Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Fullkomin miðunartæki gervitungls:
Fundu týnda bauju
í porti Gæslunnar
BAUJA, sem var hlekkur í hafrannsóknum á vegum háskólans í
Kiel í Þýskalandi, fannst nýverið í porti Landhelgisgæslunnar í
Ánanaustum eftir að gervitungl hafði miðað út staðsetningu henn-
ar. Baujan hafði losnað úr keðju rannsóknarbauja, sem fluttu
upplýsingar um gervitungl til hafrannsóknastofnunar háskólans,
og var henni komið fyrir i porti Landhelgisgæslunnar, eftir að
varðskipið Týr hafði fundið hana á reki í hafinu suð-austur af
landinu.
Það var í lok apríl sem varð-
skipið fann baujuna á reki og var
hún þá tekin um borð. Engar
áletranir voru á baujunni sem
gáfu til kynna hvaðan hún var
komin eða hvaða tilgangi hún
þjónaði. Baujan mun hafa sent
regluleg merki til gervitunglsins
eftir að hún var komin um borð
í varðskipið, en erfíðlega gekk að
miða út staðsetningu hennar þar
sem hún var um borð í varðskip-
inu í nokkrar vikur eftir að hún
fannst. Baujunni var síðan komið
fyrir í porti LandhelgisgæSlunnar
í Ánanaustum og innan tveggja
daga hafði gervitunglið miðað út
staðsetningu hennar.
Svend-Aage Malmberg, haf-
fræðingur hjá Hafrannsóknar-
stofnun, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að gamall kennari
sinn frá háskólanum í Kiel hefði
sent sér bréf og beðið sig um að
grennslast fyrir um týndu bauj-
una. Með bréfínu fylgdi nákvæmt
kort frá gervitunglinu, sem stað-
setti baujuna í fjörunni við
Reykjavíkurhöfn. Það má því
þakka það fullkominni miðunar-
tækni gervitunglsins, að baujan
kemst aftur til réttra eigenda og
getur væntanlega haldið áfram
hlutverki sínu í þágu vísindanna.
Kort frá gervitunglinu sem staðsetti baujuna í fjörunni við ReykjavRurhöfn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Port Landhelgisgæslunnar séð úr lofti, en þar miðaði gervitungl-
ið út staðsetningu týndu baujunnar.
■ ■' * / m. mm
' í H '
/S - r • I
9 %;Á. •: ■
y><t> ■Sw . i
T m % % » ' ‘‘ 1
Fljúgum líklegast daglega
til íslands ef leyfið fæst
— segir Michael Bishop forstjóri British Midiand
„VIÐ MUNUM að ölium líkindum fljúga daglega til Keflavíkur allan
ársins hring ef leyfið fæst,“ sagði Michael Bishop forstjóri flug-
félagsins British Midland í samtali við Morgunblaðið í gær, en það
hefur nýlega sótt um leyfi hjá breskum flugyfirvöldum til að taka
við einkaleyfi British Airways á íslandsflugi frá Heathrow.
Bishop sagði ennfremur að Flug- hefði áhuga á hlut í þessum mark-
leiðir hefðu staðið einar að þessum
markaði í rúman áratug, eða síðan
British Airways lagði niður íslands-
flug sitt árið 1974. Þessi markaður
hefði verið nógu stór fyrir tvö flug-
félög á sínum tíma og ætti því að
vera það núna. British Midland
aði og ætlunin væri að bjóða upp
á hentugri brottfarartíma og brott-
farartíðni en Flugleiðir. Félagið
væri með daglegt flug til Glasgow
frá Heathrow og yrði íslandsflugið
í beinu framhaldi af því.
Bishop vildi ekki á þessu stigi
málsins segja til um hvort að ætlun-
in væri að bjóða upp á lægri
fluggjöld en Flugleiðir en taldi það
alls ekki útilokað.
Forsendan fyrir þessari umsókn
British Midland er að Breska flug-
málastofnunin hefur undanfarið
boðist til þess að afturkalla einka-
leyfí flugfélaga á flugleiðum frá
flugvöllunum Heathrow, Gatwick
og Stansted ef þau eru ekki notuð,
og veita þau öðrum flugfélögum í
staðinn sem bjóðast til að nýta þau.
Richard Wright, blaðafulltrúi
Athugasemd vegna viðtals
um könnun Verðlagsstofnunar
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi athugasemd frá Friðrik
G. Friðrikssyni, Íslenska-Erlenda
verzlunarféiaginu:
„Undirritaður gerði athuga-
semdir við uppkast blaðamanns
Morgunblaðsins á viðtali sem birt-
ist í gær, en þær leiðréttingar
komust ekki til skila.
