Morgunblaðið - 06.04.1986, Blaðsíða 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
Ávarp heilbrigðisráð-
herra í tilefni Alþjóða
heilbrigðisdagsins
Um allan hinn vestræna heim
er nú vaxandi áhugi á heilbrigðu
lífi og hollum lífsháttum. Fólk
gerir sér í ríkari mæli en áður
grein fyrir nauðsyn heilsuvemd-
ar. A liðnum árum og áratugum
hefur áhersla í heilbrigðismálum
einkum verið lögð á að lækna þá
sem þegar eru orðnir sjúkir. I
þeim efnum hafa orðið stórstígar
framfarir. Hlutfallslega litlu ijár-
magni hefur verið varið til að
koma í veg fyrir sjúkdóma og slys.
Aðstæður okkar til að ná árangri
í þeim efnum eru þó sérstakar
og óvenjulegar vegna fólksfæðar
og góðs eftirlits. Til dæmis hefur
árangur okkar í baráttunni gegn
krabbameini og reykingum vakið
athygli á alþjóðavettvangi.
Ríkisstjóm íslands hefur ný-
verið samþykkt tillögu heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra um
að gerði verði landsáætlun í heil-
brigðismálum með hliðsjón af
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar sem nefnd er „Heilbrigði
allra árið 2000“. Þessi íslenska
áætlun á að miða að því að stór-
auka vamir gegn sjúkdómum og
slysum ásamt örorku og ótíma-
bæmm dauðsföllum af þeirra
völdum.
Mörg biýn verkefni blasa nú
við okkur íslendingum á sviði
heilbrigðismála. Fyrst má nefna
vaxandi fjölda aldraðra, sem búa
verður undir gott heilsufar í ell-
inni.
Ennfremur er rétt að nefna þá
hættu sem ungu fólki sérstaklega
stafar af neyslu áfengis- og fíkni-
efna.
Kjörorð alþjóðlega heilbrigðis-
Ragnhildur Helgadóttir
dagsins í ár er „Heilbrigt líf —
hagur allra".
Skírskotað er til einstaklinga
ekki síður en heildarinnar. Efnt
er til baráttu fyrir því að menn
byggi upp eigin heilsu með hollum
lífsháttum. I dag er ástæða til
að við veijum stundarkomi til að
leita svara við spumingunni um
hvort við getum sjálf gert lífsvenj-
ur okkar hollari og gera okkur
grein fyrir í hveiju það er fólgið.
í sókninni til að betra heilsufars
er vömin besta vopnið og besta
vömin er heilbrigður lífsstfll. í
þeirri sókn sigrar hver sá, sem
tekst að auka hollustu í lífsvenjum
sínum. Með því sýnum við þakk-
læti fyrir þá heilsu sem við höfum
og vottum virðingu því mikla
starfí sem unnið er til að lækna
sjúka og bæta líðan þeirra.
Heilbrigt líf — hagur allra eru kjörorð dagsins og það er ekki að efa að þessir hressu krakkar taka
undir þau orð.
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 1986:
„Heilbrigt lif _ hagur allra“
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er
á morgun, mánudaginn 7. apríl,
og í tilefni dagsins hefur formað-
ur Alþjóðaólympíunefndarinnar,
Juan Anotnio Samaranch, skrif-
að nokkur orð til fólks um allan
heim og birtist ávarp hans hér.
10. maí 1982 hlotnaðist mér sú
ángæja að ávarpa 38. þing Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar í
Genf. Þá sagði ég, að grundvallar-
markmið stofnana okkar tveggja
væru svo lík, að það væri í rauninni
furða, að samstarf skyldi ekki hafa
tekist með þeim fyrr. Þið hafið sett
ykkur að markmiði „Heilbrigði fyrir
alla árið 2000“, en við stefnum að
„íþróttum fyrir alla“.
Eitt af grundvallaratriðum stofn-
skrár Alþjóðaólympíunefndarinnar
er, að hún verði:
— að vínna að þvi að efla þá lík-
amlegu og andlegu eiginleika,
sem eru grundvöllur fþrótta
og
— að efla skilning ungs fólks
hvert á öðru og vináttu þess með
því að efla íþróttarandann, svo
að við megum byggja betri og
friðsamlegri heim.
Það er í þessum tilgangi, sem
Alþjóðaólympíunefndin hefur tekið
þátt í öllu því starfi, sem orðið getur
þessum hugsjónum til framdráttar.
