Morgunblaðið - 06.04.1986, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
B 9
regn
ein morgun stendur dóttir mín
og hyggur út gjognum vindeygað
regn og vindur hava herjað náttina
hon skuddar sær og sigur
»tað regnar í allari verðini«
eg hyggi út og nú síggi eg tað týðuliga
ja - tað regnar í allari verðini
tað regnar í harlem og tað regnar í babi yar
tað regnar í rovaniemi
sum reisist úr oskuni
og plantar hjartarotur í menniskjuni
tað regnar í valparaiso
og tann kalda vætan pískar
loturnar til deyðis
tað regnar í havn
og terrorbalansan speglast í vegnum
tað regnar á tónaskaldið
og rytmurnar drukna í nótablaðnum
tað regnar á bókasavninum
og tað lekur millum teori og praksis
tað regnar á tí evstu strondini
har samtalan gror og doyr
tað regnar á teg og meg
og okkara royndir at liva
Ljóðið Regn, á
frummálinu, færeysku, en
það var m.a. lesið upp bæði
á færeysku og dðnsku við
afhendingu verðlaunanna í
Ráðhúsinu í
Kaupmannahöfn.
málalega séð, en þar er ég einnig
sjálfsgagnrýninn."
— Johannes Heggland sagði
m.a., er hann kynnti þig við verð-
launaafhendinguna að þú væri
gagnrýninn á færeyska menningu
og erfðavenjur. Hvemig skýrir þú
það?
„Ég tel að jákvæð gagnrýni á
eigin venjur og menningu sé bezta
leiðin til að viðhalda erfðavenjun-
um. Það ætti enginn aðeins að segja
já við hinum svokölluðu góðu gömlu
verðmætum. Menn eiga að gagn-
rýna og ennfremur aðlaga sig hrað-
fara samfélagsbreytingum. Aðrir
skilja mína gagnrýni sem einhliða
neikvæða. Hér tala ég um sjálfan
mig bæði sem rithöfund og hvað
varðar stjómmál."
Reyni að vera ein-
faldur, en það gengur
ekki alltafvel
— Þú segist vilja vera einfaldur
í Ijóðagerð þinni. Hvemig skilgrein-
ir þú einfaldleikann?
„Ég reyni að vera einfaldur, en
það gengur ekki alltaf vel. Ég vil
vera einfaldur þannig að ég reyni
að finna út hvað það er sem býr í
mér sjálfum og í málinu. Ég trúi
að það sé hægt að segja hlutina á
einfaldan hátt. Það þýðir ekki að
talaður sannleikur sé einfaldur á
sama hátt og stærðfræðilegur sann-
leikur. Það er ekki hið sarna."
Upplagið af bókum Patursson í
Færeyjum er í kringum 1.000 ein-
tök og segist hann ánægður með
söluna og áhugann á bókunum.
Hann hefur skrifað ljóð frá því hann
var átta til níu ára gamall. „Það
voru að mestu leyti slæm ljóð“ segir
hann.
— Hvenær byijaðir þú að skrifa
góð ljóð, og af hveiju tekur hver
Ijóðabók svo langan tíma — þijár
bækurá 17 árum?
„Ég hef ekki enn byijað á því í
alvöru að skrifa góð ljóð en ég kem
til með að gera það. Tímalengdin
hefur einnig nokkuð að gera með
færeyskar aðstæður. Þú hefur
ekkert upp úr því að skrifa í blöð.
Það er ekkert útgáfufyrirtæki sem
hefur fmmkvæði að því að gefa út
nýtt ljóðasafn. Maður er fullkom-
lega einn á báti. Bókmenntir eiga
allt aðra þróunar- og vaxtamögu-
leika til dæmis hér í Danmörku,
Svíþjóð og Noregi. Hefði ég til
dæmis búið í Danmörku og skrifað
á dönsku hefði ég áreiðanlega gefið
út fleiri ljóðasöfn. Ég á mörg ljóð
sem ekki hafa verið gefin út í bók-
um.“ \
í framhaldi af þessu mátti Roi
skýra út af hveiju hann gæti ekki
lifað á list sinni, en það þótti sænsku
blaðamönnunum umhugsunarefni
þar sem um handahafa bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs var að
ræða. Rói sagðist einnig kenna við
háskólann í Þórshöfn í stunda-
kennslu og við kvöldskóla. „Kvöld-
skólinn er fyrir fullorðna. Við ræð-
um þar tilveruna og trúmál. Það
er mjög spennandi. Annars skrifa
ég greinar,“ sagði hann. Hann var
í framhaldi af þessu spurður, hvaða
þýðingu það hefði fyrir hann að
hljóta bókmenntaverðlaunin. Hann
svaraði: „Það mun tíminn leiða í
ljós, en ég skynja úthlutunina sem
viðurkenningu á færeyskri ljóða-
gerð og ég trúi því að hún verði
öðrum yngri færeyskum ljóðskáld-
um innblástur.“ Hann bætti því við
að líklega myndi hann nota verð-
launaféð til að fjárfesta í húseign
í Færeyjum, þ.e. í útborgun, en
hann býr nú ásamt eiginkonu og
tveimur dætrum, 11 og 4 ára, í
leiguhúsnæði í Þórshöfn.
