Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Framkvæmdastjórn og þingflokkur Alþýðubandalagsins:
Akveða miðstj ómarfund
næstkomandi mánudag
Þar verður fjallað um málefni
Guðmundar J. Guðmundssonar
Framkvæmdastjóm og þing-
flokkur Alþýðubandalagsins
fundaði sameiginlega í gær-
kvöldi. A fundinum var sam-
þykkt tillaga þeirra Svavars
Gestssonar, formanns flokksins,
Kristínar A. Ólafsdóttur, vara-
formanns, Ragnars Araalds,
formmanns þingflokks og Ólafs
Ragnars Grímssonar formanns
framkvæmdastjóraar, þess efnis
að haldinn verði miðstjómar-
fundur á næstu dögum um
atburði síðustu vikna. Akveðið
hefur verið að fundurinn verði
næstkomandi mánudag.
Dagfan í áætl-
unarflug í gær
DAGFARI, Fokker-flugvélin sem varð fyrir árekstrinum í fyrra-
kvöld, er með öllu óskemmd og hóf áætlunarflug í gær.
Eins og áður hefur komið fram
stöðvaðist eins hreyfils flugvélin
á landgangi og hjólabúnaði Dag-
fara. Var strax hafist handa við
að athuga hvort einhveijar
skemmdir hefðu orðið á lendingar-
búnaðinum, en svo reyndist ekki
vera.
„Það er allt of snemmt að koma
með getgátur og ályktanir á þessu
stigi,“ sagði Haukur Hauksson,
varaflugmálastjóri, í samtali við
Morgunblaðið. „Unnið er að rann-
sókn málsins ásamt öðrum
óhöppum, m.a. slysinu sem varð
á Flúðum um daginn, og tekur
það sinn tfma. Þetta óhapp á
Reykjavíkurflugvelli í fyrrakvöld
er ekki þess eðlis að það muni
þurfa að vera langann tíma í rann-
sókn.
Á fundinum fóru fram ítarlegar
umræður um mál Guðmundar J.
Guðmundssonar og í þeim umræð-
um kom fram, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, ótvíræð
gagnrýni á þá undirskriftarsöfnun,
sem verið hefur í gangi meðal mið-
stjóniarmanna að undirlagi Kristín-
ar Á. Ólafsdóttur og fleiri.
Jafnvel er búist við að á mið-
stjómarfundinum næstkomandi
mánudagskvöld verði borin upp
ályktunartillaga um að Guðmundur
J. Guðmundsson segi af sér þing-
mennsku, en skiptar skoðanir eru
um hvort slík tillaga fengi meiri-
hluta á fundinum.
Ekki er búist við að undirskrifta-
listi sá sem gengið hefur meðal
miðstjómarmanna verði afhentur á
fundinum þar sem ákveðið var að
fara af stað með hann áður en
miðstjómarfundurinn var ákveðinn,
en þar muni vilji miðstjómarmanna
koma fram.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Trillustemmning frá Hjalteyri
Fréttaútsending CBS
í íslenska sjónvarpinu
Viðskipti Útgerðarfélags Skagfirðinga við Biisumer Werft:
Höfum ekki trú á að fjár-
hagslegt tjón hljótist af
— segir Marteinn Friðriksson stjórnarformaður
VEGNA MISTAKA starfsmanns
mælaborðs Landssímans f gær-
kvöldi mátti sjá að afloknum
útsendingum íslenska sjónvarps-
ins fréttaútsendingn frá CBS
stöðinni bandarísku, sem kom i
gegnum Skyggni. Stóð útsend-
ingin ekki nema í rúmar tiu
©
INNLENT
minútur, eða þar til starfsmaður
stöðvarinnar áttaði sig á mistök-
unum og leiðrétti þau.
