Morgunblaðið - 30.05.1986, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
Sjónvarpsum-
ræður í kvöld
Deilur í Alþýðubandalaginu um talsmann þess
ENDASPRETTUR kosningabaráttunnar fyrir borgarstjórnarkosn-
ingamar í Reykjavík á morgun verður í sjónvarpinu í kvöld, þegar
hringborðsumræður efstu manna listanna verða sýndar í beinni út-
sendingu. Páll Magnússon stjómar umræðunum.
Fimm listar voru í gær búnir að fulltrúi flokksins í þessum umræð-
tilnefna fulltrúa sína, allir nema
Alþýðubandalagið, og er í öllum
tilvikum um að ræða þá sem skipa
1. sæti viðkomandi lista. Álfheiður
Ingadóttir, formaður kosninga-
sijómar Alþýðubandalagsins, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær,
að ákvörðun um fulltrúa flokksins
í sjónvarpsumræðunum yrði ekki
tekin fyrr en árdegis í dag.
Samkvæmt öðrum heimildum
Morgunblaðsins stóð hins vegar
yfir fundur í kosningastjóminni í
allt gærkvöld. Því var að vísu harð-
lega neitað á skrifstofu flokksins
fram eftir kveldi að svo væri, en
um miðnætti var sagt að fundurinn
stæði enn yfir. Á þessum fundi var
rætt um þann ágreining, sem uppi
hefur verið innan flokksins undan-
fama daga um það hver vera ætti
um. Sigurjón Pétursson, efsti mað-
ur á lista Alþýðubandalagsins, hef-
ur sótt það fast að taka þátt í
þessum umræðum. Aðrir hafa hins
vegar haldið fram Kristínu ólafs-
dóttur eða Össuri Skarphéðinssjmi.
Morgunblaðinu tókst ekki að afla
upplýsinga í gærkvöldi um niður-
stöður fundar kosningastjómarinn-
ar.
Davíð Oddsson borgarstjóri verð-
ur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrir
Kvennalistann, Bjami P. Magnús-
son fyrir Alþýðuflokkinn, Sigrún
Magnúsdóttir fyrir Framsóknar-
flokkinn og Áshildur Jónsdóttir
fyrir Flokk mannsins. Hringborðs-
umræðumar hefjast klukkan 22.15
og standa í eina til eina og hálfa
klukkustund.
Eldur í Hegningarhús-
inu — Fangi strauk
EINUM fanga tókst að stijúka
eftir að eldur kom upp í Hegning-
arhúsinu við Skólavörðustíg um
klukkan 17.30 í gær.
Eldurinn kom upp á baðherbergi
og er talið að hann hafí kviknað út
frá ljósaperu sem ofhitnaði.
Mikill reykur myndaðist á gangi
Hegningarhússins og var farið með
alla fangana út í garð. Þar tókst
einum þeirra að sleppa yfír vegginn.
Fanginn er síbrotamaður og hefur
oft setið inni. Samkvæmt upplýsing-
um sem Morgunblaðið fékk hjá
fangaverði í Hegningarhúsinu er
þetta ekki í fyrsta sinn sem þessum
manni tekst að stijúka. Síðast þegar
Morgunblaðið ftétti í gærkveldi
hafði ekki tekist að fínna fangann.
„Þetta eru hrika-
1 eg ósannindi“
— segir Davið Oddsson um skrif
Tímans um málefni Granda hf.
„ÞETTA eru hrikaleg ósannindi,“
en bersýnilega sögð vísvitandi"
sagði Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, þegar undir hann voru
bomar þær staðhæfðingar i for-
ystugrein Timans i gær, að skuld-
ir ísbjaraarins væru 36 milljónum
krónum hærri, en þær eignir sem
fyrirtækið lagði til Granda hf.
„Staðreyndin er sú,“ sagði borgar-
stjóri, „að við samruna Bæjarút-
gerðarinnar og ísbjamarins lagði
Isbjöminn til eignir, sem samkvæmt
lokamati em að upphæð 628,8 millj-
ónir króna, og með fylgdu skuldir,
sem nema 519,1 milljón króna.
