Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
48
Davíð
Oddsson
borgarstjóri
svarar
spurningum
lesenda
Spurt og
svarað um
borgarmál
Kvennaathvarfið
Stella Sigurðardóttir, Sól-
heimum 23, spyr:
Ég hef fylgst með því gegn-
um fjölmiðla, að borgarstjóri
er umhyggjusamur gagnvart
þeim, sem minnst mega sín í
borginni. Meðal annars þess
vegna vil ég spyrja, hvort borg-
arstjóri hafi í huga, í tilefni 200
ára kaupstaðarafmælis höfuð-
borgarinnar, að færa kvennaat-
hvarfi og unglingaheimili að
Sólheimum eitthvað, þessum
skjólum fólks, sem það neyðist
stundum til að flytja til af heim-
ilum sínum, vegna víns og vímu-
gjafa? Þarna er mikil þörf til
staðar.
Svar:
Ég skil spuminguna svo, að verið
sé að minna á mikilvægt hjálpar-
starf, sem unnið er í Kvennaat-
hvarfínu og unglingaheimili ríkis-
ins í Sólheimum. Það hefur ekki
verið rætt um að gefa þessum
stofnunum sérstaklega gjafír í
tilefni af 200 ára afmælinu, en
borgin hefur hinsvegar styrkt
starfsemi_kvennaathvarfsins und-
anfarin ár.
Tjarnargata
Leifur Sveinsson, Tjamar-
götu 36, spyr:
1) Hvenær verður Tjarnar-
gatan malbikuð að nýju (víða
eru stór göt i malið og mikið
slit við rennusteinana). Tjarn-
argatan var upphaflega mal-
bikuð 1946.
2) Hvenær má búast við við-
unandi viðhaldi á húsum Borg-
arsjóðs Reykjavíkur við Tjam-
argötu, en þau eru:
A) Tjamargata 11.
B) Tjarnargata 12.
C) Tjamargata 20.
D) Tjarnargata 35 (Sólheim-
ar, nú Rauða-krossheimili). Nr.
11 er þokkalega viðhaldið, en
þyrfti að flytjast austar á Bám-
lóð, þar sem húsið stendur út
í Tjarnargötuna og stórtruflar
umferð.
Nr. 12, þar þarf að mála
glugga og tréverk.
Nr. 20, þar þarf að mála
grind verk og bílskúr.
Nr. 35, þar þarf að mála allt
húsið strax, því áratugum
saman er þetta hús búið að
vera í niðumíðslu, en nú er mál
að linni. Þolinmæði okkar ná-
grannanna er þrotin.
P.S. í sambandi við Tjamar-
götu 11 geri ég ráð fyrir, að
endanlega sé hætt við að reisa
sálarlausan steinkassa á Bám-
lóð og kalla ráðhús. Nóg era
bílastæðisvandræðin í mið-
bænum samt.
Svar við spurningu 1:
Vonandi verður stutt í það að
samþykktar verði tillögur um
viðgerð á bökkum tjamarinnar og
fegrun nágrennis hennar. Kemur
þá til álita að breyta frágangi
Tjamargötu og er ekki ástæða til
að fara í endurbyggingu hennar
í bili. Gert verður við götuna í
sumar þannig að yfírborð hennar
verður heilt og slétt.
Svar við spurningu nr. 2:
Húseignir Reykjavíkurborgar
við Tjömina era ellefu í dag. Þrjú
þessara húsa standa austan við
Tjömina þ.e. Fríkirkjuvegur 1, 3,
og 11. Sex hús standa vestan við
Tjömina, Tjamargata 10 E, 11,
12, 20, 33 og 35. Tvö húsanna
standa norðan við Tjömina,
Lækjargata 14 a og 14 b, gamli
Iðnskólinn og Búnaðarfélagshús-
ið, þau era sambyggð.
Ofantalin hús hafa verið í
endurbyggingu allar götur frá
árinu 1968 þegar byijað var á
Fríkirkjuvegi 3.
Undanfarin tvö ár hefur verið
veitt fé í endurbyggingu á Tjam-
argötu 35.
Búið er að bjóða út málningar-
vinnu við húsið að utan og verður
það málað núna í júní. Endur-
byggingu þaks, glugga og múr-
viðgerðum lauk á síðasta ári.
Verið er að ganga frá opnu
svæði milli Iðnó og Lækjargötu-
húsanna.
Búið er að undirbyggja og
leggja hitarör í svæðið, síðan
verður hellulagt og gróðursett
stór tré.
í skipulagstillögum um Kvosina
er gert ráð fyrir að flytja húsið
Tjamargötu 11, en ekki er búið
að fínna því stað í borginni.
Á fjárhagsáætlun ársins 1986
er ekki gert ráð fyrir málun hús-
anna við Tjamargötu 12 og 20.
