Morgunblaðið - 06.04.1986, Síða 21

Morgunblaðið - 06.04.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986 B 21 Þjálfun, íþróttir, næring og ábyrgð einstaklingsins Einkunnarorð alþjóðaheilbrigð- isdagsins að þessu sinni er: „Heil- brigt líf — hagur allra". Það vísar okkur veginn til heilbrigðari lifn- aðarhátta og vekur athygli á þeirri skoðun, að einstaklingar og sam- félög eigi að leggja aukna áherslu á að fyrirbyggja sjúkdóma og að bæta heilsuna. í Alma-AItayfirlýs- ingunni frá 1978 segir, að „bæði einstaklingar og hópar eiga fullan rétt á að taka þátt í gerð áætlana um heilsugæslu og að framkvæma þær“. Nú, þegar hreyfíngunni Heilbrigði fyrir alla árið 2000 vex fískur um hrygg, er full ástæða til þess að gera þessi orð að veru- leika. Heimurinn umhverfís okkur tekur hröðum breytingum, en þó hafa víða orðið litlar breytingar á lækningaaðferðum og heilbrigðis- þjónustu. Víða er megináherslan lögð á að lækna sjúkdóma, en lítið gert til þess að einstaklingar geti tryggt, að þeir haldi heilsu. Sú trú hefur orðið nokkuð almenn vegna framfara í læknavísindum, að heilsa sé það, sem læknar gefa fólki, en ekki gjöf einstaklinganna og samfélagsins til sjálfs sín. Þó er Ijóst, að nú á dögum leggja menn sívaxandi áherslu á heilsu- bætandi aðgerðir í stað þess að einblína á það, sem gerist innan veggja sjúkrahúsanna. Hér er um að ræða nýtt markmið, sem allir geta sett sér, af því að það beinir fólki inn á brautina til heilsurækt- ar. Það er þrennt, sem athyglin beinist einkum að, þegar rætt er um heilbrigðari lifnaðarhætti: þjálfun og íþróttir, næring og ábyrgð einstaklingsins. Hugsa skyldi um þjálfun í víð- tækasta skilningi; hún nær því bæði til gönguferða og annars létts Iíkamlegs álags. Hún hefur bein áhrif á heilsuna og er því gott ráð til þess að bæta hana. Það er nauðsynlegt fyrir fólk í öllum aldurshópum að þjálfa sig á einhvem hátt. í æsku og á unglingsárunum býr þjálfún menn undir það, sem bíður þeirra á fúllorðinsárum; á fullorðinsárum ver hún lfkamann gegn streitu og eykur getu hans; á efri árum léttir hún hreyfíngar og viðheldur and- legri vöku. Þá er ótalið það, sem ekki skiptir minnstu, en það er gleðin, sem því fylgir að hreyfa sig og reyna á sig, en hún eykur vellíðanina, sem er grundvöllur heilsunnar. Allir gera sér grein fyrir mikil- vægi fæðunnar. Nú á dögum verða hins vegar örar breytingar á mataræði fólks, eins og á mörg- um öðmm sviðum. Bein hætta fylgir þó sumum þessara nýju matarvenja. Ýmis konar skyndi- matur, sem stundum er nefndur „ruslfæði", hefur að geyma mikið af fítu og sykri, og er því hættu- legt bæði hjarta og tönnum. Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir ekki með eins konar matar- æði fyrir alla, enda er það svo, að í sérhveiju menningarsamfé- lagi er á boðstólum fæða, sem Fer inn á lang flest heimili landsins! Ávarp dr. H. Mahler, framkvæmdastj óra Alþjóðaheilbrigðis- ' málastof nunar innar stuðlar að vexti og heilbrigði. Það er hins vegar ástæða til þess að gera sér grein fyrir áhrifum mat- aræðis og leggja áherslu á þær neysluvenjur, sem auka getu í íþróttum og almenna vellíðan. Ábyrgð einstaklingsins er víð- tæk. Hvetja þarf fólk til þess að gera ráðstafanir til þess að tryggja góða heilsu og til að forð- ast skaðlega hegðan. Hér er bein- línis átt við notkun tóbaks í öllum myndum, ofnotkun áfengis og misnotkun lyfja. Reykingar valda meira tjóni á heilsunni og fleiri ótímabærum dauðsföllum en nokkur annar skaðvaldur. Það er því ljóst, hvað fyrirbyggja má með því að reykja ekki. Þá ber að hafa í huga, að læknar geta ekki komið í veg fyrir reykingar. Þar kemur til afstaða einstaklingsins. Því þurfa ein- staklingamir að hafa fyrir augun- um heilbrigt fólk, svo að þeir taki ekki upp venju, sem þeir losna ef til vill aldrei við og valdið getur heilsutjóni og dauða. Þótt ábyrgð- in sé að vísu einstaklingsins, þá ber að hafa í huga, að það er margt í umhverfínu, sem sam- félagið hefur á valdi sínu og hefur áhrif á ákvörðun hvers og eins um að reykja eða reykja ekki. Um áfengi og lyf er það að segja, að hjálpa þarf einstakling- unum til þess að velja og hafna skynsamlega, svo að þeir njóti lík- amsgetu sinnar og lífsins. Heilsukapphlaupið Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- in og Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hafa gert með sér sam- komulag um að hrinda í fram- kvæmd áætlun, sem hlotið hefur nafnið „Heilsukapphlaupið". Er ætlunin að fá til samstarfs alla þá, sem geta orðið öðrum fordæmi og til hvatningar, jafnvel þótt þeir séu ekki atvinnumenn á sviði heilsuræktar og heilsugæslu. Sig- urvegarar á Olympíuleikum og aðrir frægir íþróttamenn eru fyrir- mynd milljóna unglinga. Þessir afreksmenn geta hjálpað til við að skýra fyrir fólki, að heilsusam- legt lífemi felur ekki í sér afneitun þess, sem skemmtilegt er; þvert á móti gefur það einstaklingnum tækifæri til að njóta lífsins eins og hægt er, án þess að skemma heilsuna með neyslu áfengis eða lyfja, svo að dæmi séu nefnd. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- in og Alþjóðaólympíunefndin ætla því að efna til sýninga, þar sem lögð er áhersla á heilsugæslu, hlaup og annað, sem örvað getur bæði þjóðlega og alþjóðlega heilsugæslu og vemdað rétt ein- staklingsins í þjóðfélaginu. Hér em íþróttir gott dæmi. Þjóð, sem getur boðið þegnunum góða nær- ingu og heilsusamlegt líf, eignast senn einstaklinga og lið, sem geta keppt hvar sem er; á þorpstorginu eða á Ólympíuleikunum. Þetta fólk eignast aukna lífsgleði, af því að það örvar bæði andlega og líkamlega starfsemi sína. Þannig verða allir boðberar heilsuræktar, og gera ætti öllum ljóst, að: í heilsukapphlaupinu sigra allir. Nei,nei,nei! Ekki borða auglýsinguna! Það er alveg óþarfi ad borða auglýsinguna. Aftan á pakkningunum eru uppskriftir af dýrindis fiskréttum sem auðvelt er fyrir Þú getur með lítilli fyrirhöfn eldað þessa ljúffengu fiskrétti úr frystu ýsuflökunum frá hvern sem er að matbúa. R.A. Péturssyni hf. Þau fást í flestum mat- vöruverslunum í handhægum 400 gr. pakkningum og eru roðlaus og beinlaus. Framleiöandi: R.A. Pétursson hf. Ytri-Njarðvík (sland Sími 92-3225

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.