Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
63
• Guðmundur Steinsson skorar hér með skalla oina mark íslands í leiknum gegn Tékkum í gœrkvöldi. Hann fékk laglega sendingu frá Amóri Guðjohnsen, sem hann afgreiddi
síðan örugglega f netið.
Tékkneskur sigur í daufum leik
TÉKKAR unnu frekar auðveldan sigur é íslendingum þegar liðin
mættust í síðasta leik Reykjavfkurleikanna í knattspymu é Laugardals-
veili.f gærkvötdi. Úrslitin urðu 2:1 og voru öll mörkin gerð f síðari
hálfleik. írar unnu þvf Reykjavfkurleikana, Tékkar urðu f öðru sæti
og íslendingar í þvf þriðja og neðsta. Leikurinn í heild var frekar
daufur og einn áhorfandinn orðaði það svo að það hefði eins verið
hægt að vera heima og horfa á stillimyndina f sjónvarpinu. Þetta er
ef til vill of djúpt f árinni tekið en engu að síður nokkur sannleikur í
þessu, sórstaklega á þetta við um fyrri hálfleikinn.
Tókkar voru mun betri aðilinn í
fyrri hálfleik og munaði þar mestu
um hversu vel leikmenn þeirra
unnu án þess að hafa knöttinn.
Þeir voru sífellt á ferðinni og opn-
uðu þannig miðjuna mikið en sókn-
ir þeirra enduðu flestar með slök-
um skotum sem engin hætta staf-
aði af. Friörik markvörður Friðriks-
son varð þó nokkrum sínum að
taka á til að koma í veg fyrir mark
og gerði hann það af stakri prýði.
Leikurinn var í heild mjög róleg-
ur. Leikmenn reyna að halda knett-
inum mikið og er ekkert annað en
gott um það að segja nema þá aö
menn verða að vanda sendingam-
ar meira þegar þeir senda knött-
inn.
íslendingar fengu þó nokkur
„Það vantaði
þetta eina mark“
„VIÐ getum spilað okkar varnar-
leik og fáum góð marktækifæri
sam ekki tekst að nýta. Það
vantar þetta eina mark,u sagði
Pétur Pétursson, fyrirliði fslenska
liðsins.
„Mér fannst þessi leikur betri
af okkar hálfu en á móti írum. Átt-
um góða kafla og fengum skyndi-
sóknir sem við áttum að nýta.“
W
„Oskipulag
í spilinu"
„MÉR fannst þessi leikur slappari
en á móti írum á sunnudaginn.
Það var óskipulag í spilinu hjá
okkur," sagði Arnór Guðjohnsen,
eftir leikinn f gærkvöldi.
„Ég er hrifinn af þessari leikað-
ferð hjá Sigi Held en það þarf bara
meiri tíma og fleiri æfingaleiki. Það
er alltaf hægt aö læra af tapleikjum
og nú er bara að nýta þann lærdóm
fyrir næstu leiki," sagði Amór
Guðjohnsen, sem var einn besti
leikmaður fslands í báðum leikjun-
um á Reykjavíkurleikunum. Hann
dvelur nú hér í sumarfríi og verður
hér á landi fram í júlí og þá hefst
baráttan aftur hjá honum með
Anderlecht í Belgíu.
„Þokkalegur leikur“
„LEIKURINN var þokkalegur og
við fengum okkar fœri sem nýtt-
ust illa,“ sagði Ómar Torfason.
„Tékkarnir leika vel úti á vellin-
um en ekki eins vel upp við mark-
ið. Við bökkuðum of mikið í fyrri
hálfleik og fengu þeir þá meiri frið
en í seinni tókum við þá framar
og þá gekk þetta betur."
Um nýju leikaðferðina sagði
Ómar: „Ég er bjartsýnn á að þessi
nýja leikaðferð beri árangur. Þessa
leikaðferð nota flest lið í Evrópu
og með meiri æfingu ætti okkar
að takast að ná betri tökum á
henni. Þetta er alveg ný staða fyrir
mig að leika svona aftarlega,"
sagði Ómar.
færi í fyrri hálfleiknum og flest eftir
skyndisóknir. Á 12. mínútu átti
liðið glæsilega sókn. Sigurður
Grétarsson gaf þá góða sendingu
á Arnór sem framlengdi skemmti-
lega á Pétur Pétursson en skot
hans með vinstra fæti var ekki
nógu nákvæmt og fór langt fram-
hjá. Síðan komu nokkur færi en
ekkert varð úr þeim.
íslenska liðið hóf siðari hálfleik-
inn af mun meiri krafti en sést
hafði til þeirra i fyrrí hálfleiknum.
Leikmenn virtust ákveðnir í að
gera sitt besta til að vinna leikinn.
Hver sóknin rak aðra en alltaf
vantaði síðustu snertinguna til að
Ijúka sókninni eins og þær eiga
að enda — með marki.
Tvö mörkTékka
Eftir eina stórsókn íslands
komust Tékkar í skyndisókn sem
endaði með marki. Levy (nr. 5) gaf
þá góðan bolta fyrir markið á fjær-
stöngina þar sem fyrir voru tveir
Tékkar og einn íslendingur. Friðrik
markvörður lagði af staö út en
hætti við og knötturínn fór yfir
Loft og einn Tékka, lenti beint fyrir
fætur Kula (nr. 10) sem átti ekki í
erfiðleikum með að skora.
