekki bara „vanþekk-
ing“, sem mótar viðhorf pólskrar
æsku. Hún er nærri helmingur
vinnuaflsins en hefur þó enga von
um bætt kjör eða frama í starfi.
Fólk úr þessum aldurshópi er lang-
flest, þrír af hveijum fjórum, meðal
þeirra, sem skipta um starf en það
gera um 20% vinnufærra manna á
ári hveiju.
í skýrslunni er ekkert reynt að
afsaka stjómvöldin. Ung, pólsk
hjón, sem vilja búa sér sitt eigið
heimili og vera ekki upp á ættingja
komin, verða að bíða eftir sinni
fyrstu íbúð áram saman og ein af
afleiðingum þessarar löngu biðar
er tíðir hjónaskilnaðir.
í gögnum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar kemur það fram, að
meðal æviskeið Pólveija er farið að
styttast. Árið 1975 mátti pólskur
karlmaður búast við að lifa í 67,3
ár en árið 1984 í 66,8 ár. Fyrir
konumar var það 75,4 ár 1980 en
75 árárið 1984.
- MICHAEL SIMMONS
MANNRÉTTINDI
Ekkert lát
áógnunum
í Iran
N okkrar ríkisstjómir á Vest-
urlöndum era nú um þessar mundir
að reyna að hrinda af stokkunum
rannsókn á ástandi mannréttinda-
mála í íran og er sú fyrirætlun í
fullu samræmi við mannréttinda-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
í síðasta mánuði var lögð fyrir
mannréttindanefndina mjög var-
fæmislega orðuð ályktun þar sem
farið var fram á rannsóknina ogn
má við því að búast, að allar aðildar-
þjóðimar get fallist á hana. Sumar
Evrópuþjóðanna vilja til dæmis ekki
stefna í voða þeim viðskiptasam-
böndum, sem þær hafa nú við írani.
Snemma í mars var haldinn
blaðamannafundur í Bonn í Vest-
ur-Þýskalandi þar sem fólk úr
Mujahedeen-skæraliðahreyfingunni
skýrði f>-á ástandinu heima í Iran,
sagði frá 31 mismunandi pyntingar-
aðferð og lagði fram lista með
nöfnum 12.000 pólitískra fanga,
sem hafa verið myrtir.
Fólkið sagði frá pyntingunum,
sem það hafði verið beitt, eins og
um ofur hversdagslega hluti væri
að ræða. Hvemig það var brennt,
barið, konum nauðgað og það húð-
strýkt. Ein konan sagði að einu
sinni hefði eiturgasi verið dælt inn
í loftræstikerfi eins fangelsisins.
íransstjóm lét einnig að sér kveða
í sambandi við fundinn og sýndi
stóran hóp manna, sem sagðir vora
fómarlömb Mujahedeen-skæralið-
anna, þar á meðal 13 bama föður,
sem kvaðst hafa misst alla fjöl-
skylduna fyrir þeirra hendi.
íransstjóm stendur alls ekki á
sama um ímynd sína út á við, eink-
um í öðram ríkjum múhameðstrúar-
manna, og hefur gefíð í skyn, að
sérstökum sendimanni SÞ verði
leyft að koma til landsins vegna
rannsóknarinnar. Það er hins vegar
vandamálið hver sendimaðurinn
eigi að vera.
Iranir vilja, að hann sé múha-
meðstrúarmaður. Ekki einu sinni
vestrænn sérfræðingur í íslamskri
trú, segja þeir, getur skilið þær
meginreglur shai ia-laganna, sem
kerfið hvílir á. Til eru sérfræðingar
í íslömskum lögum, menn, sem
einnig hafa látið að sér kveða í
mannréttindamálum, en hvorki er
líklegt, að báðir málsaðilar fallist á
þá né að þeir vilji leggja sig í þá
hættu, sem starfinu getur fylgt.
Einn þótti þó fyrirfram líklegri en
aðrir, fastafulltrúi Sýrlendinga hjá
SÞ, maður, sem nýtur mikillar virð-
ingar, en nú er hann úr sögunni
vegna þess, að íranir báðu sérstak-
lega um hann. Samningamakkið
getur stundum tekið á sig skrýtnar
myndir.
-LIESLGRAZ