Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 3
<
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
3
DAVÍÐ ODDSSON, BORGARSTJÓRI
Við kjósum menn en ekki flokka.
Við kjósum menn að verðleikum.
Við ætlum að kjósa
DAVÍÐ ODDSSON
borgarstjóra í Reykjavík.
Atli Heimir Sveinsson,
tónskáld.
Egill Eðvarðsson,
kvikmyndaleikstjóri.
Friðrik Þór Friðriksson,
kvikmyndaleikstjóri.
Gunnar Þórðarson,
tónlistarmaÖur.
Kjartan Ragnarsson,
leikritahöfundur.
Sigurður Pálsson,
rithöfundur.
Steinunn Sigurðardóttir,
rithöfundur.
Þórarinn Eldjárn,
rithöfundur.
Þorsteinn Gunnarsson,
leikari ogarkitekt.
Skepnur
drápust
af völdum
rafmagns
Breiðavíkurhreppi.
FJÓRAR skepnur þrír hestar og
kind, drápust af völdum raf-
niagns frá raflínu þegar raf-
magnsstaur brotnaði við jörðu á
túninu við eyðibýlið Dagverðará
aðfaranótt fimmtudags í norðan-
áttinni. Rafmagnslínan losnaði
ekki af staumum og sligaði
staurinn þá eðlilega línuna niður
að jörðu, en snerti hana þó ekki
alveg.
í gær var fyrst farið að athuga
línuna, sem liggur frá Hellnum að
Malarrifi, þegar rafmagn fór af á
Malarrifí. Þegar rafveitustjóri Ól-
afsvíkur, Snorri Böðvarsson, lög-
reglumenn frá Ólafsvík ásamt
bændum frá Hellnum og Amar-
stapa, eigendum skepnanna, komu
til að athuga línuna, lágu þrír hestar
dauðir við línuna og ein veturgömul
kind, dauð líka. Kindin hafði orsak-
að það að rafmagnið fór af því hún
var á línunni með aðra framlöppina
þegar að var komið. Kindin hafði
sviðnað og djúp hola hafði myndast
í jörðu þar sem kindin lá.
Viðgerð hófst strax í gær og
búist var við að henni lyki þá um
kvöldið. Tekin var skýrsla á staðn-
um og sagðist rafveitustóri í samtali
við fréttaritara vera hlynntur því
að tjón bændanna yrði bætt þeim,
en þó er ekki vitað að svo stöddu
hvemig þeim málum verður háttað.
Finnbogi
Nefnd fjallar
um samfelld-
an skóladag í
Reykjavík
SVERRIR Hermannsson,
menntamálaráðherra, hefur
skipað nefnd til þess að gera
framkvæmdaáætiun um hvernig
koma skuli á samfelldum skóla-
degi í Reykjavík. Skal áætlunin
taka til allra grunnskóla i
Reykjavík, sem reknir eru af ríki
og borg og ná yfir fjögur ár.
Skal starf nefndarinnar gmnd-
vallast á tillögum, sem gerðar eru
í skýrslu samstarfshóps undir stjóm
Salóme Þorkelsdóttur, alþingis-
manns, á vegum menntamálaráðu-
neytisins. Formaður nefndarinnar,
sem áætla á um framkvæmd sam-
fellds skóladags í Reykjavík er
Bessí Jóhannsdóttir, cand. mag. og
aðrir nefndarmenn em: Áslaug
Friðriksdóttir, skólastjóri, Hafdís
Sigurgeirsdóttir, kennari, Hrólfur
Kjartansson, deildarstjóri, Ragnar
Georgsson, forstöðumaður, og
Salóme Þorkelsdóttir, alþingismað-
ur.
Nefndin skal m.a. gera könnun
á ástandi í hveijum skóla fyrir sig
og athuga eftirtalin atriði: þörf á
viðbótarrými, þörf á auknu kennslu-
magni og skipan skólanestis, segir
í frétt frá menntamálaráðuneytinu.
Póst- og simamálastofnun:
Jón A. Skúlason
lætur af störfum
1. september
JÓNI A. Skúlasyni póst- og síma-
málastjóra, hefur verið veitt
lausn frá embætti vegna aldurs
frá og með 1. september næst-
komandi.
Jón hefur gegnt embætti póst-
og símamálastjóra í 15 ár. Hann
hefur starfað samfleytt í 40 ár hjá
Póst- og símamálastofnuninni.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
samgönguráðuneytinu hefur emb-
ætti póst- og símamálastjóra nú
verið auglýst laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til l.júlf nk.