Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
og sala píputóbaks um 21,67%.
Upphaflega var skylt að merkja
alla vindlingapakka viðvöruna-
rmerkjum landlæknis frá áramótum
1984-85, en síðan var gefinn frest-
ur til miðs árs í fyrra. Ljóst er að
einhver samdráttur hefur orðið á
sölunni, eftir að skylt varð að
merkja pakkana, en Þór sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
erfitt væri að segja til um það hvort
rekja mætti samdráttinn til merk-
inganna, eða annarra hluta, svo sem
kynningarstarfsemi og áróðri gegn
reykingum.
Auglýsingar
22480
Afgreiðsla
83033
Viðvörunarmerkingar landlæknis
hafa verið á vindlingapökkum í rúmt ár:
Salan hefur dregist
saman um 3,03 prósent
Sala píputóbaks hefur á sama tíma
dregist saman um 22,58%
RUMT ár er nú liðið frá því að skylt varð að merkja alla sígarettu-
pakka viðvörunarmiðum frá landlæknisembættinu, og frá því 1. júlí
í fyrra til 1. júlí í ár hefur sala sígarettna frá ÁTVR dregist saman
um 3,03%, samkvæmt upplýsingum Þórs Oddgeirssonar skrifstofu-
stjóra ÁTVR. Sala píputóbaks á sama tíma hefur hins vegar dregist
saman um 22,58%.
Allt árið í fyrra dróst vindlinga-
sala hjá ÁTVR saman um 2,76%
SPLUNKUNÝ OG SPRELLFJÖRUG
- FJÓRTÁN FJÖRKÁLFAR Á FLEYGIFERÐ -
Höfn Hornafirði
föstudaginn 11. júlí kl. 21.00
í Valaskjálf Egilsstöðum
laugardaginn 12. júlíkl. 21.00
Stórstjarnan Diddú, Raggi, Maggi, Bessi, Hemmi, íslands-
meistararnir í frjálsum dansi, Svörtu ekkjurnar og hljómsveitin
hressa fara á kostum. Það er mál manna að Sumargleðin
hafi aldrei verið eins fjölbreytt og f risk í 16 ára sambúð við
þjóðina.
Sex stunda stanslaust stuð
Ath ■ m Aðeins
þessi eina skemmtun
Sumargleðinnar á Aust-
fjörðum. Sætaferðirtil
Egilsstaða frá Norðfirði,
Eskifirði, Reyðarfirði,
Seyðisfirði og Fá-
skrúðsfirði
Kabarett-stemmning, söngur,
dans, grín og svellandi Sumar-
gleði
Hittumst hress í
hörkufjöri. Já, nú
verður lífið tekið
með stæl
Helgina 18. og 19. júlí verður Sumargleðin í Sjallanum, Akureyri
BCCAÐWAT
Drottning danstónlistarinnar
GLORIA
Margar heimsfrægar söngkonur hafa verið kallaðar
diskódrottningar, t.d. Donna Summer, Grace Jones
og Tina Turner, en aðeins ein hefur raunverulega ver-
ið krýnd af alþjóðasamtökum plötusnúða: Gloria
Gaynor.
Hún hefur unnið Grammy-verðlaun, hennar er að góðu
getið í ekki ómerkari bók en „The World Book En-
cyclopedia" og lagið hennar I Will Survive, sem sumir
kalla nýjan þjóðsöng fyrir allan heiminn, seldist í 5
milljónum eintaka á fyrsta misserinu eftir að það kom
út. Síðar var það gefið út á spænsku, frönsku, arab-
ísku, japönsku og fleiri tungumálum. Platan þaut upp
vinsældalista um víða veröld en á meðan var Gloria
gerð að heiðursborgara Zululands og skömmu síðar
fór hún í hljómleikaferð um Austur-Evrópu.
Hver þekkir ekki lög Gloriu eins og:
Honey Bee, I am What I am, Never Can Say Good-
bye og Reach Out.
Breiðskífa hennar, Never Can Say Goodbye, er t.d.
fyrsta hljómplata sinnar tegundar í heiminum. Hún
er hlaðin líflegri diskómúsík til að dansa eftir og
hvert lag fellur umsvifalaust inn í það næsta, þannig
að hvergi er hlé á plötunni, hvergi dauður punktur.
Reyndar var svipuð aðferð notuð við gerð plötu
Bítlanna, Seargent Peppers Lonely Hearts Club
Band, en sú plata var ekki „stanslaust fjör" frá upp-
hafi til enda.
MIÐASALA OG
BORÐAPANTANIR
í SÍMA 77500.