Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 3
98ei IJUt .01 íUJOAaUTMMn .eiGAJaHUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
3
Rauði krossinn:
Islendingnr gerir
áætlanir um mat-
vælaaðstoð til Súdan
SIGRÍÐUR Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, er nýlega
farin til Súdan á vegum Rauða
krossins, þar sem hún mun kynna
sér næringarástand og þörfina á
matvælaaðstoð.
Sigríður mun hafa aðsetur í Darf-
ur-héraði, en ferðast víða um og
dvelur í landinu í fjóra mánuði til
að byija með. í kjölfar kannana
sinna mun Sigríður gera áætlanir
um matvælaaðstoð við Súdani, að
sögn Jakobínu Þórðardóttur hjá
Rauða krossi íslands. Fimmtíu
manns vinna nú í Súdan á vegum
alþjóðadeildar Rauða krossins og
er Sigríður Guðmundsdóttir eini
íslendingurinn í þeim hópi.
Hún hefur áður sinnt hjálpar- ,
starfi á vegum Rauða krossins,
dvaldi í Thailandi í sex mánuði árið
1980, þar sem hún vann á skurð-
spítala sem Rauði krossinn rekur í
flóttamannabúðum við landamærí
Thailands og Kamputseu. í Sómalfu
vann Sigríður í hálft ár við aðstoð
vegna hungurs og í Eþíópíu var hún
Sigrfður Guðmundsdóttir, sem
nú er í Súdan
í fímmtán mánuði á árunum 1984-
1985, einnig við aðstoð vegna hung-
urs.
Sovéskt hlustunarduf 1 á Ströndum
SKIPVERJAR á varðskipinu Óðni fundu fyrir skömmu torkennilegt dufl, sem rekið hafði á land
í Reykjafirði nyrðri á Ströndum. Duflið vó 1,5 tonn og var þyrla frá vamarliðinu send norður á
miðvikudag til að aðstoða varðskipsmenn við að koma duflinu um borð. Með i förinni var Gylfi
Geirsson hjá Landhelgisgæslunni og sagði hann í samtali við Morgunblaðið að hér væri um sov-
éskt hlustunardufl, að ræða en nokkur sömu tegundar hafa fundist áður hér við land. Duflið
verður flutt suður á Keflavíkurflugvöll til nánari rannsóknar. Meðfylgandi mynd var tekin í fjörunni
í Reykjafirði þegar varðskipsmenn af óðni voru að athuga duflið.
Embætti bæjar-
stjóra Njarðvíkur:
Viðræður
við séra Odd
Einarsson
Samþykkt var á fundi bæjar-
stjómar Njarðvíkur í fyrrakvöld
að fela bæjarráði viðræður við
séra Odd Einarsson i embætti
bæjarstjóra í Njarðvík, sem laust
er nú.
Að samþykktinni stóðu þrír full-
trúar Alþýðuflokks auk eins fulltrúa
Framsóknarflokks, en þrír fulltrúar
Sjálfstæðisflokks sátu hjá. Fjórir
sóttu um embættið. Auk Odds voru
það Jakob Sigurðsson, Njarðvík,
Yaldís Tómasdóttir, Njarðvík og
Ólafur Öm Ólafsson, Reylqavík.
Oddur Einarsson gegnir nú emb-
ætti prests á Skagaströnd auk þess
sem hann hefur verið skrifstofu-
stjóri hjá kaupstaðnum.
Fráfarandi bæjarstjóri, Albert
Sanders, lét af embættinu 15. júní
sl., en bæjarritari Njarðvíkur, Sig-
urður G. Ólafsson, sinnir störfum
bæjarstjóra þar til nýr bæjarstjóri
hefur verið ráðinn.
Húsavík:
Seiði flutt
A
til Irlands
Húsavik
KLAKSTÖÐIN HF. er nýtt fyrir-
tæki sem hóf starfsemi sína hér
á Húsavík síðastliðið haust, með
eldi á sumargönguseiðum, og
hefur reksturinn gengið vei.
Fyrir nokkru voru 39 þúsund
seiði flutt úr stöðinni í flotkví í
Húsavíkurhöfn til að venja þau við
sjávarseltu. Sunnudaginn 6. júlí sl.
kom til Húsavíkur sérhannað seiða-
flutningaskip, Hedda Gabler, og tók
hjá Klakstöðinni 39 þúsund sjó-
gönguseiði sem fara eiga til írlands.
Klakstöðin er staðsett rétt sunnan
Traðargerðis í útjaðri bæjarins.
— Fréttaritari
NÝTTSÍMANÚMER
69-11-00
'ned dol
Það borgar sig að
byrja grillveisluna
í SS-búðunum
I SS-búðunum er nú óvenjulega fjölbreytt úrval af
nýju, gómsætu kjöti og allra handa grillvörum.
Þar færðu fyrsta flokks nautakjöt, lungamjúkt kjöt af
ungnautum, svínakjöt, allar tegundir af lambakjöti -
m.a. meyrt, rauðvínslegið og jurtakryddað. Að
ógleymdum pylsunum okkar sem eru sennilega
vinsælasti grillmatur á Islandi.
SS-búðunum, færðu líka allt meðlætið;
grillolíu, allar tegundir af kryddi, sósur, nýtt
úrvals grænmeti og hvaðeina sem uppskriftin
krefst. Svo og kol, uppkveikilög og öll
nauðsynleg áhöld.
^amooan
fglÍPW®'
SYITEDE
MAIIJJR.
MUSTARD WITH WHITÍ Tlj
|j!jQHPRÉPAR£EAUVíNE
SS-búðirnar eru í «r
Austurveri, Glæsibæ, m
Hafnarstræti, við Hlemm,
Skólavörðustíg og á Akranesi.
kM&TAtOWQ UU ^1
—y-« m **c r* mnww w.<rrj:
$02 454g P0ID3
^ÖíT-ŒOf. ffiMK AoNiTHcE.