Mistökin áttu sér stað þegar ver-
ið var að leita að bilun í móttöku-
kerfi Landssímans. Hafði verið
beðið í dálitla stund eftir að útsend-
ingum sjóvarpsins lauk til að hefja
leit að biluninni en þar á landinu
sem ekki hafði verið slökkt á sjón-
varpssendum var hægt að sjá
kaflann úr fréttaútsendingu CBS
stöðvarinnar. Fréttaútsendingin var
í svart hvítum litum og án hljóðs.
Stafaði það af því að amersíska
sjónvarpskerfið er öðruvisi en það
evrópska sem notað er hér á landi.
„VIÐ HÖFUM fengið i hendur staðfestingu á að þeir muni standa
við alla samninga við okkur hjá Útgerðarfélagi Skagfirðinga og
höfum ekki trú á að fjárhagslegt tjón muni hljótast af,“ sagði Mar-
teinn Friðriksson, sljóraarformaður útgerðarfélagsins, þegar hann
var inntur eftir þvi hvort erfiðleikar hjá þýsku skipasmiðastöðinni
Busumer Werft kæmu til með að seinka afhendingu á togurunum
Drangey, SK-1, og Skafta, SK-3, sem verið hafa þar í viðgerð undan-
farnar vikur. Óttast var um tíma að erfiðleikarnir kynnu að valda
því að skipin yrðu ekki afhent fyrr en seint og um siðir og því hafa
ófyrirsjánlegar afleiðingar fyrir Útgerðarfélag Skagfirðinga.
Marteinn sagði að reyndar hefði og sagði Marteinn að vonandi yrði
„Enn sem komið er höfum við
ekki orðið fyrir neinu áfalli, það
hefur verið unnið að mestu leyti í
samræmi við samningana og við
trúum því að svo verði áfram,“ sagði
Marteinn að lokum.
átt að afhenda Drangey á þriðju-
daginn en hún hefur verið úti í
Þýskalandi síðan í byrjun maí. Fór
fram lenging á skipinu jafnframt
því sem skipt var um allar hjálpar-
vindur og togvindur, og ný brú sett
á skipið. Skipið var sjósett í þessari
viku og því einungis eftir að láta
fara fram prófanir og stilla vélina
þess ekki langt að bíða að skipið
kæmi til landsins.
Marteinn gat þess ennfremur að
afhendingartími á Skafta væri ekki
fyrr en 1. ágúst og að enn sem
komið væri hefði ekki staðið á neinu
í sambandi við viðgerð á honum en
meiningin er að skipta um aðalvél,
gír og skrúfu.
Stjórnarfundur Byggðastofnunar á ísafirði:
Fellt að flytja Byggða-
stofnun til Akureyrar
STJÓRNARFUNDUR Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum á
ísafirði í gær að stofnunin skyldi ekki flutt til Akureyrar. Tveir
stjórnarmenn; Halldór Blöndal, Sjálfstæðisflokki, og Geir Gunnars-
son, Alþýðubandalagi, veittu tillögunni samþykki sitt og Kristján
Jónasson, forseti bæjarsljóraar á Isafirði, sat hjá. Eggert Haukdal
og Ólafur G. Einarsson, Sjálfstæðisflokki, og Olafur Þ. Þórðarson
og Stefán Guðmundsson, Framsóknarflokki, greiddu tillögunni mót-
atkvæði. Tillagan var flutt af Geir Gunnarssyni. Áður hafði hún
komið fram á Alþingi við afgreiðslu þess á lögum um Byggðastofn-
un en fékk ekki hljómgrunn. Var þá ákveðið að fela Hagvangi hf.
að annast athugun á kostum og göllum þess að flytja stofnunina og
var skýrslu um málið skilað í marsmánuði. Stjórn Byggðastofnunar
tók síðan afstöðu til málsins á fundi sínum í gær.