Hreint eigið fé, sem eigendur ís-
bjamarins lögðu til, nam því um 109
milljónum króna."
í forystugrein Tímans er jafti-
framt fullyrt, að hlutabréf þau, sem
ísbjöminn lagði til við sameining-
una, hafí verið að verðmæti 56 millj-
ónir króna í júní í fyrra, en við
sameininguna hafí verið búið að
hækka matið á þessum bréfum um
22 milljónir eða í 78 milljónir króna.
„Þetta er einnig ósatt,“ sagði borg-
arstjóri. „Hið rétta er, að matstalan,
sem nefnd er, var fundin áður en
endanlegt mat var lagt á eignir
Bæjarútgerðarinnar og Isbjamarins
í Sfldar- og fiskimjölsverksmiðjunni.
Þar áttu báðir aðilar jafnan hlut og
hækkuðu því eignahlutar beggja
fyrirtækjanna jafnt. Við lokauppgjör
reyndist eigið fé Granda hf. 492
milljónir kr., sem sýnir að ijár-
hagurinn er ekki veikur. Þvert á
móti er hann traustur, þótt lausafjár-
staðan sé auðvitað erfíð eins og hjá
öðrum fyrirtækjum í þessari at-
vinnugrein."
„í forystugreininni segir jafn-
framt, að Reykjavíkurborg standi
enn í stórfelldum ábyrgðum fyrir
skuldum, sem Bæjarútgerðin hafi
stofnað til og Grandi yfírtekið,"
sagði Davíð Oddsson, „Þetta hefur
ekki við nein rök að styðjast. Sann-
leikurinn er sá, að samið var við
alla stærstu lánardrottna Bæjarút-
gerðarinnar, s.s. Fiskveiðisjóð,
Byggðasjóð og Ríkisábyrgðasjóð,
um að losa borgarsjóð undan slíkum
ábyrgðum. Sum þessara lána hafði
borgarsjóður tekið beint og afhent
Bæjarútgerðinni, þannig að borgar-
sjóður var ekki aðeins ábyrgðaraðili,
heldur beinn skuldari."
Morgunblaðio/EI'I
Hvitu kollarair settir upp við skóIasUt i Menntaskólanum i Reykjavík i gær.
Menntaskólinn í Reykjavík:
Brautskráði 172 stúdenta
við hátíðlega athöfn í gær
MENNTASKÓLINN í Reykja-
vik útskrifaði 172 stúdenta í
gær við hátiðlega athöfn í Há-
skólabiói. 52 luku prófi úr
máladeUdum, 53 úr eðlisfræði-
deUdum og 67 úr náttúrufræði-
deUdum.
Dux scholae varð Kristján Sig-
urður Guðmundsson með 9,55 og
semi-dux varð Guðrún Edda
Gunnarsdóttir með 9,46. Þá komu
Siguijón Þ. Ámason, Gerður
Gröndal, Einar Heimisson, Krist-
ján Halldórsson og Gylfí Magnús-
son, öll með ágætiseinkunn.
Fjöldamörg verðlaun voru veitt í
Háskólabíói í gær við athöftiina,
bæði peninga- og bókaverðlaun.
Kristján sagði í samtali við
blaðamann eftir útskriftina að
hann væri mjög ánægður með
árangurinn og hyggði á raun-
greinanám í Háskóla íslands á
hausti komanda. Kristján var
aðeins þijá vetur í MR — „ég las
annan bekkinn um sumar og tók
prófín þá um haustið áður en ég
byijaði á þriðja árinu í skólanum.
Þetta var vissulega erfítt nám —
ég kom langbest út úr raungrein-
unum, var með 10 í flestum þeirra
en ég fór ekki undir 9.0 í neinu
fagi“. Kristján sagðist ekki vera
orðin leiður á námi. Hann vinnur
i Iðnaðarbankanum i sumar jafnt
þvi sem hann þjálfar með ólympiu-
landsliðinu í eðlisfræði. „Við erum
Kristján Sigurður Guðmundsson dux scholae og Guðrún Edda
Gunnarsdóttir semi-dux.
flórir i liðinu og verðum að þjálfa
vel fyrir mótið sem hefst 13. júlí
nk. í London", sagði Kristján.
