Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
41
* y Avi/ r-1
Hluti nemenda, sem fram komu á öðrum lokatónleikum Tónlistar- Rangar Már Magnússon spilar á tenórhom. Kennari hans, Sigurð-
skólans á Sauðárkróki. ur Jónsson, við píanóið.
Sauðárkrókur:
Níutíu nemendur
á lokatónleikum
Sauðárkróki.
Tuttugasta og fyrsta starfsári Tónlistarskólans á Sauðárkróki
er lokið með tvennum tónleikum í Safnahúsinu. Þar komu fram
90 nemendur, sem léku einleik og samleik á hin ýmsu hljóðfæri.
Við skólaslitin lék einnig blásarasveit skólans nokkur lög. í vetur stund-
uðu 160 manns nám við skólann. Yngsti nemandinn var 4 ára en þeir
elstu á sextugsaldri. Fastráðnir kennarar auk skólastjóra eru þrír og
stundakennarar eru þrír.
Yngsti nemandinn, Hrefna Bjömsdóttir, 4 ára, leikur á fiðlu.
Kári Með henni er kennari hennar, Tim Beilby.
Framboðsfundur í Borgarnesi:
Frambjóðendur tókust
hraustlega á um atkvæðin
Borgarnesi.
SAMEIGINLEGUR framboðsfundur allra lista við hreppsnefndarkosn-
ingarnar í Borgamesi var haldinn miðvikudaginn 28. mai í Hótel
Borgarnesi. Fundurinn var mjög fjölmennur, talið var að fundinn
hefði sótt 400 manns.
Tilhögun fundarins var með þeim
hætti og hver framboðslisti fékk 30
mínútur til umráða sem skiptist á
þijár umræður. Fundarmönnum
gafst kostur á að leggja munnlegar
Akureyri:
Heimspeki-
fyrirlestur í
Gamla Lundi
Akureyri.
PÁLL Skúlason, prófessor í heim-
speki við Háskóla íslands, heldur
fyrirlestur í Gamla Lundi við
Eiðsvöll á Akureyri á morgun,
laugardag 31. maí, kl. 16.00.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur
svo lengi sem húsrúm leyfir. Fyrir-
lesturinn er haldinn á vegum áhuga-
manna um heimspeki á Akureyri og
Kennaraháskóla Islands. Fyrirlestur
sinn nefnir Páll „Heilbrigð skynsemi
og hugmyndafræði" og í þeim lestri
verður rætt um hlutverk heimspeki
með tilliti til menntunar og lífsskoð-
ana. Annars vegar verður fjallað um
menntunarhugtakið og leitast við að
skýra nokkra höfuðþætti þess. Hins
vegar verður Qallað um svokallaða
hugmyndafræði og leitast við að
skýra hvað stendur á bak við þetta
vafasama orð. Jafnframt verður gerð
grein fyrir nytsemi heimspekinnar í
almennri umræðu um menntun og
lífsskoðanir.
Páll Skúlason er, jafnframt prófess-
orsstarfí sínu við heimspekideild HÍ,
formaður Félags áhugamanna um
heimspeki og forseti heimspekideild-
ar. Hann er eftirsóttur fyrirlesari og
hefur haldið fjölda fyrirlestra bæði
innan lands og utan á vegum skóla,
stofnana og félaga. Páll er fæddur
og uppalinn á Akureyri.
(Fréttatilkynning.)
fyrirspumir fyrir frambjóðendur á
milli annarrar og þriðju umferðar.
Það skilyrði var sett að fyrirspyrj-
endur ættu ekki sæti á framboðslist-
unum. Fyrstu og aðra umferð nýttu
frambjóðendur aðallega til þess að
rekja storf hreppsnefndar síðastliðin
Qögur ár og til að kynna þá mála-
flokka er megináhersla yrði lögð á
á næsta kjörtímabiii. Vitnuðu fram-
bjóðendur mikið í þau blöð og þá
bæklinga sem búið er að dreifa í
hvert hús í Borgarnesi á síðustu
dögum. í síðustu umferðinni urðu
menn beinskeyttari, saumuðu hver
að öðrum og hvöttu kjósendur til
að merkja rétt á kjörseðilinn.