Geta má þess að fyrirhugað er
að ijarlægja bílskúr við Tjamar-
götu 20, og vonandi verður hægt
að framkvæma það sem vantar á
málun húsanna á næsta ári.
Svar við eftirmála („P.S.“)
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um byggingu ráðhúss. Fyrir
lifandi löngu var fallið frá hug-
mynd um stórt ráðhús við norður-
enda Tjarnarinnar og hefur hún
ekki komið aftur á dagskrá. Sá
möguleiki hefur hins vegar verið
ræddur að byggja lítið snoturt
ráðhús í horninu, þar sem Tjamar-
gata 11 stendur. Komi til þess,
get ég fullvissað bréfritara um,
að þar verður ekki reistur „sálar-
laus steinkassi".
Skautasvell í
Laugardal
Pétur Magnússon, Sörla-
skjóli 9 spyr:
Lengi hefur verið fyrirhugað
að byggja vélfryst skautasvell
í Laugardalnum. Fær þessi
framkvæmd forgang á fram-
kvæmdaáætlun á þessu ári?
Aðrar iþróttagreinar hafa
hingað til haft forgang. Er
ekki kominn tími til að hefja
skautaíþróttina til vegs og virð-
ingar?
Svar:
Skautasvell í Laugardalnum
getur ekki haft forgang á þessu
ári, en ég vek athygli bréfritara
á því, að í nýjum tillögum um
Laugardalssvæðið er gert ráð
fyrir vélfrystu skautasvelli austan
við Laugardalshöllina. Sjálfstæð-
ismenn hafa tekið þessa fram-
kvæmd á stefnuskrá sína ásamt
öðram tillögum um nýja og fjöl-
breytta starfsemi í Laugardaln-
um. Mikið mun gerast í Laugar-
dalnum á næsta kjörtímabili, ef
Sjálfstæðismenn stjóma áfram,
en einstök verk treysti ég mér
ekki til að tímasetja.
Skemmtanalífið í
höfuðborginni
Guðfinna Hannesdóttir,
Hveragerði spyr:
Skyldi borgarstjórinn í
Reykjavík, Davíð Oddsson, vera
stoltur af skemmtanalífinu í
höfuðborginni, eins og því sem
Kastljós sýndi öllum lands-
mönnum í sjónvarpinu 23. þ.m.
Þessi þróun varðar alla lands-
menn.
Svar:
Ég sá ekki þennan sjónvarps-
þátt, en tel ólíklegt, að unnt sé
að gefa rétta mynd af skemmt-
analífínu í höfúðborginni í svo
stuttum þætti. Veit ég að menn
skilja, að ég fer ekki að dæma
um það eftir frásögnum annarra
af slíku sýnishomi.
Laun strætisvagna-
bílstjóra
Hörður Tómasson, Hraunbæ
136.
Nú em strætisvagnabílstjór-
ar í Kópavogi fjómm iauna-
flokkum hærri en strætis-
vagnabílstjórar f Reykjavík.
Því spyr ég, hver er ástæðan
og á ekki að breyta þessu.?
Svar:
Sérkjarasamningar við Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar
era nú á lokastigi og get ég ekki
svarað því, hvað í þeim verður
ákveðið um kjör einstakra starfs-
hópa.
Eyjabakki
Björa Bjarklind, Eyjabakka 32,
spyr:
Ég vil gjarnan fá upplýsing-
ar varðandi svæðið fyrir fram-
an Eyjabakka 18-32 og þar í
kring. Þetta er 17 ára gamalt
hverfi og eina ófrágengna
hverfið í neðra Breiðholti. Öðm
hvora hafa komið vinnuflokkar
og potað eitthvað í drulluna en
engu komið í verk. Þó er nú
búið að helluleggja smásvæði
og tyrfa fyrir framan leikvöll-
inn, sem þaraa er. Megum við
búast við áframhaidandi fram-
kvæmdum og þá hvenær eða
þurfum við að bíða í önnur 17
ár?
Svar:
Umrætt svæði er ekki í umsjá
borgarinnar. Garðyrkjustjóri hef-
ur rætt við lóðarhafa um að gera
átak til að ljúka frágangi á þess-
um stað.
Reykjanesbraut
Bára Andersdóttir, Jöldu-
gróf 17, spyr:
Ég hef fylgst með fram-
kvæmdum við Reykjanesbraut
héraa fyrir neðan hverfið og
Iangar mig til að spyrja borgar-
stjóra eftirfarandi spurninga:
a) Ef verið er að fjölga
akgreinum hefur þá eitthvað
verið hugsað út i það hvernig
við íbúar þess hverfis eigum
að komast lifandi yfir á strætis-
vagnastöðina hér fyrir neðan?