1. Uppiýsingar könnunarinnar
eru að hluta til úreltar þar eð
tollálag sumra vörutegund-
anna var lækkað verulega eftir
kjarasamningana í vor, sem
þýðir að verð er lægra en könn-
unin gefur tii kynna.
2. Neytendur geta borið skertan
hlut frá borði þegar umboðs-
iaun eru f innkaupsverði, en
það fer eftir ýmsu.
Umboðslaun eru og hafa alltaf
verið álagning innflytjenda,
sem tekin eru erlendis.
Án umboðslauna hefði ekki
verið hægt að flytja inn Qölda
vörutegunda, sem voru háðar
óraunhæfri hámarksálagningu.
Það er endanlegt vöruverð til
neytandans sem skiptir öllu máli,
sama hvort álagning er tekin hér-
lendis eða erlendis. Þegar um
tollfijálsar vörur er að ræða skipt-
ir þetta engu máli. Þegar um
tollaðar vörur er að ræða er það
á valdi innflytjandans hvort hann
lætur tollinn af umboðslaunum
koma fram í vöruverðinu eða ekki.
Hörð samkeppni á þeim vöruteg-
undum, sem við flytjum inn leyfir
ekkert aukaálag og því höfum við
tekið þann kostinn að hækka ekki
innlenda álagningarprósentu,
heldur öllu fremur höfum við
lækkað prósentutöluna til þess
að geta boðið neytendum lægra
vöruverð á samkeppnishæfum
grundvelli.
Það er mikill misskilningur að
leggja umboðslaun og ágóða inn-
flytjenda að jöfnu. Umboðslaun-
um okkar er varið í að greiða
erlenda vörureikninga og fylgist
gjaldeyriseftirlitið með því.“
Aths. ritstjóra
Það er rétt að leiðréttingar
Friðriks G. Friðrikssonar á upp-
kasti blaðamanns komust ekki til
skila. Ástæðan fyrir því var tölvu-
tæknilegs eðlis og skal ekki reynt
að útskýra það frekar hér. Morg-
unblaðið biður Friðrik G. Friðriks-
son velvirðingar á þessum
mistökum.
Bresku flugmálastofnunarinnar,
sagði við Morgunblaðið að umsókn
British Midland væri dagsett þann
1. júlí sl. Samkvæmt breskum regl-
um hefur British Airways nú þijár
vikur til þess að mótmæla því að
leyfið verði tekið af þeim, eða til
22. júlí nk. Ef sú yrði raunin yrði
málið tekið fyrir opinberlega, sem
gæti tekið all langan tíma, en ef
engin mótmæli bærust væri ekkert
lejrfísveitingunni til fyrirstöðu.
Hjá British Airways í Lundúnum
fengust þær upplýsingar að ekki
hefði enn verið tekin afstaða til
þessa máls, enn væru tvær vikur
eftir af frestinum sem þeir hefðu
til umráða. Þó var talið ólíklegt að
British Airways mundi mótmæla
sviptingu einkaleyfisins þar sem
ekki væru hjá félaginu uppi neinar
áætlanir um að hefja aftur flug til
íslands.
„Þetta kemur okkur ekkert á
óvart," sagði Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða. „Við erum við-
búnir því hvenær sem er að erlend
flugfélög hefji flug hingað og ótt-
umst ekkert að fá samkeppnisaðila
á þessari flugleið.
Ólafur Sigfússon
Maður-
inn sem
drukknaði
Blönduósi.
MAÐURINN, sem drukknaði í
Mjóavatni á Áuðkúluheiði um helg-
ina, hét Ólafur Sigfússon frá
Forsæludal í Vatnsdal í Austur-
Húnavatnssýslu. Hann var 66 ára.
Ólafur heitinn fæddist í Forsæludal
og bjó þar lengst af en fluttist á
Blönduós sl. haust. Úm árabil
gegndi Ólafur starfi ráðsmanns við
Héraðshæli Austur-Húnvetninga.
Ólafur er þekktur fyrir ljóð sín, sem
birtust víða. Hann var einhleypur.
J.Sig.
Ný sljórn skipuð
Menntamálaráðherra skipaði á
þriðjudag stjórn Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands til næstu fjögurra
ára.
í fréttatilkynningu ráðuneytisins
segir að í stjóminni eigi sæti: Jón
Þórarinsson tónskáld, tilnefndur af
Reykjavíkurborg, Hörður Sigur-
gestsson forstjóri, tilnefndur af
íjármálaráðuneytinu, Elfa Björk
Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri,
tilnefnd af Ríkisútvarpinu, Haukur
Flosi Hannesson tilnefndur af
starfsmannafélagi_ Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og Ólafur B. Thors
framkvæmdastjóri sem var skipað-
ur án tilnefningar. Ólafur er jafn-
framt formaður stjómarinnar.