Morgunblaðið - 06.04.1986, Side 39
1-48.
__ 6. APRÍL1986
(!K!A Jb ivlOiiO*'
Bertolucci gerir
mynd í Kína
Bernardo Bertolucci hefst
handa við nýja mynd íaprílbyrjun.
Myndin heitir „Síðasti keisarinn"
(The Last Emperior) og verður
tekin í Kína. Sfðasti keisarinn,
sem er fyrsta mynd Bertolucci f
fimm ár, er alþjóðlegt púkk —
leikstjórinn er ítalskur, framlelð-
andinn breskur, leikararnir kfn-
verskir, bandarfskir og skoskir.
Aðalhlutverkin eru í höndum
Johns Leone, sem mun leika keis-
arann, og Seans Connery, sem
leikur skoskan kennara á mála hjá
hinum kínverska keisara. John
Leone hefur leikið í aðeins einni
kvikmynd til þessa, það var í „Ári
drekans" sem Michael Cimino
gerði á síðasta ári.
Bertolucci gerði sína fyrstu
mynd aðeins tuttugu og tveggja
ára gamall (það var „La Commare
Secca" árið 1962) og tveimur árum
síðar gerði hann „Áöur en byltingin
skellur á“ (Prima della Rivoluz-
ione). Sú mynd gaf mikil fyrirheit
og rættust vonir manna um hæfi-
leika Bertolucci þegar hann lauk
við „II conformista" árið 1970.
Margir telja hana bestu mynd
þessa ítalska listamanns. Tveimur
árum síðar gerði Bertolucci „Síð-
asta tangóinn í París" með Marlon
Brando og Mariu Schneider og
verður sú mynd að teljast hans
frægasta, þótt ekki séu allir á eitt
sáttir um listrænt gildi hennar.
Á þessum fjórtán árum, sem
síðan eru liðin, hefur Bertolucci
gert aðeins þrjár myndir: hina fjög-
urra klukkustunda löngu „Noven-
cento“ (1900) með Robert De Niro
og mörgum öðrum frægum leikur-
um; „La Luna“ með Jill Clayburgh
(fjallaði um sifjaspell) og myndina
„Harmleikur um fáránlegan mann“
(Tragedia di un Uomo Ridicolo)
sem Bertolucci gerði árið 1981.
Bertolucci ásamt leikurum mynd-
arinnar „Harmleikur um fáránleg-
an rnann" sem hann gerði fyrir
fimm árum. Nú er hann að gera
myndfKfna.
Hurt vakti fyrst athygli fyrir leik
sinn f Blóðhlta (Body Heat) sem
Lawrence Kasdan gerði árið
1981.
Willlam Hurt leikur hommann
Molina f „Kossl köngurlóarkon-
unnar" og fákk Óskarinn fyrir.
É
Manuels Puig sem yfirgaf föður-
land sitt Argentínu fyrir rúmum
áratug og hefur lifað víða í veröld-
inni. „El Beso de la Mujer Arana“,
sem fæst í enskri þýðingu hér á
landi, er sérkennileg bók, enda-
lausar samræður tveggja sam-
fanga, uppreisnarmannsins Val-
entin sem Raul Juiia leikur, og
hommans Molina sem Hurt leikur.
Milli þeirra skapast merkileg vin-
átta. Homminn drepurtímann með
því að spinna upp sögur, sögur úr
bíómyndum sem hann hefur séð
og svo mikilvægar verða þessir
hugarórar að fangarnir geta ekki
greint á milli þeirra og veruleikans.
Hurt segir: „Kringumstæðurnar
heilluðu mig. Tveir karlmenn læstir
í sama klefa. Þeir skilja hvorn
annan og hjálpa hvor öðrum að-
eins með því að tala, hlusta. Þeir
eru gerólíkir og þekkjast ekki í
upphafi, en þeim þykir vænt hvor
um annan þegar sögunni lýkur. Ég
kærði mig ekki um að sýna homm-
ann á öfgafuilan hátt, en ég vildi
ekki gera Molina að klisjukenndum
homma enda er klisjan ailfjarri
veruleikanum".
William Hurt segist vera leikari,
ekki kleyfhugi. Hann segist ekki
geta með nokkru móti lifað sig inn
í ákveðna persónu, hann einfald-
lega leikur hana, túlkar.
BreiðhoR
Breiðho
Jass — Jass — Jass
Jassballettskóli Báru
opnar nýjan sal í efra-
Breiðholti 14. aprílnk.
Tímar 2svar og 3svar f
viku. Fyrirbörn 7 ára
og eldri, stráka og
stelpur.
Fyrirunglinga 12—13
og 14—15ára, stráka
og stelpur.
Ungt fólk 16 ára og
eldra.
^ Innritun hafin.
Jassballettskóli
Báru
k
0cferr>^
Jazz,
■ ■'
Suðurveri — Bolholti— Breiðholti
S. 8378«.
j—UJUUU