Geir Gunnarsson, alþingismaður og
flutningsmaður tillögunnar, sagði
að sér finndist slæmt að tiilagan
hefði ekki hlotið samþykki í ljósi
þess að um Byggðastofnun væri
að ræða. „Upphaflega flutti ég til-
Iöguna á þeim grundvelli að það
væri stefna stjómarinnar að flytja
stofnunina ef ekkert kæmi fram í
könnun Hagvangs sem mælti gegn
því að hún yrði flutt," sagði Geir
og bætti því við að ekkert væri
sérstaklega að finna í skýrslunni
sem mælti því í mót.
„Ég tók þetta mál upp á Alþingi
þegar Framkvæmdastofnun var
leyst upp og lagði til að hún yrði
staðsett úti á landi, og valdi Akur-
eyri, enda er það langstærsti
þéttbýlislqaminn utan
Stór-Reykjavíkursvæðisins,“ sagði
Halldór Blöndal, alþingismaður, í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins. Sagði hann að þessu hefði
ekki verið tekið illa til að byija með
og að skýrsla Hagvangs sýndi að
engir tæknilegir erfíðleikar yrðu á
flutningi, þetta væri spuming um
vilja og annað ekki.
Stefán Guðmundsson, stjómar-
formaður Byggðastofnunar, sagði
að vissulega hefði verið gott fyrir
Akureyringa að fá Byggðastofnun
þangað norður. „Það verður hins
vegar að hugsa um landið allt og
því tel ég best að Byggðastofnun
verði áfram í Reykjavík," sagði
Stefán.
Ólafur G. Einarsson, alþingis-
maður, sagði að hann teldi óráðlegt
að Byggðastofnun yrði flutt vegna
þess að það væru margar stjómun-
arstofnanir í Reykjavík sem nauð-
synlegt væri að hafa gott samband
við, en hann taldi flutning út á land
torvelda samskipti við þær. „Þá er
mér einnig kunnugt um að það
starfslið sem er hjá stofnuninni
myndi ekki flytjast með henni norð-
ur og um leið tapaðist mikil reynsla,
og kostnaður við að þjálfa upp nýtt
starfslið yrði mikill. Hins vegar sé
ég kostina á því fyrir Akureyringa
að fá stofnunina, en það er hins
vegar þekkt reynsla erlendis frá,
til dæmis Svíþjóð, að það að flytja
stjómstofnanir út á land er óhag-
kvæmt,“ sagði Ólafúr G. Einarsson
að lokum.
Sjá bls. 38.
Viðbrögð bæjarfull-
trúa á Akureyri.
Hafísinn:
Opin sigl-
ingaleið
fyrirHom
HAFÍSINN uti fyrir Norðvestur-
landi hafði í gær færst aðeins
sunnar í Húnaflóa frá deginum
áður, en var óbreyttur að öðru
leyti, samkvæmt upplýsingum
frá Landhelgisgæslunni.
ísspöngin, sem lokaði siglinga-
leiðinni á mánudag, hörfaði frá
landi á þriðjudag og íshrönglið, sem
landfast var við Trékyllisvík og
Norðurfjörð var þá að mestu horfið.
Siglingaleið fyrir Hom hefur því
verið fær frá því á þriðjudag. Fjór-
ir bátar fóra í gegnum ísinn í
fyrrinótt og tveir togarar fóra
venjulega siglingaleið vestur um,
en þar er töluvert þéttur ís og sein-
farinn, samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni.
Flugrirkjadeilan:
~~j* “ "
Arangurslaus
sáttafundur
SÁTTAFUNDUR í deilu flug-
virkja og Arnarflugs stóð frá
hádegi í gær og fram undir mið-
nætti án árangurs. Nýr fundur í
deilunni var boðaður klukkan
9.00 árdegis í dag.
Að sögn Odds Pálssonar, for-
manns félags flugvirkja, miðaði lítið
í samkomulagsátt, en deilan stend-
ur aðallega um afturvirkni samn-
inganna. Flugvirkjar hjá Amarflugi
hafa boðað verkfall frá miðnætti í
kvöld hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma.