Morgunblaðið - 30.05.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
27
við menntamálaráðuneytið og §ár-
málaráðuneytið um markvissa upp-
byggingu grunnskólanna á næstu
átta árum. Þar er gert ráð fyrir
framkvæmdum sem nema 168
milljónum króna. Þessi samningur
er tímamótasamningur í samskipt-
um ríkis og sveitarfélaga því þetta
er í fyrsta skipti sem slíkur samn-
ingur er gerður og ég vil nota
tækifærið til að þakka ráðherrunum
Sverri Hermannssyni og Þorsteini
Pálssyni fyrir mikinn skilning á
þessu máli. Andstæðingar okkar
héldu því alltaf fram að vonlaust
væri að ná slíkum samningi og að
við værum að skjóta okkur undan
ábyrgð í þessu máli. Svo hefur ekki
verið, við höfum staðið vel að þessu
máli frá upphafi enda vilja allir
eigna sér heiðurinn af þessu í dag
og mest þeir sem hæst gagnrýndu
okkur fyrr í vetur.
Atvinnumál komin í
gott horf
Atvinnumálin eru komin í nokkuð
gott horf eftir erfiðleika á árinu
1984. Þá lá fyrir að einn togari
yrði seldur burtu og tvö frystihús
hættu starfsemi. Útgerðarmenn og
bæjarstjóm sameinuðust um að
halda skipinu og það tókst og síðan
hefur þróunin verið jákvæð og allt
á réttri leið á nýjan leik, ný fyrir-
tæki hafa hafið starfsemi bæði í
iðnaði og fiskvinnslu sem veita
mörgu fólki atvinnu og í vetur
bættust síðan við tveir glæsilegir
togarar í flotann. Við höfum verið
með kynningu í sjónvarpi og viðar
á því sem Akranes hefur upp á að
bjóða fyrir atvinnurekstur. Margir
hafa sýnt áhuga og haft samband
við okkur enda hefur þessi kynning
vakið mikla athygli. Við höfiim til-
lögur um frekari eflingu atvinnu-
lífsins enda leggjum við höfuð-
áherslu á að þessi jákvæða þróun
haldi áfram. Við viljum efla Fram-
hugar að ,því. Við viljum leita
gamstarfsfélaga, fyrirtælga og ein-
staklinga um þessa framkvæmd
því ljóst er að bæjarsjóður getur
ekki lokið við þessa framkvæmd á
skömmum tíma eins og er, fjár-
magn liggur ekki á lausu í svo stór-
um stfl sem þarf og því er nauðsyn-
legt að virkja fleiri aðila til að hrinda
þessu verkefni í framkvæmd og
ljúka því á skömmum tíma. Þetta
er mjög brýn framkvæmd enda
biðlisti eftir vistrými mjög iangur.
Áætlaður kostnaður við þennan
áfanga nemur um 80 miíljónum
króna og teljum við að framkvæmd-
um þurfi að ljúka á 2-3 árum.
Sjálfstæðismenn áfram
í forystu
Ég tel að kosningamar snúist
fyrst og fremst um það hvort sjálf-
stæðismenn eigi áfram að hafa
forystu i bæjarmálunum á Akranesi
eða hvort við á að taka samsuða
þriggja eða fjögurra vinstri flokka.
Ég vil minna á að vinstra samstarf
hefur verið reynt tvisvar á Akranesi
en endaði í bseði skiptin með ósköp-
um og urðu sjálfstæðismenn að taka
við á miðju kjörtímabili.
Fleiri nýir kjósendur ganga nú
að kjörborðinu en nokkru sinni fyrr.
Við þá vil ég segja eftirfarandi:
Akranes er góður staður fyrir
ungt fólk. Við höfum margt að
bjóða því, t.d. stöðugt og fjölbreyti-
legt atvinnulíf, góðar menntastofn-
anir, við bjóðum því upp á íþrótta-
og æskulýðsaðstöðu í fremstu röð,
heilbrigðisþjónustu eins og hún
gerist best, góðar samgöngur við
stærsta þéttbýliskjama landsins og
síðast en ekki síst fallegan og góðan
bæ og gott mannlíf.
Höfundur er efsti maður á lista
sjálfstæðismanna A Akranesi og
forseti bæjarstjómar.