Fyrsti fyrirspyijandinn var Jón
Kr. Guðmundsson. Beindi hann
þeirri spumingu til allra flokkanna
hvort hætt hefði verið við að byggja
nýtt áhaldahús fyrir hreppinn. Gísli
Kjartansson oddviti og fýrsti maður
á lista sjálfstæðismanna svaraði Jóni
því til að á stefnuskrá sjálfstæðis-
manna fyrir næsta kjörtímabil væri
ákvæði um að áhaldahúsi yrði valinn
staður og hafist handa við byggingu
þess á þessu ári. Guðmundur Guð-
marsson 5. maður á lista Framsókn-
arflokksins sagðist líta svo á að
núverandi hreppsnefndarmeirihluti
væri ásáttur um að nýtt áhaldahús
rísi á Sólbakka og að þar yrði einnig
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir slökkvi-
liðið og björgunarsveitina.
Þórður B. Bachmann spurði alla
flokka hvort breytinga væri að
vænta á skattheimtu hreppsins á
hestamenn á næsta kjörtímabili.
Sagði hann að hestamenn greiddu
hundruð þúsunda til hreppsins I
formi ýmissa gjalda svo sem fast-
eignagjalds, gatnagerðargjalds og
leigu á landi. Þætti hestamönnum
þetta hart á meðan önnur félaga-
samtök þyrftu ekki að sæta þessu
hér og ekki væri gengið svo hart
að hestamönnum í öðmm bæjarfé-
lögum. Jakob Þór Skúlason efsti
maður á lista óháðra svaraði Þórði
því til að hann teldi að hestamenn
í Borgamesi ættu að sitja við sama
borð og hestamenn í nágrannasveit-
arfélögunum varðandi fsteignagjöld
og aðra gjaldtöku. Guðmundur
Guðmarsson sagði að samkvæmt
nýrri stefnuskrá Framsóknarflokks-
ins ættu þau gjöld sem hreppurinn
fengi af hestamönnum að renna til
þeirra aftur í formi uppbyggingar á
aðstöðu að Vindási, hestamönnum
til góða. Eyjólfur Torfi Geirsson efsti
maður á lista Alþýðuflokksins sagði
að Alþýðuflokkurinn hefði einn
flokka haldið fund með hestamönn-
um í Borgamesi um þessi mál og
það væri á stefnuskrá Alþýðuflokks-
ins að lækka gjöld af hesthúsum
þannig að þau yrðu til jafns við gjöld
af útihúsum til sveita. Margrét
Tryggvadóttir efsti maður á lista
Alþýðubandalagsins sagði að skoða
þyrfti öll samskipti hreppsins og
hesteigendafélagsins og eðlilegt
væri að samræma gjaldtöku við
önnur bæjarfélög. Jóhann Kjartans-
son annar maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins sagði að samkvæmt
stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins bæri
hreppnum að styðja félagasamtök
eins og hesteigendafélagið eftir
föngum. Einnig benti Jóhann á að
fyrirhuguð væri uppbygging á úti-
vistarsvæði í Einkunum og að sjálf-
sögðu kæmi það hestamönnum til
góða.
Guðmundur Reynir Guðmundsson
spurði að því hvað mikill kostnaður
væri kominn í undirbúningsvinnu
vegna byggingar fyrirhugaðs safna-
húss. Ekki voru frambjóðendur
sammála um hvað kostnaðurinn
væri orðinn mikill. Indriði Albertsson
efsti maður á lista Framsóknar-
flokksins taldi að komnar væru rúm-
ar 3 milljónir í safnahúsið, Gísli
Kjartansson taldi að búið væri að
leggja 1,8 millónir króna í það og
Grétar Sigurðarson þriðji maður á
lista Alþýðubandalagsins sagði hins
vegar að í dag væru komnar í safna-
húsið 2.182.653 krónur.
Fram kom fyrirspurn frá Guð-
mundi Arasyni um ástæðuna fyrir
því að ekki hefði verið bein útvarps-
sending frá fundinum. Svöruðu
frambjóðendur því til að ekki hefði
fengist sendir hjá Pósti og síma en
mikið hefði verið reynt til að koma
ábeinni útvarpssendingu.
Fundurinn var allur tekinn upp á
myndsegulband og verður hann
sýndur í kapalkerfi Útvarps-, sjón-
varps- og vídeófélags Borgamess
nokkrum sinnum fyrir kosningar,
svo flestir Borgnesingar ættu að
geta skoðað frambjóðenduma á
skjánum áður en þeir kjósa. - TKÞ
Kosninga-
útvarpá
stuttbylgju
KOSNINGADAGSKRÁ útvarps-
ins verður að venju send út á
stuttbylgju fá Fjarskiptastöðinni
í Gufunesi. Útsendingar verða
sem hér segir:
Til Norðurlanda og Austur-
Evrópu
31. mai:
Klukkan 19.00—23.00 á tíðninni
8090 khz eða 37,1 m.
Kiukkan 23.00—04.00 á tíðninni
8195 kHz eða 36,6 m.
l.júní:
Klukkan 12.15—14.30 á tíðninni
13690 kHz eða 21,9 m.
Til Bretlands, Vestur-Evrópu og
Afríku
31. maí:
Klukkan 19.00—23.00 á tíðninni
9985 kHz eða 30 m.
Klukkan 23.00—04.00 á tfðninni
8056 kHz eða 37,2 m.
l.júnf:
Klukkan 12.15—14.30 á tíðninni
13767 kHzeða 21,8 m.
Til austurhluta Bandaríkjanna
og Kanada
31. maí:
Klukkan 22.00—04.00 & tíðninni
9775 kHzeða 30,7 m.
l.júni:
Klukkan 13.00—15.00 á tíðninni v'
11855 kHz eða 25,3 m.
Hlustendur á Norðurlöndum og
í Austur-Evrópu sem af einhveijum
ástæðum heyra ekki á þeirri bylgju-
lengd sem gefín er upp, geta reynt
að hlusta á útsendinguna til Bret-
lands.
Útsending á FM á tveimur stöð-
um í Svíþjóð
Kosningaútvarpið verður sent á
símalínu til Gautaborgar og þar
verður það sent út á FM 94,9 og í
Lundi á FM 99,1. Þá verður hægt
að hlust á kosningaútvarpið í húsi
íslendingafélagsins í Bromma í
Stokkhólmi.
Sumartími í
Listasafni
Einars
Jónssonar
FYá og með 1. júní er Listasafn
Einars Jónssonar opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.30—16.
Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10—17.
Gamli miðbærinn:
Lokaátak fegrunarviku
NÚ líður að lokum fegrunar- er þó miklu verki ólokið því ekki hendinni og sjá til þess að húsnæði
átaks þess sem samtökin Gamli hafa nær allir tekið tilmælum fegr- og umhverfí þeirra verði snyrt,
miðbærinn beittu sér fyrir í mal- unamefndar Gamla miðbæjarins lagfært og endurbætt eftir því sem
mánuði. sem m.a. fólu í sér skilaboð um þörf krefur fyrir 200 ára afmæli
Veður hefur verið mjög gott í málun og viðhald húsa, hreinsun Reykjavíkur í ágúst nk. Gamli
höfuðborginni eins og flestir hafa glugga, uppsetningu blómakera, miðbærinn er elsti borgarhluti
orðið varir við og þannig hafa allar hreinsun gatna og gangstétta Reykjavíkur og mikilsvert er að
aðstæður verið hinar ákjósanleg- ásamt snyrtingu garða og lóða. hann verði hreinn, snyrtilegur og
ustu lagfæringa, málningar- og Stjóm Gamla miðbæjarins vill aðlaðandi á afmælisárinu.
annarar útvinnu í þá átt gera gamla hvetja alla húseigendur og forsvars- (Fréttatilkynning)
miðbæinn fallegri og líflegri. Ennþá menn fyrirtækja til að taka til