Skömmu síðar skallaði Sigurður
rétt yfir mark Tékka eftir enn eina
fallega sókn íslands og á sömu
mínútu átti hann annað gott færi.
Hann komst einn í gegnum vörnina
aðeins á ská við markið en gott
skot hans fór rétt framhjá stöng-
inni. Síðan kom annað mark Tékka.
Chovanec (nr. 8) skaut þá nokk-
uð föstu skoti af um það bil 25
metra færi. Knötturinn fór i ein-
hvem inni í vítateignum og breytti
um stefnu þannig að Friðrik var
kominn úr jafnvægi og í netið fór
knötturinn.
Nú skipti Sigi Held þeim Guð-
mundi Steinssyni og Ólafi Þórðar-
syni inná fyrir þá Guðmund Þor-
björnsson og Pétur Ormslev. Það
átti að freista þess að setja meiri
þunga í sóknina og reyna að jafna
metin. Þetta bar árangur því sókn-
arlotur Islands urðu þyngri en ekki
þó nógu þungar fyrr en á 83. mín-
útu. Þá gaf Ágúst Már fallega
sendingu um hægri kantinn á
Ragnar Margeirsson sem gaf yfir
vitateiginn á Arnór sem vippaði inn
í teiginn til baka á Guðmund
Steinsson og hann skallaði fallega
í netið. Gott mark en kom alltof
seint.
Dauft íslenskt lið.
íslenska liðið var óvenju dauft í
þessum leik. Þeir Guðmundur
Þorbjörnsson og Ómar Torfason
fundu sig engan veginn í stöðum
sínum sem ystu miðjumenn enda
báðir óvanir því að leika þessar
stöður. Einhvern veginn hafði
maður það á tilfinningunni að þeir
mættu að ósekju koma framar á
völlinn og láta þá varnarmennina
þrjá um vörnina á meðan. Lítið
sást af þessu og því vantaði mikið
menn á kantana þegar við sóttum
en á móti kemur aö ef þeir hefðu
farið fram hefði losnaði um kant-
ana fyrir Tékkana í sókninni. Leik-
kerfið 3-5-2 var því eiginlega leikið
5-3-2 að þessu sinni.
Ragnar barðist vel allan leikinn
og sama má segja um Sigurð Grét-
arsson sem er greinilega í mjög
góðu formi um þessar mundir.
Friðrik var ágætur í markinu en
heföi ef til vill átt að koma í veg
fyrir fyrra mark Tékka. ( vörninni
stóðu þeir Gunnar, Ágúst Már og
Loftur sig vel og á miðjunni áttu
Pétur Ormslev og Arnór einnig
þokkalegan dag. Pétur Pétursson
lék ágætlega í fyrri hálfleik en í
þeim síðari dalaði hann.
Hvers vegna unnu Islendingar
ekki leikinn fyrst allir stóðu sig
þokkalega? Allir leikmennirnir
stóðu sig þokkaiega, það er rétt
en það vantaði meiri samvinnu og
nákvæmni i leik liðsins. Það vant-
aði herslumuninn til þess að sókn-
arlotur liðsins gengju upp og upp-
skeran yrði mark.
„Betra en gegn írum“
— sagði Sigi Held landsliðsþjálfari
„ÞESSI leikur var betri en gegn I sem kostuðu okkur sigurinn,u
Irum. Það voru mistök f vöminni | sagði Sigi Held landsliðsþjálfari
eftir leikinn gegn Tékkum f gær-
kvöldi.
„Leiðinlegt að
þurfa að tapa“
„ÞAÐ var leiðinlegt að þurfa að
tapa þessum leik, við spiluðum
vel og áttu ágæt marktækifæri,"
sagði Ragnar Margeirsson.
„Mér fannst þessi leikur mun
betri en á móti Irum. Ég fann mig
ágætlega í þessari stöðu á miðj-
unni. Þessi staða útheimtir mikla
vinnu og er erfið. Leikaðferð Sigi
Held er góð að mínu mati og á
eftir að skila sér. Við þurfum bara
að taka mennina fyrr, Tékkarnir
fengu of mikin tíma með boltann
þó svo að þeir hafi ekki skapað
sér mörg marktækifæri. En það
er þetta eina mark sem skiptir
máli," sagði Rangar.
— Hvað er framundan hjá þér?
„Ég er núna í sumarfrfi og verð
hér heima fram í byrjun júlí. Þá fer
ég út til Belgíu og verð þar væntan-
lega næsta vetur og leik með
Waterschei í 2. deild. Keppnistíma-
bilið í Belgíu hefst 20 ágúst."
„Það eru fá lið í Evrópu sem
leika eins góðan bolta og Tékkar.
Við gerðum þrenn til fern mistök
og þeir nýttu sér tvenn þeirra og
skoruðu. Við fengum góð mark-
tækifæri sem ekki tókst að nýta
og því fór sem fór. Leikmenn töp-
uðu boltanum of fljótt í sókninni,
voru of bráðir oft á tíðum. Annars
börðust leikmenn vel og eiga hrós
skilið. Við verðum svo bara aö
læra af þessum mistökum og
reyna betur næst," sagði Sigi
Held.
Knattspyrna