Á Islandi í eitt ár
Rói hefur komið víða við um
ævina. Hann var m.a. á ístandi í
eitt ár og starfaði þá á Bessastöðum
að eigin sögn. Hann sagði það á
íslensku, en annars talaði hann
dönsku á fundinum. Sjómaður var
hann í rúmlega tvö ár og sigldi þá
m.a. í kringum hnöttinn. Um það
sagði hann m.a.: „Það var mikið
ævintýri, sem hefur haft áhrif á
mig. Ég varð fyrir miklum áhrifum
af að sjá eyju birtast og hverfa á
ný, áður en sú næsta birtist við
sjóndeildarhringinn. Við vitum jú
öll að jörðin er hnöttótt, en að
upplifa það sjálfur er allt annað.
Það er lífsreynsla sem aldrei gleym-
ist.“
Skandinavískt
velferðarsamfélag
ekki náð fótfestu
í Færeyjum
Rithöfundinum varð tíðrætt um
færeyskt samfélag og sagði m.a.:
„Gagnrýnendur mínir segja, að ég
geri mér of litla grein fyrir félags-
legum vandamálum í Færeyjum og
það er nokkuð til í því. Það er vegna
þess að ég hef verið 15 ár erlendis.
Fólk í Færeyjum hefur mikla pen-
inga milli handanna, vinnumarkað-
urinn er þaninn og verðlag hátt.
En færeyskt samfélag er viðkvæmt,
eins háð og það er útflutningi á
fiski. Ef útflutningurinn bregst
algjörlega stöndum við frammi fýrir
alvarlegum vandamálum. Það er
næstum því ekkert öryggisnet.
Skandinaviska velferðarsamfélagið
hefur ekki náð fótfestu í Færeyjum
ennþá."
— Hvemig lítur þú á sjálfstæðis-
baráttu Færeyinga. Er ekki tíma-
bært að þið hljótið fullt sjálfstæði?
„Framtíðarsýnin er að Færeyjar
verði sjálfstæðar. Það er ekki aðeins
stjómmálaleg þróun heldur einnig
félagsleg, sem við verðum að af-
greiða fyrst."
í lok þessa samnorræna blaða-
mannafundar með Róa Patursson
fóru fram Qömgar umræður um
Greenpeace og áhrif baráttuaðferða
þeirra, — tilefnið: grindarhvalsveið-
ar Færeyinga. Rói sagðist — að-
spurður um afstöðu sem vinstri
manns í stjórnmálum — hafa samúð
með því sem Greenpeace stæði
fyrir. Aftur á móti yrði að hafa
vandamál smásamfélaga í huga.
Hann sagði m.a. í því sambandi:
„Ég held að hér sé um menningar-
árekstra að ræða. Við sáum hvað
gerðist þegar Greenpeace hóf að-
gerðir gegn selveiðum. Það bitnaði
á smásamfélögum á Austur-Græn-
landi en ekki á kanadískum selveið-
um. Greenpeace heldur því einmitt
fram, að smásamfélög eigi að lifa
af, en þrátt fyrir það fór sem fór
á Grænlandi. Greenpeace safnar liði
meðal fólks sem hefur annað lífs-
gæðamat og skilur ekki vandamál
smásamfélaga. Það getur ekki
hugsað sér að við byggjum lifsaf-
komu okkar á náttúrunni. Hvalur-
inn er talinn táknrænn fyrir þessar
. skoðanir og það get ég vel skilið
því hann er bæði fallegt og gáfað
dýr. Svo koma þessir ruddar og
skera af honum hausinn. Ef við
ætlum okkur ekki öll að verða
grænmetisætur þá verðum við að
horfast í augu við það, að það
verður að slátra dýrum. Við Færey-
ingar verðum að taka þátt í al-
þjóðlegri umræðu og rökræða um
menningu okkar. Það verður ekki
auðvelt fyrir okkar litla samfélag,
ef það sýnir sig að okkur takist
ekki að ná fram okkar sjónarmið-
um. Ef það bitnar á fiskútflutningi
okkar til dæmis í Bandaríkjunum
þá eigum við enga möguleika. Það
eru óhugnanlegar framtíðarhorf-
ur.“
Viðtal: Fríða Proppé
Mt660
Breidd lokaðs sófa 190 cxn,
svefnbreidd 110x190 cm.
Útborgun kr. 6.000,-
Afborgun kr. 2.600 á mánuði.
Við höfum litskrúðugt úrval af allskonar svefn-
sófum, tveggja sæta og þriggja sæta á hagstæðu
verði.
Nýjar vörur á hverjum degi.
Við tökum að sjálfsögðu greiðslukortin sem útborgun á kaupsamninga og sem
staðgreiðslu með 5% afslætti.
BILDSH0FÐA 20-110 REYKJAVIK g 91-6811 99 og 681410
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fl.
Danfoss VLT hraðabreytar fyrir þriggja fasa
rafmótora allt að 150 hö.
Hraðabreytingin erstiglausfrá 0-200% og mótorinn
heldur afli við minnsta snúningshraða.
Leitið frekari upplýsinga í söludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER