Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 19

Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 19 mynt, eða með erlendum greiðslu- kortum. Þessi fjöldi gæti orðið margfaldur og dreifing ferðamanna mun auðveldari ef unnt væri að lækka til muna verð á þessari þjón- ustu. Verð á bflaleigubílum verður enn um sinnt nokkuð hátt hér sökum mikils viðhaldskostnaðar vegna vegakerfisins, þó það standi enn til bóta. Einnig er markaður fyrir not- aða leigubíla takmarkaður. Þrátt fyrir þetta verður að ætla að hér mætti ná miklum árangri með þess- ari lagfæringu í skattlagningu á bflaleigubfla og þjónustu. Mörg dæmi eru um skattaaðlag- anir af þessu tagi erlendis og nægir að benda á Danmörk og Austurríki í þessu sambandi. Hér er um mikið hagsmunamál að ræða, fyrst og fremst fyrir þá er að ferðaútvegi standa utan höf- uðborgarinnar. Mér sýnist því að hér sé um að ræða mikið hagsmuna- mál fyrir frammámenn í landshluta- samtökum ferðaáhugamanna. Ættu þeir að hvetja þingmenn sína, hvar í flokki sem þeir eru, að standa að og styðja framgang breytinga á skattlagningu bflaleiguþjónustu í „útflutningsskyni". í lok er rétt að geta þess að bfla- leigur falla undir dómsmálaráðu- neyti, en eðlilegra hlýtur að teljast að þær féllu undir það ráðuneyti sem fer með samgöngu- og ferða- mál, þ.e. samgönguráðuneytið. Mætti væntanlega leiðrétta þennan þátt í leiðinni. Höfundur er fnunkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða. Fari ég einn míns liðs til jarðar- farar vel ég mér sæti aftast og losna þá við að heyra ræðu prests. Iiður mér þá miklu skár og nýt stundar- innar betur. Mæli ég eindregið með slfku við menn á mínum aldri sem famir eru að heyra í hófi. Víkjum aftur að samtali við David Amason sem ég las mér til mikillar ánægju. Langafi hans, Baldvin — öðm nafni kafteinn And- erson — minnir mig á hann Brand á Homi sveitunga minn. Ungur réðst hann útgerðarmaður til Ketils í Kotvogi. Brandur trúði Suður- nesjamönnum fyrir því að sextíu útigangssauði ætti hann á Goða- landi. Brandur lifði til hárrar elli og eignaðist aldrei sauð á langri ævi. Margrét Björgvinsdóttir Bestu þakkir fyrir gott spjall. Næst er þú vitnar í Biblíu hafðu hana við hönd og flettu upp. Þar má ei neinu skeika. í tilvitnun þinni vom tvær meinlegar villur ef treysta má ein- taki mínu. Höfundur er fyrrverandi skóla- stjóri Gagnfræðaskóla Austur- bæjar. 69-11-00 Auglýsingar22480 Afgreiðsla 83033 Dansað og sungið af innlifun. Sumarhátíð á Hólaborg Þessa dagana gera börn á leikskólum og dagheimilum á höfuð- borgarsvæðinu sér dagamun af tilefni sumars og sólar. Þessar myndir voru teknar á mánudaginn á Sumarhátíð barnanna á leik- skólanum Hólaborg í Breiðholti. Þar var glatt á hjalla, farið í skrúðgöngu, leiki og grillaðar pylsur. Hátíðahöld af þessu tagi eru orðin árlegur viðburður víða og börnin byrja strax á vorin að vinna að undirbúningi. Síðan er sætt lagi þegar sólin skin_ Morgunblaðið/Bjami Veifað til ljósmyndarans á meðan beðið er eftir veitingum. Vitnisburður Vernharðs í Holti um Hey-Taddana okkar Ný, hagkvæmari tækni við heyverkun. Vernharður Sigurgrímsson, Holti II, Stokkseyrarhreppi, segir: „Ég notaði Hey-Tadda (heyrúllupoka) í fyrrasumar og tel þetta «, mjög hagkvæma heyverkunaraðferð. Hún er alls ekki dýrari en aðrar aðferðir, t.d. súgþurrkun en heyið verkast mun betur. Eitt Ö sinn hirti ég hólfþurrt hey af sama teig í Hey-Tadda og í súg- þurrkun. Pokaheyið reyndist lystugra, kýrnar ótu það langt- um betur. Besta verkun næst, fái heyið að þorna einn dag." Hey-Taddarnir öruggir. „í fyrra tók ég 200 Hey-Tadda frá Plastprenti. Aðeins einn Taddi ónýttist, fyrir slysni. Ég reyndi einnig útlenda poka, þynnri gerð, en það komu myglublettir við saumana. Taddarnir eru alveg lausir við slíkt. Við lofttæmum alla pokana með ryksugu, það auðveldar lokun og flýtir fyrir verkun." Taddl er fornt heifi á poka. Plastprent vill nú gæða þetta ágæta orð lífi að nýju. Stórminnkuð áhrif ótíðar. „Ég hef ekki pokað mjög blautt gras en tilraun sýndi aði þótt grænfóður væri pokað blautt í Hey-Tadda. Pokarnir geta staðið úti fram eftir vetri, varðir vindi og skepnum. Það sparar hlöðurými. Hjá mér stóðu úti 20 Taddar með þurrkuðu byggi fram að jólum. Ég er þess fullviss að pokun er verkunaraðferð framtíðarinnar. Hey þarf aldrei að hrekjast. Þurrhey má poka á svipstundu, byrji að rigna. Ég geri ráð fyrir að pakka í 400 Hey-Tadda í Sölustaðir: Kaupfélög um lana allt. sumar. ^ Plastprent hf. Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf. Höfðabakka 9. Sími 685600.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.