Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
Félag sérleyfishafa
og BSI kaupa Um-
ferðarmiðstöðina
FÉLAG íslenskra sérleyfishafa
og Bifreiðastöð íslands hf. hafa
keypt Umferðarmiðstöðina í
Reykjavík af rikinu fyrir 34
milljónir króna. Tilboð barst
einnig frá Félagi hópferðaleyfis-
hafa.
Umferðarmiðstöðin var reist á
árunum 1960-1966 m.a. fyrir fram-
lag úr Sérlejrfissjóði og Qárveitingar
úr ríkissjóði. í fréttatilkynningu frá
samgönguráðuneytinu segir meðal
annars að eftir athugun hafi ráðu-
neytinu þótt eðlilegt að stöðin væri
í eigu þeirra aðila sem hún er
aðallega byggð fyrir. Því voru við-
ræður teknar upp við Bifreiðastöð
íslands hf. og Félag íslenskra sér-
leyfíshafa um kaup þeirra á stöðinni
og síðar Félag hópferðaleyfishafa.
Þessir aðilar lögðu fram kauptiiboð
en tilboð Félags sérleyfíshafa og
BSÍ reyndist hagstæðara.
Að sögn Gunnars Sveinssonar,
formanns Félags íslenskra sérleyf-
ishafa, er ekki fyrirhugað að breyta
rekstri Umferðarmiðstöðvarinnar
eftir kaupin. Hann sagði að aðal-
áhersla yrði lögð á endurbætur
Umferðarmiðstöðvarinnar, bæði
innanhúss og utan, og reyna þannig
að bæta þjónustu við farþega og
aðra sem erindi eiga þangað.
Búnaðarbankinn:
Kröfur í bú
Blóma og ávaxta
ekki tapaður
Búnaðarbankinn sem er stærsti
kröfuhafi í þrotabú Blóma og
ávaxta hf. telur að nægar trygg-
ingar séu fyrir hendi þannig að
bankinn tapi ekki kröfum.
Blóm og ávextir hf. var lýst gjald-
þrota 24. febrúar sl. og þykir ljóst
að aðeins tíundi hluti krafna inn-
heimtist. Búnaðarbankinn hefur lýst
kröfum að fjárhæð tæpum 10 millj-
ónum í búið. Margeir Pétursson,
lögfræðingur hjá bankanum, sagði,
að jafnvel þó eignir Blóma og ávaxta
nægi ekki fyrir skuldum, þá vaeru
kröfur bankans ekki tapaðar, enda
tryggðar með öðrum veðum og
tryggingum.
Morgunblaðið/RAX
Sóttfram
Júlíus Hafstein, sem skipar áttunda sætið á lista sjálfstæðismanna við borgarstjómarkosningamar í Reykja-
vfk, sækir ffarn í útitafli á Lækjartorgi í gær. Þar áttust við þrír frambjóðendur sjálfstæðismanna, sem
auk Júlíusar voru Haraldur Blöndal og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
A
Aróðurs-
skilti
fjarlægð
Starfsmenn Rafmagnsveitna
Reykjavíkur fjarlægðu í gær
kosningaskilti, sem Alþýðu-
bandalagsmenn höfðu i leyfis-
leysi fest á Ijósastaura viða i
höfuðborginni.
Alþýðubandalaginu var gefinn
kostur á að fjarlægja skiltin fyrir
kl. 7 í gærmorgun, þar sem þau
bijóta gegn einróma samþykkt
borgarráðs, en flokksmenn urðu
ekki við þeim tilmælum og hófust
þá borgarstarfsmenn handa. Kosn-
ingastjóm Alþýðubandalagsins hef-
ur ítrekað mótmæli vegna þessa og
telur að um sé að ræða „óeðlilegt
inngrip borgarskrifstofanna í kosn-
ingarbaráttuna". Fulltrúar borgar-
yfírvalda segja hins vegar, að í
þessu efni eigi eitt yfir alla að ganga
jafnt, og skiltin geti valdið skemmd-
um á staumnum og tmflað umferð.
