Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 3
98ei IJUt .01 íUJOAaUTMMn .eiGAJaHUOHOM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 3 Rauði krossinn: Islendingnr gerir áætlanir um mat- vælaaðstoð til Súdan SIGRÍÐUR Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, er nýlega farin til Súdan á vegum Rauða krossins, þar sem hún mun kynna sér næringarástand og þörfina á matvælaaðstoð. Sigríður mun hafa aðsetur í Darf- ur-héraði, en ferðast víða um og dvelur í landinu í fjóra mánuði til að byija með. í kjölfar kannana sinna mun Sigríður gera áætlanir um matvælaaðstoð við Súdani, að sögn Jakobínu Þórðardóttur hjá Rauða krossi íslands. Fimmtíu manns vinna nú í Súdan á vegum alþjóðadeildar Rauða krossins og er Sigríður Guðmundsdóttir eini íslendingurinn í þeim hópi. Hún hefur áður sinnt hjálpar- , starfi á vegum Rauða krossins, dvaldi í Thailandi í sex mánuði árið 1980, þar sem hún vann á skurð- spítala sem Rauði krossinn rekur í flóttamannabúðum við landamærí Thailands og Kamputseu. í Sómalfu vann Sigríður í hálft ár við aðstoð vegna hungurs og í Eþíópíu var hún Sigrfður Guðmundsdóttir, sem nú er í Súdan í fímmtán mánuði á árunum 1984- 1985, einnig við aðstoð vegna hung- urs. Sovéskt hlustunarduf 1 á Ströndum SKIPVERJAR á varðskipinu Óðni fundu fyrir skömmu torkennilegt dufl, sem rekið hafði á land í Reykjafirði nyrðri á Ströndum. Duflið vó 1,5 tonn og var þyrla frá vamarliðinu send norður á miðvikudag til að aðstoða varðskipsmenn við að koma duflinu um borð. Með i förinni var Gylfi Geirsson hjá Landhelgisgæslunni og sagði hann í samtali við Morgunblaðið að hér væri um sov- éskt hlustunardufl, að ræða en nokkur sömu tegundar hafa fundist áður hér við land. Duflið verður flutt suður á Keflavíkurflugvöll til nánari rannsóknar. Meðfylgandi mynd var tekin í fjörunni í Reykjafirði þegar varðskipsmenn af óðni voru að athuga duflið. Embætti bæjar- stjóra Njarðvíkur: Viðræður við séra Odd Einarsson Samþykkt var á fundi bæjar- stjómar Njarðvíkur í fyrrakvöld að fela bæjarráði viðræður við séra Odd Einarsson i embætti bæjarstjóra í Njarðvík, sem laust er nú. Að samþykktinni stóðu þrír full- trúar Alþýðuflokks auk eins fulltrúa Framsóknarflokks, en þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá. Fjórir sóttu um embættið. Auk Odds voru það Jakob Sigurðsson, Njarðvík, Yaldís Tómasdóttir, Njarðvík og Ólafur Öm Ólafsson, Reylqavík. Oddur Einarsson gegnir nú emb- ætti prests á Skagaströnd auk þess sem hann hefur verið skrifstofu- stjóri hjá kaupstaðnum. Fráfarandi bæjarstjóri, Albert Sanders, lét af embættinu 15. júní sl., en bæjarritari Njarðvíkur, Sig- urður G. Ólafsson, sinnir störfum bæjarstjóra þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn. Húsavík: Seiði flutt A til Irlands Húsavik KLAKSTÖÐIN HF. er nýtt fyrir- tæki sem hóf starfsemi sína hér á Húsavík síðastliðið haust, með eldi á sumargönguseiðum, og hefur reksturinn gengið vei. Fyrir nokkru voru 39 þúsund seiði flutt úr stöðinni í flotkví í Húsavíkurhöfn til að venja þau við sjávarseltu. Sunnudaginn 6. júlí sl. kom til Húsavíkur sérhannað seiða- flutningaskip, Hedda Gabler, og tók hjá Klakstöðinni 39 þúsund sjó- gönguseiði sem fara eiga til írlands. Klakstöðin er staðsett rétt sunnan Traðargerðis í útjaðri bæjarins. — Fréttaritari NÝTTSÍMANÚMER 69-11-00 'ned dol Það borgar sig að byrja grillveisluna í SS-búðunum I SS-búðunum er nú óvenjulega fjölbreytt úrval af nýju, gómsætu kjöti og allra handa grillvörum. Þar færðu fyrsta flokks nautakjöt, lungamjúkt kjöt af ungnautum, svínakjöt, allar tegundir af lambakjöti - m.a. meyrt, rauðvínslegið og jurtakryddað. Að ógleymdum pylsunum okkar sem eru sennilega vinsælasti grillmatur á Islandi. SS-búðunum, færðu líka allt meðlætið; grillolíu, allar tegundir af kryddi, sósur, nýtt úrvals grænmeti og hvaðeina sem uppskriftin krefst. Svo og kol, uppkveikilög og öll nauðsynleg áhöld. ^amooan fglÍPW®' SYITEDE MAIIJJR. MUSTARD WITH WHITÍ Tlj |j!jQHPRÉPAR£EAUVíNE SS-búðirnar eru í «r Austurveri, Glæsibæ, m Hafnarstræti, við Hlemm, Skólavörðustíg og á Akranesi. kM&TAtOWQ UU ^1 —y-« m **c r* mnww w.<rrj: $02 454g P0ID3 ^ÖíT-ŒOf. ffiMK AoNiTHcE.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.