Séð yfír Akranes.
kvæmdasjóð bæjarins m.a. með
því að losa hlutafé sem bærinn á í
mörgum rótgrónum fyrirtækjum og
veita því íjármagni sem þannig
skapast til að styðja við bakið á
nýjum fyrirtækjum. Við viljum
einnig leggja áherslu á aukin tengsl
menntastofnana bæjarins við at-
vinnuuppbygginguna. Við teljum
möguleika á stóraukinni þátttöku
Akumesinga í ferðaþjónustu og
viljum koma á fót kennslubraut sem
tengist ferðamálum við Fjölbrauta-
skólann.
Við emm svo lánsöm hér á
Akranesi að við eigum mörg sterk
og rótgróin fyrirtæki bæði í sjávar-
útvegi og iðnaði og þess vegna
hefur bæjarfélagið ekki þurft að
standa í miklum atvinnurekstri
sjálft eins og mörg hliðstæð sveitar-
félög þurfa að gera.
Stækkun Höfða
Sem fyrr segir tel ég nauðsynlegt
að hefja nú þegar stækkun dvalar-
heimilisins Höfða. Bæjarstjóm hef-
ur samþykkt tillögu stjómar heimil-
isins um að he§a uppbyggingu 2.
áfanga og viljum við standa heils-
dagsetningunni 28. ágúst 1870 en þá kvaddi hann hana.
tíma, en hann hafði notað hluta
þeirra til skreytingar á fyrstu út-
gáfum Nonnabókanna í Þýskalandi.
Hér er ekki um neina sölu að
ræða, enda hefur það aldrei hvarfl-
að að Haraldi að nota þessi fágætu
andlegu menningarverðmæti í fjár-
öflunarskyni.
Haraldur vinnur nú að því að
ganga frá fullkominni ritskrá
Nonna svo og endurskipulagningu
á safninu í heild. Hafa þeir ráð-
herramir Matthias og Sverrir stutt
hann með ráðum og dáð og hafa
heitið því að halda því áfram eftir
því sem föng em á. Það var þetta
sem ríkisstjómin heimilaði þeim
ráðherrunum að gera.
Þessi frásögn Morgunblaðsins
hefur fallið Haraldi mjög þungt,
enda hefur hann ávallt kosið að
sinna störfum sínum óáreittur og í
kyrrþey.
Okurmálið:
Hermann fyrir
dóm 1 júnímánuði
SENN líður að því, að dæmt verði
I máli Hermanns Björgvinssonar.
Hermann kom til landsins frá
Bandaríkjunum fyrir nokkm og
verður málið líklega tekið fyrir um
miðjan júni í Kópavogi. Hjá Saka-
dómi Reykjavíkur hafa 73 menn
verið ákærðir fyrir þátt í okurmál-
inu svokallaða og hefur flestum
ákæmm verið þinglýst. Ekki hefur
verið dæmt í neinu málanna.
Fallegfur kórsöngur
Tönlist
Jón Ásgeirsson
Mótettukór Hallgrímskirkju hélt
tónleika í Kristskirkju sl. þriðjudag,
en kórinn er á fömm til Norður-
landa, þar sem hann mun frumflytja
þrjú íslensk kirkjutónverk á nor-
rænu kirkjutónlistarmóti, sem hald-
ið verður í Osló um miðjan júní.
Tónleikamir hófust á þremur sál-
malögum eftir Þorkel Sigurbjöms-
son. Það fyrsta er við texta eftir
Pál V.G. Kolka og tvö síðari við
texta eftir Matthías Jochumsson.
Þessi þijú nýju sálmlög em mjög
fallega gerð og sérstaklega það,
sem er við textann Englar hæstir,
andar stærstir eftir Matthías. Nið-
urlag þess er svc kallaður hálfendir
en með því að endurtaka siðustu
hendinguna og leiða lagið þannig
niður á fmmtón þess, væri trúlega
fengið lag, sem vinsælt gæti orðið
til almennra söngnota. Hvað sem
þessu líður em sálmlögin eftir
Þorkel fallegar tónsmíðar, mjög í
anda perlunnar við texta Kolbeins
Tumasonar, Þú mikli himnasmiður.
Þijú ný kirkjutónverk vom flutt,
en tilkoma þeirra er fyrir tilstilli
Nomus-nefndarinnar og var ætlun-
in að hvetja norræn tónskáld til
tónsköpunar fyrir almennt kirkju-
hald. Þessari stefnu hefur stjóm-
andi Mótettukórsins, Hörður
Áskelsson, fylgt og em sálmar
Þorkels svar við þessum áhuga
Harðar, að fella lifandi tónsköpun
að kirkjustarfinu, jafnframt því sem
haldið er upp merki eldri tónlistar.
Nýju verkin em 23. Davíðssálmur
eftir Jónas Tómasson, Gloría eftir
Gunnar Reyni Sveinsson og Ave
María eftir Hjálmar H. Ragnarsson.
Öll verkin em fallega hljómandi
einkum þó Ave María eftir Hjálmar.
Rétt væri að heyra verkin oftar,
því einn flutningur nægir ekki, en
samvistir við góða tónlist byggjast
á þeirri gleði að hitta fyrir aftur
þann vin, sem vekur upp endur-
minninguna um ljúfar stundir. Þar
er sú líftaug listarinnar, sem gerir
góða list eilífa og jafngilda vináttu
er aldrei á fellur. Mótettan eftir
Britten var eins og á skakk við
það, sem á undan og eftir fór, enda
ekki víst nema verkið njóti sín betur
með þeim söngmáta er einkennir
enskan kórsöng. Seinni hluti tón-
leikanna var helgaður þýskri mót-
ettugerð og var fróðlegt að heyra
tveggja kóra mótettuna eftir Jó-
hannes Bach, Unser Leben ist ein
Schatten, besta verkið af þýsku
mótettunumvar Die mit Tránen sa-
en, eftir Schiitz. Þrátt fyrir að
margt sé frábærlega fallegt í mót-
ettunum eftir Brahms og Mend-
elssohn em verkin, sem mótettukór-
inn söng, ekki með þeim glampa
glæsileiks, sem þessir höfundar áttu
til í svo ríkum mæli. Mótettukórinn
undir stjóm HarðarÁskelssonar er
feikna góður og vom íslensku lögin
mjög fallega sungin, svo og margt
í þýsku mótettunum, einkum var
undirritaður sáttur við mótettuna
eftir Schiitz, sem má vera að nokkm
vegna tónmálfæris meistarans.
Matthías Bjarnason, viðskiptaráðherra:
Kvótinn hefur
hækkað verð
fiskiskipa um of
RAÐHERRA viðskipta og sam-
gangna, Matthías Bjarnason, var
einn þeirra, sem ávörpuðu aðal-
fund Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna fyrir nokkru. Hann
sagði meðal annars að kvótítm á
hvern bát hefði hækkað verð
báta og fiskiskipa langt umfram
nokkuð, sem gætí talizt raun-
verð. Áð undanfömu hefðu 5
fiskibátar verði seldir milli land-
svæða hér. Meðalaldur hefði
verið 14,4 ár og meðalverð á
hvetja lest 250.000 krónur. Á
svipuðum tima hefðu tvö kaup-
skip verið seld úr landi. Meðal-
aldur þeirra hefði verið 15 ár
og verð fyrir hvetja lest að
meðaltali tæpar 20.000 krónur.
- Matthías Bjamason sagði, að
bátamir 5 hefðu verið seldir á alls
104 milljónir króna, stærð þeirra
væri 413 lestir og samanlagður
aldur 72 ár. Stærsti báturinn er 247
tonn að stærð og 19 ára gamall.
Hann er seldur á 41 milljón króna
og kostaði hver lest í honum að
meðaltali 166.000 krónur. 78 lesta
bátur, 21 árs, var seldur á 18 millj-
ónir eða 231.000 að meðaltali fyrir
hveija lest. 39 lesta bátur, 11 ára,
var seldur á 17,5 milljónir eða
449.000 krónur hver lest. 29 tonna
bátur, 7 ára gamall, var seldur á
21 milljón króna eða 724.000 krón-
ur hver lest og loks nefndi ráð-
herrann 20 lesta 14 ára gamlan bát,
sem seldur var á 6,5 milljónir eða
325.000 krónur hver lest. Annað
kaupskipið var 241 lest að stærð,
14 ára gamalt og selt á 13.230.000
krónur eða 55.000 krónur hver lest.
Hitt skipið var 1.507 lestir, 16 ára
gamalt og selt á 20.329.000 krónur
eða 13.500 krónur hver lest.