Stofnandi nefndarinnar, Pierre
de Coubertin, beindi athygli okkar
að mikilvægi margbreytilegra og
heilsusamlegra íþróttaiðkana al-
mennings, enda taldi hann þær einn
homsteina heilsu, jafnvægis og
þjóðfélagslegra framfara.
Sjóðir þeir, sem óiympíunefndir
einstakra ríkja hafa aðgang að,
hafa auðveldað Alþjóðaólympíu-
nefndinni að efla íþróttir og að fá
fólk til að skilja gildi góðrar heilsu.
Alþjóðaólympíunefndin hefur aukið
átak sitt á þessu sviði, og má í
því sambandi nefna stofnun nefndar
til eflingar einstaklingsíþrótta á síð-
asta ári og samstarf hennar við
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina
um skipulag og framkvæmd
„Heilsukapphlaupsins".
„Heilsukapphlaupið" er barátta,
sem miðar fyrst og fremst að því.að
þremur markmiðum sé náð: líkams-
þjálfun, réttri næringu og því, að
Juan Antonio Samaranch.
einstaklingurinn geri sér grein fyrir
ábyrgðinni, sem hann ber á heilsu
sinni.
Til að þessi barátta beri þann
ávöxt, sem vonast er eftir um heim
allan og til að takast megi að ná
markmiðinu „Heilbrigði fyrir alla
árið 2000“, þarf að koma til aðstoð
ríkisstjóma allra ríkja og heilbrigð-
ismálastofnana, sem á þeirra veg-
um starfa, auk þeirrar aðstoðar,
sem áhugamannsamtök um íþróttir
og bætt heilsufar veita.
Loks langar mig til að leggja á
ný áherslu að það, sem ég sagði í
ávarpi mínu til fulltrúa aðildarþjóða
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar á 38. þingi hennar, er ég bað
um, að þær tækju höndum saman
við æsku heimsins, svo að við
gætum hert sóknina eftir betra lífs,
hreysti og góðrar heilsu; það yrði
eina kapphlaupið, sem sigurvegarar
einir tækju þátt í.
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er 7. apríl
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er
haldinn 7. apríl ár hvert, en þann
dag árið 1948 höfðu svo margar
þjóðir staðfest stofnskrá Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar,
WHO, að hún tók gildi.
Allt síðan 1950 hefur alþjóða-
heilbrigðisdeginum verið valið
einkunnarorð. Árið 1955 var það
„Hreint vatn táknar betri heilsu,"
1962 „Vemdið sjón, forðist
blindu" og 1980 „Reykingar eða
góð heilsa — valið er þitt“.
Á þessum degi taka ríkisstjóm-
ir, nefndir á vegum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, félög Sam-
einuðu þjóðanna og ýmsar óopin-
berar stofnanir þátt í aðgerðum
til að vekja athygli á einkunnar-
orðunum. Fjölmiðlar hafa sýnt
deginum sívaxandi áhuga, eins
og sjá hefur mátt i blöðum og
heyrst hefur f útvarpi og sést í
sjónvarpi; og boðskapurinn fellur
ekki í gleymsu að deginum lokn-
um, því að einkunnarorðunum er
haldið á lofti í heilt ár.
Á alþjóðaheilbrigðisdeginum i
ár, 7. apríl, er lögð áhersia á
skynsamlega lifnaðarhætti og
bent á margt af því, sem einstakl-
ingar og samfélög geta gert til
þess að vemda og bæta heilsuna;
og einkunnarorðið, sem deginum
er valið, er: „Heilbrigt líf — hagur
allra."
Útvegum væntanlegum kaupendum
HUS OGIBUÐIR Á SPÁNI
við Costa Blanca ströndina
BENIDORM TORREVIEJA CALPE
Verð 2ja herbergja íbúða frá 565.500,-
Verð bungalows, 2ja herb. frá kr. 690.000,-
Skipulagaðar skoðunarferðir með Ferðamiðstöðinni hf. til Alicante,
fjarlægð þaðan til Torrevieja 37 km, en til Benidorm 45 km.
Nánari upplýsingarog myndalistará skrifstofunni.
Nýjar búöir og hús rétt viö baöströnd.
f bygglngu raöhúsahvertl ásamt hellsumiöstöö
SPÁNARHÚS
AÐALSTRÆTI 9, SÍMAR 18370 OG 18354