Ég veit af undirgöngunum, en
finnst borgarstjóra eðlilegt að
þurfa að ganga hálfan kíló-
metra til þess að geta notað
þjónustu strætisvagnanna?
b) Við íbúar þessa hverfis
greiðum okkar gjöld eins og
aðrir, en hver er þjónustan við
okkur? Hér era t.d. engar
gangstéttir, engin verslun
o.s.frv. Borgarstjórinn er vel-
kominn í hverfið til þess að
kynna sér ástand mála.
Svar:
a) Vegna lagningar Reykja-
nesbrautar milli Kaplakrika og
Breiðholtsbrautar er nauðsynlegt
að breikka Reykjanesbraut upp í
sex akreinar og setja upp um-
ferðarljós á gatnamótum á kaflan-
um miili Miklubrautar og Breið-
holtsbrautar. Verður þessum
framkvæmdum lokið í haust.
Það er talið of hættulegt að
setja upp gangbrautarljós á sex
akreina götu, sérstaklega þar sem
umferð er jafn mikil og hröð eins
og á þessum stað. Þess vegna
hefur verið tekin sú ákvörðun að
flytja biðstöð SVR norður að
undirgöngum sunnan Bústaða-
vegar. Við það lengjast gönguleið-
ir milli Blesugrófar og biðstöðva
SVR eitthvað (samanborið við að
ganga beint yfír Reykjanesbraut
á móts við núverandi biðstöð SVR
austan götunnar). Gönguleiðir
ættu þó ekki að verða lengri en
300-400 metrar, sem þykir vef
viðunandi í dreifðri byggð.
b) Eins og getið hefur verið
um í svöram mínum áður á þess-
um vettvangi hafa hús og önnur
mannvirki staðið í vegi fyrir
gangstéttagerð til þessa. Nú í
sumar er á áætlun að leggja
gangstétt við Stjömugróf og má
vænta þess að gangstéttagerð í
Blesugrófarhverfinu ljúki alveg á
næstu tveimur áranum.
Skipulag Skeijafjarðar
Steinþór Björgvinsson,
Bauganesi 25, spyr:
1. Hver era áform um svæð-
ið milli Bauganess og Einars-
ness, gegnt Skildinganesi í
Skeijafirði?
2. Hvert er framtíðarskipu-
lag gangstíga og gangstétta í
Skeijafirði?
3. Hver era fyrirhuguð not
af svæði þvi sem er á horai
Suðurgötu og Þorragötu, þar
sem nú er vísir að aðstöðu fyrir
boltaíþróttir? Ef ekkert er
ákveðið um þetta svæði í skipu-
lagi er þá ekki upplagt að gera
þetta svæði að vel skipulögðu
íþróttasvæði fyrir nærliggjandi
hverfi?
4. Af gefnu tilefni, hvaða
áætlanir era uppi um samgöng-
ur við Skeijafjörð ef þessi eini
vegur til hverfisins rofnar um
lengri eða skemmri tíma?
5. Hvað er fyrirhugað með
keyrslu skólabarna til og frá
skóla úr Skeijafirði?
6. Era til fullmótaðar tillög-
ur um frágang Suðurgötu, ef
svo er hveijar era þær og
hvenær má búast við að lokið
verði við götuna með tiiheyr-
andi gangstéttum?
Svör:
1. Svæðið milli Bauganess og
Einarsness er notað undir íbúða-
byggð og era ekki uppi áform um
að breyta því. Lóðimar milli þess-
ara gatna ná saman, þær era
langar og mjóar og nýtast því illa.
Því hefur landeigendum, á undan-
fömum áram, verið gefínn kostur
á að breyta fyrirkomulagi lóða
sinna þannig að þær nýtist betur.
2. Enn vantar nokkuð á að
gengið sé að fullu frá gangstétt-
um í Skeijafírði, en á þessu ári
er fyrirhugað að leggja þar
nokkra kafla af gangstéttum,
einkum við Skildinganes.
3. Á þessu svæði era uppi
hugmyndir um að reisa íbúðir
aldraðra á vegum BHM. Þar era
einnig fyrirhugaðir skólagarðar
auk leiksvæðis. Hluti af þessu
svæði (Klapparsvæðið) hefur
þegar verið friðlýst sem náttúra-
vemdarsvæði.
4. í gildandi skipulagi er ein-
ungis ein aðkomuleið að Skeija-
fírði og era engar áætlanir uppi
um að breyta því.
5. Það hefur verið skoðað í
Skólaskrifstofunni — síðast fyrir
tveimur áram — hvemig sérstök-
um skólaakstri fyrir Skeijafjörð
yrði helst fyrir komið svo að sem
bestu gagni kæmi. Bömin hafa
verið tiltölulega fá á þessu svæði
Séð yfir Reykjavík.