Guðrún Edda er á förum til
Bandaríkjanna í haust þar sem
hún hefur fengið styrk til háskóla-
náms við Brandeis-háskólann,
sem er rétt fyrir utan Boston. „Ég
býst við að fara inn á raungreina-
brautina, en hef samt ekki alveg
gert upp við mig hvað ég vil.“
Guðrún Edda sagðist hafa þurft
að leggja sig mikið fram við námið
í MR — en hún var líka í píanón-
ámi við Tónlistarskólann í Reykja-
vík í vetur og hefur lokið 7. stigi
þar.
Viðstaddir voru margir eldri
stúdentar frá skólanum að vanda.
Fram kom í máli rektors MR,
Guðna Guðmundssonar, að elzti
núlifandi stúdentinn væri Hinrik
Thorarensen, sem útskrifaðist
árið 1913, og næstelsti stúdentinn
væri Þórunn Kvaran, stúdent
1915. Þriéji elsti stúdentinn, Anna
Bjamadóttir, nú 70 ára stúdent,
var viðstödd athöfnina í gær þar
sem bamabam hennar útskrifað-
ist. Nokkrir af fulltrúum eldri
nemenda skólans, sem héldu upp
á stúdentsafmæli sín í gær, færðu
skólanum gjafir og fluttu ávörp
við skólaslitin.
440 beiðnir um gjald-
þrotaskipti á árinu
63% fleiri en á sama tíma í fyrra
UM 440 beiðnir um gjaldþrota-
skipti hafa borist skiptaráðand-
anum í Reykjavik það sem af er
þessu ári, að sögn Ragnars H.
Hall skiptaráðanda. Á sama tíma
i fyrra höfðu embættinu borist
270 beiðnir um gjaldþrotaskipti
og er aukningin því 63% það sem
af er ári. Á öllu árinu 1985 bárust
embættinu 762 beiðnir um gjald-
þrotaskipti.
Ragnar sagði í gær að mikill
meirihluti gjaldþrotabeiðnanna
væri vegna einstaklinga. f fyrra
Helgarveðríð:
Skiptast á skin og skúrir
SUÐAUSTANÁTT verður um
allt land i dag með rigningu
viðast hvar á Suður- og Vestur-
landi, en þurru veðri á Norður-
og Áusturlandi. Hiti verður
7-11 stig.
Á laugardaginn er búist við
norðvestanátt um mest allt landið.
Þá verða skúrir um norðanvert
landið en þurrt og bjart á Suður-
og Suðausturlandi. Suðvestan-
lands verður skýjað og ef til vill
skúrir. Hiti verður á bilinu 5-9
stig.
Gert er ráð fyrir að á sunnudag
verði hæg suðlæg átt á landinu,
skýjað og lítilsháttar skúrir á
Suður- og Vesturlandi en þurrt
og sennilega bjart veður á Norður-
og Austurlandi. Hiti verður 8-13
stig.
hefði hlutfall gjaldþrotabeiðna
vegna einstaklinga aukist miðað við
hlutafélög, en Ragnar tók fram að
margir af þessum einstaklingum
hefðu verið með fyrirtæki. Ekki
enda öll þessi mál með gjaldþroti,
sagði Ragnar að reynslan sýndi að
40-60% fjöldans tækist að bjarga
sér frá gjaldþroti áður en úrskurður
um gjaldþrot væri kveðinn upp.
Ragnar sagði að þessi fyöldi
beiðna um gjaldþrotaskipti sýndi
að það færi vaxandi að menn létu
reyna á það til enda hvort þeir fái
eitthvað upp í kröfur sínar eða ekki.
Áberandi væri að opinberir aðilar,
til dæmis gjaldheimtan og tollstjór-
inn, væru ekki með jafn margar
beiðnir um gjaldþrotaskipti og áður
var. Mikið hefði aukist að lögmenn
og bankar legðu beiðnimar fram.