Morgunblaðið - 06.04.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
B 13
Þessi mynd var greypt í málmplötu sem komið var fyrir í Pioneer
10 og send með honum út í geiminn í byrjun mars árið 1972. Það
er von aðstandenda flugsins að Pioneer 10 yfirgefi sólkerfi okkar
og að upplýsingarnar sem hann hefur að geyma berist sem „flösku-
skeyti“ i alheiminum í hendur menningarsamfélaga, sem kunna að
vera til á reikistjörnum fjarlægra sólkerfa.
Hvað er utan við „sjóndeildarhringinn?" Spurningin um líf utan eigin
tilvistarsvæðis hefur fylgt mannkyninu frá upphafi.
um þær reikistjörnur sem fjær eru
sólu. Vitað er að lofthjúpur Júpiters
og Satúmusar, sem nær eingöngu
samanstendur af vetni og helíum,
inniheldur einnig methan og amm-
óníak en lífræn efnasambönd geta
auðveldlega myndast í slíkum
efnablöndum. Talið er að hinir
sterku litir sem eru mjög áberandi
í litrófí þessara stjama orsakist af
tilvist lífrænna efna.
Þó fjarlægð þessara stjama frá
sólinni sé mikil hafa ákveðin svæði
í lofthjúp þeirra „hagstætt hitastig,
sem hugsanlega hefði getað stuðlað
að þróun lífs. Carl Sagan telur ekki
ólíklegt að undir þessum kringu-
stæðum hafí myndast líf, sem svífí
um lofthjúp stjarnanna ekki ósvipað
marglyttum í hafínu.
ErlífáTítan?
Títan, eitt af tunglum Satúmusar
hefur lengi vel verið talinn einna
líklegastur hnatta sólkerfísins (ann-
arra en jarðarinnar) til að geyma
líf. Títan hefur eigin lofthjúp sem
samanstendur af vetni, köfnunar-
efni og ammóníaki, en loftþrýsting-
urinn er meiri en á jörðinni. Súrefni
fínnst þar ekki, en yfírborðshitinn
mínus 180°C. Fljótandi vatn getur
því ekki verið fyrir hendi. Talið er
líklegt að fljótandi methan komi þar
fyrir í miklu magni sem ský, regn
og höf bæði yfír og á yfirborði
Arecibo sem er 305 metrar í
þvermál og staðsettur við Puerto
Rico er stærsti greinir (og sendir)
geimgeisia sem byggður hefur
verið. Hann var notaður til að
senda rafsegulbylgjur út i geim-
inn, í átt að stjömuþyrpingunni
M 13. Vonast er til að skeytin
verði greind af vitrænum verum
sem þar kunna að búa.
Títans. Þessi vitneskja segir lítið
um mögulega tilvist lífs, sem vissu-
lega gæti leynst einhvers staðar í
frumstæðu formi. Flestir eru þó
sannfærðir um að háþróað líf eða
menningarsamfélög séu ekki fyrir
hendi í sólkerfínu annars staðar en
ájörðinni.
Líf utan við sólkerf ið
Næsta skrefið er því að leita lífs
á hugsanlegum reikistjörnum þeirra
fastastjama sem næstar em okkur
í vetrarbrautinni. Vandamál tengd
slíkri leit em hinar gífurlegu fjar-
lægðir sem ríkja á milli hinna ein-
stöku stjarna vetrarbrautarinnar.
Nú er það vel þekkt staðreynd
að hraða efnis og geislunar em
ákveðin efri mörk sett, sem em
jöfn hraða ljóssins, þ.e. 300000
km/sek. Enginn efnislegur hlutur
getur ferðast með meiri hraða og
því em möguleikar okkar til ferða-
laga um vetrarbrautina mjög tak-
markaðir, hvað þá utan hennar.
Tíminn sem það tæki geimför að
ferðast til nokkurra næstu fasta-
stjama er það langur að mannsævin
dugar ekki til. Fræðilega séð er
þetta tímavandamál geimferða ekki
óleysanlegt, því hugsanlegt er að
nýjar kynslóðir fæðist í geimskipum
en slíkt gæti gert langt og samfellt
flug mögulegt. Aður en lagt er út
í slíka „siglingu" er þó eðlilegt að
reyna að ná sambandi við hugsan-
legt geimlíf með einhverskonar
skeytum og eins að hlusta eftir
„utanaðkomandi" merkjum.
Drake og Sagan hafa rekið
mikinn áróður fyrir því að hafín
verði umfangsmikil og skipulögð
leit eftir merkjasendingum sem íbú-
ar annarra samfélaga í vetrarbraut-
inni kunna að hafa sent frá sér.
Þeir hafa einnig unnið að samsetn-
ingu skeyta sem send hafa verið í
mismunandi formi út í geiminn. Það
er ekki útilokað að einhvers staðar
í hyldýpi vetrarbrautarinnar leggi
íbúar háþróaðra menningarsam-
félaga við hlustimar og greini eftir
ef til vill þúsundir eða milljónir ára
„köll“ okkar.
Er það ekki forvitnismál okkar
allra að vita hvort hinn myrki geim-
ur feli þróuð samfélög hugsandi
vera, sem ylja sér við glóðir eigin
sóla? Væri ekki ennfremur
skemmtilegt að kynnast hugsana-
gangi þeirra og lífsstíl? Hefur þeim
tekist betur en okkur að Ieysa þau
vandamál sem óhjákvæmilega
verða á vegi alls sem lifir?
Skreytingar við
öll tækifæri sT |
E i ð i s t o r g i simi 61 12 22
Nnr. 6568-3822 170 Seltjarnarnes í s 1 a n d 3
HF
Laugavegi 170-172 Simar 21240-28080
GOOD$YEAR
GEFUR ^RETTA GRIPIÐ
600-16-6
650-16/6
750-16/6
900-16/10
750-18/8
10,0/75-15/8
11,5/80-15/10
llL-16/lO
10,0/80-18/10
13,0/65-18/10
16/70-20/10
9,5/9-24/6
11,2/10-24/6
12,4/11-24/6
14,9/13-24/6
18,4/15-26/10
23,1/18-26/10
11,2/10-28/6
12,4/11-28/6
13,6/12-28/6
14,9/13-28/6
16,9/14-28/8
16,9/14-28/10
18,4/15-28/12
16,9/14-30/6
16,9/14-30/10
18,4/15-30/10
12,4/11-32/6
16,9/14-34/8
13,6/12-38/6
Eig-um íyrirliggiCTncii
eftirtcilciCTr staerdir.
NÝ HAGSTÆÐ VERÐ