Morgunblaðið/Júlíus
Vinsældalisti rásar 2
Vinsældalisti rásar 2 þessa viku
er sem hér segir:
1. ( 1) Why Can’t This Be Love
................VanHalen
2. ( 6) Lessons In Love
................Level 42
3. (10) Live To Tell...Madonna
4. (4) Living Doll.Cliff Richard
5. ( 2) Gieðibankinn.......ICY
6. ( 5) Á’de’det hár du kallar
kárlek.....Lasse/Monica
7. ( 3) J’aime La Vie
............Sandra Kim
8. (15) Greatest Love Of All
.......Whitney Houston
9. (17) Train Of Thought.A-Ha
10. ( 8) Look Away..Big Country
Vindáshlíð i Kjós:
Guðsþjónusta og kaffisala
SUMARSTARF KFUK hefst í
Vindáshlíð á sunnudag, 1. júni,
með guðsþjónustu og kaffisölu.
Guðsþjónustu annast séra Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Þetta er 38. starfsár sumar-
búðanna í Vindáshlíð. í sumar verða
níu dvalarflokkar fyrir stúlkur á
aldrinum 9 til 16 ára og dvelja að
jafnaði 67 stúlkur í hverjum flokki
sem er ein vika. Fyrsti hópurinn
kemur 4. júni. Einnig verða Qöl-
skyldudagar um verslunarmanna-
helgina og kvennadagar í lok ágúst.
Allir em velkomnir í Vindáshlíð
á sunnudag.
Framboðsfundur á Egilsstöðum:
Atvmnumálin
í brennidepli
Egilsstöðum.
Sameiginlegur framboðs-
fundur allra frambjóðenda til
komandi sveitarstjórnarkosn-
inga var haldinn í Valaskjálf
nú i byrjun viku.
Fjórir listar bjóða nú sem fyrr
fram til sveitarstjómar hér á
Egilsstöðum, B-listi Framsóknar-
flokks, D-listi Sjálfstæðisflokks,
G-listi Alþýðubandalags og
H-listi óháðra samtaka áhuga-
manna um hreppsmál. A kjörskrá
em nú 865 kjósendur.
Við síðustu sveitarstjómar-
kosningar vom 699 kjósendur á
kjörskrá og atkvæði greiddu 624
eða 89,27%. Úrslit urðu þá þau
að B-listinn hlaut 219 atkvæði
og 3 fulltrúa kjöma, D-listi 157
atkvæði og 2 fulltrúa og G-listi
171 atkvæði og 2 fulltrúa kjörna.
Fjórði listinn, I-listi óháðra og
alþýðuflokksmanna, fékk 66
atkvæði en engan mann kjörinn.
Enginn formlegur meirihluti hef-
ur verið starfandi í hreppsnefnd
Egilsstaðahrepps.
Á framboðsfrindinum nú í vik-
unni lögðu talsmenn allra lista
áherslu á atvinnumál og mikil-
vægi uppbyggingar Egilsstaða-
flugvallar í því sambandi. Enn-
fremur bám skipulagsmál á
góma, umhverfísmál, félags- og
menningarmál hvers konar auk
skóia- og uppeldismála. Þá drápu
talsmenn H-lista á nauðsyn þess
að mynda ábyrgan meirihluta í
sveitarstjóm að kosningum lokn-
um til að tryggja skilvísari stjóm-
un sveitarfélagsins. Þá fjölluðu
nær allir framsögurnenn um mál-
efni hestamanna á Egilsstöðum
og brýna nauðsyn þess að skapa
þeim varanlega aðstöðu. Þá var
Morgunblaðið/ólafur
Frambjóðendur á sviði Valaskjáifar.
nokkuð rætt um hitaveitumál og
löggæslu — en segja má að at-
vinnumálin hafi þó verið í brenni-
depli. Talsmenn G-lista skám sig
nokkuð úr í umræðunni og lögðu
áherslu á samspil sveitarstjómar-
mála og landsmála. Átöldu þeir
mjög það sem þeir kölluðu kjara-
skerðingu ríkisstjómar og niður-
skurð stjómvalda.
Fundinn sátu hartnær 300
manns. Fundarstjórar vom tveir
JC-félagar, þau Gunnar Vignis-
son og Maríanna Jóhannsdóttir.
— Ólafur